Tíminn - 04.06.1987, Page 14
14 Tíminn Fimmtudagur 4. júní 1987
lllllllllllllllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP ^ '-.l llll I I lil llllllllll I I III Iliillllll I
- Fyrsti þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokk-
ur í fjórum þáttum gerður eftir skáldsögu eftir
Mervyn Peake. Aðalhlutverk: Derek Jacobi og
Judy Parfitt. Sagan gerist á eynni Sark á
Ermarsundi. Ey þessa hefur sórvitringurinn Har-
old Pye valiðtil að birta eyjarskeggjum kærleiks-
boðskap sinn og gera hana að sælustað á jörðu.
En margt fer öðruvísi en hann ætlar.
22.15 Vígsluhátíð í Vínarborg. Sjónvarpsupptaka
frá kvöldskemmtun við opnun nýrrar menning-
armiðstöðvar 17. þessa mánaðar. Þar komu
fram St. Martin in the Fields, Peter Alexander,
ballettflokkur Vínaróperunnar og annar dansf-
lokkur til, Agnes Baltsa, Gilbert Becaud, José
Carreras, Kór alþjóðaskólans I Vín, Placido
Domingo, Udo Jiirgens, Jerry Lewis, Barry
Manilow, Alla Pugatskova, Vínardrengjakórinn
og Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar. (Evróvisón
- Austuríska sjónvarpið)
00.50 Dagskrárlok.
Mánudagur
8. júní
Annar í hvítasunnu
18.30 Hrlngekjan. (Storybreak) Sjðundi þáttur.
Bandarískur teiknimyndallokkur. þýðandi Ósk-
ar Ingimarsson. Sögumaður Valdimar Örn Flyg-
enring.
18.55 Stelnn Markó Pólós (La Pietra di Marco
Polo) Fjórðl þáttur. Italskur myndaflokkur lyrir
bðrn og unglinga, Þýðandi Þuríður Magnúsdótt-
ir.
19.20 Fréttaágríp á táknmáli.
19,25 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskré
20.35 Kvöld I Rauðu myllunni. (Femmes,
femmes, femmes) I þessum franska sjónvarps-
þætti er fylgst með skemmtiatriðum á leiksviði
veitingahússins sögufræga, Rauðu myllunnar I
Paris. Eins og hefðin býður setja fagrar konur
mestan svip á sýninguna, meðal þeirra er söng-
og dansmærin Debbie de Coudreaux og að
sjálfsögðu kan-kan dansflokkurínn.
22.00 Jamaikakráln - Siðari hluti. (Jamaica Inn)
Ný, bresk sjónvarpsmynd gerð eftir samnefndri
skáldsögu eftir Daphne du Maurier sem komið
hefur út á íslensku. Leikstjóri Lawrence Gordon
Clark. Aðalhlutverk: Jane Seymour, Patrick
McGoohan, Trevor Eve.John McEnerey, Billie
Whitelaw og Peter Voughan. Sagan gerist á
öldinni sem leið. Ung slúlka fær athvarf hjá
skyldmennum sem búa á eyðilegum stað úti við
hafiö. Þar eru framin myrkraverk sem söguhelj-
an fær veður af og eftir það er ilf hennar I hættu.
Þýð:G. Kolbeinsson,
23.40 Fegurðardrottnlng fslands 1987. Bein
sending frá úrslitakeppni og krýningu.
00.15 Dagskrárlok.
0
Q
STÖÐ2
Fimmtudagur
4. júní
16.45 Guð getur beðið (Heaven Can Wait) Banda-
rísk gamanmynd með Warren Beatty og Julie
Cristie í aöalhlutverkum. Oft er talað um mann-
leg mistök, en englum getur líka orðið á (
messunni. I fljótfærni nær einn þeirra í ófeigan
mann og tekur hann með til himna. Þar verður
uppi fótur og fit þegar hið sanna kemur í Ijós.
18.00 Myndrokk._______________________________
19.00 Ævintýri H.C. Andersen. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.05 Opin lína. Áhorfendur Stöðvar 2 á beinni
línu í síma 673888.
