Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Æpandi kátína Jú, þetta er ungt og leikur sér, hefur einhver sem er eldri en tvævetur sagt sem sá og heyrði æskuþrungin börnin skemmta sér og skríkja í Húsdýragarðinum á 20 ára afmælinu. Árni Sæberg Núverandi heilbrigð- isráðherra, Álfheiður Ingadóttir, þingmaður vinstri grænna, sagði nýverið upp samn- ingum við alla sjálf- stætt starfandi heim- ilislækna í landinu, 12 að tölu, frá og með næstu áramótum. Ástæður Ekki hafa verið í gangi samningaviðræður milli ráðu- neytisins og heimilislækna að und- anförnu, þannig að uppsögnin kom læknunum í opna skjöldu. Ráðherra hefur ekki gefið út viðhlítandi ástæð- ur fyrir uppsögninni en nefnt hefur verið að markmiðið með uppsögninni sé að lækka kostnað í heilbrigðiskerf- inu. Áhrif Uppsögnin hefur nú þegar haft mikil áhrif á viðkomandi lækna og skjólstæðinga þeirra. Viðkomandi læknum, sem stundað hafa sín læknisstörf í áratugi með miklum sóma, er nú sagt upp án allra fyrirvara og án viðhlítandi ástæðu. Uppsögn í starfi hefur alltaf mikil áhrif á viðkomandi einstaklinga, upp- sögn án ástæðu hefur enn meiri áhrif. Skjólstæðingar ofangreindra lækna hafa nú þegar miklar áhyggjur af þessum uppsögum því ekki hafa verið gefið út neinar tilkynningar um hvert þessir 22 þúsund einstaklingar eigi að snú sér varðandi læknisþjón- ustu eftir uppsögnina. Ekki hafa verið gefnar út neinar yfirlýsingar frá heilbrigðisyfirvöldum hvort reyna eigi að semja við viðkom- andi lækna að nýju, færa stöður þeirra yfir á heilsugæslustöðvarnar eða hreinlega að leggja þær niður. Umræða Vera má að stjórnsýsla sem þessi hafi þótt góð og gild á árum áður. Í dag eru komin stjórnsýslulög sem takmarka heimildir stjórnmála- manna til ákvarðanatöku sem þess- arar. Meðalhófsregla stjórnsýslulaga hljóðar svo: „Stjórn- vald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lög- mætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.“ Andmælaregla stjórnsýslulaga hljóðar svo: „Aðili máls skal eiga þess kost að tjá sig um efni máls áður en stjórnvald tekur ákvörðun í því, enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins afstaða hans og rök fyrir henni eða slíkt sé augljóslega óþarft.“ Núverandi heilbrigðisráðherra hefur tekið einhliða ákvörðun um að segja upp viðamiklum þætti í heil- brigðiskerfi landsmanna sem verið hefur við lýði áratugum saman, án allrar umræðu um áhrif og afleið- ingar viðkomandi uppsagnar og án umsagnar viðkomandi aðila. Afleiðingar Vandséð er hvernig stjórnvöld ætla að spara með uppsögninni, því viðkomandi heimilislæknar hafa margoft sýnt stjórnvöldum fram á að þeir eru langódýrustu læknarnir í öllu heilbrigðiskerfinu. Ákvörðun heilbrigðisráðherra getur aftur á móti orðið til þess að einhverjir af okkar bestu læknum til áratuga leiti sér fljótlega vinnu í öðrum löndum og skilji eftir þúsundir einstaklinga hér á landi án heimilislæknis. Er þetta Ísland í dag? Eftir Hauk Ingason Haukur Ingason Höfundur er apótekari í Garðs Apóteki. Tólf heimilislæknum og 22 þúsund skjólstæðingum þeirra sagt upp » Ákvörðun heilbrigð- isráðherra getur orðið til þess að ein- hverjir af okkar bestu læknum til áratuga leiti sér fljótlega vinnu í öðr- um löndum. Það er með ólík- indum hvernig ríkis- stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur dregið lappirnar og skemmt fyrir í málum Suðurnesja. Skemmt með röngum ákvörð- unum og hræðslu við að taka ákvarðanir varðandi stórkostlega möguleika í uppbygg- ingu atvinnulífs á Suð- urnesjum. Enginn landshluti á Ís- landi hefur unnið eins skipulega og markvisst að eigin frumkvæði að uppbyggingu atvinnulífs og að- stöðu til sköpunar atvinnutæki- færa fyrir þúsundir manna, ekki aðeins fyrir tæplega 2.000 atvinnu- lausa Suðurnesjamenn í kjölfar brotthvarfs bandaríska hersins af vellinum næturstund, heldur 1.000 betur. Af metnaði, stórkostlegri útsjónarsemi og drifkrafti voru öll veiðarfæri lögð í sjó og upp komu hugmyndir sem munu valda bylt- ingu í atvinnulífi og fleiri þáttum á Íslandi ef ríkisstjórnin lætur af skemmdarstarfseminni. Verkefni sem mátti hrinda í framkvæmd fyrir mörgum misserum hafa verið að velkjast í ráðleysispytti rík- isstjórnarinnar og stjórnarflokk- anna, ekki síst Vinstri grænna sem virðast hafa skömm á Suð- urnesjamönnum og atvinnulausu fólki og telja best að það éti það sem úti frýs. Nýtt álver í Helguvík, nýtt sjúkrahús fyrir útlendinga á