Réttur - 01.02.1928, Síða 60
62 FEÁ ÓBYGÐUM [Rjettur
drepinn verið og dysjaður smali frá Rugludal. Hefi ég
lieyrt þjóðsögu um þetta, en nú er hún mér úr minni liðin.
Svartárdalur klofnar í tvent skamt fyrir framan fremsta
bæinn, Stafn. Austari dalurinn liggur til suðausturs, og
heitir hann Stafnsgil. Hann er alldjúpur og þröngur mjög
og lítið jökulsorfinn eða ekki. Verður hann að gljúfragili
skamt upp frá dalamótunum. Það nær fram undir Buga.
Rennur Svartá eftir því og þessum dal.
Vestari dalurinn heitir Fossadalur. Hann liggur í suður
eins og Svartárdalur og er sami dalur, þó að hann beri
annað nafn. Dalur þessi er jökulgrafinn, djúpur og þröng-
ur. Nær hann alllangt suður á heiðina og endar í drögum,
sem Fossadalsdrög heita. Þau liggja vestan undir norð-
anverðum Þingmannahálsi, skamt fyrir norðan lægð þá,
er Galtará rennur eftir. Milli Fossadals og Stafngils er há-
lendistunga, sem heitir Háutungur. Nær hún suður að
Bugum og Þingmannahálsi.
í Fossadai er einn bær bygður. Heitir hann Fossar, og
dregur dalurinn nafn af honum. Stendur hann neðan til í
dalnum að vestan. Framar i dalnum er eyðibýli, sem
Kongsgardur heitir. Þar hélst bygð fram undir lok 19. ald-
ar, en nú hefir landið verið lagt til afréttar.
2. Á r o g v ö t n á E v i n d a r s t a ð a h e i ð i.
Vötn á Eyvindarstaðaheiði hníga til tveggja höfuð-
strauma: Blöndu og Héraðsvatna. Hraunahryggurinn deil-
ir vötnum, en á sléttunni uppi við Sátujökul berjast þær
um vatnið, Vestari-Jökulsá og Strangakvísl, og hefir sýni-
lega ýmsum veitt betur á umliðnum öldum.
Vestari-Jökulsá skapast úr þremur kvíslum. Tvær hinar
eystri koma upp í Jökulkrókunum, sín hvorum megin við
Krókafell, og eru þær báðar jökulvötn. Þær eru nafnlaus-
ar, en kalla mætti þær Austari- og Vestari-Krókkvísl.
Renna þær til norðvesturs eftir alldjúpum farvegum, sem
þær hafa grafið niður í gegn um rnela þá, sem í yfirborði
eru og niöur í grágrýtislögin undir þeim. Skamt er á milli
I