Alþýðublaðið - 17.12.1983, Qupperneq 10
10.
Laugardagur 17. desember 1983
KOPAVOGUR:_________
Kveikt á jólatré
kl. 16 í dag
HAFNARFJÖRÐUR:_____
Kveikt á jóla-
trénu á laugardag
Laugardaginn 17. des. ki. 16.00
verður kveikt á jólatrénu í Kópa-
vogi.
Dr. Esbjörn Rosenblad sendiráðu-
nautur mun afhenda tréð sem er
gjöf frá vinabæ Kópavogs í Sví-
þjóð, Norrköping.
Björn Ólafsson forseti bæjarstjórn-
ar mun veita trénu viðtöku fyrir
hönd bæjarbúa.
Þá mun Skólahljómsveit Kópavogs
leika og Samkór Kópavogs syngur
nokkur lög.
Jólasveinar koma í heimsókn.
Jólatrénu hefur verið valinn staður
á Borgarholtinu, þar sem það hefur
verið nokkur undanfarið ár.
Börnin í Reykjavík fengu jólasvein-
ana í heimsókn á dögunum þegar
kveikt var ájólatrénu á Austurvelli.
Þá var þessi mynd tekin. Nú fá
börnin í Hafnarfirði og Kópavogi
vonandi að sjá þá fallgarpa í dag.....
mynd: Jim Smart
Frederiksberg, vinabær Hafnar-
fjarðar í Danmörku, hefur fyrir
hver jól í rúman aldarfjóröung
sent Hafnfirðingum veglegt jóla-
tré.
Jólatrénu frá Frederiksberg hefur
verið komið upp á Thorsplani við
Strandgötu og Ijós verða kveikt á
því n.k. laugardag, þann 17. des-
ember, kl. 16.00.
Við athöfnina leikur Lúðrasveit
Hafnarfjarðar og Karlakórinn
Þrestir syngur jólalög.
Sendifulltrúi Danmerkur, frú
Kersti Marcus, afhendir tréð og
ung stúlka af dönskum og íslensk-
um ættum tendrar Ijósin á jóla-
trénu.
Einar I. Halldórsson, bæjarstjóri,
veitir trénu viðtöku fyrir hönd
Hafnfirðinga.
Jólasveinar verða á ferð um bæ-
inn á laugardaginn frá kl. 13.00 og
enda ferð sína við jólatréð á
Thorsplani um kl. 16.20, þar sem
þeir hoppa og dansa kringum tréð
með börnum og fullorðnum.
VISA
JAFNTINNANIANDS SEM UTAN!
Nú eru VISA-kortin gild í
innlendum viðskiptum.
Eitt og sama kortið er
gjaldgengt hjá 4 milljónum
verslunar- og þjónustu-
fyrirtækjum um allan heim.
Úttektir í reiðufé
Unnt er, gegn framvísun
VISA-kortsins, að fá sérprentað
tékkaeyðublað til úttektcir á
reiðufé af tékkareikningi
korthafa í öllum VISA-bönkum
og sparisjóðum hér innanlands.
JÓLAUMFERÐ:
Laugavegi lokað
í dag og á
Þorláksmennu
Laugavegi verður lokað fyrir um-
ferð annarra ökutækja en strætis-
vaigna laugardaginn 17. des. kl.
13—22 og á Þorláksmennu kl.
13—22, þó með þeirri undantekn-
ingu að öll umferð er heimiluö
þessa tvo daga á tímabilinu miili kl.
19 og 20 vegna vörudreifingar í
verslanir.
Sömu undanþágu og strætis-
vagnar njóta leigubifreiðar sem
pantaðar hafa verið að húsum við
Laugaveg, enda hafi þeir uppi laus-
merki eða taxtaljósmerki. Enn-
fremur njóta undanþágu bifreiðar
með merki fatlaðra.
Gjaldskylda verður í stöðumæla
fyrrgreinda tvo daga á meðan versl-
anir eru opnar. Þá verða bifreiða-
stæði í Tollhúsinu við Tryggvagötu
og bifreiðageymsla við Kalkofnsveg
opin á sama tíma, án gjaldskyldu.
Starfsmenn verslana og annarra
fyrirtækja í miðborginni er hvattir
til að leggja bifreiðum sínum fjær
vinnustað en venjulega fram að jól-
um. Er þá sérstaklega bent á bif-
reiðastæði milli Vatnsstígs og
Frakkastígs á lóð Eimskips, sem
Reykjavíkurborg hefur á leigu.
Vakin er athygli á því að vinstri
beygja af Barónsstíg og hægri
beygja af Vitastíg inn á Laugaveg
eru bannaðar á mánudögum og
föstudögum á milli kl. 16 og 18 til
að greiða fyrir akstri strætisvagna á
Laugaveginum.
Lögreglan verður með aukna
löggæslu, þar sem þess er mest þörf
í borginni fram að jólum, og þannig
greiða fyrir og aðstoða fólk í þeirri
miklu umferð sem fram undan er.
Fólk er almennt hvatt til að not-
færa sér strætisvagnana sérstaklega
dagana fram að jólum til að létta á
umferð og spara sér tíma og erfið-
Jeika við leit að bifreiðastæðum. •
„Krossgátu-
bók ársins“
komin út
Út er komin „Krossgátubók
ársins“. í bókinni eru eins og
nafnið gefur til kynna, krossgátur
og annað efni tengt þeim. Gáturn-
ar hafa ekki birst áður enda gerð-
ar sérstaklega fyrir bók þessa.
Höfundur er Hjörtur Gunnars-
son, íslenskukennari og hefur
hann langa reynslu af að semja
krossgátur fyrir ýms blöð og
tímarit. Hjörtur hefur hlotið við-
urkenningu sem einn besti kross-
gátuhöfundur landsins. Krossgát-
ur hans eru vandaðar og hvergi
slegið af með kröfur um „móður-
málið klárt og kvitt“.
1 bókinni eru bæði krossgátur
með því gamla góða sniði, sem all-
ir þekkja og einnig nýjungar sem
höfundur kom fyrst fram með
hérlendis.
Bókin er 68 síður prentuð í Off-
setprent. Bókband annaðist Arn-
ar-Berg hf. Útlit kápu annaðist
Jens Kr. Guðmundson. Útgefandi
er Ó.Prútgáfan.
Uttektartímabil
VISA er frá 18. hvers mánaðar til
17. næsta mánaðar, með eindaga 15
dögum síðar, þ.e. 2. hvers mánaðar.
VERIÐ VELKOMIN IVISA-VIÐSKIPTI
Alþýðubankinn hf.
Búnaðarbanki íslands
iðnaðarbanki íslands hf.
Landsbanki Islands
Samvinnubanki Islands hf.
Eyrasparisjóður, Patreksfirði
Sparisjóður Bolungarvíkur
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Mýrasýslu
Sparisjóður Norðfjarðar
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Sparisjóður Siglufjarðar
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður Vestmannaeyja
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu
VISA
VISA ÍSLAN
H
- Eitt kort um allan heim.