Tíminn - 02.09.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 2. september 1978
Góður andi
Hreinn Halldórsson brást vonum manna algerlega á Evrópumeist-
aramótinu I Prag i gærkvöld og náði sér aldrei á strik. Lengsta kast
hans mældist 19.34 m og þaft dugði aðeins I 8. sætið. Mikil læti voru I
samvandi við kúiuvarpskeppnina og var Geoff Capes meinuð þátttaka f
úrslitakeppninni vegna þess að hann lenti I stappi við vallarstarfsmenn
út af númerum á búningi hans. 1 hitanum stjakaði Capes við einum
starfsmanninum og var dæmdur frá keppni. Hinir keppendurnir, 11 að
tölu, mótmæltu þessu harðlega og tafðist kúluvarpskeppnin um hálfa
klukkustund vegna þessa. Um siöur hófst þó keppnin en enginn gæsi-
bragur var yfir henni.
Evrópumeistari i kúluvarpi
varð Udo Beyer frá A-Þýskalandi
— kastaði 21.08 m. Annar varð
Yegeni Mironov frá Sovét-
rikjunum með 20,87 m og þriðji
varð landi hans Alexander Barys-
hnikov með 20,68 m.
I spjótkasti kvenna setti Ruth
Fuchs frá A-Þyskalandi nýtt
Evrópumet — kastaði 69.16 m. og
það voru næstum þvi sjö metrar i
þá sem næst kom, en þaö var
Theresa Sanderson frá Bretlandi
— kastaði 62,40 m. Bronsiö hlaut
svo Ute Hommola frá A-Þýska-
landi með 62.32 m.
Pietro Mennea sigraði með
yfirburðum i 200 m hlaupinu —
hljóp á 20.16 sek. Silfriö hlaut 01-
af Prenzler frá A-Þýskalandi —
hljóp á 20.61 og bronsið fór til
Peter Muster frá Sviss, sem hljóp
á 20.64 sek.
1 400 m hlaupi karla sigraði V-
Þjóðverjinn Franz Peter Hof-
meister á 45.73 sek. Silfrið fékk
Karel Kolar frá Tékkóslóvakiu á
45.77 sek. og bronsiö fór til
Francis Demarthon frá Frakk-
alndi — hann hljóp á 45.97 sek.
t 200 m hlaupi kvenna sigraði
Sovétstúlkan- Ludmila Kondrat-
eva á 22.52 sek. og bætti eigin
árangur um 4/10 úr sekúndu.
önnur, öllum á óvart, varð
hlaupadrottningin Marlies Gohr
frá A-Þýskalandi á 22.53 sek svo
þar hefur ekki munað nema hárs-
breidd. Bronsiö hlaut svo Carla
Bodendorf frá landa hennar á
22.64 sek.
Ein stúlkanna i 100 m grinda-
hlaupi var dæmd úr leik og verður
hlaupið aftur i dag og er fastlega
búist við að A-þýsku stúlkurnar
sigri þar.
t stangarstökki sigraði Sovét-
maðurinn Vladimir Trofimenko
— stökk 5,55 m. Annar varð Antti
Kalliomaki með 5.50 m og bronsið
fékk Rauli Pudas landi hans —
stökk 5.45 m.
Jón Diöriksson keppti i undan-
rásum 1500 m hlaupsins og siö-
astur i sinum riðli — hljóp á
3:48,10 min — langt frá meti sinu
Loks má geta þess, aö Elias
Sveinsson setti nýtt tslandsmet i
tugþraut (miðað viö rafmagns-
timatöku) — hlaut 7.317 stig.
hjá landsliðinu, sem leikur við Bandarikjamenn á morgun
tslensku landsliðsmennirnir i
knattspyrnu dveijast nú i æfinga-
búðum á Þingvöllum fyrir lands-
leikinn gegn Bandarikjamönnum
sem fram fer á Laugardalsvellin-
um kl. 14 á morgun. Þegar Tim-
inn sló á þráðinn til Þingvalla i
gærdag stóð yfir töflufundur, en
við fengum leyfi til aö tala við þá
Hörð Hilmarsson og Þorstein
Bjarnason.
— Það er frábær andi hérna hjá
okkur strákunum sagöi Hörður.
— Okkur hefur ekkert verið gefin
upp leikaöferð ennþá, en senni-
lega breytum við uppstillingunni
frá þvi i leiknum við Dani og
reynum aö ná betri tökum á miðj-
unni. Annars er mjög erfitt að
stilla úpp liði gegn Bandarikj-
amönnunum þvi við vitum akaf-
lega litið um getu þeirra.
— Þaö eru allir hérna við hesta-
heilsu og Gisli Torfa, sem var
eitthvaö slæmur i nára, virðist
vera allur hinn hressasti, en Jan-
us virðist eiga við smávægileg
meiðsl að striöa, en það er ekkert
alvarlegt, sagði Hörður. — Vissu-
lega stefnum við að sigri gegn
Bandarikjamönnum en það verö-
ur mjög erfitt að fást við þá, þvi
við vitum ákaflega litið um þeirra
styrkleika, sagöi Hörður aö lok-
um.
