Morgunblaðið - 07.11.2004, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÚIST VIÐ ÁRÁS
Gert var ráð fyrir því í gær að
bandarískir og íraskir stjórnar-
hermenn myndu senn ráðast inn í
borgina Fallujah. Voru gerðar harð-
ar loftárásir á stöðvar uppreisnar-
manna í borginni í gærmorgun.
Íraksstjórn krefst þess að borgar-
búar framselji uppreisnarmennina
og erlenda hryðjuverkamenn sem
einnig eru taldir hafast þar við.
Gífurleg fólksfækkun
Íbúum á Vestfjörðum og Norður-
landi vestra fækkaði um ríflega
3.200 á árunum 1990–2003. Það jafn-
gildir því að allir Ísfirðingar og
Skagstrendingar til samans hafi
flutt burt af svæðinu. Kallað hefur
verið eftir aðgerðum í byggðamálum
á þessum svæðum.
Týr sigldi 830 sjómílur
Einum lengsta björgunarleiðangri
Landhelgisgæslunnar lauk í gær-
morgun þegar varðskipið Týr lagði
að bryggju í Hafnarfjarðarhöfn
ásamt norska togaranum Ingar
Iversen. Ingar varð vélarvana 760
sjómílum suðvestur af Reykjanesi
og sigldi Týr 830 sjómílur eftir
norska togaranum. Ferðin til baka
með Ingar í togi tók 4 sólarhringa.
Að sögn var mikill vindur á köflum
en ekki ýkja mikill sjógangur.
Arafat sagður hafa vaknað
Enn berast misvísandi fregnir af
líðan Yassers Arafats, leiðtoga Pal-
estínumanna, sem er á sjúkrahúsi í
Frakklandi. Franskir heimildar-
menn segja að hann sé heiladauður
og haldið á lífi í öndunarvél. Palest-
ínumenn fullyrða að hann hafi vakn-
að aðfaranótt laugardags.
Lögreglan á varðbergi
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
verður á varðbergi næstu daga gegn
frekari heimsóknum mótorhjóla-
klúbba til landsins. Þetta gerist í
kjölfar þess að ellefu félagar úr
danska mótorhjólaklúbbnum Hog-
riders voru stöðvaðir í Leifsstöð á
föstudag og í framhaldinu sendir
heim aftur. Sýslumaðurinn á Kefla-
víkurflugvelli sagði hópinn hafa
komið til landsins til að vígja ís-
lenska mótorhjólaklúbbinn Hroll inn
í samtökin.
Farþegar of feitir
Hagnaður bandarískra flugfélaga
hefur minnkað síðustu árin vegna
aukins eldsneytiskostnaðar á hvern
farþega. Er ástæðan sögð vera að
farþegar verði stöðugt þyngri. Offita
er mikið vandamál vestra eins og í
fleiri vestrænum löndum.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
MIKILL kraftur er í allri uppbygg-
ingu í Fjarðabyggð í tengslum við ál-
verið í Reyðarfirði og rísa húsin
hratt. Guðmundur Bjarnason bæjar-
stjóri áætlar að á milli 70 og 80 íbúð-
ir séu í byggingu í augnablikinu á
Reyðarfirði. „Hins vegar er búið að
úthluta mun fleiri lóðum þar sem
byggt verður á næstu árum. Fram
til ársins 2007 er gert ráð fyrir að
byggja í Fjarðabyggð, þ.e. í öllu
sveitarfélaginu, eitthvað í kringum
400–500 nýjar íbúðir. Þessari fjölgun
íbúa fylgir náttúrlega mikil upp-
bygging hjá sveitarfélaginu hvað t.d.
