Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 4
365 bíða afplánunar með 408 dóma yfir höfði sér Fangelsi landsins yfirfull og þörfin á nýju fangelsi aldrei brýnni Morgunblaðið/RAX Litla-Hraun Stærsta fangelsi landsins er jafnan yfirfullt og tvísetið í sumum rýmum. Alls eru þar hátt í 90 rými, af um 150 sem standa til boða á landinu. 146 fangar eru nú í fangelsum landsins; Litla-Hrauni, Kvíabryggju, Kópavogi, Akureyri, Bitru og Hegningarhúsinu. 144 gæsluvarðhaldsfangar á síðasta ári, 14 færri en árið 2008 en 22 fleiri en árið 2007. Til samanburðar voru 86 slíkir fangar vistaðir árið 2005. ‹ TUKTHÚS Í TÖLUM › » Heildarrefsitími fanga í afplánun (í árum) 2009 2008 2007 2006 2005 2004 2003 2002 179 215 210 235 220 300 298 333 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Eftir er að skoða hvort kaup Magma Energy Sweden (MES) á hlut Geysis Green Energy í HS Orku hf. séu að einhverju leyti frá- brugðin kaupum MES í HS Orku á liðnu hausti í ljósi laga um fjárfest- ingu útlendinga í íslenskum at- vinnurekstri. Unnur G. Kristjáns- dóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, telur að kaup- in verði skoðuð „hratt og örugg- lega“ á næstu dögum. Hún sagði að teldi efnahagsráðuneytið eða ráð- herra einhvern vafa leika á því hvort kaupin stæðust lög gætu þau sent málið til nefndarinnar. Nefndin fjallaði um kaup MES á öðrum hlutum í HS Orku hf. á liðnu hausti. Meirihluti nefndarinnar taldi að þau kaup brytu ekki í bága við lögin. Unnur taldi ólíklegt að viðskiptin nú væru í eðli sínu frá- brugðin fyrri kaupum MES á hlut- um í HS Orku í ljósi fyrrnefndra laga. gudni@mbl.is Kaup Magma á HS Orku verða brotin til mergjar í ljósi laga Morgunblaðið/Ómar Umdeilt Magma keypti HS Orku. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta er í þriðja skiptið sem dregur úr gosinu. Það er fullkomlega ómögu- legt að segja hvort þessi lækkun er sú síðasta eða ekki,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson prófessor spurður hvort gosið í Eyjafjallajökli væri að fjara út. Gosmökkurinn hefur lækkað und- anfarna daga og bendir það til þess að verulega hafi dregið úr kvikuflæði miðað við lok síðustu viku. Mökkurinn náði í gær upp í um fimm kílómetra hæð. Nú er kvikuflæðið talið vera vel undir 50 tonnum á sekúndu, að því er kom fram í stöðuskýrslu Veðurstof- unnar og Jarðvísindastofnunar HÍ í gær. Þar sagði og að enn mætti búast við sveiflum í gosvirkninni með breytilegu gjóskufalli. Öskufall var í Fljótsdal, innsta bæ í Fljótshlíð, í gær. Atvinnuleitendur í hreinsunina Um 200 manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli í gærkvöldi og um 30 á fund sem haldinn var fyrir Pólverja síðdeg- is í gær. Vísindamenn og sérfræð- ingar gerðu þar grein fyrir ýmsum hliðum eldgossins og áhrifum þess. Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, sagði að gott hljóð hefði verið í fólki. Það spurði talsvert um hegðun eldfjallsins og framhald gossins en einnig um áhrif öskunnar og hættu af svifryki. Á fundinum kom fram að Vega- gerðin ætlaði að laga veginn inn í Þórsmörk og tæki það fjóra til fimm daga. Elvar sagði að það þýddi ekki að leiðin yrði þar með opnuð. Lok- unin gilti enn. Elvar sagði að mikil vinna færi nú fram við að hreinsa burt ösku á áhrifasvæði eldgossins og að aðstoða bændur við bústörfin. Í dag stendur til að undirrita samning sveitarfélaga á svæðinu, atvinnuleysistrygg- ingasjóðs og félagsmálaráðu- neytisins um að flokkar atvinnuleit- enda komi til hreinsunarstarfa og við ýmislegt fleira sem þörf er á. Gosið gengur upp og niður Morgunblaðið/Júlíus Gosið Gosmökkurinn úr Eyja- fjallajökli hefur heldur lækkað.  Verulega virðist hafa dregið úr kvikuflæði í Eyjafjallajökli Ýmsar hugmyndir að nýju fangelsi hafa komið á borð Páls Winkels. Ný- lega var í Morgunblaðinu greint frá lokaverkefni rekstrarfræðinemenda í Háskólanum í Reykjavík um ódýra fangaklefa í gámum, að erlendri fyrir- mynd, og þá staðfestir Páll að á dögunum hafi innlendir aðilar komið að máli við sig og viljað nýta vinnubúðir Bechtel, fyrirtækisins sem reisti álver Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði, sem fangelsi. Um þessar hugmyndir segir Páll að fyrsta mál á dagskrá sé að byggja gæsluvarðhalds- og mótttökufangelsi. Sem gæsluvarðhaldsfangelsi gangi þetta húsnæði ekki upp. „Eðli málsins samkvæmt verður slíkt fangelsi að vera í nánd við dómstóla, lögmenn og lögreglu. Lang- stærstur hluti þeirrar starfsemi er í Reykjavík. Það yrði óheyrilegur kostnaður af því að vera með gæsluvarðhaldsfanga á Reyðarfirði, sem þarf kannski að fara daglega til Reykja- víkur í skýrslutöku eða fyrir dóm,“ segir Páll. Fangar í vinnubúðum Bechtel? NÝ HUGMYND