Búnaðarrit - 01.01.1945, Blaðsíða 256
252
BÚNAÐARRIT
því við. Eí' eriitt reyndist fyrir bændur að kaupa allar
vélar sínar og borga þær á einu eða tveimur árum,
væri þægilegt, ei' hægt væri að koma því við, að bænd-
um væri gert mögulegt að borga þær á Jengri tíma, til
dæmis allt að tíu árum, og hættulaust, þar sem meðal-
aldiir véla getur verið um 30 ár með góðri hirðingu.
Með hinum auknu afköstum, sem vélarnar skapa,
og vinnufólkssparnaðinum, munaði bændur lítið um
slíkar afborganir, þegar þeir eru búnir að fá vélarnar.
Til þess að vélarnar endist eins lengi og á var minnzt
að framan/þurfa þær góðrar meðferðar með. Vélarnar
þarf að hýsa á veturna í þurru skýli, en ekki í fjósum
eða hænsnahúsum, eins og sums staðar er gert, því að
þar fyllist allt af raka, og fara þær stundum verr en
þó að þær stæðu úti. Vélaskýlin þurfa ekki að vera
vönduð, og væru hermannaskálarnir ágæt vélabyrgi.
AJlt of oft sjást vélarnar standa úti allan veturinn,
þar sem þær síðast voru notaðar um sumarið. Á haust-
in þarí' að taka þær í sundur og smyrja öll liðamót og
alla þá hluti, sem ryðgað geta. Einnig þarl' að endur-
nýja þá hluti, sem slitnir eru.
Hefur mikið að segja að gera við smábilanir, strax
og þeirra verður vart, því að smávægilega bilun kostar
lítið að lagfæra, en ef hún er látin slarka, getur hún
oft orðið að stórri bilun og' kostað mikið að gera við
hana.
Ekki er hægt að ætlast til, að bændur geti sjálfir
gert við stórbilanir, því að þeir hafa fáir tæki til þess.
Þarf að koma á kerfi viðgerðarstöðva um allt land.
Ælti að koma upp nokkrum stórum viðgerðarverk-
stæðum á hentugum stöðum. Þar væri gert við allar
stærstu bilanirnar. Þessi verkstæði eiga að koma á
námskeiðum og kenna einum eða tveimur mönnum úr
hverri sveit allar algengar viðgerðir. Er vel hægt að
kenna lagnum manni það á 1—2 mánuðum. Ætti hver