20.25 Sumarliðir. Hrefna Haraldsdóttir kynnir
helstu dagskrárliði Stöðvar 2 næstu vikuna,
virðir fyrir sér iðandi mannlífið í höfuðborginni
og stiklar á menningarviðburðum. Stjórn upp-
töku Hilmar Oddsson.
20.55 Dagar og nætur Molly Dodd (The Days
And Nights Of Molly Dodd).
Nýr bandarískur gamanmyndaflokkur með Blair
Brown, William Converse-Robberts, Allyn Ann
McLerie og James Greene í aðalhlutverkum.
Fjallað er um margslungið líf hinnar ungu,
gáfuðu og aðlaðandi Molly Dodd á gamansam-
an hátt. Molly er fráskilin og fasteignasali að
atvinnu. En líf hennar er enginn dans á rósum.
Fyrrverandi eiginmaður Mollyar, sem er af-
dankaður jazzleikari, hefur ekki alveg sagt skilið
við hana og býöur sjálfum sér í mat með
reglulegu millibili. Móðir Mollyar á þá ósk
heitasta að verða amma og er sífellt að angra
Molly með því. Yfirmaður hennar og fyrrverandi
elskhugi hótar I sífellu að stytta sér aldur og
lyftuverðinum í húsinu hundleiðast Ijóðin sem
Molly skrifar.____________________________
21.25 Dagbók Lyttons (Lytton's Diary) Nýr bresk-
ur sakamálaþáttur. Neville Lytton er sá slúður-
dálkahöfundur sem á hvað mestri velgengni að
fagna á Fleet stræti. Hann er því hataður og
dáður í senn. En frama hans er ógnað þegar (
Ijós kemur að ein besta grein hans til þessa er
uppspuni frá rótum. Lögsókn fylgir í kjölfarið og
•er staða Lyttons og orðstír að veði. Til þess að
bjarga sér frá falli, leitar Lytton heimildarmenn
sína uppi að nýju. Hann kemst að því að hann
var sjálfur fórnarlamb samsæris en spurningin
er hvort hægt sé að birta sannleikann.
22.151 hlta nætur (Still 01 The Night). Hörku-
spennandi bandarisk kvikmynd trá 1982 með
Meryl Streep, Roy Scheider, Jessica Tandy og
Joe Griifasi i aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Robert Benton. Niður Skuggalegt stræti læöist
bílaþjófur fram með bilaröðinni. Hann reynir
hverja hurðina á tætur annarri uns ein þeirra
opnast og út fellur blóðugt lík; Sálfræðingur einn
flækist inn í málið þegar upp kemst að likið er
af einum sjúklingi hans. Oll bönd beinast að
ástkonu hins myrta og er hún einnig sjúklingur
sálfræðingsins. Hann laðast að konunni og
reynir að hjálpa henni. Við það þarf hann að
horfast I augu við morðingjann.
23.45 Flugumenn (I Spy) Nýr bandarlskur njósna-
myndaflokkur með Bill Cosby og Robert Culp í
aöalhlutverkum. Tveir þrekmiklir og dugandi
bandarlskir njósnarar fela sitt rétta andlit á bak
við tennislþróttina. Starfsvið þeirra eru alþjóð-
legar njósnir og þegar þeir komast i hættu er
það oft klmnigáfa þeirra ásamt kunnáttu i júdói
og karate sem bjargar þeim. Þættirnir eru teknir
upp i mörgum löndum og gefa raunverulegan
blæ af heimi njósnara. Bill Cosby hlaut verðlaun
fyrir leik sinn I þessum þáttum og var I raun
uppgötvaður á þessum tima.
00.35 Dagskrárlok.
Föstudagur
5. júní
16.45 Fjölskyldumál (Family Secrets). Bandarísk ,
sjónvarpsmynd frá árinu 1984 með Maureen
Stapelton, Melissa Gilbert og Stefanie Powers
í aðalhlutverkum. Þrjár konur, amma, mamma ,
og dóttir, eyða saman helgi og verður hún
tilfinningarík í meira lagi. Upp á yfirborðið koma
leyndarmál og sannleikur fortíðarinnar.
