Tíminn - 03.09.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 03.09.1983, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 ffréttlrí INGAÞYRI TIL STARFA HJÁ FRAMSÓKN ■ Inga Þyrí Kjartansdóttir hóf störf á skrifstofu Framsóknarflokksins í gær. Að hluta til starfar hún á aðalskrifstofu flokksins og að hluta hjá Kjördæmis- sambandi framsóknarfélaganna í Reykjaneskjördæmi. Inga Þyrí sagðist hlakka til að takast á við þau mörgu verkefni sem við væri að glíma í félagsstarfi Framsóknarflokks- ins. En einkum vonaðist hún til þess að sjá aukið starf kvenna í flokknum. Inga Þyrí telur mikið vanta á að þátttaka kvenna væri eins mikil og æskilegt væri og ætti það jafnt við um hin einstöku flokksfélög, nefndir og kjördæmaráð sem og í hinum æðstu stofnunum flokksins, svo sem í stjórn hans og þingflokki. Ekki sé t.d. vansa- laust að í þingflokki Framsóknarflokks- ins - einum flokka - finnist engin kona. „Ég vona að breyting á þessu öllu eigi sérstað á næstu árum,“ sagði Inga Þyrí. ■ Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins býður Ingu Þyrí velkomna til starfa á skrifstofu Framsóknarflokksins. Tímamynd Róbert Hefur það bjargað þér ----®_________ STENI - VEGGKLÆÐNING STENI-veggklæðning er frábær fyrir flestar gerðir nýbygginga, t.d. einbýlishús, fjölbýlishús, skóla, iðnaðar- og verslunarhúsnæði, svo eitthvað sé nefnt. Andlitslyfting fyrir gamta húsið. STENI-veggklæðning er tilvalin þegar endurnýja þarf gamla húsið, ekki síst vegna þess hve vel hún gengur með öðrum efnum, s.s. bæsuðu eða máluðu timbri og gefur þannig ýmsa möguleika. Orkusparnaður og einangrun- argildi. Mörg eldri hús eru illa einangruð og þ.a.l. dýr í upphitun. Með STENI-klæðningu og glerullar- einangrun á útveggi fæst hlýtt og notalegt hús og stórum minni upphitunarkostnaður. STENI - VEGGKLÆÐNING - Sannkallað „steinefni" fyrir húsið BYGGINGAVÖRUVERSLUN KÓPAVOGS HMBURSALAN SKEMMUVEGI 2 SÍMI:41000 Krem og lotion taktu bestu kosti hvors um sig og þá hefurðu: CREMEDAS Jafnvel bestu lotion og bestu hörundskrem hafa ekki eiginleika Cremedas. Cremedas er nefnilega „bœði-og”: hörundskrem og bodylotion í einu. 1 Cremedas hefur mýkjandi, nœrandi og verndandi eiginleika kremsins. Þá eiginleika, sem halda húðinni mjúkri og þjúlli. Cremedas er ekki feitt eins og krem og leggst þess vegna ekki í lag utan ú húðinni. 2 Cremedas er þægilegt í notkun. Það er auðvelt að bera ú sig og það hverfur fljótt inn í húðina, eins og lotion. Það gefur húðinniþann raka, sern hún þarfnast tilað sporna við þurrki, ertingu og súrindum. Hin góðu úhrif haldast lengur en af venjulegu lotion. Cremedas mýkir og verndar eins og krem, smýgur fljótt inn í húdina, eins og lotion. JOPCOh.f. Vatnagörðum 14, sími 39130 UTBOD Fáskrúðsfjörður. Stjórn verkamannabústaða, Búðahrepps,óskar eftir tilboðum í byggingu þriggja íbúða, í fímm íbúða raðhúsi, heildarfíatarmál íbúa 268 m\ rúmmál 828 m ’. Húsið verður byggt við götuna Skólavegur, Fáskrúðsfírði og skal skila fullfrágengnu 1. des. 1984. Afhending útboðsgagna eríhreppsskrifstofu Búðahrepps, Fáskrúðsfírði og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins, frá mánudeginum 5. september 1983, gegn kr. 5.000.- skila- tryggingu. Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn 20. sept. n.k. kl. 14.00 og verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum. f.h. stjórnar verkamannabústaða Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. ^ Húsnæðisstofnun ríklsins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.