Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1959, Page 44

Andvari - 01.10.1959, Page 44
154 ARNÓR SIGURJÓNSSON ANDVARI Ef til vill þykir einhverjum, að það mæli á móti þeim skilningi á kvæðinu, sem hér að framan hefur verið lýst, að það sé allt of ógnþrungið og hryllilegt til þess að vera örvandi fyrir her, sem búinn er til tvísýnnar orustu. En þetta er þá misskilningur nútíma manns, sem hefur allt aðra tilfinningu fyrir orustu en víkingarnir höfðu. Fyrir þeim var orustan ekki fyrst og fremst mannfall og dauði, eins og hún er fyrir okkur, heldur ógur- leg lífsfylling og lífsnautn, allt að því heilagt æði, eins konar æðra stig þess sem íþróttamenn, t. d. knattspyrnumenn, finna, er þeir ganga til kappleikja, er miklu þykja varða. Þetta æði þótti nauð- synlegt að vekja til þess að barizt yrði af fyllsta alefli. Þetta æði var jafnvel stundum brýnt fram, þó að engin orusta væri fyrir höndum. Það gerir t. d. Egill í I löfuðlausn, og þar er skyldleikinn við Darraðarljóð svo náinn, að vel má láta sér finnast, að bæði kvæðin séu úr sama afli, og er þó kvæði Egils miklu einhæf- ara og fátæklegra, talað til orustuæðisins eins. Tökum til dæmis þessa vísu úr I Iöfuðlausn: Flugu hjaldurstranar1) á hræs lanar,2) vorut3) blóðsvanar benmás4 5 6) granar,B) sleit und°) freki7), en oddbreki8) gnúði hrafni á höfuðstafni.9) Flest orð og atriði Darraðarljóða skil eg á sama veg og algengast er meðal fræði- manna í norrænum fræðum. Tvennt skil 1) Þ. e. hrafnar. 2) Þ. e. hrækesti. 3) Þ. e. voru eigi. 4) Þ. e. hrafns. 5) Þ. e. granir, nefin. 6) Þ. e. sár. 7) Þ. e. úlfur. 8) Þ. e. oddbylgja, blóð. 9) Þ. e. nefi. eg þó á annan veg, og af því leiðir, að frávik verða um fleira. Annað er ekki stórvægilegt fyrir kvæðið í heild. Það er niðurlag fyrsta erindis. Það er á ýrnis- legan veg í handritum, hefur a. m. k. sums staðar brenglazt. Flestir hafa viljað lesa það svona: Nú er fyrir geirum grár upp kominn vefur verþjóðar, er vinur fylla rauðum vefti randvesbana. Les- hátturinn randvesbana styðst við eitt handrit frá fyrri hluta 14. aldar, Möðru- vallahók, og er þó ekki vafalaus þar, og er réttast að skoða hann sem tilgátu 19. aldar fræðimanna. Sú tilgáta fylgir þeirri tilgátu, að Randvesbani sé Óðinn, og séu valkyrjurnar kallaðar vinur (þ. e. vinkonur) Óðins, og beri að skilja niður- lag erindisins svo, að þær fylli vefinn rauðu ívafi. Flestir hafa viðurkennt, að þetta sé vandræðaskýring, sem til hafi verið gripið, af því að önnur hafi ekki fundizt, og sé þá myndin, sem upp er brugðið í kvæðinu, ærið óskýr og klesst, og ólík öðru í Darraðarljóðum, þar sem hver mynd er annars Iilutlæg og skýr, jafnvel óhugnanlega skýr. Það mælir einnig á móti þessari skýringu, að í flest- um handritum er „randverks" eða ein- hvers konar afbökun þess orðs, og það getur „randves"1) einnig verið. Orðið, sem á eftir kemur, er í flestum hand- ritum „bla“, og væri eðlilegast að lesa úr því blá, bláan eða bláum, en þá hefur ekki tekizt að finna neina skiljanlega meiningu í vísuorðinu. í einu handritinu, Gráskinnu, sem talið er vera frá því um 1300, er „líka“, þar sem önnur handrit hafa „bla“. Þessu hefur lítill gaumur verið gefinn, en þetta mun vera hinn rétti texti. Ur honum má lesa hlutlæga og skýra mynd í fyllsta samræmi við allt annað í kvæðinu. Orðið randverk, sam- 1) Orðið er ritað nieð litlum upphafsstaf 1 Möðruvallabók.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.