Tíminn - 02.09.1978, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 2. september 1978
Land Rover 109 '76
Langur diesel.
Ekinn 60 þús. km.
Grár fallegur bill.
Verð 5.000,000,-
Upplýsingar
P. Stefánsson,
Siðumúla 33, simi 8-31-04 og 8-31-05.
BILAPARTA-
SALAN
auglýsir
NÝKOMNIR VARAHLUTIR í:
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97
Lóðaúthlutun -
Hesthús
Reykjavikurborg mun á næstunni úthluta
lóðum fyrir hesthús i Viðidal, Seláslandi.
Umsóknir skulu ritaðar á sérstök eyðu-
blöð, sem fást afhent á skrifstofu borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 2.
Umsóknarfrestur er til og með 20. septem-
ber 1978.
Athygli er vakin á þvi að allar eldri um-
sóknir eru hér með fallnar úr gildi og ber
þvi að endurnýja þær.
Allar nánari upplýsingar verða veittar á
skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2, 3. hæð, þar sem jafnframt er tekið á
móti umsóknum.
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Séra
Kristján Róbertsson
eini umsækjandinn um Frikirkjuna,
messar i kirkjunni, sunnudaginn 3. sept.
kl. 11 f.h.
Athugið breyttan messutima.
Safnaðarstjórnin.
Cortina árg. '68
Ope/ Cadatt '68
fíambler Classic '65
Chevro/et Nova - '67
Land fíover - '65
seveso . . .Enn eru ekki öll áhrif slyssins komin f dagsljósið.
Borgin sem hér
um bil dó....
— enn eru svæöi í Seveso
hættuleg mönnum
Tveimur árum eftir efna-
sprenginguna i Seveso á Italiu
vakir enn reiði og ótti meðal
ibúanna. Þeir eru einnig mjög
óánægðir með aðgeröir yfir-
valda og stjórnenda verksmiðj-
unnar, einkum fyrir að dylja
hættuna og gera siðan litið úr
slysinu. Hinir óánægðustu
hafa hótað málsókn.
Reykskýið, sem lagöist yfir
Seveso i kjölfar sprengingar i
verksmiðju þar fyrir tveimur
árum, innihélt meðal annars
TCDD sem er eitthvert eit-
raðasta efnasamband sem
þekkt er. begar þetta ský lagð-
ist yfir bæinn, dóu gæludýr og
önnur litil dýr og fólk veiktist
hastarlega. Þó liðu tvær vikur
þangað til gripið var til öryggis-
ráðstafana og 700 ibúar voru
fluttir úr bænum.
Eitruðust svæði og byggingar
vor u lokuð, af e n þa r með var þó
vandinn ekki leystur þar sem
einu kunnu aðferðirnar til aö
eyðaeitrinu fólu isérhættu á að
það dreifðist jafnvel enn viöar.
Eitrið enn fyrir hendi.
Sá hluti bæjarins sem fyrir
mestri eitrun varð er ennþá
auðurog yfirgefinn og ibúar þar
hafa ekki fengið að snúa aftur.
Hermenn gæta svæðisins.
En afleiöingar slyssins eru
margvislegar, ekki sist efna-
hagslegar afleiðingar fyrir bæ-
inn og ibúa hans. 1 Seveso var
mikið um húsgagnasmiðar, en
markaðir hafa lokast bænum
þar sem fólk óttast vörur þaöan.
Heilsufarslegar afleiðingar
eru hins vegar ekki alveg á
hreinu þar sem þær eru ekki
fyllilega kunnar umfram bruna
og sár sem mikið bar á strax
eftir sprenginguna. Til eru
rannsóknir sem benda til þess
aðeitriö hafi ófrjósemisáhrif og
i öðru lagi að þaö valdi vangefni
eöa likamsgöllum á ungbörnum
mæðra sem fyrir þvi verða.
Hvort um slikt er að ræða i
Seveso er enn ekki vel ljóst en
þó eruhræðileg teikn i þá átt. Á
síðasta ári t.d. fæddust 38 van-
sköpuöbörn Seveso mæöra, árið
áður aðeins fjögur. A hinn bóg-
inn eru 38 likamsgallafæðingar
af 2700 fyrir neðan meðallag, og
fáar likamsgallafæðingar fyrir
slysið er hugsanlegt að skýra
þannig að þá hafi foreldrar
siður tilkynnt um slikt.
