Tíminn - 29.03.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 29. mars 1989
rkvi\i\gg i nnr
Kópavogur
Opið hús
Gissur Pétursson
Opiö hús miðvikudaginn 29. mars n.k. kl. 17-30 aö
Hamraborg 5.
Málefni dagsins. Stjórnmálin og unga fólkið.
Frummælandi: Gissur Pétursson formaöur S.U.F.
Steingrimur
Hermannsson
Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni
forsætisráöherra veröur haldinn í Félagsheimili Kópavogs
fimmtudaginn 13. apríl n.k.
Flokksstarfið
Skúli Sigurgrímsson
Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriöjudaga og miðvik-
udaga kl. 9-12 s. 41590.
Alltaf heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19.
Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miöviku-
daga kl. 17.30-19.00.
Einnig eftir nánara samkomulagi.
Vinnuhópar eru aö fara í gang um hina ýmsu þætti
bæjarmála.
Komið, látiö skrá ykkur í hópana og takið þátt í stefnumótun
og starfi flokksins.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Almennir stjórnmálafundir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra og Jón Kristjánsson al-
þingismaöur boöa til almennra stjórnmálafunda á Austurlandi vikuna
28. mars-2. apríl sem hér segir.
í Valaskjálf Egilsstöðum, þriöjudaginn 28. mars kl. 20.30.
j Skrúð Fáskrúðsfirði, miðvikudaginn 29. mars kl. 20.30.
í kaffistofu Hraðfrystihússins Breiðdalsvík, fimmtud. 30. mars. kl.
20.30.
í Felagsheimilinu Stöðvarfirði, föstudaginn 31. mars kl. 20.30.
í Hofgarði öræfum, sunnudaginn 2. apríl kl. 15.00.
Svavar Gestsson
Héraðsbúar - Austfirðingar
Menntamálaráöherra mun halda opinn fund um skólamál i Mennta-
skólanum á Egilsstöðum miðvikudaginn 29. mars kl. 20.30.
Kennarar, foreldrar, notið tækifærið til aö hafa áhrif.
Menntamálaráðuneytið.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Krafa Atvinnuþróunarfélags Austurlands um
aö landiö verði eitt gjaldsvæöi símaþjónustu:
Vilja eina gjald-
skrá yfir landið
Atvinnuþróunarfélag Austurlands hefur farið fram á að
Iandið allt verði gert að einu gjaldsvæði hvað varðar
símaþjónustu. Máliö er til umræðu hjá Póst- og símamála-
stofnuninni, en frekar er gert ráð fyrir nokkurri jöfnun en
algerri samræmingu gjaldskrárinnar.
Á stjórnarfundi Atvinnuþróunar-
félags austurlands fyrir skömmu var
samþykkt ályktun þar sem skorað er
á stjórnvöld að samræma þegar í
stað verðskrá pósts og síma þannig
að sama gjald verði tekið fyrir síma-
þjónustu á öllu landinu.
Bent er á að landið allt sé orðið
eitt markaðssvæði þrátt fyrir
strjálbýli. Pví sé eðlilegt að fyrirtæki
og einstaklingar sitji við sama borð
hvað varðar sölu og öflun þjónustu
og fyrirtæki á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Farið er fram á að gjald-
skrárbreyting verði gerð fyrir lok
þessa árs.
„Við teljum þessa breytingu eðli-
lega í samræmi viö byggðastefnuna.
Málið snýst um að færa fjármuni frá
höfuðborginni út til landsbyggðar-
innar. Við verðum að gera okkur
grein fyrir því að markaðsmiðstýring
á landinu er gífurleg, allt fer frant í
Reykjavík. Flest fyrirtæki úti á
landsbyggðinni eyða á hverjunt degi
umtalsverðum fjármunum í samtöl
við aðila staðsetta í Reykjavík. Ég
get vel ímyndað mér að fólk á
höfuðborgarsvæðinu sé mótfallið
þessu. Fetta er sjónarmið lands-
byggðarinnar, það er augljóst mál,“
sagði Axel A. Beck einn stjórnar-
manna Atvinnuþróunarfélagsins.
Félagið hefur ekki hugsað sér að
vísa málinu til umfjöllunar Byggða-
stofnunar eins og venja er í svipuð-
um tilfellum. Ef stjórnvöld breyta
fyrirkomulaginu ekkert innan fárra
mánaða mun félagið taka gjaldskrár-
breytinguna upp aftur og hugsanlega
reyna að fylgja henni eftir. „Við
munum athuga tæknileg atriði þessa
máls sem og kanna almennt álit íbúa
á svæðinu. Hingað til hefur gjald-
skrárbreyting fyrst og fremst verið
skoðuð út frá sjónarhóli fyrirtækja.
Það er til að mynda ekki víst að eldra
fólk sem kanski ekki hringir mikið
til Reykjavíkur kæri sig um breyt-
ingu á núverandi skipan. Breytt
gjaldskrá myndi vitaskuld þýða auk-
inn kostnað við innanbæjarsímtöl.
