Tíminn - 29.03.1989, Side 15
Miðvikudagur 29. mars 1989
Tíminn 15
lllll MINNING
atvinnustöðyum, sem hann taldi
mestu skipta, heppilega staði. Þegar
fyrstu skólum voru valdir staðir.
lagði hann kapp á að lóðir þeirra
yrðu stórar og rúmmiklar. Ég held
að viðfyrstu skipulagsvinnu bæjarins
hafi hann fyrstur hreyft þeirri
hugmynd, að mikilvægustu félags-
og menningarstofnánir í bænuni
yrðu reistar því sem næst í beinni
línu á miðjum hálsi þar sem hæst ber
yfir aðalbyggðina. og því má heita
að Kópavogur sé nú reistur á sjö
hæðum eins og Róm forðum -
Kársnesskóli yst, þá Kópavogs-
kirkja, Myndlistasafnið, Félags-
heimilið, Kópavogsskóli, Mennta-
skólinn, Digranesskóli og Hjalla-
skóli - allt í einni röð með byggðina
á báðar hendur. Það er margs að
minnast úr þessari sögu, en verður
ekki rakið hér.
Starf Finnboga R. Valdemarsson-
ar á Alþingi var mikið og margþætt.
Fyrir þá daga átti hann sæti í frægri
og atkvæðamikilli atvinnumálanefnd
1934, en á þingi var hann atkvæða-
mestur í utanríkismálum og alþjóða-
málum, enda var þekking hans á
þeim veigamest og víðtækust. Hann
var annálaður málafylgjumaður í
þingræðum, rökvfsi og málsnjall, og
beitti þekkingu sinni af víðsýni. Það
var jafnan hlustað vel á framlag hans
til mála á þingi. Hann sat öll þingár
sín í utanríkismálanefnd. Hann átti
sæti í landhelgisnefnd og lagði margt
til mála um þau mál á þingi þegar til
stórræða dró, og hélt þar fram
mikilvægum rökum um málstað
okkar.
Finnbogi varð fyrsti bæjarstjóri
Kópavogs 1955, en lét af því starfi
1957 þegar aðrar annir jukust, og þá
kaus bæjarstjórn Huldu Jakobsdótt-
ur, konu hans, bæjarstjóra, og varö
hún fyrst kvenna til að gegna slíkri
stöðu hér á landi.
Finnbogi R. Valdemarsson var
vel menntaður heima og erlendis í
mikilvægri og nútfmalegri fræði-
grein, en hann lokaði sig ekki inni í
þeim fræðum, helgaði sig ekki henni
fræðanna vegna. Honum var mest í
mun að beita þeirri þekkingu á
heimavelli lífsins. Hann gerðist
áhrifamikill með því vopni á þingi og
þjóðmálavettvangi. En það nægði
honum ekki. Hann varð atkvæða- og
frumkvæðismaður í blaðamennsku
og bókaútgáfu, en staðnæmdist ekki
þar. Líklega fann hann sjálfan sig
best þegar hann kom í hóp land-
námsmannanna á frumbýlingsárum
Kópavogs þar sem tekið var hendi til
nýrri lífskosta og gróandans þytur
fór um voga og veðurbarða hálsa. Á
slíkum stað hafa þau hjónin unað og
átt heima í hálfa öld - og verið þar
heima alla tíð. Lífsdæmi þessara
hjóna, samstarf og framlag til þessar-
ar bráðþroska heimabyggðar er í
senn merkilegt og mikilvægt vitni
um margt hið besta í gamalli og
gróinni íslenskri lífshefð og öfluga
framsókn nýs tíma. Kópavogur mun
lengi bera hinn sterka og stóra svip
sem Finnbogi R. Valdemarsson og
Hulda Jakobsdóttir brugðu yfir hann
á sögulegum mótunarárum. Bæjar-
félagið gerði þau að fyrstu heiðurs-
félögum sínurn svo sem sjálfsagt var.
