Morgunn - 01.06.1964, Qupperneq 69
Líkamningafyrirbæri
Nítján lœknar staðfesta, að þau eigi sér stað.
☆
Líkamningar eru þau fyrirbæi’i í starfi miðla, sem menn
hafa löngum talið ótrúlegt að ættu sér stað í raun og veru,
enda þótt margir gætnir vísindamenn, sem notið hafa al-
menns trausts og virðingar, hafi fyrir ítarlegar rannsóknir
sannfærzt um, að þau gerist, og fært fyrir því sannanir,
sem eigi hefur reynzt unnt að hrekja. Hins vegar er það
einnig staðreynd, að sannazt hefur á nokkra slíka miðla, að
þeir hafa beitt blekkingum vísvitandi eða óafvitandi. Og
þetta hefur síðan óspai’t verið notað til þess að véfengja
þessa tegund fyrirbæra og gera þau tortryggileg.
Að sjálfsögðu er ekki aðeins rétt, heldur beinlínis skylt,
að gæta allrar varúðar við rannsókn allra sálrænna fyrir-
bæra, og ekki sízt að því er þessi umdeildu fyrirbæri snertir.
Hitt er og jafn augljóst hvei'jum meðalgreindum manni, að
blekkingar einstakra miðla á þessu sviði gefa ekki nægi-
iega eða réttmæta ástæðu til þess að álykta, að öll líkamn-
ingafyrirbæri séu uppspuni og blekking. Og það jafnvel ekki
hjá þeim miðlum, sem berir hafa orðið að því að hafa i’angt
við í einstökum tilfellum, fremur en við höfum leyfi til að
fullyrða, að maður, sem skrökvað hefur að okkur oftar en
einu sinni, geti yfirleitt aldrei sagt satt orð. Hitt er sjálf-
sagt, að taka orð hans með meiri varúð fyrir vikið, trúa
honum ekki í blindni, heldur reyna að ganga úr skugga um
það hverju sinni hvort orð hans reynist rétt. Á sama hátt
geta komið fram hjá miðli, sem reyndur er að blekkingu,
fyrirbæri sem reynast rétt, og standast hin ströngustu rann-
sóknarpróf.
1 blaðinu Psychic News 8. febrúar þessa árs birtast mjög