Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Blaðsíða 134

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Blaðsíða 134
UM BÆKUR þátttakenda við afar rækilegum spurningalista (hann fylgir í viðauka ritsins) um reynslu þeirra af framhaldsskólanum, viðhorf til náms og skýringar á námsferli. Og af sama úrtaki gáfu um 560 svör í pósti við tveimur stöðluðum matskvörðum, um sjálfsálit og áhugasvið. Meginhluti ritsins birtir svo niðurstöður úr rannsókninni, en í örstuttu máli og óhjákvæmilega aðeins grófasta yfirlit og stranglega valin sýnishorn af nánari reikn- ingum. Þannig er niðurstöðum námsferilskönnunarinnar lýst á bls. 12-40, síma- könnunarinnar á bls. 41-67, en póstkönnunarinnar aðeins á bls. 68-72. Töflur og myndrit fylla öllu meira af þessum síðum en meginmálið, en bæði tölur og texti er skýrt og tiltölulega einfalt. Höfundar hafa staðist aðdáanlega vel þá freistingu að koma meira efni á framfæri með margslungnari talnasyrpum. Aðalatriði eru skýrt dregin fram í texta, auk þess sem þau eru rakin í samantektarkafla og drepið á þau helstu í inngangi. Smærri atriði og nánari skýringar verða að koma fram á öðrum vettvangi, eins og þegar hefur að nokkru leyti gerst og er þó mikið óunnið til að rann- sóknin megi heita fullbirt. Auk þess má búast við að margir rannsakendur eigi eftir að biðja um keyrslur úr þessu auðuga gagnasafni eftir því sem stutt getur athugunar- efni hvers og eins. Skýr framsetning með áherslu á valin meginatriði er helsti kostur ritsins Ungtfólk og framhaldsskólinn og gerir það einkar hentugt fyrir þá sem vilja ræða skólamál á upplýstum grundvelli án þess að sökkva sér niður í fræðileg smáatriði. Það er ekki höfundanna sök ef upplýsingar misfarast í slíkri umræðu, eins og sjá má dæmi um í fyrrnefndri grein Össurar Skarphéðinssonar. Hann rifjar upp að „einungis 56% Islendinga á aldrinum 25 til 65 ára hafa lokið framhaldsskólaprófi" og heldur áfram fáum línum síðar: „Þessu til viðbótar blasir svo við, að rannsóknir Jóns Torfa Jónas- sonar og Kristjönu Stellu Blöndal sýna, að á ísiandi ljúka aðeins 40% af hverjum ár- gangi framhaldsskólaprófi." Eftir þessum tölum virðist unga fólkið miklu síður ljúka framhaldsskóla en kynslóðin á undan, og væri það makalaus öfugþróun í skólamál- um. En ég fæ ekki séð að þessi 40% verði með neinu móti lesin eða mislesin úr bók- inni, hvar sem þar er borið niður. Fyrsta frásögn Morgunblaðsins af ritinu byrjar hins vegar á uppsláttarklausu: „RÚM 40% árgangsins sem er fæddur árið 1975 hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi ... ". Það er væntanlega þessi uppsláttur sem einhvern veginn hefur ratað inn í grein Össurar, og á leiðinni víxlast hvort 40 prósentin höfðu lokið prófi eða ekki lokið. Þessi örlög einfaldra upplýsinga í opinberri umræðu eru þörf áminning, a.m.k. fyrir mig, sem les hvern kaflann af öðrum í Ungt fólk ogfram- haldsskólinn og get ekki að mér gert að óska sífellt nánari upplýsinga, dýpri umræðu, flóknari fyrirvara og samanburðar við upplýsingar úr öðrum áttum. En því lengra sem höfundar koma til móts við slíkar óskir, því færri lesa skýringar þeirra í botn; aðrir treysta á einfaldanir milliliða, og hættan eykst á brenglun og misskilningi. Svo er hin hliðin. Þegar höfundar velja úr rannsókninni fróðlegar niðurstöður sem rúmast hæfilega í lítilli bók, þá vantar kannski akkúrat þær upplýsingarnar sem þörf væri á fyrir einhverja sérstaka umræðu. Sú varð reynsla Guðrúnar Hrefnu Guð- mundsdóttur þegar hún ritaði fyrrnefnda Morgunbiaðsgrein til að benda á að meiri og betri stærðfræðikennsla á unglingastigi geti verið virkasta leiðin til að greiða 132
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.