Fréttablaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 16. ágúst,
228. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.22 13.32 21.40
AKUREYRI 4.56 13.17 21.35
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Undirbúningshópur fyrir Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþon hefur hlaupið í
einar tólf vikur og á laugardaginn
uppsker hópurinn árangur erfiðis síns.
„Við hlupum síðasta stóra hlaupið okkar í
síðustu viku,“ segir Stefán Ingi Stefánsson,
einn þjálfara í undirbúningshóp fyrir Ís-
landsbanka Reykjavíkurmaraþonið sem
verður haldið næstu helgi. Hann hefur séð
um að þjálfa hópinn sem hefur sett sér það
markmið að komast í mark og hefur hópur-
inn hist tvisvar í viku við tjaldstæðið í
Laugardal og hlaupið þaðan. „Þetta er fólk
sem hefur ekkert hlaupið áður en ætlar að
hlaupa og ganga til skiptis 10 kílómetra,“
segir Stefán. „Þetta hefur gengið ótrúlega
vel og fólk náð miklum framförum,“ segir
Stefán.
Gífurleg þátttaka hefur verið í undir-
búningnum og var hópnum skipt í þrennt.
Auk hóps Stefáns er hópur sem stefnir á að
hlaupa alla 10 kílómetrana og loks hópur
sem stefnir á að bæta hraðann í 10 kíló-
metra hlaupi. „Við höfum sent út tölvupóst
í hverri viku allan undirbúningstímann með
æfingaplani og ýmsum fróðleik varðandi
mataræði og fleira, en það eru um 450
manns sem fengu þann póst,“ segir Stefán.
Aðspurður hvort 12 vikur séu nægur
tími til að þjálfa sig fyrir hlaupið, segir
hann það feikinóg. „Ef maður æfir sig
reglulega þá nær maður árangri. Vel reyn-
ist að hlaupa saman í hóp því þannig fær
fólk innblástur, en ég er á því að innblástur
er allt,“ segir Stefán.
Hann ráðleggur fólki að hlaupa ekki
stórt hlaup í vikunni sem maraþonið á sér
stað, þótt það þýði ekki að fólk eigi bara að
leggjast upp í sófa. „Ágætt er síðustu vik-
una að hreyfa sig, og jafnvel gera eitthvað
annað en að hlaupa eins og að synda eða
hjóla. Aðalmálið er að hafa gaman,“ segir
Stefán.
kristineva@frettabladid.is
Innblástur er allt sem þarf
Offita Umfjöllun um geðrösk-
un og offitu eftir Kristin Tóm-
asson lækni er að finna í
nýjasta tölublaði Læknablaðs-
ins. Í greininni bendir Kristinn
meðal annars á að ekki sé síð-
ur mikilvægt að vera
vakandi fyrir áhrif-
unum sem of feitur
einstaklingur verður
fyrir þegar hann
mætir sífellt nei-
kvæðu viðhorfi í umhverfi
sínu, til jafns við þau nei-
kvæðu heilsufarslegu áhrif
sem offita hefur. Greinina er
hægt að lesa á slóðinni
www.laeknabladid.is.
Salmonella Niðurstöður
gerlarannsókna á ferskum
kryddjurtum og fleiri matvæl-
um frá Taílandi eru betri en
búist var við ef tekið er mið af
niðurstöðum sambærilegra
rannsókna í Noregi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá mat-
vælaeftirliti Um-
hverfissviðs Reykja-
víkurborgar hefur
það nú þegar látið
rannsaka 42 sýni af
ferskum kryddjurt-
um, grænmeti og ávöxtum frá
Taílandi hjá rannsóknastofu
Umhverfisstofnunar. Salmon-
ella hefur greinst í 7% sýna
sem tekin voru í sumar og er
það sambærilegt við niður-
stöður frá Svíþjóð, en samt
ekki ásættanlegt.
heilsa@frettabladid.is
Á laugardaginn er æfingum og undirbúningi lokið hjá undirbúningshópnum og sjálft maraþonið tekur við.
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Pabbi, af hverju
átt þú alltaf miklu
fleiri peninga
en ég?
Skemmtilegir brúðkaupsleikir
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is