Finnbogi R. Valdemarsson var
gáfaður atgervismaður, vígreifur og
sókndjarfur, skapríkur og fastur
fyrir. Hann beitti sér jafnan af alhug
í áhugamálum og vék ógjarna frá
sjónarmiðum sínum, sem jafnan
voru mótuð af íhygli, þekkingu og
reynslu. Því urðu átök stundum
hörð þegar ráðist var gegn honum,
og sumum virtist hann harðleikinn.
En ég man þess ekki dæmi, að
drenglyndi eða málefnaleg rökvísi
brygðist honum í slíkum sennum.
Að ræða við hann á efri árum um
liðna baráttutíð og málefni líðandi
stundar var feginsfengur. Þar réð
rökvís, glögg og hreinskiptin yfirsýn
öllu máli. Það var eins og að hlusta
á lindir niða.
Andrés Kristjánsson
Kveöja frá bæjar-
stjórn Kópavogs
Finnbogi Rútur og Hulda. hjónin
á Marbakka. gáfu byggðinni í Kópa-
vogi þann stíl, sem ennþá einkennir
bæjarfélagið. Þau voru landnemar í
orðsins fyllstu merkingu. Finnbogi
Rútur hafði áræði og kjark til að
ráðast í framkvæmdir á þessu nánast
ónumda landi. Hann greindi mögu-
leika þessa landsvæðis og hafði þá
framsýni, að hér gæti dafnað blóm-
legt mannlíf.
Finnbogi Rútur sýndi með gjörð-
um sfnum eftirminnilegt frumkvæði,
heimsmaðurinn. nýkominn frá námi
í stórborgum Evrópu. Hann þurfti
frelsi og vildi athafnir.
Það var í maí 1940, að þau hjónin
settust að í Kópavogi. Þá varð
Marbakki þeirra höfuðból og seinna
miðpunktur hrepps og kaupstaðar.
Þarna við innanverðan Fossvoginn
höfðu þau áður átt sumarsetur unt
nokkurra ára skeið. Þessir frumherj-
ar áttu eftir að setja meira svipmót á
Kópavog en nokkur annar. Það er
ekki ofsögum sagt, að Finnbogi
Rútur hafi verið frumkvöðull að
skipulagi byggðar hér og lagt grunn-
inn að fjölþættu menningarlífi og
félagsmálastarfi.
Þessi grunntónn brautryðjend-
anna var svo öflugur, að ennþá eru
aðrar áherslur í bæjarmálum Kópa-
vogs en nágrannabyggða. Hjónin á
Marbakka þekktu allir. Ekki var
Finnboga Rúts getið svo Huldu væri
ekki einnig minnst. Verkin þeirra
blasa víða við. Það er t.d. gleðilegt,
að eitt öflugasta og fjölmennasta
barnaheimili bæjarins reis í jaðri
Marbakka og ber það nafn, minnir á
40 ára baráttusögu og sé gengið
þaðan vestur Kársnesið heitir gatan
Huldubraut. Á hátíðisdögum hafa
Kópavogsbúar löngum safnast sam-
an á Rútstúni, þar sem Finnbogi
Rútur heyjaði áður í skepnur sínar.
Nú er þar að rísa ein veglegasta
sundlaug landsins, sem var ntikið
áhugamál þeirra hjóna.
7. júlí 1946 er tímamótadagur í
sögu Kópavogs. Þá ná Kópavogsbú-
ar meirihluta í hreppsnefnd Seltjarn-
arness. Finnbogi Rútur átti ríkan
þátt í þeim sigri. Nú gerast hlutir
hratt.
1. janúar 1948 varð Kópavogur
sjálfstætt hreppsfélag. Finnbogi Rút-
ur verður fyrsti oddvitinn og sýslu-
nefndarmaður. Fólki fjölgar ört, lóð-
um og löndum er úthlutaö og alls
staðar er verið að byggja við þröngan
efnahag í lok stríðsins, en af bjart-
sýni og stórhug. Menn brutu lönd og
svitnuðu saman. Þá myndaðist þessi
merkilega samstaða allra í bæjarfé-
laginu og samhjálp, sem við finnum
vonandi ennþá glögglega stað. Fólk
safnaðist saman í Framfarafélaginu
undir styrkri forystu oddvitans án
tillits til stjórnmálaskoðana.
