Réttur


Réttur - 01.07.1982, Qupperneq 31

Réttur - 01.07.1982, Qupperneq 31
Vaxandí at- vinnuleysi samfara orkukreppu og minnkandi framleidslu og minnkandi hag- vexti hrjáir heiminn og sér ekki enn út úr því ástandi. Samantekt eftir Halldór Vllhjélmsaon, byggö á Time Magazine. Efnahagskúrva heimsins lekur niöur, hvernig eem aö er fariö og eumir epámenn telja, aö hagvaxtartimabil eine og þeö eem einkennt hefur árin eftir síöari heimsetyrjöldina, komi ef til vill aldrei aftur Afturkippur. l»etta orö virdist ekki lengur viö hœfi til þess aö lýsa að fuilu þeim stööugu og miskunnarlausu sviptingum, sem hrjá efna- hagsmál heimsins. Æ fleiri stjórnmálamenn, kaupsýslu- menn og viöskiftafræöingar cru gripnir þeim nagandi ugg, að hnignunin í efna- hagsmálum kunni að verða alveg óviöráðanleg og leiða til meiriháttar hruns efna- hagskerfisins. Pierre Tru- deau, forsætisráðherra Kan- ada, sagði á fundi þeim, sem leiðtogar helztu iðnríkja heims héldu nýlega með sér í Versailles: „Við erum á leið- inni út úr efnahagskreppu inn í hreinasta efnahags- voða.“ Poul McCracken, fyrrum formaður hins ráðgef- andi efnahagsráðs Banda- ríkjanna í stjórnartíð R. Nix- ons forseta, segir aðvarandi: „Kfnahagsmál hcimsins halda sem stendur jafnvægi sínu á hnífsegg og geta auð- veldlega tekið bakföll niður á annað tímaskeið alþjóö- legrar cfnahagsupplausnar.“ A meðan þjóðir heims hafa verið að berjast við að stemma stÍKu við hinum samtvinnuðu plágum, hraðfara verðbólgu og hægfara hagvexti, hafa milljón- ir manna misst atvinnu sína. Himinháir vextir hafa lagt þús- undir fyrirtækja að velli. Ótal mörg félög hafa ekki verið fær um að endurnýja löngu úreltan vélakost í verksmiðjum sínum. Htlitið fyrir frekari þenslu í efnahagslífinu, en það hefur ætíð verið driffjöður kapítal- ismans, virðist skyndilega orðið háskalega svart. Þrátt fyrir hinn gífurlega niðurskurð ríkisútgjalda, virð- ast efnahagsmál þjóða heims engu nær því núna að vera á öruggum batavegi heldur en þegar efnahagsvandinn skaut fyrst fyrir alvöru upp kollinum. Satt bezt að segja eru efna- hagsvandamálin í mörgum lönd- um að stóraukast núna, og þær ríkisstjórnir, sem hafa verið að reyna að örva með ráðum og dáð efnahagsþróunina í löndum sín- um, svo og aðrar er börðust af einbeitni gegn vaxandi verð- bólgu, eru núna í óðaönn að endurskipuleggja frá grunni stefnuna í efnahagsmálum. Frakkar skelltu á fjögurra mánaða frystingu launa og verðstöðvun og felldu gengi franska frankans um 10%, eftir að hin stöðuga rýrnun á verð- gildi hans hafði komið efna- hagslífi landsins í hið mesta uppnám. í Kanada voru birt af- ar strengileg fjárlög, sem m.a. takmarka launahækkanir opin- berra starfsmanna við 6% eða sem svarar til u.þ.b. helmings yerðbólgunnar á ári þar í landi. ÁsUeðurnar voru hinir fjallháu vextir og mjög mikið atvinnu- leysi í Kanada. Andspænis gif- urlegum halla á rikissjóði hafa Belgar gripið til þeirra fá- heyrðu úrbóta að banna allar dýrtíðaruppbjetur á lífeyri eflir- launafólks, svo og til þeirra launþega, sem fá meira en jafnvirði 6.360 ísl. króna á mánuði. Þar sem svo til hvert einasta land í heimi hefur séð sig til- neytt að draga' mjög úr pen- ingamagni í umferð í baráttunni gegn verðbólgu, hafa háir vextir á sama tíma þegar skapað mikla fjármagnskreppu um heim all- an. Fjöldi stórskuldugra þjóða á í hinum mestu erfiðleikum með að standa í skilum með afborg- anir og endurgreiðslur. Bankar í einkaeign, núorðið