Tíminn - 14.07.1987, Síða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 14. júlí 1987
Þriðjudagur 14. júlí 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Frjálsíþróttakeppni landsmótsins:
Aldrei sterkari
- öll landsmótsmetin í kvennaflokki féllu og einnig meirihlutinn
hjá körlunum
Frjálsíþróttakeppnin á landsmót-
inu á Húsavík er líklega sú jafnbesta
sem verið hefur á landsmóti. Óvenju
margt landsliðsfólk er í félögum
innan UMFÍ og breiddin hefur einn-
ig aukist. Þannig stukku t.d. átta
fyrstu í hástökki karla yfir 1,91 m,
hæð sem hefði tryggt a.m.k. þriðja
sætið fyrir ekki svo löngu síðan.
Hápunktur frjálsíþróttakeppninn-
ar var að sjálfsögðu Norðurlandamet
Einars Vilhjálmssonar í spjótkasti
en mjög góður árangur náðist einnig
í öðrum greinum.
Þórdís Gísladóttir felldi 1,85 m
mjög naumlega í hástökkinu, fór
1,80 m í keppninni. Hún virtist hafa
alla burði til að setja íslandsmet en
rann aðeins til í beygjunni. Svanhild-
ur Kristjónsdóttir hljóp 100 m á
12,17 sek. í undanrásum sem er
landsmótsmet þrátt fyrir svolítinn
mótvind. Hún er að komast á fulla
ferð eftir meiðsl og hafði mikla
yfirburði í lOOm hlaupinu. Svanhild-
ur var stigahæst kvenna í frjálsum
íþróttum, sigraði í þeim þremur
greinum sem hver keppandi má taka
þátt í. Þórdís vann besta afrekið í
kvennaflokki samkvæmt stigatöflu.
Erlingur Jóhannsson fagnaði sigrí í
800 m hlaupi en Brynjúlfur Hilmars-
son mátti sætta sig við annað sætið
þrátt fyrir góðan endasprett.
Tímamynd Pjetur.
Rut Ólafsdóttir kom fyrst í mark í
800 m hlaupi kvenna, lngibjörg
ívarsdóttir varð önnur og Unnur
Stefánsdóttir þríðja.
Tímamynd Pjetur.
Keppnin í langstökki kvenna var
mjög jöfn og þar stóð Svanhildur
upp sem sigurvegari með 5,68 m.
Birgitta Guðjónsdóttir varð önnur
með 5,61 m en það var hennar eina
gilda stökk í keppninni. íris Grön-
feldt sigraði með yfirburðum í spjót-
kastinu og Rut Ólafsdóttir vann
bæði 800 og 1500 m hlaup. Guðbjörg
Gylfadóttir vann kúluvarpið og Soff-
ía Rósa Gestsdóttir kringluna. Þór-
dís vann grindahlaupið og sveit
UMSK bæði boðhlaupin. Allt er
þetta „samkvæmt bókinni“ en.
keppnin þó mjög jöfn og spennandi.
Svipaða sögu er að segja af karla-
keppninni, úrslitin komu lítið á óvart
en keppnin var hörð. Egill Eiðsson
vann bæði 100 m og 400 m en
Aðalsteinn Bernharðsson sem sigr-
aði f þessum greinum á síðasta
landsmóti var ekki alveg á fullri ferð
vegna meiðsla. Erlingur Jóhannsson
íslandsmethafi vann 800 m hlaupið
og Brynjúlfur Hilmarsson 1500 og
5000 m. Cees van de Ven stökk
lengst allra í langstökkinu en Kári
Jónsson í þrístökki. Unnar Vil-
hjálmsson vann sína grein, hástökk-
ið og Aðalsteinn Bernharðsson var
fljótastur yfir grindurnar. Þá köst-
uðu Einar Vilhjálmsson, Pétur
Guðmundsson og Helgi Þór Helga-
son áhöldunum lengst allra og Auð-
unn Guðjónsson fór hæst á stöng-
inni. Einar vann besta afrekið sam-
kvæmt stigatöflu og Brynjúlfur varð
stigahæstur.
HSK sigraði örugglega í frjáls-
íþróttakeppninni eins og við mátti
búast en UMSK og UÍA voru á
svipuðu reki í 2. og 3. sæti. -HÁ
SUMAR ’f 57
(mon) í heyskapii an
VICON verksmidjurnar hafa ávallt verið brautryðjend-
ur í gerð landbúnaðarvéla, samanber hjólmúgavélarn-
ar. VICON er ávallt á undan sinni samtíð og nafnið
tryggir gæðin.
