Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 26
Eldgosið í Eyjafjallajökli minnir á að við búum í harðbýlu landi. Það minnir líka á aldalanga baráttu Ís- lendinga gegn eyðingaröflum sem ógna afkomu okkar. Í Skaftáreldum stöðvaði eldklerkurinn Jón Stein- grímsson hraunrennsli með trúarhita og barg þannig söfnuði sínum og kirkju. Þá er minnisstæð baráttan við hraunrennslið í Vestmannaeyjum með vatni einu saman, undir stjórn Sveins heitins Eiríkssonar, slökkviliðsstjóra á Keflavíkurflugvelli, til að bjarga höfninni. Enn á ný erum við vitni að samstöðu og sóknarhug þegar stórir hópar sjálfboðaliða aðstoða bændur undir Eyjafjöllum. Við brott- hvarf Varnarliðsins missti fjöldi manna vinnu sína. Þá voru þenslutímar og því fengu flestir einhver störf, fyrst og fremst í byggingariðnaði. Við efnahagshrunið hefur byggingariðnaðurinn nánast lagst af og atvinnuleysi er mest hér á Suðurnesjum. Engu að síður hefur verið búið í haginn fyrir endurreisn atvinnulífs, fyrst og fremst með góðri höfn í Helguvík. Hún gerir stórum sem smáum fyrirtækjum kleift að setja upp starfsemi þar, þ.á m. álveri Norðuráls í Helguvík. Áætlað er að ársverk við byggingu álversins verði um fjögur þúsund en framtíðarstörf og af- leidd störf um 2.000. Vandinn er sá að stjórnvöld og tengd öfl leggja stein í götu atvinnuskapandi verk- efna á Suðurnesjum. Almenn samstaða er meðal landsmanna um að reisa álver í Helguvík og oddvitar stjórn- arflokkanna hafa gefið yfirlýsingu í stöðugleikasáttmála um að það gangi eftir. Samt ganga einstakir ráðamenn stjórnarinnar og bak- tjaldamakkarar gegn þessum áformum. Þannig skipa þeir sér í lið með þeim eyðingaröflum sem hafa valdið landsmönnum þungum búsifjum. Nú heiti ég á landsmenn alla að feta í fótspor þeirra Jóns eldklerks og Sveins slökkviliðsstjóra. Leysum úr læðingi þann mannauð sem nú fer forgörðum í því mikla at- vinnuleysi sem hér ríkir. Ráðumst í þau verk- efni sem munu augljóslega skapa vel launuð störf, svo sem álver í Helguvík og tengdar virkj- anir. Byggjum upp í stað þess að brjóta niður! Sigrumst á eyðingaröflum Eftir Gunnar Þórarinsson Gunnar Þórarinsson Höfundur er viðskiptafræðingur í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ. 26 UmræðanKOSNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Nýlega var tekið í notkun 44 rýma hjúkr- unarheimili í Boðaþingi ásamt glæsilegri þjón- ustu- og félagsmiðstöð fyrir aldraða á sama stað. Þar er aðstaða fyrir félagsstarf eldri borg- ara, dagvist, sundlaug, og önnur nauðsynleg þjónusta. Sunnan við götuna hafa verið byggðar íbúðir fyr- ir aldraða á frjálsum markaði og einnig er Hrafnista að byggja þar leiguíbúðir sem eru tengdar við þjón- ustumiðstöðina með tengigangi. Þetta er ein glæsilegasta aðstaða fyr- ir eldri borgara sem völ er á á byggðu bóli og við Kópavogsbúar getum verið stolt af þessari uppbyggingu. Roðasalir, Gjábakki og Gullsmári Í Roðasölum eru hjúkr- unarrými fyrir heilabilaða ásamt aðstöðu fyrir dag- vist. Þetta er lítið og snot- urt heimili þar sem umönn- un vistmanna er í góðum höndum hjá frábæru starfsfólki. Í Gjábakka og Gullsmára eru félags- og þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða. En þar er starfið mjög öflugt og mik- ill fjöldi fólks nýtir sér þessa aðstöðu