opinberar byggingar varðar. Þannig
má nefna að um þessar mundir eru
að rísa bæði nýr grunnskóli og nýr
leikskóli inni á Reyðarfirði. Auk
þessa eru fyrirtæki að byggja, má
þar nefna nýja verslunarmiðstöð
sem mun rísa auk fleiri verslana.“
Aldrei annar eins uppgangur
Aðspurður segist Guðmundur
ekki muna eftir öðrum eins upp-
gangi þar eystra. „Raunar held ég
að það hafi aldrei orðið annar eins
uppgangur utan höfuðborgarsvæð-
isins líkt og er hér nú. Þannig má
nefna að hér í Fjarðabyggð er, fram
til ársins 2007, verið að fjárfesta fyr-
ir 90 milljarða, þar af er ALCOA að
fjárfesta fyrir 80 milljarða á meðan
sveitarfélagið, ríkið og einkaaðilar
eru að fjárfesta fyrir samtals um 10
milljarða,“ segir Guðmundur og
nefnir að undirbúningsvinna vegna
álversins í Reyðarfirði er í fullum
gangi. „Þar fer fram jarðvegsvinna
auk þess sem framkvæmdir við
höfnina standa yfir, en ráðgert er að
byggja þar 380 metra stálþil eða
hafnarbryggju. Síðan má nefna að
Bechtel, bandaríska verktakafyrir-
tækið sem kemur til með að byggja
álverið fyrir ALCOA, er að reisa
starfsmannaþorp í tæplega kíló-
metra fjarlægð frá Reyðarfirði og
þar munu búa 1.500–1.800 manns í
þorpinu þegar mest verður. Nú þeg-
ar búa þar eitthvað í kringum 90
manns.“ Í forgrunni má á myndinni
sjá hluta af starfsmannaþorpinu í
Reyðarfirði, en í baksýn má sjá
Grænafell og Áreyjartind.
Húsin rísa hratt í Fjarðabyggð
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
LAUN 26 ára umsjónarkennara með
þrjá flokka úr potti hækka um 28,4%
eða um 618 þúsund krónur á árs-
grundvelli miðað við miðlunartillögu
ríkissáttasemjara og laun 41 árs um-
sjónarkennara með þrjá flokka úr
potti hækka um 20,3% eða um 554
þúsund krónur, að því er kemur
fram í frétt á heimasíðu Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Í henni segir að sambandið telji að
nokkuð hafi borið á misvísandi upp-
lýsingum í þeirri umræðu sem nú
fari fram um þær launahækkanir
sem miðlunartillaga ríkissáttasemj-
ara í kjaradeilu launanefndar sveit-
arfélaganna og Kennarasambands
Íslands feli í sér.
„Skólastjóri eins grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu hefur í ljósi
þessa reiknað út laun allra kennara
við sinn skóla samkvæmt tillögunni
og sent kjarasviði dæmi úr þeim út-
reikningum sem hér fylgir. Í þessum
útreikningum er ekki gert ráð fyrir
kostnaði sveitarfélaga við 2% mót-
framlag vegna séreignalífeyris-
sparnaðar sem miðlunartillagan ger-
ir ráð fyrir að tekið verði upp 1.
janúar 2005,“ segir í fréttinni.
!"#$
%& % #' () !$
( *
+) !$
(& #' () !$
+ ) , + () !$
+- #' () !$
( #' +) !$
%./&(&
%& /+/+
%/&/%/
(-/%/
(%&+ &
(++ -
-&-
+-.+%
.&./
-&-&
++
+/++.&
%-.&.&
%(/% .+
%+-
%./+.&
%.( /+%
%/+%%
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kennaradeilunni
Misvísandi upplýsingar í um-
ræðunni um launahækkanir
EKKERT nýtt tilboð liggur fyrir af
hálfu samninganefndar Launanefnd-
ar sveitarfélaganna verði miðlunar-
tillaga ríkissáttasemjara felld en nið-
urstöðu í atkvæðagreiðslu um hana
er að vænta á mánudagskvöld.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þó von á útspili frá nefnd-
inni verði sú raunin en ekki fæst
uppgefið hvað í því felst. Verði til-
lagan felld fara kennarar aftur í
verkfall frá og með þriðjudegi.
