Tíminn - 14.07.1987, Qupperneq 14
-14 Tíminn
Þriðjudagur 14. júlí 1987
FRÉTTAYFIRLIT
BAHREIN - íranskirbyssu-
bátar geröu árás á franskt
flutningaskip í norðurhluta
Persaflóans í fyrrinótt og virt-
ust áhafnir bátanna ekki hafa
neinar áhyggjur af veru sov-
éskra og bandarískra herskipa
á þessu svæði.
SEOUL — Chun Doo Hwan
forseti Suður-Kóreu gerði mikl-
ar breytingar á stjórn sinni,
tilnefndi nýjan forsætisráð-
herra og leysti þá ráðherra
sem einnig sinna embættum
innan stjórnarflokksins frá
störfum. Breytingarnar fylgdu í
kjölfar loforðs Chuns um að
vinna að því að skipuleggja
frjálsar og beinar forsetakosn-
ingar þar sem arftaki hans
verður valinn.
KAUPMANNAHÖFN -
Vestur-þýsk stjórnvöld hafa
ákveðið að láta Sýrlendinga fá
146 milljónir marka i efnahags-
aðstoð. Þessar milljónir hafa
hingað til verið frystar. Em-
bættismaður utanríkisráðu-
neytisins þýska sagði þetta
vera gert vegna tilrauna Sýr-
lendinga aö hætta öllu sam-
bandi við hryðjuverkamenn og
afneita slíkum gjörðum. Búist
er við að önnur ríki Evrópu-
bandalagsins taki upp sömu
stefnu og aflétti refsiaðgerðum
gegn stjórninni í Damascus.
WASHINGTON — Oliver
North, fyrrum starfsmaður
bandaríska þjóðaröryggis-
ráðsins, vitnaði í gær frammi
fyrir þingnefndum er rannsaka
vopnasöluna til Irans og mál
tengd henni. Sviðsljósið hefur
þó að mestu horfið frá North og
að yfirmanni hans John Poind-
exter og samskiptum hans við
Reagan Bandaríkjaforseta í
tengslum við þetta hneykslis-
mál.
HAMBORG — Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum mun
174 manna tamilahópur sá
sem kom með skipi til Kanada
ekki hafa siglt frá Indlandi held-
ur Vestur-Þýskalandi.
PEKÍNG — Helmut Kohl
kanslari Vestur-Þýskalands
hældi hinni „opnu stefnu" kín-
versku stjórnarinnar og lagði til
að ráð yrði stofnað er ynni að
betri samskiptum þjóðanna.
PANAMABORG - Man-
uel Antonio Noriega, yfirmaður.
hersins í Panama og í raun
æðsti valdamaður landsins,
sagði fráleitt að hann myndi
segja af sér en á undanförnum
vikum hefur verið mikið um
mótmæli í landinu sem beinst
hafa gegn honum.
MANILA — Þrír herforingjar
á Filippseyjum sæta nú yfir-
heyrslum vegna samsæris
sem gera átti gegn Corazon
Aquino forseta. Tilgangur upp-
reisnarinnar var að koma Ferd-
inand Marcos aftur til valda.
lllllllll ÚTLÖND - ■ r 'li: i!. ' ;T' :i—Y - l ^ -
1 ---:—~r----------------------------=r-T-----------------------j-------------------------------■■■ ■ ------
Skoöanakannanir í Time og Newsweek:
Samúð með North en
vantrú í garð Reagans
New York - Reuter
Almenningur hefur mikla samúð
með Oliver North vegna yfirheyrsln-
anna yfir honum í tengslum við
Iransmálið. Þetta kom fram í skoð-
anakönnunum tveggja heimsfrægra
tímarita en þar kom einnig í ljós að
margir vilja vita meira um þátt
Reagans Bandaríkjaforseta í mál-
inu.
Það voru tímaritin Newsweek og
Time sem létu gera skoðanakannan-
irnar og sýndu þær báðar að almenn-
ingi líkaði vel við North og taldi
hann hafa staðið sig nteð sóma j
meðan á yfirheyrslunum stóð í síð-
ustu viku.
{ könnun Newsweek kom fram að
48% aðspurðra töldu að þingnefnd-
irnar hefðu verið með sífelldar árásir
Oliver North undirofursti og fyrrum
starfsmaður þjóðaröryggisráðs Banda-
ríkjanna: Hetja og föðurlandsvinur?
í garð Norths og 44% voru sammála
lýsingu honum sem „föðurlandsvini
og hetju“.
Könnun Time sýndi að 60% að-
spurðra höfðu samúð með North
þótt aðeins örlítill meirihluti, 51%,
teldi að hann hefði sagt allan sann-
leikann.
Báðar kannanirnar leiddu í ljós að
meirihluti fólks taldi að Reagan væri
meira flæktur í málið en hann vildi
vera af láta. í Time kom fram að
58% voru sammála fullyrðingunni
að „forsetinn vissi að peningar voru
teknir af gróða vopnasölunnar til
írans og notaðir til að styrkja Contra
skæruliðana". Aðeins 28% að-
spurðra voru ósamþykkir þessari
fullyrðingu.
