Réttur - 01.02.1928, Page 71
Rjettur]
FRA ÓBYGÐUM
73
þegar komið var upp á móts við Hraunshaus, tóku við
sléttir sandar, og entust þeir upp að Fossbrekku.
Á söndunum vestan við Fossbrekku. Fram undan sést Foss-
brekka, en lengst burtu Sáta og Hofsjökull.
Við klöngruðumst upp Fossbrekku rétt fyrir sunnan
fossana. Þeir eru tveir, livor upp af öðrum. En í fjarska
bera þeir saman og virðast þá vera einn foss. Fossbrekka
er næsta merkileg. Mun það varla orka tvímælis, að hún
sé sigbarmur, og tel ég líklegt, aö hún hafi orðiö til sein-
ast á ísöld eða jafnvel síðar. Ekki vanst þó tími til.aö
rannsaka þetta svo rækilega sem vert var. Héldum við nú
áfram upp að Bláfelli, og er þangað stutt leið af brúnum
Fossbrekku. Við fórum upp með Bláfellskvísl. Fellur hún
þar í ýmsum krókum milli melaldna, og er auðséð, að hún
er mjög ung, að minsta kosti með þeirri gerð, sem hún
hefir nú.
Hjá Biáfelli áðum við. Sólin skein í lieiði, og útsýnið
var fagurt og svipmikið. 77/ vestnrs sást vítt yfir Eyvind-
arstaðaheiði og Kjöl, Stórasand og Langjökul. / norðri og