Réttur


Réttur - 01.07.1982, Blaðsíða 46

Réttur - 01.07.1982, Blaðsíða 46
Bandaríkjastjórnar um 65 milljónir doll- ara efnahagsaðstoð, þar af 55 milljónir dollara til hernaðar. Vilmundur Gylfason fór fram á það sem „stuðningsmaður At- lantshafsbandalagsins hafandi verið það og verandi það“, að utanríkisráðherra léti einskis ófrestað að láta í ljós andúð íslendinga á stuðningi Bandaríkjastjórnar við ógnarstjórnina í E1 Salvador, „því að það eru ekki góðir bandamenn sem haga sér með þessum hætti“. Ámi Gunnarsson þingmaður Alþýðuflokksins og Ólafur Ragnar Grímsson tóku einnig undir það að ekki mætti þegja lengur yfir ógnar- stjórninni í E1 Salvador og stuðningi ríkisstjórnar Reagans við hana. „Við meg- um ekki sitja hjá ef svo stefnir sem nú horfir, að nýtt Vietnam fæðist í E1 Salva- dor“, sagði Ólafur Ragnar formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins. Enginn tals- maður Sjálfstæðisflokksins tók til máls í þessum umræðum 2. febrúar. Vakti það að sjálfsögðu mikla athygli og hefur sjálf- sagt orðið til þess að í næsta skipti þegar málefni E1 Salvador voru til umræðu á þinginu tók alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins til máls. Það var Pétur Sigurðs- son, sem sagði m.a. að óeðlilegt væri að ályktað væri um málefni E1 Salvador á þinginu þar sem landið væri í fjarlægri heimsálfu. Og af því tilefni spurði Svavar gestsson formaður Alþýðubandalagsins hvort menn ættu að leggja fjarlægðarmæli- kvarða á mannréttindi? Margir hafa óttast að hernaðarleg af- skipti Bandaríkjanna myndu beinast í þá átt að þriðji aðilinn yrði sendur með heri inn í E1 Salvador. Og eftir kosningarnar hafa hersveitir frá Hondúras hvað eftir annað ráðist inní landið til aðstoðar stjóm- arsveitum. 4. júlí sl. sendu FMLN—FDR harðorð mótmæli til aðalritara Sameinuðu þjóðanna og báðu SÞ að tryggja afskipta- leysi Hondúras í stríðinu í E1 Salvador. Kosningarnar 28. mars voru hreinn skrípaleikur einsog fjölmargir viður- kenndir aðiljar hafa sýnt fram á. Sigur- vegarinn D’Abuisson er forseti stjórnlaga- þingsins, sem er einn öflugasti hluti stjórn- kerfisins í landinu. Hann var rekinn úr hernum 1979 vegna þátttöku sinnar í hryðjuverkum og pyndingum. í maí 1980 var hann handtekinn vegna áforma um hallarbyltingu. í júlí 1980 var honum vísað frá Bandaríkjunum sem hann hafði heimsótt á ólöglegu vegabréfi, vegna sam- banda sinna við hægrisinnaða hryðju- verkamenn í E1 Salvador. Hann er orðað- ur við að vera stofnandi dauðasveitanna og við morðið á Romeró erkibiskupi. í kosningabaráttunni hét D’Abuisson því að gera útaf við skæruliðahreyfinguna með napalmi ef nauðsynlegt reyndist. Opinberlega hefur hann lofað nasista fyrir að hafa skilið „að gyðingar voru ábyrgir fyrir útbreiðslu kommúnismans og byrjað á að útrýma þeim“. Honum var lýst svo af Robert White fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í E1 Salvador, að hann væri „bandóður morðingi“. Ástandið hefur ekkert skánað nema síður væri í E1 Salvador eftir skrípakosn- ingarnar í mars sl. Ógnarstjórnin stendur fyrir hryðjuverkum og ríkisstjórn Ron- alds Reagans styður við bakið á óhugnað- inum, þrátt fyrir mótmæli demókratísku stjórnarandstöðunnar, kaþólikka og fjölda samtaka í Bandaríkjunum. Á íslandi starfar É1 Salvadornefnd sem stofnuð var í febrúarmánuði sl. og hefur staðið fyrir útgáfu ýmissa upplýsinga um land og þjóð og borgarastyrjöldina. í mars sl. kom hingað á vegum nefndarinn- ar Raul Flores Ayala fulltrúi FDR-FMLN 174
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.