18.20 Knattspyrna - SL mótlð -1. deild. Umsjón:
Heimir Karlsson._____________________________
19.30 Fréttlr.
20.00 Heimsmetabók Guinness (Guinness Book
Of Records). Mönnum virðist í blóð borið að
reyna krafta sína og hæfileika og gera sitt
ýtrasta til að skara fram úr. I heimsmetabók
Guinnes er hinum ýmsu sérkennum og afrekum
safnað saman á einn stað til að menn geti borið
dýrðina augum. I þessum þætti kynnir hinn
kunni sjónvarpsmaður David Frost hin ýmsu
uppátæki og met svo sem: Hver er stærstur,
hver er minnstur, hver getur hlaupið hraðast,
stokkið lengst, borðað mest af rúllupylsu eða
staðiö lengst á haus?
20.55 Hasarleikur (Moonlighting). Ðandarískur
framhaldsmyndaflokkur með Cybill Sheperd og
Bruce Willis í aðalhlutverki. Maddie Hayes og
David Addison lenda í einkennilegu máli er þau
finna lík ungs manns, en i hendi hans er bréf.
21.45 Sheena, drottning frumskógarins (She-
ena) Bandarísk ævintýramynd með rómantísku
ívafi frá 1984 með Tanya Roberts, Ted Wass,
Donovan Scott og Elisabeth of Toro. Leikstjóri
er John Guillermin. Á unga aldri verður Sheena
viðskila við foreldra sína í myrkviðum frum-
skóga Afríku. Ættflokkur einn finnur hana og
tekur að sér og hún elst upp samkvæmt
lögmálum náttúrunnar. Löngu seinna ferðast
þáttargerðarmaður sjónvarps um Afríku og
verður Sheena þá á vegi hans.
23.00 Einn á móti milljón (Chance In A Million).
Nýr breskur skemmtiþáttur með Simon Callow
og Brenda Blethyn í aðalhlutverkum. Hlutskipti
Tom Chance í lífinu er grátbroslegt. Atburðir
sem heyra til undantekninga og likurnar fyrir því
að þeir geti gerst eru einn á móti milljón, henda
hann oft og iðulega og virðast eðlilegur þáttur í
lífi hans.
23.30 Lost (Kiks). Bandarísk spennumynd frá
1985. Aðalhlutverk: Anthony Geary, Shelley
Hack og Tom Mason. Leikstjóri: William Wiard.
Myndin fjallar um unga, óvenjulega kennslu-
konu. Hún keyrir um á hraðskreiðu mótorhjóli,
lifir ætíð á mörkunum og teflir á tæpasta vað.
Þegar hún hittir ungan mann sem hugsar á
svipuðum nótum er hættan á næsta leiti.
01.05 Fyrirbærið (The Thing). Bandarísk kvik-
mynd frá árinu 1982 með Kurt Russel i aðalhlut-
verki. Myndin gerist í veðurathugunarstöð á
Suðurskautslandinu. Þar vinna tólf menn við
rannsóknir. Þeir finna óþekktan hlut sem hafði
fallið úr geimnum og verið grafinn í snjó í yfir
100 þúsund ár. Eftir að hluturinn er tekinn inn í
hús og þíddur fara ógnvænlegir hlutir að
gerast. Leikstjóri er John Carpenter. Myndin er
ekki við hæfi barna.
02.50 Dagskrárlok.
Laugardagur
6. júní
9.00 Kúm, Kúm. Teiknimynd.
09.25 Villl spæta. Teiknimynd.
09.30 Jóal björn í fjársjóðsleit. Teiknimynd
09.50 Ógnvaldurinn Lúsí (Lucie). Leikin barna-
mynd.
10.20 Alli: og íkornarnir
10.45 Herra T. Teiknimynd.
11.10 Þrumufuglarnir. Teiknimynd.
11.35Fimmtán ára (Fifteen). ( þessum þáttum
fara unglingar með öll hlutverk.