á degi hverjum. Þar er boðið upp á heitar máltíðir í hádeginu á vægu verði, svo og heimsendingarþjónustu til þeirra sem ekki eiga heim- angengt. Rauði þráðurinn í félagsstarfinu er sá að unnið er með eldri borgurunum og þeir látnir hafa frumkvæði í starf- inu, sem hefur reynst prýðilega. Aðstaða í knatthúsum Eldri borgarar fá aðstöðu til göngutúra og hreyfingar í knatt- húsum bæjarins, Þetta er góð lausn fyrir heldri borgara, sérstaklega yfir vetrartímann þegar veður geta verið válynd. Þetta er nokkuð sem önnur sveitarfélög hér á svæðinu geta ekki boðið uppá þar sem þau eiga engin knatthús. Fylgst með öldruðum heima fyrir Kópavogsbær hefur í samstarfi við Rauða krossinn, Landsbjörg, og aðra aðila fylgst með stöðu aldraðra heima fyrir, meðal annars með tilliti til félagslegrar einangrunar og ör- yggissjónarmiða. Þetta samstarf hef- ur skilað góðum árangri. Það er því ljóst að vel er hugsað um hag eldri borgara í Kópavogi Eftir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrrver- andi bæjarstjóri í Kópavogi. Frábær aðstaða fyrir eldri borgara í Kópavogi Eitt brýnasta hagsmunamál ferðaþjónustunnar á Norðurlandi er stækkun flugstöðvarinnar á Akur- eyri og að boðið verði upp á milli- landaflug um völlinn allt árið. Með auknu millilandaflugi aukast ferða- möguleikar innlendra sem erlendra ferðamanna verulega, þar sem upp- haf og endir ferða þarf ekki endilega að vera bundinn við einn stað. Akureyri er vinsæll áfangastaður en með sameiginlegu átaki er hægt að gera bæinn enn vinsælli með öll- um þeim möguleikum sem fyrir hendi eru. Af- þreyingarmöguleikar svæðisins eru fjölmargir og þá á að nýta. Útlendingar sem hingað koma segja að skíðaparadísin í Eyjafirði sé vannýtt auðlind. Hana eigum við að markaðssetja er- lendis og auka þar með hlut vetrarferða- mennsku, sem er brýnt mál. Að auki höfum við upp á að bjóða frábæra veitinga- og gististaði, leikhús, listasöfn og gallerí, golfvelli, sundlaug- ar, fallegar náttúruperlur o.s.frv. Samfylkingin vill byggja á þessari sérstöðu og vinna með ferðaþjónustuaðilum að því að ná enn betri árangri og auka þann fjölda ferðamanna sem sækja Akureyri heim, sér- staklega yfir vetrartímann. Það mun gera atvinnugreininni kleift að miða rekstur sinn við heilsársstarfsemi og fjölga þar með störfum. Samfylkingin vill: Auka hlut er- lendra ferðamanna sem stunda skíði í Hlíðarfjalli. Auka kynningu á menningu og afþreyingu á Akureyri fyrir farþega skemmtiferðaskipa. Kynna Akureyri sem heilsu- og sælkerabæ. Leggja áherslu á mögu- leika Tröllaskagans, sérstaklega með hliðsjón af opnun Héðinsfjarð- arganga. Akureyri verði eftirsóttur áfangastaður fyrir helgarferðir. Fjölga enn frekar leiðarvísum og auka upplýsingar um bæ- inn m.a. meðfram göngustígum. Nýta betur möguleika Lystigarðsins. Uppbygging þjón- ustuaðstöðu í Hlíðarfjalli. Gera heildstæða áætl- un um uppbyggingu ferðaþjónustu í tengslum við Glerárdalinn. Kynna Grímsey og Hrísey sem ákjósanlega staði til fuglaskoðunar. Kynna og markaðssetja útivistarperlur bæjarins og ná- grennis hans í Evrópu. Mikilvægi ferðaþjónust- unnar fyrir Akureyri Eftir Helenu Karlsdóttur Helena Karlsdóttir Höfundur skipar 5. sæti á lista Samfylking- arinnar á Akureyri Nú er tími nýrra hug- mynda og nýrrar nálgunar. Tími