Tíminn - 29.03.1989, Qupperneq 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu,
S 28822
^Bármál^'d<arfa9!
BtWBHfliMtlflSKIPn
SAMVINNUBflNKANS
SUOURLANOSBRAUT 18, SlMI: 688568
„LÍFSBJÖRG i
NORÐURHÖFUM"
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró-1990
Gegn náttúruvernd
á villigötum
^iBILACv
ÞRðSTUR
685060
VANIR MENN
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra,
um heræfingu um varnir íslands:
Setur hugsanlega
þak á stærð vara-
liðs á heræfingu
Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra, telur
að til greina komi að setja
takmörk við fjölda hermanna
sem komi hingað til lands til
hefðbundinna heræfinga
varaliðs varnarliðsins á
Miðnesheiði. Hann bíður nú
eftir úttekt Varnarmálaskrif-
stofunnar á umfangi heræf-
ingar sem fyrirhugað er að
halda innan varnarsvæðis
bandaríska hersins á Miðnes-
heiði síðari huta júnímánað-
ar, en þó ekki fyrr en eftir
þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Samkvæmt upplýsingaskrifstofu
varnarliðsins verður um tveggja
vikna æfingu að ræða þar sem farið
verður yfir alla þætti í vörnum
íslands. I5ar verður farið yfir loft-
varnir, landvarnir og varnir með
skipunt og kafbátum. Sá þáttur sent
lýtur að sjóvörnum verður aðeins
æfður með svokallaðri pappírs-
vinnu, þ.e. að engin skip eða kafbát-
ar koma til landsins, nema með
ímyndunaraflinu.
Þeir landvarnarmcnn sem hingað
koma til æfinganna eru meðlimir í
varaliði varnarliðsins á Miðnesheiði
og koma hingað í sumarleyfum
sínunt. Erfitt er því að halda slíka
æfingu nema á þeim tíma árs. Ekki
hefur verið staðfest hversu margir
Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík'
isráðherra.
varaliðsmenn koma til íslands, en
samkvæmt einhverjum heimildum
Útvarpsins hefur því verið fleygt að
fjöldi þeirra verði á annað þúsund
manns. Svo háa tölu hefur hvorki
varnarliðið né utanríkisráðherra
viljað staðfesta né neita.
Síðast er haldin var svipuð æfing
kontu hingað á milli 2-300 varaliðs-
menn. í viðtali við Tímann sagði Jón
Baldvin að til greina kæmi að tak-
marka fjölda varaliðsmannanna.
Hins vegar yrðu menn að hafa í huga
að í varnarsáttmála íslands og
Bandaríkjanna er gert ráð fyrir vara-
liðinu. Því yrðu að hníga að því
veruleg rök ef banna ætti þessu
varaliði að kynna sér að hluta til
aðstæður hér á landi eða ntcina því
um lágmarks aðstöðu innan varnar-
svæðisins á Miðnesheiði. Það væri
þó rétt að utanríkisráðherra hefur
síðasta orð um hvort, hvar og hve-
nær slík æfing verði haldin á fslandi.
„Það er lítil sanrkvæmni í því að leita
eftir því við bandarísk yfirvöld að
þau annist varnir íslands ef til ófriðar
dregur, en nteina þeint síðan að
kynna sér aðstæður í því landi sem
þau hafa skuldbundið sig til að
verja,“ sagði Jón Baldvitt.
Heræfing þessi var til umræðu í
ríkisstjórn í gærmorgun og kom
fram talsverð andstaða af hálfu ráð-
herra Alþýðubandalagsins við áform
varnarliðsins eins og þau hafa birst í
fréttum Útvarps og Sjónvarps síð-
ustu daga. Einnig hefur Steingrímur
Herntannsson, forsætisráðherra,
sagt að hann telji slíkar æfingar
verulega tímaskekkju og óþarfar.
Kvennalistakonur komu saman í
gær og samþykktu ályktun þar sem
þær mótmæla því að slík æfing fari
fram og það á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn. Það hefur hins vegar komið
fram núna að ekki er ætlunin að
æfingin hefjist fyrr en eftir 17. júní
og standi því fram í júlímánuð. en
endanleg dagsetning liggur ekki fyrir
ennþá.
Sigurgeir Ingólfsson, bóndi ■ Hlíð, handfjatlar fálkann og virðist fara vel á
■neð þeim.
Fálki í fóstri á bæ undir Eyjafjöllum hjá Sigurgeir Ingólfssyni í Hlíð:
Hlupu fuglinn
uppi á túninu
„Við erum með fálka í búri.
Fálkinn var hér úti á túni og við
hreinlega hlupum hann uppi, en
hann gat ekki hafið sig til flugs,“
sagði Sigurgeir Ingólfsson í Hlíð
undir Eyjafjöllum við Tímann.