Þá bendir ýmislegt til þess að
ýmis taugaveiklun og tauga-
sjúkdómar, og fleira þess hátt-
ar hafi aukist mikið meðal ibúa
Seveso, en heilbrigðisyfirvöld
eru þó treg til aö skrifa slikt
fyrirvaralaust á eituráhrifin,
ekki sist þar sem svæðið var illa
mengað fyrir.
Óttalegur grunur
Aöeins framtiðin getur skorið
úr um hvort óttalegur grunur og
áleitinnhafi við rök að styöjast.
Ýmislegt bendir til þess að
eituráhrifin geti komið niður á
siðari kynslóðum á margvisleg-
an hátt, og ennfremur að þau
séu krabbameinsvaldandi. Þeir
sem fyrir eituráhrifunum urðu,
þeir sem bjuggu i eiturskýjaðri
Seveso i tvær vikur eða þau
hundruð þúsunda sem búa á
litlu svæði allt i kring, allt þetta
fólk verður bara aö biða og sjá
hvort úr rætist eða hvort hræði-
legir sjúkdómar eiga eftir að
taka þaö heljartökum.
A meðan velta menn fyrir sér
orsökunum, eru bæöi reiðir og
sárir og krefjast skaðabóta.
Sannað er að verksmiðjustjórn-
in gerði litið Ur hættunni sem
hún vissi að var fyrir hendi og
duldihana fyrir Ibúum. Einnig
yfirvöld eru sek um seinagang
og ónóg viðbrögö viö slysinu.
Fyrir þetta þarf fólkið að liða.
Slysið i Seveso ætti að verða
mönnum holl áminning. 1
skýrslu sérfræðings um slysið
segirm.a.: „Kerfið eins og það
var í júli 1976 var á engan hátt
við þvibúiöaö bregöast við slysi
af þessari gráðu. Hér er um
vandamálað ræða sem viðeigum
eftir og þurfa að horfast i augu
við af fullri festu hvarvetna i
heiminum”.
—Þýtt og endursagt/KEJ
Island styður
aðgerðir gegn
flugræningjum
Timanum barst
svohljóðandi fréttatil-
kynning i gær frá
utanrikisráðuneyt-
inu:
Á fundi leiötoga Bandarikj-
anna, Bretlands, Frakklands,
ttalfu, Japans, Kanada og
Sambandslýöveldisins Þýska-
lands hinn 17. júlf s.l. var þvi
lýst yfir aö rikisstjórnir þess-
ara rikja muni auka aögerðir
iinar til þess aö hindra alþjóö-
leg ofbeldisverk og töku gisla.
IVlunu riki þessi gera ráö-
stafanir til að stööva allar
flugsamgöngur viö lönd sem
framselja ekki eöa lögsækja
flugræningja og/eöa skila ekki
flugvélum sem rænt hefur
veriö. Jafnframt veröur leit-
ast viö aö hefta starfsemi flug-
félaga umræddra landa.
Leitað hefur veriö eftir sem
viötækustum stuöningi ann-
arra rikja viö framangreinda
afstööu og hefur rikisstjórn ís-
lands fallist á þessa stefnu.
Laugardagur 2. september 1978
t
11
HINIR SNAUÐU
Aðalverslunargöturnar i mið-
borg Lima, La Colmena og Jiri-
on Union, verða æ fjölsóttari af
umerðarsölum, — smádrengj-
um, unglingum og gömlum kon-
um og körlum, sem bjóöa til
sölu margs konar varning, allt
frá rakvélarblöðum til af-
skræmilegra gervinefja.
Þetta sölufólk, það sem best
má sin, mun vilja selja þér
margvislega lit fiðrildi undir
gleri i ramma, fyrir litla upp-
hæö, en þeir sem eru enn meira
minnimáttar munu bjóða skó-
áburð eða nýjar skóreimar.
A siðari árum hefur i auknum
mæli verið þrengt að þeirri
ótryggu tilveru sem fátækir i
Lima hafa lifaö, með hliföar-
lausum aðferöum hers-
höfðingjastjórnar.sem átt hefur
við að striða þungbæra kreppu i
utanrikisviðskiptum.
Þessi kreppa hefur hvatt
stjórnina til þess að minnka enn
framboð innanlands á almennri
matvöru, og hefur það hrakið
hundruð þúsunda Perúmanna
niður i hyldýpis neyð.
