Menntamál - 01.04.1946, Blaðsíða 41
MENNTAMÁL
71
við. Gat hann meðal annars um vaxandi áhuga og framkvæmdir í
skólabyggingum, t. d. byggðu að minnsta kosti 6 hreppar í Árnessýslu
skólahús á suniri komandi. Skólahúsin væru að vísu ekki svo mörg,
því að norðvesturhreppar sýslunnar sameinuðust um skóla við Ljósa-
foss. Mundi þctta met um skólabyggingar í einni sýslu, en víðar væri
mikill áhugi og framkvæmdir i þessu efni. I>á lauk hann lofsorði á
samþykktir síðasta ársþings ungmennasambandsins Skarphéðins um
skólamál. Skólabyggingarnar ættu að verða baráttumál kennarasam-
takanna. Þá skýrði hann frá, að skólabílar væru nú notaðir í 5 skóla-
hverfum á Suðurlandi og tvö skólahverfi væru að byggja heiman-
akstursskóla. Gagnfræðaskólarnir gætu vafalaust notað skólabíla, t. d.
gagnfræðaskóli fyrir suðurlireppa Arnessýslu og í Gullbringusýslu.
Vakti námsstjóri athygli á, að skólabílar ættu að fá hér sömu forrétt-
indi á vegum eins og jteir hafa sums staðar erlendis.
3. Stjórnum kennarafélaganna var falið að hafa forgöngu um
stofnun kennarasambands fyrir Suðurland.
4. Vorstörf í barnaskólum voru ntikið rædd, sérstaklega ntóður-
málskennsla yngri barna, vorpróf og skólaskemmtanir.
5. Sigurður Eyjólfsson skólastjóri á Selfossi hóf umræður um sendi-
bréf sem verkefni til samanburðarprófs, en það hefur verið notað á
Suðurlandi undanfarin ár. Lauk fundurinn lofsorði á prófverkefni
jjetta, enda hafa framfarir á jtessu sviði orðið geysimiklar.
6. Kennarar á Eyrarbakka buðu fundarmönnum á skemmtun
barnaskólans. Guðmundur Þorláksson skólastjóri bauð gesti velkomna,
en Guðmundur Daníelsson kennari skýrði skemmtiatriði. Að lokinni
skemmtun þakkaði námsstjóri ágæta skémmtun og frábæra fjölbreytni
og hugkvæmni, Jtar sem sérhvert skólabarn kom fram á sviðið til jtess
að skemmta. Ivennarar hér og víðar legðu mikla vinnu í skólaskemmi-
anir, og væri sannarlega til mikils að vinna, ef skólunum auðnaðist
að hafa bætandi áhrif á skemmtanalíf þjóðarinnar, jafn mikilvægur
og sá þáttur væri í lífi hverrar þjóðar. Síðan sátu fundarmenn kaffi-
boð hjá kennurum Eyrarbakka. Höfðu menn bæði gagn og ánægju
af þessari heimsókn.
Kennnrafélag Fœreyja
hefur nýlega gefið 1500 krónur í Minningarsjóð Aðalsteins Sig-
?nundssonar. Sjóðurinn er nú um 22 þúsund krónur að stærð. Stjórn
Ungmennafélags íslands og afgreiðsla Tímans í Reykjavík taka á
móti framlögum í sjóðinn. — í Kennarafélagi Eæreyja eru nú )6o
kennarar.