Tíminn - 21.06.1974, Blaðsíða 10

Tíminn - 21.06.1974, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Föstudagur 21. júni 1974' Fólkið sveltur við hallar- Sviinn Jerry Lyckholm frá UNICEF var leiðsögumaður, er ekið var til indverska þorpsins Rahimabad. Það er mjög fátæk- legt þorp, niðurniddir leirkofar, allt þakið ryki og skit, og örbirgð- in sést hvarvetna. Við tókum eina beygju — og skyndilega vorum við fyrir framan geysistóra höll. Til hægri var svo önnur álika stór múrbygging. Velkominn til Man- groseLodge.stóðáskiltinu. Meiri andstæður er ekki hægt að hugsa sér. Uti á opnum dagstofusvölum hallarinnar sat hinn sjötugi múhameðstrúarmaður, Mustaq Ali fursti, en fjölskylda furstans er meðal þeirra landeigenda, sem hafa verið i Indlandi i mörg hundruð ár. Fyrri höllin, sem við sáum, var höll forfeöra hans. Á henni varð hann þreyttur fyrir tuttugu og fimm árum og byggði þá nýja höll. Fyrir tveim árum fannst honum svo sú höll of litil, og byggði tvær hæðir ofan á þær, sem fyrir voru. Þakið er flatt, og þar er rúm fyrir eitt hundrað gesti i einu. Ef gestunum væri gengið út á þakbrúnina, myndu þeir horfa beint niður á niður- nidda leirkofana i þorpinu um- hverfis, og örbirgðina sem rikir þar. Mustaq fursti á sex börn: þrjár dætur, sem allar eru giftar og fluttar að heiman, og þrjá sonu, sem búa hjá föður sinum. Furstinn hefur mörg járn i eld- inum. Hann ræktar ávexti á 100 ekrum lands, t.d. mango, kin- versk vinber, japanskar appel- sinur og margt fleira. Samkvæmt lögum má landeigandinn ekki eiga nema 18 ekrur, en Mustaq fursti fór i kringum lögin með þvi aö stofna hlutafélag. Það eru þó ekki trén, sem vekja mesta athygli þegar furstinn er heimsóttur, heldur miklar breið- ur af allavega litum rósum. I desember og janúar eru þær i jjjjpg m . . mi'éráfí Hin nýja höll furstans Hér dáis Mustaq fursti að rósunum sinum mestum blóma. Furstinn stundar rósarækt sem tómstundagaman, en þetta tómstundagaman hans gefur honum 200.000 rúpiur i aðra hönd árlega, að sögn hans sjálfs. Búast má þó fastlega við að hann fari heldur lágt með þá tölu. Hann ræktar fjögur hundruð ólikar teg- undir og reynir stöðugt að rækta nýjar. Hann græðir mikiö á aö flytja rósirnar til Englands, Frakklands og Bandarikjanna um jólaleytið, þegar rósirnar eru mjög eftirsóttar. Sjálfur fær hann 5 rúpiur fyrir stykkið, svo erfitt er að imynda sér, hve mikið við- skiptavinurinn i London verður að borga. Furstinn heldur þvi samt fram, aö ávaxtaræktin sé mikilvægust fyrir sig, og að rósirnar séu bara tómstundagaman eitt. Samt sem áöur sendir hann elzta son sinn um allt Indland til þess að afla sér vitneskju um allt sem hann getur um rósir. Fimmtán menn hefur hann ráöið, aðeins til að sjá um rósaræktina, en i allt eru hjá hon- um fimmtiu manns. 