sýnu ófúsari að auka útlán sín, hafa t.d. ein- faldlega hætt að veita ýmsum svæðum Austur-Evrópu, Suð- ur-Ameríku og Afríku lán. Sum- ir sérfræðingar í bankamálum, svo og í viðskiptum óttast frek- ari langtíma samdrátt í lánveit- ingum, sem kynni að leiða til þess, að verzlun og viðskipti í heiminum lömuðust algjörlega. Fritz Leutwiler, formaður bankaráðs Alþjóða greiðslu- bankans, hefur þetta um ástandið að segja: „Þegar ráða- menn allra banka taka upp á því að gerast áhyggjufullir allir i einu, getur komið til alvarlegs skorts á fjármagni. Alþjóða fjármagnsmarkaðirnir standa feiknalega berskjaldaðir." Afturkippurinn í efnahags- málum hefur ekki haft jafn heimsumspannandi áhrif, allt frá heimskreppunni miklu í upphafi 4. áratugs þessarar ald- ar. I»cssi kreppa geisar eins og landfarsótt, næstum óumflýj- anleg. Hún sýkir jafnt sterk sem veik efnahagskerfí, sting- ur sér jafnt miður meðal ríkra þjóða scm fátækra, jafnt í lýó- raðisríkjum með auðvalds- skipulag sem kommúnískum einræðisríkjum. 22 milljónir atvinnulausra í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum í Bandaríkjunum og Vestur- Evrópu hefur þessi afturkippur í efnahagsmálum orsakað svo stórkostlega fjölgun atvinnu- leysingja, að þeir eru núna orðn- ir fleiri en nokkurn tima áður frá lokum seinni heimsstyrjald- arinnar, eða um 22 milljónir. Það þýðir, að næstum þvi einn af hverjum tíu verkamönnum i þessum löndum er atvinnulaus. í Bretlandi hefur störfum í iðnframleiðslu snarlega fækkaö um 16%. Jafnvel í Vestur- Þýzkalandi, hinu fyrrum svo styrka efnahagsveldi eftirstríðs- áranna, hefur atvinnuleysi nærri því tvöfaldast frá árinu 1979 og er nú orðið 6,8%, en aukningin á gjaldþrotum v-þýzkra fyrirtækja hefur hins vegar aukizt um næstum 100%. Karl Otto Pöhl, aðalbankastjóri vestur-þýzka Bundesbank, hefur látið svo um mælt, „að uppgjaf- artónn og svartsýni séu orðin útbreiddari núna en á nokkrum öðrum tímum eftir stríð“. Ríkisstjórnir hinna ýmsu landa leita sér að sökudólgum, sem hægt er að kenna um öll skakkaföllin í efnahagsmálum viðkomandi landa, og einhugur vestrænna ríkja er þannig tek- inn að bresta. Evrópumenn hafa uppi ásak- anir um, að hinn gífurlegi árlegi halli á fjárlögum Bandaríkj- anna, og háir vextir þar í landi, geri allan bata í efnahagsmálum Evrópuríkja hreinlega að engu. Washington ásakar hins vegar Vestur-Evrópu um að undir- bjóða bandaríska markaðinn með ódýru, niðurgreiddu evr- ópsku stáli, sem stórskaði bandaríska iðnframleiðendur. Þessar væringar gefa þjóðern- issinnaðri stefnu í efnahagsmál- um og einangrandi verndarað- gerðum með sértollum, inn- flutningshöftum, styrkjum og þvíumlíku byr undir báða vængi í ríkari mæli en verið hefur frá upphafi fjórða áratugs þessarar aldar. Að því er varðar hin van- þróaðri ríki, sem byggja afkomu sína svo mjög á að selja iðn- væddum þjóðum hráefni og hina fábreyttu iðnaðarframleiðslu sína, hefur afturkippurinn í efnahagsmálum um víða veröld haft hinar ferlegustu afleið- ingar. Þannig hefur ríkisstjórn Costa Rica t.d. í skyndi orðið að koma á fót hjálparstofnun til þess að úthluta atvinnuleysingj- um brauði, hrísgrjónum, baun- um og öðrum matvælum, en at- vinnuleysið þar í landi hefur aukizt upp í 17%. í Tanzaníu geisar 29% verðbólga, og hefur ríkisstjórnin þarlendis neyðst til að strika út 966 atriði á fram- Síða úr Lesbók Morgunblaðsins 21. ágúst 1982. 159
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.