Alþýðublaðið - 17.12.1983, Blaðsíða 19
Laugardagur 17. desember 1983
;19
Félaear í blíðu oe stríðu:
Þannig urðu
Tommi og
Jenni til...
Þeir eru fjölmargir aðdáend-
ur hinna sistríðandi félaga, katt-
arins Tomma og músarinnar
Jenna. Hinn óheppni köttur og
þessi ómótstæðilega mús hafa
barið sér leið inn - hug og hjörtu
milljóna manna á öllum aldri.
Kannanir hafa sýnt að á mánu-
dagskvöldum safnast þúsundir
íslendinga fyrir framan sjón-
varpið til að lyfta brúnum með
Tomma og Jenna.
Þeir hafa slegist um áratuga-
skeið, en mega þó hvorugur af hin-
um sjá. En hvernig urðu þeir til?
Upphafið má rekja til verkfræði-
nema og bankastarfsmanns.
William Hanna nam verkfræði
og blaðamennsku, en árið 1931
breytti hann algjörlega um stefnu er
hann lét undan teiknimyndaástríðu
og stundum er það músin Jenni
Hve glöggur ertu?
Það eru fimmtán hlutir- hvorki meira né minna-sem ekki eru eins
á myndunum tveimur. Ef þú getur fundið þá alla, þá ertu bara býsna
snjall og athyglisgáfan í lagi. Ef þú kemst ekki upp fyrir tíu, þá ætt-
irðu að láta athuga sjónina og ef þú finnur bara fimm mismunandi
hluti, þá er eitthvað að..
Stundum er það kötturinn Tommi sem.hefur betur....
sinni og gerðist aðstoðarmaður hjá
fyrirtækinu „Harman and Ising“.
Þar starfaði hann til 1937, er hann
fékk starf hjá Metro Goldwin Mey-
er, þar sem Fred Quimby sat við
stjórnvölinn. í fyrstu var sá ekkert
hrifinn af framlagi Hanna. Sam-
tímis var Joseph Barbera að klífa
metorðastigann í teiknimynda-
heiminum, en hann hafði þó ætlað
sér stóra hluti i bankakerfinu.
Hanna og Barbera hófu þá sam-
starf sem reyndist einstaklega ár-
angursríkt.
„Puss gets the boot“ var fyrsta
verk þeirra. Það átti upphaflega að
vera stök teiknimynd og stjórinn
Quimby átti erfitt með að sjá húm-
orinn á bak við sífellda rimmu katt-
ar og músar. En teiknimyndin varð
strax með eindæmum vinsæl og var
útnefnd til eftirsóknarverðustu
verðlaunanna.
Jólanótt
Þriðja Tomma og Jenna teikni-
mynd Hanna og Barbera var „Jóla-
nótt“ og var sýnd í bandarískum
kvikmyndahúsum um jólin 1941.
Meðal æstra teiknimyndaaðdáenda
er þessi mynd almennt talin til
hinna örfáu perla í sögu teikni-
myndanna.
Vinsældir Tomma og Jenna eru
óvéfengjanlegar,‘þó sumir setji fyrir
sig hversu rimmá þeirra er rík af of-
beldi á köflum. Rétt er það að oft er
hart barist og þess má í framhjá-
hlaupi geta, að könnun sem nýverið
var gerð í Bandaríkjunum leiddi í
ljós að af þeim 10 teiknimyndaþátt-
um sem þóttu hvað ofbelisfyllstir
lentu þeir félagarnir í 9. sæti. 8 aðrir
teiknimyndaþættir þóttu ofsa-
fengnari og í fyrsta sæti var félagi
sem aldrei hefur skemmt íslenskum
sjónvarpsáhorfendum — Bugs
Bunny.
HYDRIX
fyrir þurra húð
Hydrix er létt dagkrem sem virkar og gefur
húðinni nauðsynlegan raka. Húðin verður
mjúk og eftirgefanleg. Það er notaleg tilfinn-
ing og mjög góð vörn gegn okkar veðráttu.
Hydrix rakakrem fást bæði lituð, ólituð og
mött.
LANCÖME
PARIS
Laugaveg 178 — P.O. Box 338 — 105 Reykjavík — Iceland