Yarist eftirlíkingar
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND AT.T.T
Vélabær hf. Andakílshr. S. 93-5252
Ólafur Guðmundsson,
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-5622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-4191
Gudbjartur Björgvinsson,
Sveinsstödum, Klofningshr. Dal. S. 93-4475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-8145
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
Bílav. Pardus, Hofsósi S. 95-6380
Bílav. Dalvíkur, Dalvík S. 96-61122
Dragi Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97-8340
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson,
Stóra Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúdum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts Iðu S. 99-6840
Hafið samband við sölumenn okkar
og kynnið ykkur verð og greiðslukjör
G/obus? Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
- okkar hvimur snýst um gædi
Tímamynd Pjetur
Norðurlandamet
Einar Vilhjálmsson bætti Norðurlanda-
metið í spjótkasti á landsmótinu á Húsavík
um helgina, kastaði 82,96 m. Fyrra metið átti
Svfinn Dag Vennlund, 82,64 m.
Það var hreint ótrúleg stemmning á
íþróttavellinum á Húsavík meðan spjótkast-
keppnin fór fram. Áhorfendur sem skiptu
þúsundum höfðu vanist því fyrri tvo daga
íandsmótsins að hvetja keppendur Víkinga-
leikanna áfram með stígandi lófaklappi og nú
fékk Einar Vilhjálmsson að njóta þess einnig.
Fyrsta kast Einars var 79,62 m og áhorfendur
sáu að hann gat mun betur. Tuttugu mínútur
liðu þar til aftur kom að Einari enda
keppendur nær þrjátíu talsins. Aftur var
Einar klappaður af stað og nú flaug spjótið
81,80 m. Enn var góð bið og nú lögðu
áhorfendur allt í klappið. Einar stóð heldur
betur undir væntingunum og menn gripu
andann á lofti þegar spjótið þeyttist af stað.
Fagnaðarlætin urðu gífurleg þegar spjótið
lenti greinilega handan við flaggið sem sett
hafði verið niður þar sem íslandsmetiðnvar.
Niðurstaðan varð líka sú að fslandsmeíidvar
fallið og það sem meira var, Norðuriahda-
metið iíka, 82,96 m. Einar átti þrjú köst eftir
og kastaði yfir 79 m í tveimur þeirra og það
þriðja var tæpir 78 m.
Einar var að vonum ánægður með árangur-
inn, sagði mikilli spennu af sér létt og að hann
hefði vitað að hann ætti þetta inni. Einar var
ánægður með allar aðstæður á Húsavík,
sagði vindinn hafa hentað sér mjög vel. Ekki
kvað hann áhorfendur hafa truflað einbeit-
inguna eins og sumir áttu von á, hann væri
orðinn svo keppnisreyndur að svona hvatning
virkaði vel á sig.
Einar stoppaði ekki lengi á Húsavík, kom
kvöldið fyrir spjótkastkeppnina og fór strax
og henni var lokið. Hann keppir á heimsleik-
um stúdenta í Júgóslavíu í vikunni, undan-
keppnin er annaðkvöld og úrslit á föstudag- ■
inn. -HÁ
Vinningstölurnar 11. júlí 1987.
Heildarvinningsupphæð: 3.633.582,-
1. vinningur var kr. 1.819.576,-
og skiptist á milli 5 vinningshafa, kr.
454.894,- á mann.
2. vinningur var kr. 544.986,-
og skiptist hann á 274 vinningshafa,
kr. 1.989,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.269.020,-
og skiptist á 5.930 vinningshafa, sem
fá 214 krónur hver.
532
Upplýsingasími:
685111
Vel heppnað landsmót
haldið í blíðskaparveðri
Nítjánda landsmót UMFÍ var
haldið í blíðskaparveðri á Húsavík
um helgina eins og flestum mun
kunnugt. Mótið var mjög vel heppn-
að og voru landsmótsgestir fjölmarg-
ir. Talið er að um 14-16.000 manns
hafi heimsótt Húsavík um helgina
en keppendur og starfsmenn voru
alls um 3.000 talsins.
Mótið hófst á fimmtudagskvöld
og voru Víkingaleikarnir stór póstur
í dagskránni fyrstu tvo dagana.