12.00 Hlé._____________________________________
15.30 Ættarveldið (Dynasty). Bifreið Blake Car-
rington er sprengd í loft upp og hann blindast.
Á sama tíma grátbænir biðill Krystle hana um
að skilja við Blake og giftast sér.
16.15 Kristján Þessi Sviðsljósþáttur er heimildar-
þáttur um Kristján Jóhannsson óperusöngvara,
líf hans og list. I þættinum syngur Kristján
nokkur lög af hljómplötu sinni, Með kveðju heim.
Umsjónarmaður er Jón óttar Ragnarsson.
17.00 Bíladella (Automania) Það er oft sagt um
bílasölumenn að þeir séu einna óheiðarlegustu
sölumenn fyrr og síðar. I þessum þætti kynnast
áhorfendur bílasölumönnum viða um heim,
m.a. heimsmethafa í bilasölu, Joe Girad, sem
selt hefur 1,425 bíla á einu ári.
17.30 NBA - Körfuboltlnn. Umsjónarmaöur
Heimir Karlsson.__________________________
19.00 Lúsí Ball (Lucy Ball) I sumar mun Stöð 2
sýna þætti Lucille Ball vikulega. Hún fer á
kostum og mun skemmta íslenskum áhorfend-
um á þann hátt sem henni er einni lagið.
19.30 Fréttir
20.00 Undirheimar Miaml (Miami Vice). Banda-
rískur spennuþáttur með Don Johnson og Philip
Michael Thomson í aðalhlutverkum. Fólagarnir
tveir leita að morðingja lögfræðings nokkurs,
sem var að rannsaka eiturlyfjasmygl.___________
20.45 Spéspegill (Spitting Image)
21.15 Bráðum kemur betri tíð. (We’ll meet again).
Breskur framhaldsþáttur um lífið f smábæ á
Englandi í seinni heimstyrjöldinni. 8. þáttur.
Aðalhlutverk: Susannah York og Michael J.
Shannon.
22.15 Horfinn sporlaust (Into Thin Air). Ný banda-
rísk kvikmynd frá 1985 með Ellen Burstyn,
Robert Prosky, Sam Robarts og Tate Donovan
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Roger Young.
Ungur námsmaður á leið frá Ottawa í Kanada
til Ohio fylkis í Bandaríkjunum, hverfur á
dularfullan hátt. Myndin lýsir örvæntingu fjöl-
skyldu drengsins, sérstaklega móðurinnar, sem
ræður einkaspæjara til að finna soninn. Símtal
frá Nebraska er eina vísbendingin sem hann
hefur að styðjast við.
23.45' Syndajátningar (True Confessions).
Bandarísk kvikmynd frá 1981 með Robert De
Niro, Robert Duvall, Charle Durning og Ed
Flanders í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Ulu
Grosbard. Tveir bræður velja sér ólikt ævistarf,
annar gerist prestur en hinn lögregluforingi.
Leiðir þeirra skerast þegar velgjörðarmaður
sóknarprestsins er bendlaður við morð.
01.30 Fóstbræðurnir (Brotherhood of Justice).
Nýleg bandarísk sjónvarpsmynd með Keanu
Reeves, Lori Loughlin, Kiefer Sutherland og
Joe Spano í aðalhlutverkum. Glæpamenn ráða
ríkjum ■> í smábæ nokkrum þar til nokkur
ungmenni þola ekki við lengur og veita þeim
viðnám.
03.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. júní
09.00 Birnlrnir. Teiknimynd
09.20 Kötturinn Kell. Teiknimynd.
09.40 Tótl töframaður (Pan Taw) Leikin barna- og
unglingamynd.
10.15 Tlnna tildurrófa (Punky Brewster). Mynda-
flokkur fyrir börn.
10.40 Drekar dýflissur. Teiknimynd.
11.00 Henderson krakkarnir (Henderson Kids).
Leikin barna- og unglingamynd um baráttu
nokkurra unglinga gegn óprúttnum náungum.