Víða voru menn með skepnur og
garðrækt til búdrýginda og í því sem
öðru tók Finnbogi Rútur þátt af
kappi. Þetta var skemmtilegur drátt-
ur í lífstíl heimsborgarans, sem nú
hafði tekið sæti á Alþingi og lét sig
þar einkum varða alþjóðamál.
Á hreppsárunum 1948-1955 fimm-
faldaðist íbúatalan. 11. maí 1955 fær
Kópavogur kaupstaðarréttindi og
áfram er Finnbogi Rútur í starfi og
nú bæjarstjóri til 1957, er hann tekur
við stjórn Útvegsbanka íslands.
Hann sat þó áfram í bæjarstjórninni
næstu fimm árin og hið nána sam-
starf þeirra hjóna varð aldrei nánara,
því að Hulda tók við starfi hans sem
bæjarstjóri, fyrst íslenskra kvenna í
þeirri stöðu og gegndi því til 1962.
Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs
8. okt. 1976 voru þau kjörin heiðurs-
borgarar Kópavogs fyrir áratuga far-
sæl störf í þágu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn og bæjarbúar allir
standa í mikilli þakkarskuld við hinn
látna framkvæmda- og baráttumann.
Fyrir þeirra hönd votta ég Huldu
Jakobsdóttur og fjölskyldu hennar
virðingu og þökk og flyt þeim sam-
úðarkveðjur við fráfall höfðihgjans
Finnboga Rúts Valdemarssonar.
Kristján Guðmundsson
bæjarstjóri
Kynni okkar Finnboga Rúts voru
mest í kreppunni 1968 til 1969.
Síldin horfin, freðfisksmarkaðirnir
hrundir ásamt mörkuðunum fyrir
mjöl og lýsi og borgarastyrjöld í
Nígeríu kom í veg fyrir skreiðarsölu.
Þúsundir gengu atvinnulausir og
helstu menn horfðu í gaupir sér. Þá
var auðvelt að verða róttækur.
„Svo þig vantar víxil. Heldurðu
að þú getir nokkurn tíma borgað
hann? Hagfræðingur frá Englandi‘%
og unaðslegt bros lét um varir miid-
ingsins í Útvegsbankanum, sent bara
bankastjörar í góðu skapi geta fram-
kallað. Síðan hló hann við og þá
kont slík birta í atvinnulegt tillit
fjármálajöfursins, að ég var enn
sannfærðari um það, að þessi maður,
sem keyrði Jagúar í Kópavoginn
væri breskur lord. Svo bætti hann
við: „Er ekki annars aumkunarvert
að læra hagfræði hjá þjóð, sem er
blönkust allra þjóða.“ Ég tuldraði
eitthvað um það, að þeir hefðu nú
samt unnið stríðið og þrátt fyrir allar
gerðir breska heimsveldisins þá
hefðu þeir alltaf staðið dyggan vörð
um fríverslun í veröldinni, sem við
Alþýðuflokksmenn styddum. Við
þessi orð tókst bankavaldið hrein-
lega á loft í stól sínum: „Ert þú
jafnaðarmaður hka. Er Sjálfstæðis-
flokkurinn annars búinn að herleiða
Alþýðuflokkinn?"
Málið var orðið snúið. Ég kom til
þess að sníkja víxil, en var kominn í
vörn fyrir Viðreisnina og breska
heimsveldið. Ég gat þó bætt því við,
að ég hefði áhyggjur af ástandinu og
það væri ekki alveg eftir kokkabók-
um hagfræðinnar og Keynes, að
ríkisvaldið væri orðið jafn hrætt og
einkaframtakið og héldi ekki síður
að sér höndunum einstaklingar.