1 tvö hundruð ár hefur fjöl- skylda furstans búið i Rahima- bad. Aöur átti hún mörg þorp. Þegar Indland varð sjálfstætt eftir siðustu heimsstyrjöld, var hvert þorpið af öðru tekiö af furstanum, en nú býr hann i Rahimabad og lítur á það sem sitt þorp. Aðspurður um þaö, hvers vegna þetta þorp hefði orðiö fyrir valinu, svaraði furstinn þvi til, að allt gengi svo vel i þessu þorpi. Ibúar þess greiða atkvæði eins og hann óskar, og sagðist hann þvinga þá til þess, ef með þyrfti. Ekki sagðist furstinn vera óánægður með sjálfstæðið og þær afleiðingar, sem það hefði haft á eignir hans. Umhverfinu hefur fariö mikið fram: margar vatns- lagnir hafa verið lagðar, og áætl- að er að byggja skóla i þorpinu eða nágrenni þess. Vatn til eigin nota sagðist furstinn hafa nóg. Hann hefur eigin brunn og hefur látið byggja vatnsgeymi á þakinu fyrir 5000 litra, með rafmagns- dælu. Allan sinn aldur hefur furstinn alið i Indlandi og aldrei ferðazt erlendis. Nú segist hann þó gjarna vilja ferðast eitthvað um, og þá helzt til Japans, Englands og Bandarikjanna. Þótt hann tali ekki góða ensku, er hann samt viðlesinn maður og hefur numið sögu og bókmenntir við háskóla i Dehli. Stoltur segir Mustaq fursti frá öllum þeim tignu gestum, sem hafa sótt hann heim og dáðzt að rósunum hans. Barnabörnin hans, sem eru nitján að tölu, hafa mjög gaman af að koma til hans. Og þvl má vel trúa. Það er að segja, svo lengi sem þau fara ekki til þorpsins rétt hjá. Andstæðurn- ar eru geysilegar. Annars vegar ofsaleg fátækt og örbirgð, hins vegar skortir ekkert á að allt sé sem stórkostlegast og iburðar- mest. (Lauslega þýtt. gb) Búðir lokað ar á laugar dögum I StÐUSTU kjarasamningum viö verzlunarfólk var samiö um aö loka verzlunum á laugardögum frá 20. júni til ágústloka. Næstkomandi laugardag tekur þetta ákvæði samningsins gildi og verða verzlanir þá lokaðar á laugardögum. Þar sem hér er um ákvæði I kjarasamningi aö ræða, ber öllum verzlunum aö loka á laugardögum, þennan tima, að öðrum kosti er um brot á kjara- samningi að ræða. Kaupmannasamtök Islands beina þvi þeim tilmælum til al- mennings, að innkaup séu gerö timanlega, þvi að reikna má meö að fyrst i staö færist verzlun, sem var á laugardögum yfir á föstu- daga. Þess vegna er mjög æski- legt aö vkiðskiptavinir reyni að gera innkaup sin fyrri hluta vik- unnar. Kandidatar frá tannlæknadeild Háskóla islands eru aö þessu sinni sex talsins. Tveir þeirra hafa nú þegar hafiö störf á Akureyri, en hinir I Reykjavik. Myndin var tekin I hófi, er Dentalia heldur nýútskrifuöum tannlæknum á ári hverju. A henni sjást fr.v.: Siguröur E. Rósarsson, Björn Ragnarsson, Svend Richter, Guömundur Lárusson, Þórarinn Sigurösson og Ingi Kr. Stefánsson. Föstudagur 21. júni 1974 TÍMINN 11 Hjáimar W. Hannesson skipar fimmta sætlö á framboöslista Fram- sóknarflokksins I Reykjavik. Hjálmar er einn fárra islendinga, sem lokiö hafa háskólanámi i stjórnmálafræöum og kannaö islenzk stjórn- mál frá fræöilegu sjónarhorni. Fimmta sætið á fram- boðslista Framsóknar- flokksins í Reykjavík skip- ar ungur menntamaður, Hjálmar W. Hannesson. Hann er 28 ára að aldri og er að því leyti til áhuga- verður frambjóðandi, að hann hefur lesið stjórn- málafræði við erlenda há- skóla og af lað sér þekking- ar á margvíslegum félags- legum