12.00 Vinsældalistinn í Stóra Bretlandi. (Count
Down). Tónlistarþáttur á léttu nótunum, þar sem
stiklað er á stóru á breska vinsældalistanum.
Ýmsir góðir gestir koma í heimsókn til banda-
ríkjamannsins Adam Curry og litið er á tónleika-
hald í Evrópu. Einnig er efnilegasta lag vikunnar
kynnt og spilað.
12.55 Rólurokk. I þessum þætti verður litið á feril
hljómsveitarinnar Spandau Ballet og rætt við
meðlimi sveitarinnar.
13.50 Þúsund volt. leikin verða þungarokkslög að
hætti hússins.
14.05 Pepsi-popp Uppskrift þáttarins er í höndum
Pepsi og Nino Firetto. Leikin verða létt lög við .
allra hæfi og að auki sagðar nýjustu fréttir úr
tónlistaheiminum.
15.00 Stubbarnir. Teiknimynd.
15.30 Gelmálfurinn (Alf) Bandarískur myndaflokk-
ur fyrir börn á öllum aldri. Heimilishaldið hjá
Tanner fjölskyldunni er fremur óvenjulegt eftir
að hin 202ja ára geimvera Alf bætist í hópinn.
Með helstu hlutverk fara Max Wright, Anna
Schedden, Andrea Elson og Benji Gregory.
16.00 Fjölbragðaglíma (Wrestling). Fylgster með
tröllvöxtnum glímuköppum í íþrótt þar sem
nánast allt er leyfilegt.
17.00 Undur alheimsins (Nova). Hér áður fyrr
þótti ófrjósemi hin ægilegasti dómur. Nú er öldin
önnur því að glasabörn, sæðisbankar og leigu-
mæður hafa skotið upp kollinum á síðustu
árum. í þessum þætti er litið á þær tækniframfar-
ir sem gera ófrjóum pörum kleift að eignast börn.
18.00 Bílaþáttur. Ðílasérfræðingar Stöövar 2 fylgj-
ast með því markverðasta sem er að gerast á
bílamarkaðinum og reynsluaka nokkrum bílum.
I þessum þætti er Ford Bronco reynsluekið,
fjallað um nýjan Citroen AX og tveir fornbílar eru
skoðaðir nánar.
18.25 íþróttir Blandaður þáttur með efni úr ýmsum
áttum. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Fjölskyldubönd (Family Ties). Þessi banda-
ríski gamanþáttur hefur notið mikilla vinsælda í
heimalandi sínu. ( aðalhlutverkum eru Michael
J. Fox, Justine Bateman, Meredith Baxter-Birn-
ey og Michael Gross.
20.25 Meistari. Úrslitaþáttur. Til úrslita keppa:
Ágústa Þorkelsdóttir, bóndi, lllugi Jökulsson,
blaðamaður, Jóhannes Jónasson, lögreglu-
maður og Ragnheiður Erla Bjarnadóttir, líf-
fræðingur. Stjórnandi er Helgi Pétursson.
21.05 Lagakrókar (L.A.Law). Vinsæll bandarískur
framhaldsmyndaflokkur um líf og störf nokkurra
lögfræðinga í Los Angeles. Að vanda er í nógu
að snúast hjá lögfræðingum í Los Angeles.
Kuzak lendir á bak við lás og slá eftir að hafa
tekið að sér mál Sid, Stewart viðurkennir
afbrýðisemi i garð Cromwell og Roxanne eign-
ast tryggan aðdáanda.
21.55 Kleópatra (Cleopatra) Fjórföld Óskarsverð-
launamynd frá 1963. Með aðalhlutverk fara
Elisabeth Taylor, Richard Burton og Rex Harri-
son. Leikstjóri er Joseph L. Mankiweicz. Myndin
gerist í Rómaveldi hinu forna á tímum Júlíusar;
Sesars. u.þ.b. 44 f. Kr. Hún fjallar um samskipti
Sesars, Antóníusar og Kleópötru, ástir þeirra og
valdabaráttu.
