Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 54

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 54
Náttúrufræðingurinn um, á botni fjaðursekkjarins o.s.frv. Þegar fjöðrin er fullmynduð, er hún eiginlega dauður hlutur, tíðast mjög margbrotin að gerð, full af lofti og létt í sér.10 Fjaðrir fugls eru af tveimur megingerðum. Þakfjaðrir (8. mynd og 9. mynd fyrir miðju og til hægri) eru með velþroskaðan hrygg (fjað- urstaf) að endilöngu og út frá honum fanir til beggja hliða. Ut úr geislum fanarinnar ganga smágeislar og á sumum þeirra eru krókar sem krækjast í smágeisla á næsta geisla svo fönin myndar samfelldan flöt (sjá 8. mynd til hægri). Við jaðra fanarinnar krækjast geislarnir samt ekki saman, og neðst eða innst er fjöðrin dúnkennd. Þakfjaðrirnar lykja um líkama fuglsins, skýla hon- um og gera hann sléttan og renni- legan. Bjarni Sæmundsson kallar þær „utanhafnarföt fuglsins". Flugfjaðrirnar (9. mynd til hægri) eru þakfjaðrir sem ganga aftur úr armbeinum fuglsins. Þær eru stórar á fleygum fuglum og um það frá- brugðnar venjulegum þakfjöðrum að þær eru ósamhverfar: Innri fönin er breiðari en hin ytri og breiða fön- in gengur undir hina mjórri á næstu fjöður fyrir innan. Þegar fuglinn slær vængjunum niður og aftur falla flugfjaðrirnar saman og lyfta fuglinum upp og knýja hann áfram. í uppsveiflunni opnast glufur á milli flugfjaðranna sem loft streym- ir um (10. mynd). Önnur megingerð fjaðra eru dún- fjaðrirnar (9. mynd til vinstri og 11. mynd), ýmist hrygglausar eða með mjög rýran hrygg, og út úr geislun- um ganga margir og fyrirferðar- miklir smágeislar, allir ókræktir. Þessar fjaðrir eru bæði undir þak- fjöðrunum og á milli þeirra og mynda dúninn, sem gegnir einkum hlutverki varmaeinangrunar. Hann er, með orðum Bjarna Sæmunds- sonar, „nærfatnaður fuglsins". I síðari hluta þessarar greinar verður komið frekar að hugmynd- um um þróun flugs hjá fornum dínósárum. AFTUR í ALDIR Ljóst er að hugmyndir um að gáfuð og kvik smáspendýr hafi rutt heimskum og sljóum risaeðlum úr vegi í lok miðlífsaldar standast ekki. Spendýr voru komin fram á forn- lífsöld og virðast allt „valdaskeið" risaeðlnanna hafa lifað í skugga þeirra, enda flest smávaxin náttdýr, skordýraætur á stærð við mýs eða rottur. Samt hafa samtímis risaeðlunum þrifist allstór spendýr. Kínverskir fomdýrafræðingar uppgötvuðu ný- lega í landi sínu (í Yixianlögunum, sem brátt verður greint frá) leifar af um metralöngu spendýri með tennur 9. mynd. Helstu gerðir fjaðra. Lengst t.v. er dúnfjöður, svo venjuleg þakfjöður og loks flugfjöður." 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.