Fréttablaðið - 22.10.2008, Qupperneq 6
6 22. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Nú þarf að nálgast hlutina eftir nýjum leiðum.
Kristinn Magnússon þurfti að komast til Akureyr-
ar um síðustu helgi og aftur til baka. Hann hefði
getað farið með rútu (12.600 kr. báðar leiðir) eða
flogið (9.980 kr. báðar leiðir á allra ódýrasta
nettilboði) en ákvað frekar að prófa fyrirbærið
Samferða.net sem hefur verið við lýði í nokkur
misseri. „Ég hafði vitað af þessari síðu í nokkurn
tíma en aldrei nýtt mér hana,“ skrifar Kristinn.
„Svo kíkti ég inn á hana snemma í vikunni og sá
að það var einn að auglýsa eftir farþega á minni
leið. Rosa fínt! Við mæltum okkur mót, hittumst
og keyrðum norður með spenning í maganum fyrir
ævintýrum komandi helgar. Ég borgaði ökumann-
inum 2.500 kr., sem mér þótti sanngjarnt. Við
vorum þrjú í bílnum sem eyddi rúmum 8,5 l/100km
+ göng = ca 6000 og smá fyrir ómakið, dekkjaslit
og annað sem hægt er að tiltaka. Allt heppnaðist
þetta svo vel að við ákváðum að leiða saman hesta
okkar aftur á sunnudeginum og er sömu sögu að
segja frá því, allt gekk eins og í sögu. Það sem sló
mig mest er að þar sem sameigin-
legt ferðalag okkar þriggja endaði
á bensínstöð í borgarjaðrinum þá
þurfti ég að splæsa í leigubíl frá
Olís við Norðlingabraut og í
Lundahverfið í Garðabænum,
nákvæmlega 9,72 km samkvæmt
map24.is. Fyrir þetta borgaði ég
2.880 kr. og sveið það alveg
rosalega. Það má segja að síðustu
kílómetrarnir af alls 780 sem ég
ferðaðist um helgina hafi sett
þetta ferðalag mitt í uppnám
fjárhagslega.“
Neytandinn: Kristinn fór til Akureyrar
Samferða í ferðalagið
ÞAÐ ER FALLEGT Á AKUREYRI Og ekki
ónýtt að komast þangað fyrir 5.000
kall.
DÓMSMÁL Reykvískur karlmaður á
fertugsaldri hefur verið ákærður
af ríkissaksóknara fyrir að hóta
fimm manns lífláti.
Atvikið átti sér stað á veitinga-
staðnum Café Amsterdam.
Manninum er gefið að sök að hafa
ógnað tveimur mönnum með
vasahníf og ítrekað hótað þeim
lífláti. Einnig að hafa meðal
annars hótað að sækja haglabyssu
og skjóta þá með henni.
Þá er maðurinn ákærður fyrir
vopnalagabrot með því að hafa
borið bitvopn á almannafæri.
Loks fyrir brot gegn valdstjórn-
inni með því að hafa hótað þremur
lögreglumönnum sem þar voru að
skyldustörfum, lífláti.
- jss
Karlmaður ákærður:
Hótaði fimm
manns lífláti
SKÁK Viswanathan Anand er á
góðri leið með að halda heims-
meistaratitli sínum í skák þó að
einvígið um titilinn sé aðeins
hálfnað. Hann vann sjöttu
skákina í gær og hefur unnið
helming skákanna. Hann er því
með fjóra og hálfan vinning gegn
einum og hálfum vinningi
Vladimírs Kramnik.
Anand var með hvítt í gær og
upp kom Nimzo-indversk vörn.
Kramnik gaf peð strax í 18. leik
en fékk ekki nægar bætur fyrir.
Kramnik fórnaði öðru peði til að
blíðka goðin en allt kom fyrir
ekki og gafst hann upp í 47. leik.
- pal
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Anand vinnur
enn einu sinni
EFNAHAGSMÁL „Þessi mikla aukning
nýskráðra einstaklinga sem eru í
alvarlegum vanskilum er vissulega
áhyggjuefni, ekki síst í ljósi þess
að svona mál taka alltaf dágóðan
tíma að berast inn. Það má því fast-
lega búast við því að þessum tilfell-
um fjölgi mikið á næstu mánuð-
um,“ segir Ómar Berg Torfason,
greiningarsérfræðingur hjá Cred-
itinfo Iceland, sem heldur utan um
skráningar á vanskilaskrá. Fyrir-
tækið hefur lokið við skýrslu um
stöðu almennings og fyrirtækja í
ljósi núverandi aðstæðna á íslensk-
um fjármálamarkaði, þar sem
meðal annars kemur fram að það
sem af er árinu 2008 hefur nýskráð-
um einstaklingum á vanskilaskrá
fjölgað um ríflega þrjátíu prósent
frá árinu 2007.
Á síðasta ári bættust að meðal-
tali 279 einstaklingar á mánuði á
vanskilaskrá. Á fyrstu níu mánuð-
um þessa árs hefur meðaltalið
hækkað upp í 368 einstaklinga á
mánuði. Að sögn Ómars hefur þessi
þróun verið ótrúlega hröð. „Það er
mjög erfitt ráða í áframhald þess-
ara mála í núverandi ástandi, og
varla að maður þori að gefa út spá-
dóma. En ég er hræddur um að
vöxturinn verði mjög ör á næst-
unni. Reynsla síðustu ára segir
okkur að ef áhrifaríkar aðgerðir í
samfélaginu verða til þess að
lækka greiðslubyrði einstaklinga
umtalsvert getur fækkun einstakl-
inga á vanskilaskrá orðið mjög
hröð,“ segir Ómar, og nefnir sem
dæmi að ríkið geti komið einstakl-
ingum til aðstoðar með ýmsum til-
slökunum á greiðslum opinberra
gjalda, fasteignagjalda, námslána,
meðlagsgreiðslna og fleiru. „En
það er auðvitað ekki vitað hvað
ráðamenn hafa í huga í þessum
efnum,“ bætir hann við.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að af þeim 805 einstaklingum sem
orðið hafa gjaldþrota á síðustu
fjórum árum eru 640 karlkyns.