„Sem skapaði heimskreppuna miklu
og allir hafa lært af nema viö íslend-
ingar", bætti bankastjórinn við og
rétti síðan út hendina: „Hér cru
hundruð erlendra siðu- og skut-
togara af nýjustu gerð, að veiða
fiskinn okkar upp að tólf mílum.
Heldur kratinn og hagfræðingurinn
að það ntyndi ekki skána hér eitt-
hvað ástandið, ef sjómennirnir okk-
ar fengju svona tæki til þess að fiska
með. Þó ekki nema til þess að selja
ísfisk til að byrja nteö, mcðan
ástandið er að skána á freðfisk-
mörkuðunum og síðan að selja
freðfisk, sem allar þessar atvinnu-
lausu hendur hér á Islandi geta
fengið vinnu við. - Þú hefur hana
mömmu þína á blaöinu og kemur
því svo til mín."
Næstu vikur var ég í því að stofna
Félag áhugamanna um sjávarút-
vegsmál, sem síðan fékk fjölda val-
inkunnra manna í lið við sig og í
mörg ár knúði á um skutttogaravæð-
ingu fiskiskiptaflotans, útfærslu
landhelginnar, öryggismál sjómanna
og bætta meðhöndlun aflans, sér-
staklega að ísa fiskinn í kassa.
Fundirnir við Finnboga Rút í
Útvegsbankanum urðu margir. Viö
höfðum miklar áhyggjur af ástand-
inu í útflutningsmálum og m.a. fór
ég til Brussel til þess að reyna að
endurvekja markað fyrir grálúðu,
sem nóg var af og Finnbogi var
sannfærður um að hægt væri að
selja, eins og síðar kom á daginn.
Smám saman skánaði efnahags-
ástandið og við ræddum um samein-
ingu jafnaðarmanna í einn flokk.
Þetta var mikið hugðarefni Finnboga
og breyttist reyndar ekkert þótt
Hannibal bróðir hans yrði ráðherra,
en Alþýöuflokkurinn færi í stjórnar-
andstöðu. Enda var Alþýðuflokkn-
um þrívegis boðin þátttaka í þeirri
stjórn. „Jafnaðarmenn eiga að
standa saman á Islandi í einum
flokki. Það er best fyrir okkur öll og
þjóðina alla".
Það var mikil andleg endurnæring
að tala við Finnboga Rút. Hann var
ákaflega fróður, hafði áhuga á öllu
og sérstaklega jákvæður í afstöðu
sinni til manna og málefna. Hann
hafði menntast í alþjóðamálum í
helstu höfuðborgum meginlandsins
á millistríðsárunum, þegar Evrópa
var enn drottning veraldarinnar og
alþjóðahyggja og Evrópuhugsjónin
blómstruðu hvor í kapp við aðra.
Hvílíkt áfall fyrir ungan mennta-
mann af norðurhjara hefur ekki
þjóðernisrembingurinn og uppgang-
ur fasismans og nasismans í Evrópu
verið. Enda hélt Finnbogi Rútur
heim á leið við valdatöku nasismans
í Þýskalandi og hóf að ritstýra Al-
þýðublaðinu, sem varðekkert minna
en bylting íblaðamennsku á íslandi.
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra beitti sér fyrir því að Finnbogi
og kona hans Hulda Jakobsdóttir
fengju landspildu til ábúðar í Kóp-
avogi sem skírð var Marbakki. Finn-
bogi Rútur þótti mikið hafa vit fyrir
hinni kraftmiklu fjölskyldu sinni og
af því er dregiö hugtak. seitt allir
þeir þekkja, sem á miðjum aldri eru,
Marbakkávaldið. Þetta vald átti þátt
í því að breyta Kópavogi úr kartöflu-
garði í eitt blómlegasta og næst
stærsta byggðarlag landsins, aðeins
höfuðborgin sjálf er fjölmennari.
