Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 38
Elsku nafni minn Loksins ertu kom- inn til Lullu þinnar. Ég veit að þú ert sáttur og sæll núna umvafinn kær- um ástvinum. Það var sárt að kveðja þig en samt svo gott því þú varst orðinn lúinn og varst farinn að þrá hvíldina. Ég er skírður í höfuðið á þér, elsku nafni minn, og hefur mamma mín sagt mér það hvernig andlitin á ykkur hjónum ljómuðu þegar þú varst spurður að því hvort ekki væri í lagi að litli drengurinn fengi að heita í höfuðið á þér. Ég var mikið hjá þér og Lullu þegar ég var lítill og hefur þú verið mér sem afi allt frá því að ég man eftir mér. Ég fann alltaf frá ykkur hjónum mikla væntumþykju í minn garð og er það eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Við áttum saman einstak- lega góðar stundir síðustu árin þar sem þú sagðir mér frá heimahög- um þínum og sagðir mér allaf frá sveitinni við Hólmavík þar sem þú ólst upp. Við Sigurbjörg fórum svo á Strandirnar síðasta sumar, þar sem við fórum að bænum sem þú fæddist á og stoppuðum hjá honum Björgvin Halldórsson ✝ Björgvin Hall-dórsson fæddist á Geirmundarstöðum í Strandasýslu þann 19. apríl 1920. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi aðfaranótt 15. apríl 2010. Útför hans fór fram frá Fossvogskapellu 27. apríl 2010. Halldóri bróður þín- um. Það var alltaf jafn gaman að heimsækja þig á Grandaveginn eða að Víðinesi, alltaf fengum við hjónin góðar móttökur og pínulítið bros. Við vorum svo lánsöm að hitta þig rétt áður en þú fórst yfir móðuna miklu og kvöddum þig vel. Við sögðum þér þá frá litla bum- bubúanum okkar og þú virtist fagna fréttunum. Elsku nafni, þú varst alltaf jafn áhugasamur um það sem ég hafði fyrir stafni, þá síðast húsbyggingin sem við stóðum í og þú spurðir mikið um hvernig gengi. Þú vildir alltaf vita hvað væri að frétta af öllum í Garðinum og hvað fólkið mitt væri að brasa. Það var alltaf jafn gaman að fá þig í heimsókn og þá sérstaklega um jól og áramót. Það vantaði ekkert upp á matar- lystina enda mikill sælkeri á ferð. Maður fór heldur aldrei svangur heiman frá þér, alltaf með skápana fulla af bakkelsi og öðru góðgæti. Við áttum einstaklega góðan tíma saman þegar ég var við nám í Háskólanum í Reykjavík. Þá kom ég alltaf til þín í hádeginu og við borðuðum saman og spjölluðum um heima og geima. Ég og Sigurbjörg konan mín vorum svo lánsöm að þú gast verið með okkur á brúðkaups- deginum okkar þann 8. ágúst 2008. Þú varst óvenju hress og kátur og naust þín vel við háborðið þennan dag. Að lokum vil ég þakka þér allar þær stundir sem við áttum saman, elsku nafni minn, og vona ég að þær stundir sem þú átt nú með Lullu séu jafn góðar og skemmti- legar og sú ævi sem þið áttum saman. Þinn nafni, Björgvin Jónsson. Þau hjónin Björgvin og Laufey Oktavía voru sérstök heim að sækja. Öllum tóku þau fagnandi og voru allir velkomnir hvenær sem var og hvernig sem á stóð. Heimili þeirra var með afbrigðum snyrti- legt hvar sem litið var. Bæði á veggjum og víðar voru hrein lista- verk, útsaumuð og hekluð sem Laufey gerði í sínum frístundum. Ég kom til þeirra stuttu eftir að þau fluttu í sitt eigið húsnæði á Grandavegi 47, Reykjavík. Einnig kom ég nokkrum sinnum til Björg- vins bróður eftir fráfall eiginkonu hans, Laufeyjar. Það stóð ekki á því nú frekar en áður að borið væri á borð allskonar kræsingar og góð- gæti. Björgvin var á Geirmund- arstöðum fyrstu árin hjá afa og ömmu og föðursystkinum. Síðan stofnuðu afi og amma Björgvins, Sigurður Gunnlaugsson og Guð- björg Ásgeirsdóttir, nýbýli á Stakkanesi, þar var Björgvin um stund. Hann sótti um vörslu