Ástralía:
Bjartsýni
eftir sigur
Hawkes
Sydney-Reuter
Bjartsýni ríkti á fjármála-
mörkuðum og ástralski dollarinn
styrktist í sessi eftir sigur Bob
Hawkes forsætisráðherra Ástral-
íu og Verkamannaflokks hans í
kosningunum sem fram fóru um
helgina.
Þetta var þriðji kosningasigur
Hawkes á fjórum árum og hefur
hann lofað að halda áfram að-
gerðum er miða að því að koma
efnahagslífinu á réttan kjöl. Er-
lend skuldasöfnun og fjárlag-
ahalli hafa plagað efnahag Ástral-
íumanna mjög síðustu árin.
Verkamannaflokkurinn vann
öruggan kosningasigur gegn
sundraðri stjórnarandstöðu
Frjálslynda flokksins og Þjóðar-
flokksins og má búast við deilum
á þeim vígstöðvum á næstunni
þegar málin verða gerð upp.
Ríki rómönsku Ameríku:
Sumar óánægjunnar
Fátækt og spilling í stjórnarkerfinu undirrót fjölmennra mótmælaaðgerða
Sovésk
sendinefnd
laumast
til ísrael
Panamaborg - Rcuter
Mótmæli og ofbeldisaðgerðir hafa
sett svip sinn á ástandið í mörgum
ríkjum rómönsku Ameríku að
undanförnu og er undirrótin vonlaus
fátæktin, verðbólga og spilling.
„Það eru meiri vandræði en venju-
lega á meginlandinu og í Karabíska
hafinu", sagði einn vestrænn stjórn-
Kína:
Kommúnistar
gefnir
fyrir mútur
Pekíng - Reuter
Dagblaðið Efnahagstíðindi í
Kína birti frétt í gær þar sem sagt
var að 185 meðlimir kommúnista-
flokksins hefðu verið handteknir
á þessu ári, sakaðir um spillingu
og mútuþægni, og rcknir úr
flokknum.
Blaðið hafði eftir embættis-
mönnum í dómsmálaráðuneytinu
að á tímabilinu milli janúar og
maí hefðu komið upp 22 þúsund
mál sem sncrtu mútur og fjár-
málasvindl ýmiskonar. Málsókn
hefur verið hafin í ntcira en 10
þúsund þessara ntála.
Alls hafa 538 manns verið
handteknir, þar af 185 meðlimir
kommúnistaflokksins sem voru
þegar í stað sviptir flokksskilrík-
inu.
Frétt Efnahagstíðinda fylgir í
kjölfar flokksskýrslu sem birt var
fyrr í þessum mánuði. Þar voru
mútur sagðar vera landlægar í
sumum deildum flokksins og
meðlimir varaðir við að þeir sem
tengdust slíkum málum yrðu
tafarlaust reknir úr honum.
í skýrslqnni sagði að jafnvel
sumir háttsettir flokksmenn og
embættismenn ríkisstjórnarinnar
væru á kah í spillingunni.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Kína telja að baráttan gegn spill-
ingu eigi eftir að verða meira í
sviðsljósinu á næstu mánuðum
þar í landi því nú styttist í þing
flokksins sem halda á í október.
arerindreki í samtali við Reuters
fréttastofuna og bætti við að efna-
hagsástandið væri undirrót og orsök
óánægjunnar.
Að minnsta kosti tuttugu manns
hafa verið drepnir í ofbeldisaðgerð-
um á Haiti, mikil mótmæli hafa farið
fram að undanförnu gegn herfor-
ingjastjórninni í Panama og í Brasil-
íu, stærsta ríki rómönsku Ameríku
þar sem 130 milljón manns búa, fóru
tugþúsundir manna út á götur til að
mótmæla bágum kjörum.
Jafnvel í Venezúela, sem um
mannsaldur hefur verið þekkt fyrir
öryggi og rólegheit miðað við ná-
grannaríkin, hafa mótmælaaðgerðir
verið hafðar frammi í sumar.
Þótt mótmælendur komi ekki allir
úr sömu þjóðfélagshópunum í þess-
um löndum og kröfur þeirra séu
misjafnar er undirrótin sú sama,
óánægja með þjóðfélagslegt órétt-
læti og efnahagsleg vandræði.
„... Efnahagslegu og þjóðfélags-
legu vandræðin eru undirrót pólit-
íska öngþveitisins," sagði í langri
fréttaskýringu sem birtist í dagblað-
inu La Republica í Panama nú
nýlega og fjallaði um ástandið þar í
landi. Þessi skýring á einnig við
önnur ríki þessa svæðis.
