Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1969, Qupperneq 11

Æskan - 01.09.1969, Qupperneq 11
Snati og slökkviliðið Það var slökkvistöð rétt hjá, þar Gem Bóbó átti heima, og þar var stór hundur, sem hét Snati. Hann var flekkóttur á lit, hvítur og svartur. Greyið hann Snati var svo latur og værukær, að slökkviliðsmenn- irnir kölluðu hann aldrei annað en svefn- Purkuna. Hann lá nefnilega oftast og svaf allan liðlangan daginn fyrir íraman slökkvi- stöðina. Þegar stóra brunabjallan hringdi svo glumdi í öllu, sneri Snati sér bara á hina hliðina og hélt áfram að hrjóta, eins °g ekkert hefði í skorizt. Hann nennti eigin- iega aldrei að vaka nema þegar Bóbó kom leika sér við hann. Þá hljóp hann um allt og gelti og lék á als oddi. Snati og Bóbó voru mjög góðir vinir. Einn daginn, þegar allir slökkviliðsmenn- imir sátu og voru að tefla skák, byrjaði brunabjallan allt í einu að hringja. Gling- gling-gló. Mennirnir fleygðu frá sér taflinu og fóru 1 slökkviliðsfötin sín. — Komdu, svefnpurka, kallaði foringinn hl Snata. — Stattu nú upp og komdu með °kkur, þú getur vel hjálpað okkur að slökkva eldinn. En Snati leit bara á hann syfjuðum aug- Ufh, síðan hélt hann áfram að sofa. — Blessaðir verið þið ekki að tala við hann, sagði bílstjórinn, hann nennir hvort sem er ekki að hreyfa sig. Svo brunaði brunabíllinn af stað á fleygi- f°rð með alla slökkviliðsmennina. En Snati 'okaði augunum og lét fara vel um sig, 'etinginn sá arna. Allt í einu vaknaði hann við einhverja óvenjulega lykt, líkasta brunalykt. Hann opn- aði vinstra augað og sá að það lagði reyk úr tuskuhrúgu rétt hjá körfunni hans. Snati rauk á vætur og hljóp út að dyrunum og gelti eins hátt og hann gat. En slökkviliðs- mennirnir voru allir í burtu, svo enginn heyrði til hans. Þá hljóp hann út og gelti, en það var enginn maður sjáanlegur. Rétt í þessu kom Bóbó heim úr skólan- um. Snati hljóp á móti honum og glefsaði í ermina hans tfl þess að reyna að íá hann til að koma með sér. Bóbó hélt, að Snati væri bara að leika sér og sagði: — Nei, Snati minn, ég þarf fyrst að fara heim með skólatöskuna mína, svo skal ég koma og leika við þig. En þá tók hann eftir þv(, að það lagði reyk út um dyrnar á slökkvistöðinni. Hann flýtti sér þangað inn, náði í íötu og fyllti hana af vatni, en Snati sýndi honum hvar eldurinn átti upptök sín. Bóbó tókst að slökkva eldinn, og síðan bar hann rjúk- andi tuskuhrúguna út, til þess að vera viss um, að hvergi leyndist eldsneisti eftir, því þá gat húsið brunnið til kaldra kola. Þegar slökkviliðsmennirnir komu loksins aftur eftir að hafa slökkt sinn eld, sáu þeir Bóbó og Snata fyrir utan slökkvistöðina. Þeir höfðu báðir fundið sér gamlar einkenn- ishúfur, og sátu nú þarna hreyknir á svip- inn. — Hvað eruð þið að gera hér? spurði foringinn. — Við erum líka í slökkviliðinu, sagði Bóbó. — Það kviknaði í slökkvistöðinni, meðan þið voruð í burtu, Snati tók eftir því og lét mig vita, síðan slökkti ég eldinn. Og þið skuluð aldrei oftar kalla Snata svefn- purku, því hann sefur sannarlega ekki, þeg- ar eitthvað reynir á. Snati sat og dinglaði rófunni af ánægju. Hann hafði líka ástæðu til að vera glaður, því þar sem hann sat þarna með einkenn- ishúfuna á ská á höfðinu, var hann alveg eins og hetja, sem unnið hefur mikið afrek. Villa þótti leiðinlegt, að Miguel skyldi fara frá þeim, en hann skildi vel, að hann hafði miklum störfum að 9egna heima hjá sér við tinnámuna. Hann þakkaði ^onum hjartanfega fyrir alla aðstoðina og samveruna °9 hann og Hannibal veifuðu hinum bólivíska vini s'hum, kátir og glaðir, þegar hann lagði af stað í hina 'er>gu ferð heim til Bólivíu. ^egar fallegi, rauði bíllinn hans Miguels var horfinn, sheri Villi sér að Hannibal, litla vini sínum, og sagði: "Komdu nú, vinur, við skulum skreppa og skemmta °kkur svolítið í snjóhlíðum Andesfjallanna." V‘»i °g Hannibal veifuðu Miguel, vini sínum, þegar hann lagði af stað í hina löngu ferS heim til sín aftur. 367

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.