02.00 Dagskrárlok.
Mánudagur
8. júní
15.45 Eftirminnilegt sumar. (A Summer To
Rembember). Hugljúf mynd fré 1985, um sam-
band ungs, mállauss drengs og apa sem lært
hefur fingramál. Aöalhlutverk: James Farentino,
Tess Harper, Burt Young og Louise Fletcher.
Leikstjórn: Robert Lewis.
17.20 Faölr mlnn Stravinsky. (My Father Stravin-
sky). Soulima Slravinsky, sonur hins fræga
tóskálds Igor F. Stravinsky, kynnir æviferil föður
slns I tali og tónum. Til þessa fær hann hjálp
tónlistarmannsins Pinchas Zukerman.
18.30 Börn lögreglulorlngjans. (Inspector's
Kids). Nýr Italskur myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þrjú börn takast á við erfið sakamál
og lenda I ýmsum ævinlýrum._______________
19.05 Hetjur hlmlngelmslns. Teiknimýnd.
19.30 Fréttir.
20.00 Út I loftlð Guðjón Arngrímsson fjallar á
léttan hátt um útiveru og útivist Islendinga. I
pessum þætti leggur Guðjón leið sína I Naut-
hólsvíkina þar sem Árni Erlingsson, verslunar-
maður eyðir flestum tómstundum sínum á
seglbretti.
20.30 Bjargvætturinn. (Equalizer) Bandariskur
sakamálaþáttur með Edward Woodward í aöal-
hlutverki. Blaðamanni er rænt og kemur einka-
spæjarinn McCall (Edwaard Woodward) honum
til hjálpar. _____________________________
21.20 Ferðaþættlr National Georgraphlc. I þess-
um þætti er fylgst með veðurfræðingum sem
slógu upp tjaldborgum á sléttunum miklu, aust-
an Klettafjallanna I Bandaríkjunum. Einnig er
79 ára gamall verkamaður I Pennsilvaniu fylki
heimsóttur. Hann býr til sérstæð tréhúsgögn og
staðhæfir að hann „láti anda trjánna lausan" við
smíðarnar.
21.20Charlie Chan og élög drekadrottnlngar-
Innar. (Charlie Chan and the Curse of the
Dragoon Queen). Austurlenski lögregluforing-
inn Charlie Chan kom fyrst fram á sjónarsviðið
um 1930 og náði þá miklum vinsældum. Nú er
hann aflur mættur til leiks I bandarískri grln- og
spennumynd frá 1981 með Peter Ustinov, Lee
Grant, Angie Dickinson, Michelle Pfeiffer og
Racel Roberts I aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Clive Donner. Charlie Chan kemur Iðgreglunni
I San Francisco til hjálpar I dulurfullu morðmáli.
Þar kemst hann í kast við hina ógnvænlegu
drekadrottningu sem ræður lögum og lofum í
Kínahverfi borgarinnar.
23.25 Dallas. Systir Claytons kemur til Southfork til
þess að vera viðstödd brúðkaup bróður slns og
Ellie.
00.151 Ijósaskiptunum (Twilight Zone). Banda-
rlskur spennuþáttur um illskiljanleg fyrirbæri
sem fara á kreik i Ijósaskiptunum.
00.45 Dagskrárlok.
Fimmtudagur
4. júní
7.00- 9.00 Pétur Steinn og Morgunbylgjan.
Pótur kemur okkur róttu megin framúr með
tilheyrandi tónlist og lítur fyrir blöðin. Bylgju-
menn verða á ferðinni um bæinn og kanna
mannlíf og umferð
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmælis-
kveðjur og spjall til hádegis. Fjölskyldan á
Brávallagötunni lætur í sér heyra.
Fréttir kl. 10.00,11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er I fréttum
og leikur lótta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og síðdegis-
poppið. Gömlu uppáhaldslögin og vinsælda-
listapopp í réttum hlutföllum. Fjallaðumtónleika
komandi helgar.
Fréttlrkl. 14.00,15.00,16.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík
síðdegis. Ásta leikur tónlist, lltur yfir fréttirnar
og spjallar við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
21.00-24.00 Sumarkvöld á Bylgjunni.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Valdís
Óskarsdóttir. Tónlist og upplýsingar um veður
og flugsamgöngur.