Ásbrú, hafnargerð í Helguvík, nýtt flugþjónustuverkefni á Keflavíkur- flugvelli, nýtt rafrænt gagnaver á Ásbrú, nýtt Kísilver í Helguvík og Keilir menntasamfélag á vellinum. Framgang þessara sjö stórverk- efna hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tafið og tafið og beinlínis staðið í vegi fyrir fram- gangi þeirra vegna pólitískra dynta og geðþóttaákvarðana stjórnarsinna, algjöru skilnings- leysi á stöðu atvinnumála á Suður- nesjum og stanslausum fordómum gegn uppbyggingu atvinnulífs og drift sem er skilyrði fyrir því að fólk fái vinnu og að heimilin gangi eðlilega í hversdagsbaráttunni. Það eina sem ríkis- stjórnin hefur lagt til mála eru girðingar og þröskuldar gegn framgangi mála. Fjárfestingar einkaaðila og op- inberra aðila í ferða- þjónustu á Reykja- nesi nema átta milljörðum króna á síðustu fimm árum í mannvirkjum og sýningum, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Bláa lónið, sýningarhús Íslendings og Smithsonian, Orkuverið Jörð á Reykjanesi, Hljómahöll sem tón- leikahöll, ráðstefnuhús og fjölnota menningarhús, menningarhúsið í Duus með gullmolann Bátasafn Gríms Karlssonar sem er einstakt í heiminum, Víkingaheima og fleira og fleira en ekkert af fram- antöldu varð til fyrir tilstilli rík- isstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Þeir hafa nánast sett lok lok og læs á Suðurnesin. Það er ömurlegt á erfiðasta tímabili íslenska lýðveldisins í kjölfar bankahruns að sitja uppi með verstu ríkisstjórn allra tíma, ráðlausa og getulausa. Það vita allir hvernig ríkisstjórnin og sér- staklega umhverfisráðherra Vinstri grænna lagði stein í götu álversins með skemmdartöfum þar sem Norðurál stefndi á lokastigi að uppbyggingu fjögurra 90 þús- und tonna áfanga í takt við orku- öflun, en reiknað var með nær 2.500 störfum á byggingartíma við álverið, höfnina, virkjanir, línu- lagnir og síðan 1.100 störf við rekstur og afleidd störf, en sam- gönguráðherra Samfylkingarinnar hefur ekki einu sinni þegið boð bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um að skoða hafnarframkvæmdir hvað þá liðsauka. Hafnaraðstaðan í Helguvík er undirstaða kísilvers og fleiri verkefna, en ríkisstjórnin hundsar það eins og annað á Suð- urnesjum. Sýnir svæðinu grófan dónaskap. Rekstrarleyfi fyrir kís- ilver hefur verið gefið út og verk- efnið var á útboðsleið. Þá fór rík- isstjórnin að blaðra um nýja orkuskatta á stórnotendur þrátt fyrir lágt kísilverð á heimsmarkaði og Dow Corning sem ætlaði að fjármagna kísilverksmiðjuna gafst upp. Reykjanesbær útvegaði nýja fjárfesta. Starfsmenn við bygg- ingar verða 150 og síðan 90 föst störf við rekstur. Nýtt rafrænt gagnaver á Ásbrú er í töfum í meðförum Alþingis en er eina málið af öllu fram- angreindu sem ríkisstjórnin hefur þó sýnt lit í að styðja en það velk- ist enn fyrir þeim í framkvæmd. Þeir geta ekki klárað mál.Tónlist- arverkefnið Hljómahöll með Tón- listarskóla Reykjanesbæjar er stærsti einstaki tónlistarskóli á landinu með nær 800 nemendur og biðlista, en markmiðið er að skapa 250-350 störf á sviði tónlistariðn- aðar með þessu mannvirki í sam- vinnu við Þróunarfélag Keflavík- urflugvallar og fleiri. Ríkið kemur hvergi nærri og hefur ekki verið beðið um styrki. Keilir, mennta- samfélagið á vellinum er metn- aðarfullt og markvisst, en áhuga- leysi ríkisstjórnarinnar og andstaða hennar í málinu er skelfi- leg, verkefnið Keilir sem hefur allt til að vera miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Ríkisstjórnin hikst- ar og starf og væntingar hundraða manna við að skapa sér nýja möguleika og brúa frá fyrra námi í nýtt nám, er í mikilli hættu. Þarna eru sóknafærin til að skapa end- urnýjuð tækifæri til þess að kom- ast áfram í lífinu. Það lætur nærri að nemandi í Keili fái 1⁄5 í framlag miðað við aðra nemendur fram- haldsskóla. Aðeins hefur verið stiklað á stóru, en andstaða og lítillækkun ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í garð Suðurnesja- manna er hrópandi. Einhvern tíma hefðu slíkir verið látnir róa. Þeir hafa ekki auðnu til árangurs. Eftir Árna Johnsen »… ekki síst Vinstri grænna sem virðast hafa skömm á á Suð- urnesjamönnum og at- vinnulausu fólki og telja best að það éti það sem úti frýs. Árni Johnsen Árni Johnsen er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Samfylking og Vinstri grænir lítillækka Suðurnesjamenn skipulega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.