Morgunn - 01.06.1964, Qupperneq 7
Fjarhrif og spíritismi
☆
Ein af þeim fullyrðingum, sem vísindi þessarar aldar
hafa haldið dauðahaldi í og sífellt hamrað á er sú, að ekk-
ert geti komizt inn í meðvitund manna, nema með hjálp
hinna fimm viðurkenndu skynfæra. Við verðum að sjá það
með augunum, heyra það með eyrunum, þreifa á því með
fingrunum, bragða á því, eða finna af því lyktina, segja
hinir vísu menn.
Þessari fullyrðingu hefur reynsla mannkynsins mótmælt
um aldir. Frá því fyrst hófust sögur hafa til verið menn,
sem halda því fram, að þeir hafi orðið eins og annars varir,
án þess að það hafi borizt til þeirra eftir hinum viður-
kenndu leiðum skynfæranna. Þetta hafa einu nafni verið
nefnd dulræn fyrirbæri. Nú nefna vísindin þau venjulega
ESP-fyrirbæri (extrasensory perceptions).
Einn veigamesti þáttur þessara fyrirbæra eru hin svo-
nefndu fjarhrif (telepathy) og eru í því fólgin, að hugsanir
og tilfinningar berast frá einum hug til annars og oft um
langan veg án þess að um venjulega skynfæraskynjun geti
verið að ræða. Skylt þessu er og það, sem nefnt hefur verið
dulskyggni (clairvoyance), þegar menn skynja atburði, sem
gerast langt í burtu, eða þegar menn segja fyrir með ótrú-
legri nákvæmni hvernig spil hafi raðazt, eftir að annar mað-
ur hefur stokkað þau vandlega og síðan lagt stokkinn á
borðið á hvolfi.
Eftir að Brezka Sálarrannsóknafélagið var stofnað í
London árið 1882, en í því voru ýmsir af mætustu vísinda-
mönnum Breta, var tekið til óspilltra málanna við að safna
1