Herforingjarnir Manúel Noriega í
Panama og Henri Namphy á Haiti
eiga báðir undir högg að sækja,
miðstéttin í Panama leiðir mótmælin
þar í landi gegn spilltri stjórn og í
Haiti brutust út mótmæli þegar upp
komst að Namphy þæði 110 þúsund
dollara í árslaun fyrir að stjórna
fátækasta ríki á vesturhveli jarðar.
Þar verða margir hinna sex milljón
íbúa að láta sér nægja að lifa á einum
dollara á degi hverjum.
I Brasilíu og Venezúela sprakk
blaðran þegar tilkynnt var um hækk-
un strætisvagnafargjalda. Náms-
menn fylktu liði í Venezúela eftir að
stjórnvöld höfðu ákveðið að fella
niður afslætti á fargjöldum til þeirra
en brátt fóru mótmælin að snúast
gegn verðbólgu, fátækt og atvinnu-
leysi. „Hjálpið mér, ég er hungruð",
stóð á einu mótmælaspjaldanna sem
ung kona hélt á í Caracas, höfuðborg
þessa ríkis sem hefur yfir olíuauð-
lindum að ráða og þar sem meðal-
tekjur eru svipaðar og í Grikklandi
og Portúgal.
Reiðir Brasilíumenn gengu ber-
serksgang í Rio de Janeiroborg þeg-
ar tilkynnt var um strætisvagna-
Lögreglumaður handtekur mótmæl-
anda á Haiti, fátækasta ríki á vestur-
hveli jarðar: Mótmælin í ríkjum
rómönsku Ameríku að undanförnu
eiga sér einn samnefnara, nefnilega
óánægju með kjör og spillingu innan
stjórnarkerfisins
hækkunina. Vagnarnir voru grýttir
og ráðist inn í verslanir þar sem fólk
stal matvælum. Efnahagsástandið í
landinu er ógnvekjandi og verðbólga
á ársgrundvelli er nú rúmlega þús-
und prósentustig.
Samskonar erfiðleikar herja á flest
ríki rómönsku Ameríku: Verðlækk-
un á útflutningsvörum, auknir
verndunartollar í iðnaðarríkjunum,
gífurlegar erlendar skuldir og spillt
ríkiskerfi sem er lengi að aðlaga sig
breytingum.
Það sem verra er; framtíðarspár
gera ráð fyrir versnandi ástandi,
milljónum fleiri manns munu lifa
undir fátæktarmörkunum um alda-
mótin, og fleiri óánægjusumur gætu
því átt eftir að setja mark sitt á lífið
í þessum ríkjum.
Fyrsta sovéska sendinefndin á
vegum hins opinbera til að heim-
sækja ísrael síðustu tuttugu árin
kom til Iandsins í fyrrakvöld án þess
að fjöimiðlar vissu af. Það var ekki
fyrr en í gær að fréttin lak út og
staðfest var að nefndin hefði komið
með sama flugi og sovéskur gyðingur
sem leyft var að fara til landsins
helga.
Það var talsmaður finnska sendi-
ráðsins, er sinnir hagsmunum Sov-
étríkjanna í ísrael, sem frá þessu
skýrði og sagði að hin átta manna
nefnd ætti að kanna eignir er til-
heyrðu rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unni og endurnýja vegabréf þeirra
Sovétmanna er búa í ísrael.
Margir stjórnmálaskýrendur telja
þó að heimsókn Sovétmannanna sé
fyrst og fremst staðfesting á því að
samskipti ríkjanna hafi smám saman
farið batnandi og hafi reyndar aldrei
verið betri sfðan stjórnmálasam-
bandi var slitið eftir sex daga stríðið
árið 1967.
Sovéski gyðingurinn og andófs-
maðurinn Yuli Edelstein var um
farþegi í sama flugi og sovéska
nefndin en hann hafði dvalið í þrjú
ár f fangabúðum í Síberíu áður en
honum var gefið leyfi til að flytjast
til ísrael. Honum var vel fagnað við
komuna til Tel Aviv.
Fjöldi sovéskra gyðinga sem hefur
verið leyft að flytjast til ísrael frá
Sovétríkjunum hefur aukist mjög á
þessu ári. Engu að síður sagði Símon
Peres utanríkisráðherra Israels nú
um helgina að eitt helsta málið sem
þyrfti að ræða við Sovétstjórnina
væru „örlög sovéskra gyðinga“.
Annað mál sem Peres hefur einnig
haldið á lofti er þátttaka Sovét-
manna í alþjóðlegri ráðstefnu um
frið í Mið-Áusturlöndum. Vitað er
að fulltrúi frá sovéska utanríkisráðu-
neytinu og sérfræðingur um málefni
Mið-Austurlanda eru í sendinefnd-
inni en í gær höfðu ekki fengist
staðfestar fréttir um að þessari sendi-
nefnd væri ætlað að ræða það mál
við ísraelska utanríkisráðherrann.
Umsjón:
Heimir Bergsson.