Hannibal bróðir Finnboga var for-
seti ASÍ um árabil og alþingismaður
eins og Finnbogi og ráðhcrra í
stjórnum, sem m.a. færðu út land-
helgi Islendinga og keyptu togara,
svo víkingaþjóðin í norðri lepti ekki
dauðann úr skel í landinu sem kon-
ungakyniö fann og færði óbornum
kynslóðum. Þetta er Marbakkavald-
ið.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins og utanrík-
isráðherra, yfirlýst sameiningartákn
jafnaðarmanna á íslandi og farinn
að hlutast til unt málefni Evrópu og
veraldarinnar í krafti embættis síns,
er bróðursonur Finnboga. Þarna er
líka Marbakkavaldið. Ritstjóri
stærsta blaðs þjóðarinnar Morgun-
blaðsins, Styrmir Gunnarsson, er
tengdasonur Finnboga.
íslendingurinn ungi, sem sat á
Unter den Linden í Berlín eða
horfði á fegurð Alpanna í Genf á
millistríðsárunum og lét sig dreynta
um fagra veröld, frið og velmegun
mannkyns, varð að horfa á mesta
hildarlcik mannkynssögunnar,
heimsstyrjöldina síðari og hugsjón-
irnar hrundu. Tugir milljóna manna
féllu í valinn. Vígtólin geltu, þetta
var skipbrot. En heima á Fróni gengu
hugsjónirnar upp. Áhrif Marbakka
hafa verið huggun harmi gegn þeim
voðadómi, sent veröldin kvað yfir
sjálfri sér í heimsstyrjöldinni síðari.
Finnbogi Rútur var ntikill gæfu-
maður í einkalífi og hann átti til
góðra að telja eins og aðrir íslend-
ingar. Fæddur og uppalinn við Gull-
kistuna við Djúp og þaðan ættaður
og af Ströndum. Frændgarðurinn
inniber Jón Baldvinsson, fyrsta
formann Alþýðuflokksins og Jón
Sigurðsson forseta. Ég nefni það
varla að ættir séra Arnórs prófasts í
Vatnsfiröi, langafa Finnboga og
föðurafa míns koma saman í séra
Bjarna Þorsteinssyni í Vesturhóps-
hólum í Húnaþingi, fæðingarbæ Jóns
Þorlákssonar. fyrsta formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Eilífðarmálin ræddum við Finn-
bogi lítið. Sjálfsagt báðir jafnvissir
cins og allir prestarnir forfeður okk-
ar að ekkert kemur af engu og
ekkert verður að engu, hvernig sem
það er nú orðað í allt frá guðfræði til
eðlisfræði. Bankastjórinn kom inn í
mitt líf í miklu myrkri og á óvissu-
tímum. Fagnaðarerindið er boðað á
margan hátt. Suntir sjá fótstig þegar
aðrir sjá ekki neitt. Slíkir menn
verða leiðtogar þjóða, af þeim stafar
birta, og það er gott að fylgja þeim.
Eiginkonu, börnum og aðstand-
endum votta ég mína dýpsu santúð.
Þar sem góðir menn fara, eru Guðs
vegir.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
TÖLVUNOTENDUR
Víð í Prentsmiðjunní Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Baldur Þórðarson, bóndi,
Hjarðarholti, Dalasýslu
sem lést að heimili sínu miðvikudaginn 22. mars verður jarðsunginn
frá Hjarðarholtskirkju föstudaginn 31. mars kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Hjartavernd.
Ferð verður frá B.S.Í. kl. 8 og til baka sama dag.
Anna Markrún Sæmundsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum öllum er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför
Jóns H. Jónssonar
Miðhúsum, Mýrarsýslu.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Vegna útfarar
Finnboga Rúts Valdemarssonar
heiðursborgara Kópavogs
miðvikudaginn 29. mars verður skrifstofum bæjar-
ins, skólum, íþróttahúsinu, gæsluvöllum og bóka-
safni lokað frá kl. 13 til 18.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.