Keppni hófst svo í hverri íþrótta-
greininni á fætur annarri og var nær
lagi að áhorfendum tækist ekki að
fylgjast með því sem áhugi var á en
að ekki væri af nógu að taka.
Keppnisgreinar voru hefðbundnar
en að auki sýningargreinar svo sem
siglingar, lyftingar, karate og bridge
svo eitthvað sé talið. Yngsta kyn-
slóðin keppti í kassabílaspyrnu og
BMX ralli, fjárhundar sýndu snilli
sína, lúðrasveit lék víðsvegar um
bæinn, ýmsar sýningar gat og að líta
og eitthvað að hafa fyrir alla.
Skarphéðinsmenn sigruðu með
yfirburðum f stigakeppni mótsins og
komu þátttakendur frá þeim víða
við sögu, hvort sem var f keppni eða
hvatningarhrópum.
Það sem flestum verður án efa
minnistæðast frá þessu landsmóti er
veðrið. Sólin skein í heiði alla dag-
ana og voru áhorfendur fáklæddir í
brekkunum við að horfa á spennandi
keppni. Sjálfsagt má finna einhver
smáatriði sem betur hefðu mátt fara
en þau skiptu einfaldlega engu máli,
það var öllum hjartanlega sama í
góða veðrinu.
Næsta landsmót verður f Mosfells-
sveit og er vonandi að það verði eins
vel heppnað og þetta. -HÁ
Guðmundur Jónsson formaður HSK með sigurlaun héraðssambandsins sem
fékk flest stig allra á landsmótinu. Að baki hans sést hluti keppnisfólksins sem
halaði inn stigin. Timunynd Pjetur.
Heildar-
stigin
Stig héraðssambandanna í öll-
um greinum samanlagt á lands-
mótinu:
1. HSK . .
2. UMSK
3. UMFN
4. UÍA ..
5. HSÞ ..
6. UMSE
7. UMFK
8. UMFB
9. UMSB
10. UMSS .
11. USAH.
12. HSS . . .
13. UMFG
14. HSH . .
15. UNÞ . .
16. UV . . .
17. UDN . .
18. USVS .
19. USVH.
20. HVÍ . .
21. HHF ..
22. USÚ ..
478,5
260,0
190,0
165,0
156,0
125,0
109,0
. 96,0
. 61,0
. 39,0
. 33,5
. 25,0
. 24,0
. 17,5
. 11,5
. 11,5
. 11,0
. . 7,0
.. 6.0
.. 3,5
.. 2,0
.. 1,0
VEISLA I HVERRI DOS
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA
AKUREYRI SÍMI : 96-21400
AFMÆLISTILBOÐ
jptd á swgrtwwwswwwww
i* Xi/l muW W W OL wJ w w WW mW w w w w
stuBuUnann
L
í tilefni 40 ára afmælis
Glóbus hf. hafa v-þýsku
Strautmann verksmiðj-
urnar ákveðið að veita
okkur sérstakan af-
mælisafslátt á tak-
mörkuðum fjölda af
fjölhnífavögnum.
VITESSE I DO
Tveggja öxla
38 rúmmetra
33 hnífar,
kr. 922.000.-
nú
kr. 882.000.-
Lækkun
40.000.-
LBF 262 L
Tveggja öxla
31 rúmmetra
23 hnífar
kr. 750.000.-
nú
kr. 699.000.-
Lækkun
51.000.-
STRAUTMANN fjölhnífavagnarnir eru vestur-þýsk hágæða vara. Tvær stærðir
31 rúmm. og 38 rúmm., með möturum, völsum og þverbandi, sem iosar í báðar áttir.
Útsláttur á hverjum hníf. Allur vökva- og rafknúinn og stjórnað úr ökumannshúsi
UMBOÐSMENN OKKAR - YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær hf. Andakílshr. S. 93-5252
Ólafur Guðmundsson,
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-5622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-4191
Guðbjartur Björgvinsson,
Sveinsstöðum, Klofningshr. Dal. S. 93-4475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-8145
J.R.J. Varmahlið S. 95-6119
Bílav. Pardus, Hofsósi S. 95-6380
Bílav. Dalvikur, Dalvík S. 96-61122
Dragi Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97-8340
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson,
Stóra Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. Og Lofts Iðu S. 99-6840
G/obusi
- okkar heimur snýst urn gæði
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555