Að sögn Birgis Björns Sigurjóns-
sonar, formanns samninganefndar
Launanefndar sveitarfélaganna, yrði
það grafalvarlegt mál ef tillagan yrði
felld og öruggt að allra leiða yrði leit-
að til að finna lausn á deilunni sem
fyrst. Ekkert slíkt tilboð sé hins veg-
ar á borðinu í dag og það sé Launa-
nefndarinnar einnar, sem fer með
samningsumboð, að leggja fram
slíka tillögu.
„Við í samninganefndinni og
Launanefndinni erum bara í bið-
stöðu eins og okkur ber lögum sam-
kvæmt,“ segir Birgir Björn.
„Við eigum að mæta á mánudag-
inn hjá sáttasemjara og greiða at-
kvæði um hans tillögu og eigum að
vera búin að ljúka því klukkan 13.“
Þá hefst talning atkvæða kennara og
skólastjórnenda og er niðurstöðu að
vænta um kvöldið. Birgir Björn segir
það ekki sitt að meta hvort tillagan
verði samþykkt eða felld. Menn
verði einfaldlega að bíða og sjá.
Tillagan mjög kostnaðarsöm
fyrir sveitarfélögin
Hann segir að fyrir liggi að tillag-
an sé mjög kostnaðarsöm fyrir sveit-
arfélögin og „miklu dýrari“ en hann
hafi hingað til haft umboð til að
bjóða. Sveitarfélögin séu hins vegar í
erfiðri stöðu að hafna henni og þar
hljóti að takast á ýmis sjónarmið.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, segist engar
spurnir hafa haft af því að sveitar-
félögin séu með annað tilboð í hand-
raðanum verði miðlunartillaga ríkis-
sáttasemjara felld.
Hann vill ekki tjá sig hvort meiri
eða minni líkur séu á að tillagan
verði felld innan raða kennara. Frá
því hún hafi verið kynnt hafi hann
gætt hlutleysis og treysti á að fé-
lagsmenn taki sína afstöðu sem síðan
verði unnið út frá.
Sveitarfélögin í erfiðri
stöðu verði tillaga felld
Ekkert nýtt tilboð liggur fyrir en búist við útspili frá sveitarfélögunum
LÖGREGLAN á Selfossi handtók
sex manns í fyrrinótt vegna
tveggja fíkniefnamála sem upp
komu og leitaði á heimilum nokk-
urra grunaðra þar sem fíkniefni
fundust.
Aðdragandi málanna var sá að
ökumaður á bíl var tekinn grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Við leit á honum fund-
ust kannabisefni og var hann
færður í fangageymslu. Í fram-
haldi þess var leitað í húsi á Sel-
fossi snemma í gærmorgun og
fannst þar talsvert magn af
kannabisefnum. Tveir voru hand-
teknir til viðbótar.
Önnur húsleit var gerð í bænum
upp úr klukkan sjö og komu þar
einnig fíkniefni í ljós og þrír voru
færðir í fangageymslu. Allir voru
mennirnir látnir bíða skýrslutöku
síðar um daginn.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er talið að fíkniefnin hafi í báðum
tilfellum verið ætluð til neyslu
fremur en sölu. Leit stóð yfir að
fíkniefnum fram eftir degi í gær
og fundust þá hvít efni sem talið
var vera amfetamín.
Sex teknir fyrir
fíkniefnaeign
Í dag
Sigmund 8 Dagbók 54/57
Hugsað upphátt 23 Krossgáta 56
Forystugrein 34 Leikhús 58
Reykjavíkurbréf 34 Listir 58/59
Umræðan 44/46 Af listum 59
Bréf 47 Fólk 60/65
Hugvekja 47 Bíó 60/65
Minningar 48/50 Sjónvarp 66/67
Myndasögur 54 Veður 67
Víkverji 54 Staksteinar 67
* * *