mæði- veikigirðingar sem hann fékk og gerði í tvö sumur. Síðan lá leið Björgvins til Hólmavíkur, þar gegndi hann ýmsum störfum til sjós og lands. Síðan keypti hann bát ásamt öðrum sem hét Litli Ægir, sem þeir félagar áttu sér til viðurværis um tvö ár, en þá seldu þeir bátinn. Upp frá því skildi leið- ir þeirra félaga til annarra hugleið- inga og framfærslu. Þá fór Björg- vin til Reykjavíkur, keypti hann jarðvinnuvél sem hann fékk vinnu með hjá Vegagerð Ríkisins, síðan sem sjálfstæður atvinnurekandi. Vélar og ýmis vinnutæki voru hans áhugamál og verkefni. Hann fór víða til allskonar jarðvinnu með sín tæki. Hann sagði mér að hann hefði einnig unnið á Víðinesi þar sem ég heimsótti hann síðast. Á hjúkrunarheimilnu Víðinesi var hann sín síðustu ár, og lést þar 15. apríl síðastliðinn. Elsku Björgvin kæri bróðir, björt var æska okkar hlið. Nú kom- inn ert til föður og móður, maka einnig þíns ástar bið. Kæri bróðir ég þakka þér fyrir allar þínar gjörðir, og samneyti okkar allra tíma. Guð blessi þig og varðveiti. Með góðri kveðju. Þinn bróðir, Halldór. 38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Elsku Sigrún. Því er ekki að neita að mér brá illilega þegar ég frétti af and- láti þínu. Maður held- ur ávallt að maður sé ófeigur, en lífið sýnir manni svo sannarlega að svo er ekki. Þú varst svo áhugasöm um vel- gengni mína og þar af leiðandi hafði ég gaman af því að segja þér frá mínu daglega lífi. Ég hafði virkilega gaman af því þegar þú spáðir í tölur fyrir mér. Takk enn og aftur fyrir Sigrún Alexandersdóttir ✝ Sigrún Alexand-ersdóttir fæddist í Reykjavík 21. nóv- ember 1945. Hún lést mánudaginn 19. apríl 2010. Útför Sigrúnar fór fram frá Langholts- kirkju föstudaginn 30. apríl 2010. það. Sérstaklega þótti mér vænt um komu þína til mín í Mosó síð- astliðið sumar, þar sem við áttum góðar stundir saman og skiptust á um að labba með barnavagninn út um alla íbúð. Enginn getur með nokkru móti vitað hvað lífið merkir fyrr en hann hefur eignast barn og unnað því. Og þá breytist gjörvallur heimurinn og ekkert verður nokkru sinni eins og áður. Sú ákvörðun sem þú tókst á sínum tíma var hárrétt ákvörðun og vonandi hef- urðu engan látið segja þér annað. Að gefa barni sínu færi á nýju lífi er stærsta og óeigingjarnasta gjöf sem nokkur móðir getur gefið. Og fyrir það verð ég þér ævinlega þakklát. Lísa. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja Eðvarð Pétur Torfason ✝ Eðvarð PéturTorfason, fyrr- verandi bóndi í Braut- artungu, í Lund- arreykjadal fæddist á Þverfelli í sömu sveit 14. júní 1919. Hann andaðist á heimili sínu að Bæjarási í Hveragerði 17. mars síðastliðinn. Útför Eð- varðs var gerð frá Lundarkirkju í Lund- arreykjadal 24. apríl 2010. vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Fjölskyldunni send- um við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan vin lifa. Kveðja frá Bæjarási, Steinunn S. Gísladóttir. Elsku afi okkar. Hvíldu í friði. Ólafur Friðrik Ögmundsson ✝ Ólafur FriðrikÖgmundsson fæddist í Vest- mannaeyjum 7.11. 1926, hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, 20. apríl sl. Útför Ólafs fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 1. maí 2010 og hefst kl. 14. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þínar langafastelp- ur, Lilja Björg og Dagný Rún Gísladætur. Elsku frændi, mikið þykir mér leitt að hafa ekki náð að kveðja þig, Palli minn, áður en þú kvaddir þennan heim. Ég man hvað ég var feimin þegar ég leitaði þig uppi fyrir allmörgum árum, þú tókst mér með opnum örmum og það var eins og við hefðum alltaf verið vin- ir. Þú og Hanna hjálpuðuð mér óend- anlega mikið eftir að ég kom úr með- ferð og ég gat leitað til þín hvenær sem var, alltaf gafstu þér tíma. Takk fyrir það. Við áttum frábærar stundir Páll Skúlason ✝ Páll Skúlasonfæddist á Ólafs- firði 16. júní 1967. Hann lést laugardag- inn 24. apríl 2010. Útför Páls fór fram frá Bústaðakirkju 30. apríl 2010. á þessum árum og minningarnar eru margar, sumarbústað- arferð, útilegur, grill- matur og nóg af hlátri eru brot af þeim góðu stundum sem ég fékk að njóta með þér. Börn og hundar voru með eindæmum hænd að þér, það var yndislegt að fylgjast með hvað þú varst mikill pabbi í þér. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér, elsku frændi. Elsku Sóley Anna og fjölskylda, Skúli afi og Guð- rún, Biggi, Anna Júlía og fjölskyldur, Ísar Daði og Adrían. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Hugur minn er hjá ykkur. Guð veri með ykkur. Hvíldu í friði, elsku frændi. Þín frænka, Herdís Pálmadóttir. Í hjartalagi er fólgið allt en í auð- legð ekki neitt, segir Evrípedes. Þessi orð eiga svo Valgerður Sigurðardóttir ✝ Valgerður Sig-urðardóttir fædd- ist í Götuhúsum á Stokkseyri 24. nóv- ember 1920. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. apríl 2010. Útför Valgerðar fór fram frá Stokks- eyrarkirkju 24. apríl 2010. sannarlega við mína kæru Valgerði Sig- urðardóttur sem and- aðist þann 18.apríl síðastliðinn. Valgerði kynntist ég fyrst fyr- ir tuttugu og sex ár- um þegar ég réð mig sem leiðbeinanda við grunnskóla Stokks- eyrar og leigði Götu- hús af þeim Valgerði og Þórði. Heppnari hefði ég ekki getað verið því Valgarður tók mér af þvílíkum kærleik að öðru eins hef ég varla kynnst af vandalausum og það var mömmu og pabba ómetanlegt að vita af stelpuskottinu undir vernd- arvæng þeirra hjóna í Sunnutúni. Milli okkar skapaðist sérstök vin- átta sem haldist hefur alla tíð þó löng tímabil hafði liðið á milli þess sem ég kom við í Sunnutúni. Síðasta sumar heimsótti ég Val- gerði á Kumbaravog og sat og spjallaði í herberginu sem bar fjöl- skylduást hennar og hannyrðum fagurt vitni. Valgerður barst ekki mikið á og gerði alltaf lítið úr eigin ágæti, en hún átti sjóði af kærleik, hlýju og húmor sem snerti við öllum sem henni kynntust. Á þeim undarlegu tímum sem við lifum nú er það okkur lærdómsrík lexía. Elvari, Helgu, stelpunum og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar bestu kveðj- ur. Helena Guttormsdóttir. Nú er komið að kveðjustund og kveð ég og mín fjöl- Guðni Jóhannes Stefánsson ✝ Guðni JóhannesStefánsson, Há- mundarstöðum, Vopnafirði fæddist á Ljósalandi í Vopna- firði 29. maí 1932. Hann lést hinn 23. apríl 2010 á Hjúkr- unarheimilinu Sunda- búð í Vopnafirði. Útför Guðna fór fram frá Hofskirkju í Vopnafirði 3. maí 2010. skylda þig með sökn- uði. Það að hafa verið á Hámundarstöðum í sveit hjá ykkur Ingi- leif og strákunum ykk- ar, tel ég að hafi gert mig að þeim manni sem ég er í dag og mér fannst ég alltaf vera einn af strákunum ykkar. Mér er minnistætt hvað mér fannst gam- an að fylgjast með þér skapa hluti úr engu með höndunum, já þessum stóru höndum og erum við hjónin það heppin að eiga nokkra gullmola eftir þig. Þegar ég í byrjun ársins heyrði að veikindi þín hefðu versnað mikið fannst mér ég þurfa að koma austur til að hitta ykkur Ingileif og kom ég rétt fyrir páska og átti yndislega helgi með ykkur. Takk fyrir allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við sendum Ingileif, strákunum og tengdadætrunum og barnabörn- um okkar innilegustu samúðar- kveðju. Jósef M. Jökulsson og fjöl- skylda. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.