BARST FANGELSISMÁLASTJÓRA 20 fangar í gæslu- varðhaldi í dag 23 fangar þar af í afplánun með erlent ríkisfang FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Alls bíða nú 365 dómþolar eftir af- plánun í fangelsi, með alls 408 dóma yfir höfði sér. Hefur tilvonandi föng- um fjölgað um 20 á einum mánuði. Í sumum tilvikum hafa menn beðið ár- um saman eftir því að afplána dóma sína. Í lok árs 2009 höfðu 15 beðið lengur en í þrjú ár. Þá eru um tvö þúsund manns sem skulda sektir og þurfa að koma í afplánun. Refsingar eru einnig að verða þyngri og lengri. Þannig fór heildar- refsitími fanga upp í 333 ár á síðasta ári, borið saman við um 300 árin tvö á undan og 220 ár árið 2006. Aukningin á dæmdum refsingum nemur því tug- um prósenta á skömmum tíma. Fangelsismálastofnun hefur yfir að ráða tæplega 150 plássum á land- inu og eru þau öll fullnýtt, sum tvíset- in. Inni í þessari tölu er Bitrufang- elsið í Flóa, sem tekið var í notkun í síðustu viku. Þar eru 16 pláss í boði og nú þegar eru komnir þangað 14 fangar. „Við verðum ekki lengi að fylla Bitru,“ segir Páll Winkel fangelsis- málastjóri við Morgunblaðið en Bitra var hugsuð sem bráðabirgðaúrræði til að leysa brýnasta vandann. „Þang- að sendum við fanga sem við þekkj- um og treystum.“ Vegna þessara þrengsla tekur Fangelsismálastofnun inn þá fanga af biðlista sem taldir eru hættuleg- astir og hafa framið alvarlegustu brotin. Þetta hefur það í för með sér að meginþorri þeirra fanga, sem sitja inni, hefur fengið dóma fyrir mann- dráp, kynferðisbrot gagnvart börn- um og fullorðnum, stór fíkniefnamál og alvarlegar líkamsárásir. Þessum hópi þarf stofnunin að raða inn í fang- elsin, bæði opin og lokuð. Tölur um fjölda gæsluvarðhalds- fanga á þessu ári liggja ekki fyrir, en sé eingöngu miðað við atburði síðustu vikna í tengslum við rannsókn á bankahruninu má gera ráð fyrir nokkurri fjölgun slíkra fanga. Á síð- asta ári voru 144 gæsluvarðhalds- fangar vistaðir í fangelsum landsins, voru 158 árið 2008 og 122 árið áður. Föngum mun fjölga Páll segir það sjálfgefið að aukning á framlögum og mannskap til emb- ætta eins og sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins og skattrann- sóknarstjóra muni á endanum skila sér í fjölgun fanga á næstu misserum. Því sé brýnt að koma upp nýjum úr- ræðum í fangelsismálum sem fyrst. Að sögn Páls er unnið af fullum krafti í forathugun á byggingu nýs fangels- is. Áhersla er lögð á staðsetningu á suðvesturhorni landsins. Hann bend- ir á að gæsluvarðhaldsfangelsi þurfi að vera mjög sérhæfð bygging. „Til að rekstur slíks fangelsis geti verið hagkvæmur þarf t.d. að hafa eina varðstofu en ekki margar. Hönnunin skiptir öllu máli og mik- ilvægt að hafa eina miðlæga varð- stofu, þar sem hægt er að sinna öllu fangelsinu. Það er erfitt ef byggingar eru hér og þar, eða ef byggingin er ekki upphaflega hönnuð sem fang- elsi. Nýtingarmöguleikar skipta einnig máli. Við þurfum að geta notað gæsluvarðhaldsklefa fyrir afplánun- arfanga þegar enginn er í gæsluvarð- haldi,“ segir Páll. Hæstiréttur staðfesti í gær farbann yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi. Í fyrradag hafði Hæstiréttur einnig staðfest farbann yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara, stað- festi að þeir Hreiðar Már og Ing- ólfur yrðu í farbanni til 28. maí næstkomandi. Það sama á við um þá Magnús Guðmundsson, fyrrver- andi forstjóra Kaupþings í Lúxem- borg, og Steingrím Kárason, fyrr- verandi framkvæmdastjóra áhættustýringar Kaupþings. gudni@mbl.is Forstjórar í farbanni „Ég held að það verði óhjákvæmi- lega áherslubreytingar hjá Lands- bankanum. Þjóðfélagið allt kallar eftir því,“ segir Steinþór Pálsson, nýráðinn banka- stjóri Landsbank- ans. Mikið hefur gengið yfir bankamenn, bendir Steinþór á, og mikilvægt að þeir rífi sig upp og „hristi af sér slenið“. Að- spurður segir hann þó of fljótt að nefna tilteknar breytingar sem verði á rekstri bankans. „Mitt fyrsta verk verður að kynna mér starfsemina og fólkið, og ég ætla að bíða með miklar yfirlýsingar þar til ég hef gert það. Ég held að þar sé mikil þekking og kraftur sem þarf að leysa úr læðingi.“ Steinþór, sem starfar sem fram- kvæmdastjóri hjá Actavis, hefur störf í bankanum 1. júní. 42 umsókn- ir um starfið bárust. Formaður bankaráðs Landsbank- ans segir í tilkynningu að stefnan hafi verið að ráða „bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstr- armaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bank- ans“. Steinþór hefur meðal annars starfað hjá Verzlunarbanka Íslands, Íslandsbanka og Urði, Verðandi og Skuld. Boðar áherslubreyt- ingar hjá bankanum Steinþór Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.