staðreyndum, sem mynda þjóðfélagið. Hjálmar W. Hannesson hef ur vakið nokkra athygli fyrir fræðileg stjórnmála- skrif, og væri áhugavert að rifja það upp hér, en að þessu sinni áttum við að- einsörstutttal við hann um þá kosningabaráttu, sem nú fer í hönd og um stöðu Framsóknarf lokksins í þeirri baráttu: — Hefur þú haft afskipti af stjórnmáium fyrr? Sagði af sér formennsku framfarafélagsins — Nei, þetta er i fyrsta skipti sem ég hef afskipti af stjórnmál- um, nema sem kjósandi. Ég hef .hins vegar lagt stund á það, sem ’nefnt er fræðileg stjórnmál, þvi ég hafði snemma áhuga á stjórn- málum. Ég hef lika tekið nokkurn þátt i félagsmálum, þar á meðal tók ég þátt i stofnun framfarafé- lags fyrir Breiðholt III og var þar formaður, en ég kaus að segja þvi embætti lausu, þegar ég tók sæti á framboöslistanum hjá Fram- sóknarflokknum, þvi þetta er ó- pólitiskt félag. I þessu félagi hef ég hlotið ýmsa þýðingarmikla reynslu, er varðar borgarana og samskipti þeirra viö yfirvöldin. — Hvert télur þú aö veröi aöaí- mál kosninganna, sem I hönd fara? — Ég tel, að þrjú aðalmál muni ráða afstöðu kjósenda, sem fær- ast milli flokka, þ.e. varnarmál- in, efnahagsmálin og byggöamál- in. Þetta er auðvitað I viðri merk- ingu, og þá sérstaklega það siðast talda. Sjálfstæðisf lokkurinn er stefnulaus. — Linurnar I varnarmálunum liggja þannig, að annars vegar við okkur eru Sjálfstæðismenn meö sina stefnu, sem i þessu máli, eins og öðrum, er I sjálfu sér ekki stefna, heldur fyrst og fremst varðveizla á ástandi. Þó svo að þeir segi, aö þeir séu reiðu- búnir að endurskoöa varnar- samninginn eftir breyttum að- stæðum. I þessu máli er Sjálfstæðis- flokkurinn þvi eiginlega stefnu- laus, eins og i flestum öðrum mál- um. — Siðan koma svo hernáms- andstæðingar og kommúnistar, sem vilja að varnarliðið hverfi burt af landinu, án þess að málið sé skoöað og krufið til mergjar. Vilja sem sagt algjört varnar- leysi og að viö segjum skilið við þær þjóöir, sem við höfum átt mest samskipti við i varnarmál- um og öryggismálum. Ég tel okkar stefnu vera lausa við öfgar til hægri og vinstri og að leysa beri þessi mál I samvinnu við bandalagsþjóðir okkar, þann- ig að við megi una fyrir okkur og fyrir hinar sameiginlegu varnir. Landvarnaskyldur — Varnir tslands eru ekkert smámál. Viö megum ekki sem sjálfstæð þjóð gleyma landvarna- skyldum okkar, og þaö er einmitt þetta, sem fram kemur i tillögum þeim, sem Einar Ágústsson utan- rlkisráöherra setti fram nú fyrir skömmu. — Vilt þú láta herinn fara? — Auðvitað vil ég herinn burtu, en ég vil að ísland skipi sér i sveit með lýðræðisrikjum Evrópu. Ég tel sterkar likur á þvi að við get- um uppfyllt okkar skyldur við At- lantshafsbandalagið, sem eru fyrst og fremst eftirlitsstörf á hafinu, án þess að hér sé her. — Ég er hins vegar mjög and- vlgur þeirri kenningu, að varnar- laust land sé einhver trygging fyrir þvi, að við myndum standa utan við hernaðarátök, ef til þeirra kæmi á ný. Landið var her- numið af Bretum, og sannanir eru til fyrir þvi, að