Föstudagur
5. júní
7.00- 9.00Pétur Steinn og Morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur róttu megin framúr með
tilheyrandi tónlist og lítur fyrir blöðin.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið á sínum stað, afmælis-
kveðjur og kveðjur til brúðhjóna.
Fréttir kl. 10.00,11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
Fréttlr kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og síðdegis-
poppið. Ásgeir hitar upp fyrir helgina.
Fróttir kl. 14.00,15.00,16.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík
síðdegis. Ásta leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar
og spjallar við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttirá Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
Fróttir kl. 19.00.
21.00-03.00 Haraldur Gíslason nátthrafn Byl-
gjunnar kemur okkur í helgarstuð með góðri
tónlist.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Ólafur
Már Björnsson leikur tónlist fyrir þá sem fara
seint í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
Laugardagur
6. júní
8.00-12.00 Jón Gústafsson á laugardags-
morgni. Jón leikur tónlist úr ýmsum áttum, lítur
á það sem framundan er hér og þar um helgina
og tekur á móti gestum.
Fréttir kl. 8.00 og 10.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.00-15.00 Ásgeir Tómasson á léttum laugar-
degi. öll gömlu uppáhaldslögin á sínum stað.
Fréttir kl. 14.00.
15.00-17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Hörður
Arnarson kynnir 40 vinsælustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-19.00 Laugardagspopp á Bylgjunni.
Fréttirkl. 18.00.
19.00-21.00 Rósa Guöbjartsdóttir líturyfiratburði
síðustu daga leikur tónlist og spjallar við gesti.
Fréttir kl. 19.00.
21.00-23.00 Anna Þorláksdóttir í laugardags-
skapi. Anna trekkir upp fyrir helgina.
23.00-04.00 Þorsteinn Ásgeirsson, nátthrafn
Bylgjunnar heldur uppi helgarstuðinu.
4.00- 8.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Haraldur
Gíslason með tónlist fyrir þá sem fara seint í
háttinn, og hina sem snemma fara á fætur.
Sunnudagur
7. júní
8.00-9.00 Fréttir og tónlist í morgunsárið.
9.00-11.30 Hörður Arnarson. Þægileg sunnu
dagstónlist. Kl. 11.00 fær Hörður góðan gest
sem velur uppáhaldstónlist sína.
Fróttir kl. 10.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10-13.00 Vikuskammtur Einars Sigurðsson-
ar. Einar lítur yfir fréttir vikunnar með gestum í
stofu Bylgjunnar.
Fréttir kl. 12.00.
13.00-16.00 Bylgjan í sunnudagsskapi. Tónlist
héðan og þaðan.
Fréttir kl. 14.00 og 16.00.
16.00-19.00 óskalög allra stétta. óskalögin þín,
uppskriftir og afmæliskveðjur og sitthvað fleira.
18.00-18.10 Fréttlr.
19.00-21.00 Haraldur Gíslason og gamla rokkið.
21.00-24.00 Popp á sunnudagskvöldi. Þor-
steinn J. Vilhjálmsson kannar hvað helst er á
seyði í poppinu. Breiðskífa kvöldsins kynnt.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Ólafur
Már Björnsson. Tónlist og upplýsingar um
veður.
OLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PHENTSMIÐJAN
édddci H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI45000
í bflinn
i bátinn
á vinnustaöinn
á heimilið
í sumarbús
< ferðalagíð
og fl.
Nýtt og ódýrt
Ef þú hefur einu sinni
reynt Effco-þurrkuna viltu
ekkert annað. Effco-
þurrkan er bæði mjúk og
sterk. í henni sameinast
kostir klúts og tvists, það
eykur notagildi Effco-
þurrkunnar. Effco-þurrk-
an sýgur í sig hvers konar
vætu á svipstundu. Effco-
þurrkan er ómissandi í
bílinn, bátinn, ferðalagið,
á vinnustaðinn og til
heimilisins.
Effco-þurrkan
fæst hjá okkur.