til að kveðja gamla Ís- land. Ísland pólitískra fyr- irgreiðslna, hagsmunapots og klíkuskapar. Um átta ára skeið höf- um við búið við pólitíska bæjarstjóra hér í Mos- fellsbæ. Þetta fyr- irkomulag hefur að mörgu leyti reynst illa. Pólitískur bæjarstjóri setur óhjá- kvæmilega mark sitt sem slíkur á dag- lega stjórnsýslu sem þó á að vera fag- leg og jöfn gagnvart öllum þeim sem þjónustu hennar njóta. Stjórnsýslan á að vera fagleg og allar ákvarðanir hennar byggðar á jafnræði og með- alhófi, og hún á að vera laus undan daglegum pólitískum áhrifum. Breytinga er þörf. Framsóknarmenn hafa verið talsmenn þess að koma á að- skilnaði á milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds á Alþingi Íslendinga. Á sama hátt erum við talsmenn þess að sami aðskilnaður verði á milli fram- kvæmdavalds og valds kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu, þ.e. í stjórn- sýslu Mosfellsbæjar. Ný hugsun Hver segir að það þurfi að vera til meirihluti og minnihluti? Ef ráðinn væri faglegur bæjarstjóri og ráðning hans byggð á gegnsæju ferli, væri þá ekki í raun búið að taka fyrsta skrefið í verkaskiptingu fram- kvæmdavalds og kjörinna fulltrúa? Þar með væri kominn möguleiki á að bæjarfulltrúarnir hugs- uðu út fyrir flokkslínur. Hægt væri að sjá fyrir sér að hugtökin minni- hluti og meirihluti í bæj- arstjórn hyrfu með tím- anum og við tæki að ákvarðanir væru teknar samhljóða eða með meirihluta at- kvæða þvert á flokkslínur þar sem gegnsæi og drenglyndi réði för hverju sinni. Að breyta hugsuninni tekur tíma en þetta gæti verið fyrsta skrefið og fyrsta skrefið er jú alltaf það mikilvægasta. Ráðning faglegs bæjarstjóra væri fyrsta skrefið. Í framtíðinni mætti sjá fyrir sér að framboðin hættu að mynda svokallaðan meirihluta og minnihluta og sammæltust um ráðn- ingu bæjarstjóra. Um leið yrði hlut- verk forseta, varaforseta og for- manns bæjarráðs skilgreint sem hlutverk hinna kjörnu fulltrúa og þeim falið að koma fram út á við og annast hin pólitísku samskipti við kjósendur sína. Marteinn Magnússon Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 1. sæti á B-lista. Ópólitískur bæjar- stjóri í Mosfellsbæ Eftir Martein Magnússon Nú á að reisa nýtt háskólasjúkrahús með hjálp lífeyrissjóða. Gott mál, segja margir. En er það svo? Jú, það er búið að reikna það út að þetta er mjög hagkvæmt. En hag- kvæmt fyrir hvern? Undanfarin ár hafa kennt okkur að það er lítið mál að reikna út þá hagkvæmni sem menn vilja sjá. Það þarf bara að passa upp á að það sem gæti valdið einhverjum mínusum sé falið. En látum það nú vera, senni- lega er ég ekki að skilja þetta rétt. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að þegar þetta sjúkrahús verður komið í rekstur verði krafa þeirra sem verða við stjórn að starfsemi sjúkra- húsa á suðvesturhorni lands- ins verði flutt þangað. Jú, af- kastagetan og öll þekkingin verður þar til staðar og það er hagkvæmt! Hvað verður þá um sjúkrahúsin í Reykja- nesbæ, Árborg og Akranesi? Jú, skurðstofur og fæðing- ardeildir verða aflagðar. Fyrir okkur Akurnesinga er þetta dökk framtíð en veruleiki engu að síður. Úr bæjarfélaginu munu hverfa störf háskólamenntaðs fólks og að auki munu afleidd störf hverfa. Á fundi með fjármálaráðherra hér á Akranesi kom fram