Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Blaðsíða 126

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Blaðsíða 126
NÁMSSTÍLL NOKKURRA FJARNEMENDA hægt að minnka stuðninginn smám saman og ýta undir sjálfstæða þekkingarleit þeirra. Ef við skoðum hvað fræðin segja um stuðning má vísa í hugtak Lev Vygotskys sem nefnt hefur verið þroskasvæði (sjá bls. 115) (Shaffer, 2002). Samskipti kennara og fjarnemenda eru mikilvæg í fjarnámslotunum. Kennarar eru misjafnlega virkir í samskiptum við nemendur. Sumir kennarar taka virkan þátt í umræðum nemenda á netinu sem nemendur kunna vel að meta og virkar hvetjandi á þá. Sumir kennarar voru fljótir að svara öllum fyrirspurnum frá nemendum og gefa þeim umsagnir og einkunnir fyrir verkefnavinnu. Aðrir kennarar hefðu þurft að vera sýnilegri í fjarnámslotunum að mati nemenda. Fjarnemendur vilja fjölbreytt kennslugögn. Nemendur sögðu að námsefnið væri fyrst og fremst ritaður texti sem væri mjög einhæft þegar tii lengdar léti. Nokkrir nemendur nefndu að þeir vildu læra námsefni með því að hlusta á það, t.d. í fyrir- lestrum, á hljóðglærum eða spólum. Lítið væri um slíkt í fjarnámi. Nemandi, sem lærði erlent tungumál í fjarnámi, sagði að það hefði verið erfitt að geta hvorki heyrt né talað tungumálið. Námsumhverfi í anda hugsmíðahyggjunnar þarf að vera fjöl- breytt, auðugt og hvetjandi. Hlutverk kennarans er að skapa slíkt námsumhverfi (Jonassen, 1997). Þjónusta KHI við fjarnemendur er góð. Nemendur vísa í þessu sambandi til þeirrar þjónustu sem Menntasmiðja KHI veitir fjarnemendum. Innan Menntasmiðj- unnar eru kennslugagnasafn, sérfræðibókasafn og gagnasmiðja. Bókasafnið stendur fyrir námskeiðum, t.d. í notkun Gegnis og Greinis og ýmiss konar gagnagrunna á netinu. Það heldur úti öflugri heimasíðu þar sem er greiður aðgangur að fjölmörgum innlendum og erlendum gagnasöfnum og þúsundum rafrænna tímarita (Auður Kristinsdóttir o.fl., 2001). Bókasafnið býður einnig upp á margvíslega þjónustu við fjarnemendur, svo sem bóka- og tímaritaútlán og að Ijósrita tilteknar greinar og senda nemendum í pósti. Gagnasmiðjan heldur námskeið og sinnir tækniþjónustu og ráð- gjöf. Önnur þjónusta á vegum skólans er aðgengileg nemendum. Upplýsinga- og samskiptatækni i námi og kennslu við KHI Tölva og netið voru notuð til samskipta, í umræðum og tii að leita upplýsinga. Fjar- nemendur notuðu tölvu og netið daglega tii samskipta, auk þess sem þeir notuðu almennan notendahugbúnað eins og ritvinnslu reglulega. Nemendur voru lítið að vafra um netið sér til dægrastyttingar og höfðu lítinn áhuga á að „fikta" í forritum sér til fróðleiks og ánægju. Nokkrir nemendur höfðu tekið kjarnanámskeið í upplýsinga- tækni sem hefur verið skyldunámskeið í grunnskólakennaranámi frá árinu 2002 og telja að það hafi komið sér afar vel í fjarnáminu. Þeir nefndu einnig að þeir hafi lært mjög mikið í tölvunotkun eftir að þeir hófu fjarnám. Af nauðsyn urðu þeir að læra að nota tölvupóst og vefráðstefnur og leita upplýsinga á netinu í tengslum við nám sitt. Tölvan og netið voru fyrst og fremst notuð sem námstæki í fjarnáminu við KHÍ. Þegar rætt er um tölvu sem námstæki er vísað til rammans Computer Practice Frameivork (CPF) (Twining, 2002), en þar er hugtakið námstæki greint í þrjá flokka út frá því hvernig tölvan er notuð (sjá bls. 116). 124
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.