Sigurgeir sagði að þetta væri ungur
fálki og svo virtist sem hann væri
heill og óbrotinn, en hefði verið
slappur og tuskulegur. Það var á
miðvikudagskvöldið sem Sigurgeir
handsamaði fálkann og var hann
afar framlágur í fyrstunni. Sigurgeir
hafði strax samband við Dýraspítal-
ann í Reykjavík og héraðsdýralækn-
inn sem ráðlögðu að gefa fálkanum
hrámeti, helst hrátt kjöt og lifur.
Fuglinn var mjög farinn að hressast
í gær og hafði Sigurgeir smíðað
handa honum stórt búr sem hann
geymir úti í hlöðu.
Fuglinn var þá mjög farinn að
venjast heimilisfólkinu og var ekkert
sérlega órólegur yfir heimsóknum.
Sigurgeir sagði að hann hefði verið
búinn að veita fuglinum athygli, en
hann hefði haldið sig nokkuð við
bæinn undanfarið og hefði hann
meðal annars flogið inn í fjósið fyrir
nokkru, eftir smáfugli sem hann var
að eltast við.
Heimilisfólkið í Hlíð ætlar að
fóðra fuglinn og hlynna að honum
þar til hann verður ferðafær og
sjálfbjarga aftur. Þá verður honum
sleppt. -sá
Ný biðröö myndast í Húsnæðisstofnun:
Um 900 í nýrri
kaupleigubiðröð
„Ljóst er að enn ein biðröðin
hefur myndast hjá Húsnæðisstofnun
því ekki verður unnt að sinna nema
hluta af þessum lánsumsóknum (um
byggingu kaupleiguíbúða) á árinu,"
segir m.a. í umfjöllun um íbúða-
byggingar í nýrri ársskýrslu Verk-
takasambands íslands.
Samkvæmt skýrslunni liggja nú
fyrir 900 umsóknir vegna byggingar
kaupleiguíbúða á árinu 1989 á þess-
um nýjasta biðlista Húsnæðisstofn-
unar. Alls 240 lán til byggingar
kaupleiguíbúða voru veitt á s.l. ári.
Alls hafa því borist um 1.140 um-
sóknir um lán til byggingar kaup-
leiguíbúða á því eina ári síðan lögin
um kaupleiguíbúðir voru sett.
Á árunum 1981-1986 var lokið
byggingu á unt 1.650 íbúðum ár
hvert að meðaltali. Fái allur „kaup-
leigubiðlistinn" lánsloforð virðist
ljóst að kaupleiguíbúðir verða ntjög
stór hluti væntanlegra íbúðabygg-
inga á næstunni. Jafnframt má ætla
að hundruð nýrra kaupleiguíbúða
komi til með að fækka umsóknunt
um almenn húsnæðislán frá Bygg-
ingarsjóði ríkisins vegna nýbygginga
eða kaupa á eldri íbúðum. - HEI
Veröur ekkert af frekari viðræðum um byggingu nýs álvers í Straumsvík?
Kostnaðurinn meiri
en reiknað var með
Stofnkostnaður við byggingu nýs
álvers í Straumsvík er mun meiri
en ráðgert var í upphafi. Hækkun-
ina má að hluta til rekja til kostnað-
arhækkana innanlands frá því að
upphafleg áætlun var gerð í sept-
ember á síðasta ári, en auk þess
hefur verð á tækjabúnaði til álvera
hækkað almennt.
Álviðræðunefnd sú er skipuð
var af fyrirtækjunum fjórum
(Grángers Aluminium, Svíþjóð,
Aluminet, Hollandi. Austria
Metal, Austurríki og Alusuisse,
Sviss) og gerði hagkvæmniathugun
á stækkun álversins í Straumsvík
ntun halda fund með fyrirtækjun-
um í fyrstu viku næsta mánaðar,
þar sem skýrt verður frá niðurstöð-
um hagkvæmniathugananna. Þá
mun væntanlega liggja fyrir hvort
áhugi er fyrir hendi hjá viðkomandi
fyrirtækjum til áframhaldandi at-
hugana. Að sögn Guðntundar G.
Þórarinssonar alþingismanns, sem
á sæti í samstarfsnefnd er skipuð
var af hállu íslendinga til að vinna
að forkönnun á hagkvæmni nvs
álvers, er mjög erfitt að átta sig á
hver framvinda málsins verður.
Guðmundur flutti ítarlegt erindi
um nýtt álver og uppbyggingu
stóriðju á íslandi á miðstjórnar-
fundi Sambands ungra framsókn-
arntanna fyrir skemmstu. þar sem
hann sagði að áhugi álfyrirtækj-
anna fjögurra hefði minnkað til
muna eftir að athuganir hefðu leitt
í Ijós að kostnaður við nýtt álver í
Straumsvík væri mun meiri en gert
var ráð fyrir í upphafi.
Guðmundur vildi, í samtali við
Tímann í gær, ekki segja hversu
hækkunin væri mikil í prósentum.
en Ijóst væri að hún væri veruleg.
- ÁG