Þá eru einstæðir feður fjölmenn-
asti hópur einstaklinga í vanskil-
um. Flest fyrirtæki á vanskilaskrá
eru í atvinnuflokknum heild- og
smásöluverslun, en næst á eftir
fylgja fyrirtæki í byggingarstarf-
semi og mannvirkjagerð og loks
fyrirtæki í fasteignaviðskiptum.
Skýrslunni var dreift til allra
alþingismanna og nokkurra ráðu-
neyta.
Að sögn Ómars mun Creditinfo
Iceland halda áfram greiningar-
vinnu á næstu mánuðum, meðal
annars í samvinnu við félagsmála-
ráðuneytið, í þeirri von að tryggja
að ráðamenn séu vel upplýstir um
stöðu mála. kjartan@frettabladid.is
Fjölgar ört á vanskilaskrá
Skýrsla um stöðu einstaklinga og fyrirtækja í ljósi aðstæðna á fjármálamarkaði sýnir mikla fjölgun nýrra
einstaklinga í alvarlegum vanskilum. Greiningarsérfræðingur segir tölurnar mikið áhyggjuefni í ljósi þess
að slík mál taki sinn tíma í kerfinu. Líkur séu því á mikilli aukningu á vanskilaskrá á næstu vikum.
MIKIL AUKNING Á síðasta ári bættust að meðaltali 279 einstaklingar á vanskilaskrá. Meðaltalið það sem af er árinu er 368 á mán-
uði, sem er ríflega þrjátíu prósenta aukning. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kólerufaraldur
Ellefu manns hafa orðið kólerufaraldri
að bráð í Chinhoi, litlum bæ skammt
frá Harare, höfuðborg Simbabve. Að
minnsta kosti 500 manns hafa fengið
læknisaðstoð. Faraldurinn er sagður
stafa af ónýtum skolpræsum og efna-
hagsvanda landsins.
SIMBABVE
SVISS, AP Stóri rafeindahraðallinn
í CERN-rannsóknastöðinni í Sviss
var settur í gang öðru sinni í gær
með pomp og prakt.
Alvarleg bilun varð skömmu
eftir að hann var ræstur í fyrsta
sinn í síðasta mánuði, en vísinda-
menn létu það ekki á sig fá og
hófust þegar handa við að
lagfæra bilunina.
Ráðamenn frá ýmsum löndum
og vísindamenn komu saman við
hátíðlega athöfn í gær, og hlýddu
meðal annars á hundrað manna
kór frá Wales syngja í tilefni
gangsetningarinnar.
Vonast er til að hraðallinn veiti
ómetanlegar upplýsingar um
hegðun öreinda og upphaf
heimsins. - gb
Rafeindahraðallinn í Sviss:
Aftur í gang
RÁÐAMENN MÆTTIR Forseti Sviss og
forsætisráðherra Frakklands í hópi gesta
við athöfnina. NORDICPHOTOS/AFP
Vilt þú að Bretar sjái um loft-
rýmiseftirlit við Ísland?
Já 12,3%
Nei 87,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sækir þú sjósund?
Segðu skoðun þína á visir.is
FJÁRMÁL Borgun, aðalleyfishafi
Mastercard hér á landi, hefur leið-
rétt kortagengi hjá þeim sem not-
uðu kort sín erlendis hinn 7. októb-
er, um fimm prósent. Með því mun
gengi Borgunar og Valitors þá dag-
ana vera svipað.
Haukur Oddsson, forstjóri Borg-
unar, og Höskuldur Ólafsson, for-
stjóri Valitors, segja að gert hafi
verið upp í íslenskum krónum við
erlendu greiðslumiðlunarkerfin,
sem síðan hafi keypt íslensku krón-
una á markaði. Gert sé upp daglega
og því hafi verið erfitt að leiðrétta
þessar færslur.
„Við fórum í að athuga hvað hægt
væri að gera,“ segir Höskuldur.
Athugað var hvort hægt væri að
breyta gengisskráningu afturvirkt
vegna 7. og 8. október, en búið var
að gera þau viðskipti upp.
„Við tókum á okkur um fimm pró-
sent,“ segir Haukur. „Sem er nokk-
uð högg fyrir lítið fyrirtæki eins og
okkur.“
Bæði fyrirtækin eru hætt að
greiða erlendu greiðslumiðlunar-
kerfunum í íslenskum krónum.
Samið hefur verið við Seðlabanka
Íslands þannig að Valitor gerir upp
í dollar en Borgun í evrum. - ss
Kortagengi kreditkortanna vegna viðskipta erlendis 7. til 8. október:
Borgun leiðréttir um fimm prósent
MÖRKUÐUM FYLGT Kortafyrirtækin segj-
ast eiga óhægt um vik með að breyta
gengisskráningu afturvirkt.
Kreppa frystir slökkviliðsbíla
Ekkert verður að sinni af fyrirhug-
uðum kaupum Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins á fjórum nýjum
slökkviliðsbílum. Af því er kemur fram
í fundargerð stjórnar slökkviliðsins er
þessi ákvðrðun tekin „með tilliti til
þeirrar stöðu sem er komin upp“.
ÖRYGGISMÁL
KJÖRKASSINN