Réttur - 01.02.1928, Side 47
Rjetturj KOMMÚNISMINN OG BÆNDUE 49
segjum 25 manna. Ynnu þessir 25 menn þá að sínu, en
í fjelagi þó. f hvert skifti, sem maður kemst í vinnu á
togaranum, verður hann að kaupa y2B togarans og
greiða fyrir það 10000 kr. Annars mundi fyrirkomu-
lagið raskast. Slíkt er auðvitað alveg óhugsandi og síst
eftirsóknarvert fyrirkomulag, að maður verði að
greiða slíka upphæð til þess að fá að vinna.
Vjer kommúnistar hvetjum almenning til að vinna
að því, að skipuleggja smáíramleiðsluna með sam-
vinnufjeiagsskap. En auðvitað stefnir alt í þá átt, að
smáframleiðslan víkur fyrir stórframleiðslu. Fjelags-
eðli stórframleiðslunnar hlýtur því að sigra hitt fyrir-
komulagið, að hver vinni að sínu. Hjóli tímans verður
ekki snúið afturábak.
Annars er það hjal út í bláinn, að vj'er íslendingar
getum siglt vorn eigin sjó í skipulagningu atvinnumál-
anna. íslensku atvinnuvegirnir eru eins og dropi í hafi
alheimsauðvaldsins og hljóta að knýjast fram eftir
þeim farveg, sem rás viðburðanna markar þeim, sam-
kvæmt hinum almennu lögmálum nútímaframleiðsl-
unnar. Og enginn veit hvenær vjer kunnum að sogast
inn í hringiðu einhvers stórveldisins.
III.
f svargrein minni til J. Þ., sem! átti að koma í.»Tím-
anum«, lauk jeg máli mínu á þessa leið:
»Að endingu vil jeg óska þess af heilum hug, að
Framsóknarflokkurinn, er nú má sín svo mikils, bregð-
ist ekki vonum manna og beri nafn með ’rentu. Megi
nonum auðnast að vinna með jafnaðarmönnum að
sönnum framfaramálunl allrar alþýðu. f grein minni í
»Rjetti« benti jeg á veilurnar með vináttuhug til þeirra
manna, er flokkinn fylla, og ætlaðist til að menn
reyndu að halda í horfinu til hins betra í staðinn fyrir
að stökkva upp á nef sjer. Allan þorra bænda þeirra,
4