Búnaðarrit - 01.01.1945, Blaðsíða 93
BÚNAÐARRIT
89
Fleiri aðferðir eru þekktar við frjótökuna, en liafa,
undir venjulegum kringumstæðum, naumast þýðingu
umfram það, sem hér er talið. Hvað hunda snertir,
nægir að nudda getnaðarliminn lílið eilt, til þess að
fá fram sáðfall, en við sum örinur dýr, eins og t. d.
svín, þarf helzt að útbúa gervikvendýr.
Varðveizla og meðferð sæðisins.
Við venjulega æxlun lendir ríkulegur sæðisskammt-
ur i botni skeiðarinnar, við legopið, og hluti lians
spýtist eða sogast áleiðis eftir leginu. Þetta skeður
allt svo að segja á sama augnabliki, fyrir samræmdan
tilverknáð beggja aðila. Ytri áhrifa, svo sem hita-
breytinga, gætir alls ekki. Sæðismagnið er venjulega
nægilega mikið og kröftugt, til þess að frjóvgun geti
átt sér slað. Um b'etri varðveizlu eða meðferð sæð-
isins er naumast að ræða, sé miðað við nýtingu
skammtsins fyrir eitt dýr.
Við sæðingu er viðhorfið breylt. Sæðið hefur stöðv-
azt undir annarlegum skilyrðum og komizt undir
áhrif hita og lofts, en jafnframt eyða sæðisfrum-
urnar orku sinni við það að bægslast árangurslaust
fjarri lokamarki sínu. Sæðisfrumunum er ætluð stutt
ævi og takmörkuð orka, en hér fer livorttveggja for-
görðum.
Margvíslegar tilraunir hafa verið gerðar til þess
að rannsaka eðli sæðisins og frjómagn þess. Niður-
stöður þesfeara tilrauna sýna m. a. það, er ni'i skal
greina:
1) Mikilvægt er að forða sæðinu frá öllum veiklandi
áhrifum utan að. Til þess að sæðið náist hreint, verð-
ur að hreinsa mjög vandlega allt, sem það ltann
að koma í snertingu við. Ekki má nota til þess ann-
að hreinsunarlyf en alcoliol, þar eð önnur þekkt lyf,
jafnvel í mjög miklurn þynningur, verka strax lam-