hjá honum að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur hér á Akranesi, sjúkrahúsið yrði hér áfram og eftir nokkur ár yrðu enn betri samgöngur við höfuðborgarsvæðið en eru í dag! Þegar maður heyrir svona þá kemur alltaf upp minningin um setninguna frægu: „Guggan verður alltaf gul og mun alltaf landa á Ísa- firði“. Ég skora á stjórnir lífeyrissjóð- anna að koma í veg fyrir að peningar launamanna verði notaðir til að flytja störf frá nágrannabyggðum Reykja- víkur til Reykjavíkur. Einnig skora ég á alla þá sem vilja standa vörð um „landsbyggðina“ og þá sérstaklega þingmenn kjördæmanna að standa vörð um hagsmuni síns fólks. Það er algjörlega ólíðandi að störf séu þegj- andi og hljóðalaust flutt til Reykja- víkur og það með aðstoð sjóða launa- fólks. Og hvað ættu náttúruhamfarir að hafa kennt okkur Íslendingum? Jú, ekki setja öll eggin í sömu körf- una. Stöndum vörð um sjúkrahúsið á Akranesi Einar Brandsson Einar Brandsson Höfundur skipar 2. sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins á Akranesi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Nýlegar skoðana- kannanir sýna fylgi Frjálslynda flokksins síga hægt fram á við. Það sem er þó hvað ánægjulegast eru und- irtektir málefna okkar hjá öðrum framboðum. Sóley Tómasdóttir og Einar Skúlason vilja haka við íbúalýðræðið eins og Frjálslyndi flokkurinn boðar. Að vísu reynist þeim þetta nokkurt nýland og skilj- anlega flókið þar sem þeim hafði aldrei dottið í hug að þetta mætti í raun framkvæma. Þeim til hugg- unar og kannski ekki síður leið- beingar má þó benda þeim á að þetta er afar einföld framkvæmd. Vilji íbúi mótmæla orðnum ákvörð- unum borgarstjórnar eða ein- hverra sviða hennar, nægir að safna 100 undirskriftum. Þær eru lagðar inn á hverfaskristofu og verða síðan auglýstar á vef borg- arinnar. Ef 10% íbúa mæta á op- inberan stað til að skrifa undir þessi mótmæli innan 2 mánaða ber borgarráði að leggja málið fyrir kjósendur borgarinnar sem kjósa um það. Vald kjósenda verður þó meira en það, því telji íbúar ráðandi öfl í borgarstjórn ekki valda sínu hlutverki nægir að 25% kjósenda skrifi kröfu til þess að kjósa þurfi til borgarstjórnar að nýju innan 6 vikna. Hvaðan koma þessar tölur? Þær koma eftir mikla yfirlegu og vand- legar umræður. Það er nefnilega ekki létt að safna svona mörgum und- irskriftum. Þetta verður ekki gert á facebook, heldur þarf fólk í raun að skrifa undir með bleki. En hver er tilgangurinn? Á að galopna sár inn í borgarráð og gera allar stjórnsýsluaákvarðanir að vinsældakosningum? Alls ekki! Virkni þessara reglna felst í því að það er hægt að nota þessa leið. Virknin felst í aðhaldinu sem þetta veitir stjórnmálamönnum. Það vill nefnilega til að aðhald á fjögurra ára fresti er ekki nægjanlegt. Ég vona svo sannarlega að þetta hjálpi flokkunum að átta sig á hvað íbúalýðræði merkir. Það er ekki fínt orð sem fleygt er á milli í mannfögnuði, heldur nauðsynlegt tæki til að styðja við lýðræðið. Lýðræðið getur nefnilega virkað. Undirtektir flokkanna eru góðar Eftir Harald Baldursson Haraldur Baldursson Höfundur skipar 2. sæti á framboðs- lista Frjálslynda flokksins í Reykja- vík. Kosningar 2010 w w w . m b l . i s / k o s n i n g a r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.