Þjóðverjar heföu hernumið það, ef Bretar hefðu ekki verið hér fyrir. Þeir höfðu gert um það áætlanir. Það eru viðsjár í heiminum. tslendingar áttu á sinum tima þátt I að Nato var stofnað, og þaö var fyrst og fremst gert vegna kalda striðsins og þess öryggis- leysis, sem við og fleiri Evrópu- þjóðir bjuggum við á þeim árum. Nú horfir um hrið friðvænlega, og ég tel að Atlantshafsbandalagið eigi sinn þátt i þvi. Það eru við- sjár i heiminum eigi að siður, og afvopnun þjóðanna gengur hægt, og á meðan svo er ber okkur skylda til að tryggja varnir ts- lands, og þá i samvinnu við þær þjóðir, sem við höfum starfaö með. Þetta eru þær þjóðir, sem við eigum mest sameiginlegt með, og við verðum einnig að taka tillit til þeirra. Að við getum verið hér úti i At- lantshafi án tengsla og samstarfs við aðrar þjóðir er ekki raunhæft, og visast þar til heimstyrjaldar- innar siöari, eins og ég minntist á áðan. Það var einkum vegna fimmtu greinar Atlantshafssátt- málans, sem við gengum i Nato, en þar segir, að árás á eitt riki þeirra sé árás á þau öll. Þegar þetta var gert, þá var enginn her hér á landi, og svo var það fyrstu tvö árin, en þá dró til tiöinda, og menn þekkja söguna siöan. Kosningarnar ber brátt að — Hvernig hefur kosningaund- irbúningurinn gengiö, og hver er málefnaleg staöa rikisstjórnar- innar? — Þessar kosningar ber brátt að, eins og landsmönnum er kunnugt. Þingrofið kom I miðri kosningahriðinni fyrir bæjar- og sveitastjórnarkosningarnar. Or- slit þeirra kosninga segja ekki endilega til um raunverulega stöðu stjórnmálaflokkanna i al- þingiskosningum. Ef verk rikis- stjórnarinnar eða stjórnarstefnan verða aöalmál kosninganna, þá óttast ég ekki um afdrif Fram- sóknarflokksins i þessum kosn- ingum. Málefnin standa fyrir sinu, verkin tala skýru máli: Árangur stjórnarstefnunn- ar hefur ekki komið i Ijós ennþá. — Það er að visu erfitt fyrir þessa stjórn aö þurfa að ganga til kosninga á miðjum siöari hluta kjörtimabilsins. Auðvitað hefði veriðhagstæöara aö láta kosning- ar fara fram, þegar lokið var fjögurra ára kjörtimabili. Uppbygging atvinnuveganna er ekki farin að hafa full áhrif á þjóöarbúskapinn til góðs. Hugs- um okkur aðeins skuttogarana. Talið er, að heildaraflamagn þeirra af fiski upp úr sjó verði um 3.000 milljónir króna á ári. Siöan fer þessi mikli afli til vinnslu i nýtizku húsum, sem reist hafa veriö, og/eða vélvædd og endur- bætt á kjörtimabilinu, og þau munu skila milljöröum króna i erlendum gjaldeyri. Útfærsla landhelginnar hefur lika sitt að segja. Allur þessi mikli sjávarafli skuttogáranna er verk vinstri stjórnarinnar, og við værum nú fátæk þjóð, ef gamla viðreisnar- stefnan hefði haldiö áfram með öllu þvi úrræðaleysi og þeim drunga, er henni fylgdi. Arangur þessa merkilega stjórnarstarfs er ekki enn farinn að sýna sig til fulls i efnahags- kerfinu, en mest af þvi fé, sem þjóðin aflar nú, er vegna vinstri stjórnarstefnu, áræðis og fram- fara, segir Hjálmar W. Hannes- son að lokum. JG.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.