Þá verður einnig rætt frekar við
forsvarsmenn póst- og símamála-
stofnunarinnar auk samgöngumálar-
áðherra," sagði Axel.
Hann sagði að ef almenn samstaða
næðist um málið og nieiriháttar
tæknilegir erfiðleikar væru ekki fyrir
hendi kæmi til greina að halda
ráðstefnu og þrýsta enn frekar á um
úrbætur. „Þá getur verið tímabært
að smala landsbyggðarmönnum
saman, setja hnefann í borðið og
krefjast úrbóta. Jafnframt því að
draga stjórnmálamenn inn í um-
ræðuna og fá þingmenn okkar til að
taka málið upp á Alþingi. Áður en
að því kemur verður þó að undirbúa
málið betur,“ sagði Axel.
„Ég tel ekki óeðlilegt að gjald-
skráin verði jöfnuð meira en nú er.
En mér sýnist nokkuð langt í að
sama gjald geti gilt um allt land,
einfaldlega vegna þess að enn er
verulega dýrara að dreifa langlínu-
símtölum en innanbæjarsímtölum."
sagði Guðmundur Björnsson að-
stoðarpóst- og símamálastjóri þegar
Tíminn hafði samband við hann.
Guðmundur sagði málið vera í
stöðugri umræðu innan stofnunar-
innar en ekki hefði ennþá verið
tekin nein afstaða til þess. Ef til
kæmi að gera umtalsverðar breyting-
ar á talningakerfi Pósts og síma gæti
sú framkvæmd tekið allt að nokkrum
vikum. jkb
Skipadeild Sambandsins:
Samstarf
við erlend
Skipadeild Sambandsins gerði
nýlega samninga vegna vöruflutn-
inga við tvö erlend skipafélög, Sea-
trade og Nedlloyd, og hefur þar með
aukið mjög þjónustu sína á flutn-
ingsleiðum til og frá Norður-Amer-
íku og Evrópu.
Skipadeildin hefur með samning-
unum hafið alþjóðleg flutningavið-
skipti og mcð því móti tryggt frekar
rekstrargrundvöll fyrirtækisins. eins
og segir í tilkynningu frá skipadeild-
inni. Breytingar hafa einnig verið
gerðar á flutningum með almenna
stykkjavöru milli Helsinki í Finn-
landi og íslands. Siglingar þangað
eru nú vikulega en voru áður á
þriggja til fjögurra vikna fresti.
Samningur Skipadeildarinnar við
Seatrade. sem er eitt stærsta fyrir-
tæki í heiminum í rekstri frystiskipa.
felur í sér samsiglingu Jökulfells,
skips Skipadeildar og Nidaros sem
er leiguskip í eigu Færeyinga. Skipin
sigla frá Hollandi til hafna í Dan-
mörku. Noregi, Færeyjum og Islandi
og áfram til Gloucester í Bandaríkj-
ununt. Á austurleið hafa þau við-
koniu í höfnum í Bandaríkjunum,
Kanada, Grænlandi, íslandi og
Hollandi.
Samningurinn við Nedlloyd skipa-
félagið felur í sér samkomulag um
vikulega flutninga á stykkjavöru í
gámum frá Boston. New York. Nor-
folk og Jacksonville til Rotterdam
þar sem gámum er umskipað um
borð í skip Skipadeildarinnar. Sam-
komulagið á einnig við um útflutning
frá íslandi til þessara fyrrnefndu
staða. SSH
Nýverið var nokkrum aðilum boðið til að smakka á lambakjötinu,
matrciddu cftir uppskriftum úr Litlu bókinni um lambakjötið.
Timamynd:Árni Bjarna
Lítil bók um
lambakjötið
Landssamtök sauðfjárbænda
gáfu nýlega út bók með lamba-
kjötsuppskriftum. Hún heitir „Lítil
bók urn lambakjöt" og inniheldur
uppskriftir frá flestum heintshorn-
um.
1 formála bókarinnar segir
Steingrímur J. Sigfússon landbún-
aðarráðherra: „Islenska lamba-
kjötið er frábært, einstakt í sinni
röð. Það þarf því afbrigðilega
vondan kokk í sérlega bölvuðu
skapi til að geta gert úr því annað
en góðan mat. Þannig hráefni e
íslenska lambakjötið."
Flestir réttanna eru einfaldir oj
hráefnið í þá á að vera hægt að t';
í flestum verslunum. Uppskriftirn
ar taka til hinna ýmsu kjöthluta
innmats, hakks, steika og fleira
En þær eru sagðar hafa verii
valdar nteð tilliti til þess að bragð
gæði kjötsins njóti sín sent best.
bókinni er einnig komið inn ;
krydd og annað sent gerir kjötii
betra auk fleiri atriða. jkl