Þorsteinn Bjarnason mark-
vörður Keflvikinga hefur átt
hvern stórleikin á fætur öðrum í
sumar og kemur val hans i lands-
liðið ekki á óvart, en Þorsteinn er
einn af okkar bestu körfuknatt-
leiksmönnum og er landsliös-
maður i körfuknattleik og leikur
með Njarðvikinum i úrvalsdeild-
inni.
Hörður Hilmarsson og Ólafur Danivalsson á landsliðsæfingu.
— Ég er nú ekki alveg öruggur
hvort ég leik minn fyrsta lands-
leik á sunnudaginn sagöi Þor-
steinn, — Okkur hefur ekkert
verið sagt um liðsuppstillingu og
liðið verður eflaust ekki gefið upp
fyrr en rétt fyrir leik. — Ég er
bara ánægður með undirbúning-
inn hérna á Þingvöllum, strák-
arnir eru hressir og andinn er
eins og best verður á kosið. Ég er
ekkert óskaplega spenntur þó svo
ég eigi möguleika á sæti i lands-
liðinu — vissulega væri mjög
gaman að komast i liðið, en ég hef
leikið nokkra landsleiki i körfu-
bolta og maður er vanur undir-
búningi þar, þannig að ég er ekk-
ert spenntur, sagði Þorsteinn ró-
legur. Ekki er að efa að hann sýn-
ir sömu rósemina og yfirvegunina
verði hann i markinu morgun,
sem i raun er engin spurning.
Þorsteinn á að vera öruggur i
landsliðið.
Gamla metiö sem
sjálfur var 7228 stig.
hann átti
—ssv—
Hreinn Halldórsson náði
aldrei á strik i gærkvöldi.
Punktar víðs vegar að
Ursiitaleikurinn i 2. flokki fór
fram á grasvellinum i Kapla-
krika og áttust þar við ÍBK og
KA frá Akureyri. Þessi tvö liö
höfðu sýnt nokkra yfirburöi I
riðlum sinum og væru þvi
verðug úrsiitaleiksins.
Leikurinn var lengst af
mjög jafn en á 10. min. komst
einn KA manna inn fyrir vörn
IBK en skaut rétt framhjá.
Keflvikingar réðu meiru um
gang leiksins, en KA varðist
vel. A 25. min. náðu Keflvik-
ingar forystu er Einar A.
Ólafsson skoraði með góöu
skoti af stuttu færi eftir fallega
sókn Keflvikinga. KA jafnaði
svo nokkuð óvænt á 36. min.
Dæmd var aukaspyrna á tBK
á vitateigslinu og Gunnar
Gislason gerði sér litið fyrir og
vippaði knettinum laglega yfir
varnarvegginn og efst i blá-
hornið, 1:1.
Siðari hálfleik var mjög þóf-
kenndur og skoruðu Keflvik-
ingarsigurmark sitt á 15. min.
s.h. og var þar að verki Sigur-
jón Sveinsson úr þröngri að-
stöðu. ÍBK var mun nær þvi að
bæta við sinu þriðja marki, en
KA að jafna. Besti maöur
leiksins var Einar A. ólafsson,
en Sigurður Björgvinsson var
með óþarfa sýndarmennsku i
leiknum og öskraði mikiö,
enda landsliðskandidat.
• Handknattleikssamband ts-
lands gengst fyrir A-stigs
þjálfaranámskeiöi nú um
helgina og er þetta fyrsta
námskeiðiö, sem haldiö er i
handknattleik i 7 ár. Mikið
hefur verið vandaö til alls
undirbúnings og munu margir
kappar leiðbeina á námskeið-
inu þ.á.m. Jóhann Ingi Gunn-
arsson landsliðsþjálfari, Jó-
hannes Sæmundsson fræðslu-
fulltrúi tS, Jens Einarss. úr
tR, Viggó Sigurðsson, Janus
Guðlaugsson, Geir Hallsteins-
son og Þorgeir Haraldsson.
Mikil þátttaka er á námskeið-
inu og sýnir það glöggt hversu
brýn þörfin er fyrir slik nám-
skeið.
• Frakkar og Sviar léku fyrri
leik sinn í Evrópukeppni
landsliða i gær og var leikið i
Paris. Leikurinn var allan
timann mjög jafn og i hálfleik
hafði hvorugu liðinu tekist að
skora mark. I seinni hálfleikn-
um færðist hins vegar heldur
betur fjör i leikinn og voru þá
skoruð fjög
ur mörk. Fyrir Svia skoruðu
þeir Nordgren og Larsson en
fyrir heimaliðið svöruöu þeir
Berdoll og Six og lauk leiknum
þvi með jafntefli 2:2.
• 1 dag og á morgun fer fram
Unglingakeppni FRl og hefst
keppnin báða dagana kl. 14.
Keppendur er fjölmargir og
viða að, en alls munu hafa
skráð sig til leiks 103 keppend-
ur úr 18 samböndum og félög-
um. Keppt verður i 5 flokkum.
• Úrslitakeppnin i 3. deild
heldur áfram i dag á Sauðár-
króki og á Varmárvelli i Mos-
fellssveit A Sauðárkróki leika
i dag Einherji frá Vopnafiröi
og Njarðvik og á Varmárvelli
leika Vikingur ólafsvik og KS
frá Siglufirði.
—SSv—
Þingvöllum...
Hreinn langt
frá sínu besta
— kastaði aðeins 19.34 m og varð áttundi