Morgunn - 01.06.1964, Qupperneq 76
70
MORGUNN
síðasta aðalfundi Sálarrannsóknafélagsins varð sú breyting
á, að Morgunn var gerður að ársriti félagsins og andvirði
hans innifalið í félagsgjaldinu. Þetta breytir að sjálfsögðu
engu um stefnu og form tímaritsins. Hins vegar má ætla, að
þessi breyting geti stuðlað að því í náinni framtíð, að gera
efni ritsins fjölbreyttara og meira en áður.
Ég vænti þess, að Morgunn megi framvegis eins og hing-
að til njóta vaxandi vinsælda og varpa aukinni birtu á tor-
ráðnar gátur bæði lífsins og dauðans.
Sigur
spíritismans.
Þegar frumherjar spíritismans hér á landi, þeir Einar H.
Kvaran, Björn Jónsson ritstjóri, Haraldur Níelsson síðar
prófessor o. fl. tóku að kynna mönnum þessa stefnu fyrir
60 árum og hefja hér tilraunir með miðla, mætti þetta ofsa-
legri andstöðu margra, og einkum þeirra,
sem fáfróðastir voru um þessi mál og sízt
vildu kynna sér það eða nokkuð nærri því
koma. Fyrirlestrar voru haldnir í höfuðstaðnum, þar sem
fullyrt var, að hér væri eingöngu að ræða um samband við
illa anda, útsendara sjálfs myrkrahöfðingjans til þess eins
að steypa sálunum í eilífa glötun. Aðrir töldu þetta einbera
pretti og svik. Enn aðrir sögðu, að hér væri gamla hindur-
vitna- og draugatrúin afturgengin og aðeins klædd í móðins
búning. Enn eru slíkar raddir að vísu ekki með öllu þagn-
aðar, en þær eru orðnar afskaplega hjáróma og hásar.
Viðhorf þjóðarinnar til spiritismans og sálarrannsókn-
anna er orðið gjörbreytt. Ekki svo að skilja, að allir fallist
nú skilyrðislaust á að skýringar spíritista á hinum dulrænu
fyrirbærum séu réttar í öllum atriðum. En hugsandi menn,
bæði hér á landi og um allan hinn menntaða heim, viður-
kenna nú, að hin dulrænu fyrirbæri séu merkilegt rannsókn-
arefni, og að áframhaldandi, vísindaleg könnun á hinni svo-
kölluðu undirvitund og öðrum duldum eigindum sálarlífsins
geti leitt til mikilvægra uppgötvana á sviðum læknisfræðinn-
ar og varpað jafnframt ljósi á samband og samstarf sálar og
líkama og jafnvel leyst þá gátu, hvort líf sé að loknu þessu,