Lánstraust landsins i iðnaði
og verslun er nær þorrið og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðurinn krefst
samdrattar i efnahagsstefnu
landsins, ef einhver lán eiga aö
fást, sem stjórn Perú þarfnast
sárlega. Æ fleiri Jirökklast úr
starfi og út á göturnar. Þannig
flokkast þélr í þann hóp, sem
efnahagssérfræðingar kalla þvi
hræsnisfulla nafni „þjónustu-
stéttir.” Þeir eru i rauninni ekki
nema einu feti frá þvi að mega
kallast betlarar.
Satt að segja hefur aldrei
mátt kalla Lima fagra borg.
Hún var grundvölluð af spönsk-
um nýlenduherrum, nokkrar
milur frá strönd Kyrrahafsins
og þar sem hún stendur i miöri
eyðimörk, má segja að þar rigni
aldrei.
Rakast verður þegar rekju-
mistur leggst yfir borgina i fá-
einar klukkustundir, en eina
rennandi vatnið er hið mjóa og
spillta fljót Rimac. Það kemur
frá rótum Andesfjalla og við það
hrófla þeir snauðustu meöal
Limabúa sér upp byrgjum úr
trjágreinum og pappa.
1 kring um borgina hafa flest
hreysi þó risiö, en perúanska
orðið yfir fátækrabælin er
„barriada”, sem ekki hefur þó
verið vel séö af yfirvöldum og
þvi frekar notað orðiö „pueblo
joven” eða ung-borg. En hvert
sem nafnið er, er lyktin þar
engu siður megn en i eldri
borgarhverfum, þar sem regn-
leysið veldur þvi að margra
alda þefur sest aö i kring um
fornar kirkjur og einlyft hús,
sem flest eru byggð utan um
garð i miðju að gömlum hætti.
Þó væri villandi að lýsa Lima,
sem einu allsherjar fátæktar-
bæli. I betri hverfum, eins og
San Isidro og Miraflores búa
Perúanar af miðstéttar og auð-
mannastandi, og garðar þeirra
eru vendilega vökvaðir með
slöngum á hverjum degi.
En jafnvel þarna gera hinir
kröppu timar vart við sig.
Miðstéttarkonur, sem áður
þurftu litið að gera nema hafa
auga með barnfóstrum og garð-
yrkjumönnum sinum, eru nú
teknar aö verða sér úti um ein-
hverja litla og netta vinnu, part
úr deginum, til þess að mæta út-
gjöldum fjölskyldunnar, meðan
Perú sekkur æ dýpra i fátæktar-
baslið.
Eftir þvi sem Fransisco Mor-
ales, hershöfðingi og forseti
landsins, leitast við að færa
völdin meir á borgarlegar hend-
ur, kemur biliö milli hinna riku
og snauöu meðal ibúa Lima æ
greinilegar i ljós, eftir um það
bil 10 ára hernaðareinræði, og
bann við starfsemi stjórnmála-
flokka.
Þegar talið var upp úr kjör-
kössum við kosningar i siöasta
mánuði, kom á daginn að mikill
hluti miðstéttarfólks i Lima
hafði kosið Luis Bedoya Reyes,
ákafan hægri mann og fyrrum
borgarstjóra, sem bauð fram
undir nafni hóps, sem kallast
Lýðholli-kristilegi flokkurinn.
En fjöldi ibúa fátæktarbælanna
kaus hins vegar mjög róttækan
vinstri flokk FOCEP, sem kalla
mætti trotskiskan eða maóisk-
an.
Bilið milli rikra og snauðra i
Lima er nú jafn breitt eða breiö-
ara, en verst hefur þekkst áður.
Hreysi fátæklinganna heita „ung-borgir” á máli stjórnvaldanna
ÞORSlCAFE staður hinna vandlátu
RESTAURANT DISCOTHEQUE
Leigjum hin glæsilegu
húsakynni okkar til alls-
konar mannfagnaðar.
Opnum sérstaklega kl.
18 fyrir matargesti sem
fara i leikhús um
kvöltlið.
Munið að panta timan-
lega.
Sendum út veislurétti
fyrir ferminguna og
cocktailveislur
t.d.
Köld borð
Cabarett
Sildarréttir
Graflax
Reyktur lax
Heitir réttir
Eftirréttir
Cocktailsnittur
Kaffisnittur
Aðeins það besta er nógu
gott
ÞÖRS|CAFE
Simar 2-33-33 og 2-33-35
1—4 daglega.
:0 téMtt
m
~ * - . ... ■*