Búnaðarrit - 01.01.1945, Blaðsíða 252
BÚNAÐARRIT
248
aðarbyltinguna í Englandi og þegar land fór að byggj-
ast í Bandaríkjunum, að framfarir hófust með hraðari
skrefum. Þar var mikið og ríkt land, en lengi vet
mikill skortur á vinnuafli, og var það j)ess vegna dýrt
jnjög. Ýiti það mikið undir menn að reyna að innleiða
nýjar vélar, og varð mikið ágengt í þeim efnum.
Áður fyrr, meðan binar seinvirku vinnuaðferðir
voru notaðar, varð kvenfólk einnig að vinna á ökr-
um og við heyskap, en það þekkist nú ekki lengur í
Bandarikjunum.
Með aukinni vélanotkun eru ekki aðeins aukin af-
köst einstaklingsins, heldur verður vinnan miklu
léttari og skemmtilegri og vinnudagurinn styttri.
Vélanotkunin litbeimtir tægni og þekkingu í með-
ferð þeirra, en sparar þrælkun og erfiði. t Bandaríkj-
unum er vinnudagur í sveitum sjaldan tengri en níu
klukkustundir, en fyrir' 25-—30 áruin var áígengt, að
hann væri 1(5 klukkustundir.
Auk þess sem vélarnar gera líf bóndans léttara og
auka afköst hans, þá auka þær einnig gæði framleiðsl-
unnar.
Siðan fiystivélanotkun á sveitaheimilum varð al-
geng í Bandaríkjunum, hafa bændur getað haft nýjan
inat, bæði grænmeti, kjöt, egg og fleira handa sér atl-
an ársins tiring og einnig getað safnað i frystiklefann
hjá sér, þangað til nóg var komið svo að söluferð tit
kaupstaðarins svaraði kostnaði. Einnig geta þeir
geymt afurðir sínar, þangað til verð verður hagkvæmt.
Meðal þjóða, þar sem verkleg menning er á lágu
stigi, eins og Indverja og' Kínverja, vinnur mjög mikill
hluti þjóðarinnar við landbúnað og framleiðir þó ekki
nóg af brýnustu lífsnauðsynjum, því að hungursneyð
er þar algengur viðburður.
Eftir því sem verkleg menning eyksl og aukin véla-
og áhaldanotkun er tekin upp i landbúnaðinum, þá
aukast afköstin, svo að hægt er að leysa af nokkurn