Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Lést af slysförum 2. Frækilegur sigur ÍBV 3. Bílnum pakkað inn í plast 4. KR enn án sigurs »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Bergur Ebbi Benediktsson tónlist- armaður getur nú bætt starfstitl- unum ljóðskáld og leikritaskáld á fer- ilskrána. Hann gaf nýverið út sína fyrstu ljóðabók og frumsýnir leikritið Klæði 30. maí. »44 Morgunblaðið/Eggert Ný ljóðabók og frum- sýning framundan  María Jóns- dóttir söngkona hefur verið valin til að syngja í alþjóðlegri söng- keppni sem fram fer í þjóðaróper- unni í Varsjá í Pól- landi. Munu kepp- endur flytja sönglög og aríur eftir fræg pólsk tón- skáld ásamt annarri blandaðri dag- skrá. Keppir í þjóðaróper- unni í Varsjá  Útgáfurétturinn að skáldsögu Steinars Braga, Konum, hefur verið seldur til pólsks forlags. Bókin vakti athygli þegar hún kom út árið 2008 og var meðal sölu- hæstu bóka síð- asta árs. Hún kemur út í Frakk- landi, Svíþjóð og Þýskalandi á næstu misserum og hefur ZikZak öðl- ast kvikmyndarétt- inn að henni. Bókin Konur kemur út í Póllandi Á laugardag Hægviðri eða hafgola og víða bjart veður, en sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast í innsveitum. Á sunnudag (hvítasunnudagur) Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Víða léttskýjað, en skýjað við norður- og norðausturströndina. Hiti 5 til 17 stig, hlýjast S-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg austlæg eða breytileg átt en úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast í innsveitum. VEÐUR Keflvíkingar eru einir á toppi úrvalsdeildar karla í fótboltanum eftir sigur á Fylki, 2:1, í uppgjöri efstu liðanna í gærkvöldi en leikur liðanna fór fram í Njarðvík. Keflvíkingar hafa unnið alla þrjá leiki sína undir stjórn Willums Þórs Þórssonar. Fram er í öðru sæti með sjö stig eftir sigur á Grindavík, 2:0, og síðan koma Fylkir og nýliðar Selfyssinga með sex stig. »2-7 Keflvíkingar eru einir á toppnum Ísland teflir fram ungu og spennandi landsliði gegn Andorra í vináttuleik þjóð- anna í fótbolta hinn 29. maí á Laugardalsvellinum. Þetta er kjarni leik- manna sem getur borið uppi ís- lenska lands- liðið næstu sjö til tíu árin. »8 Ungt og spennandi íslenskt landslið KR-ingar, sem þóttu sigurstrangleg- astir allra í upphafi Íslandsmótsins, hafa aðeins fengið tvö stig af níu mögulegum úr þremur fyrstu leikjum sínum. Fyrsti sigurinn blasti þó við þeim í Garðabænum í gærkvöld en á lokamínútum leiksins jafnaði 18 ára nýliði, Ólafur Karl Finsen, fyrir Stjörnuna og lokatölur urðu 2:2. KR er því í níunda sætinu. »3 KR-ingar eru með tvö stig af níu mögulegum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG „Í ferð okkar um Vestfirði í fyrrasumar var gaman að fylgjast með kríunum sem gerðu árás á örninn. Hann flaug hins vegar hátt yfir öllu og sigraði eins og venjulega,“ segir Sigvaldi Egg- ertsson, níu ára, nemi í fjórða bekk Grandaskóla í Reykjavík. Fuglasmiðja var einn viðburða á barnamenn- ingarhátíð í apríl sl. og í leik var nafn Sigvalda dregið út. Þar vann hann sjónauka og bókina Fuglavísi eftir Jóhann Óla Hilmarsson. Endur að maka sig Sigvaldi þekkir flesta fugla sem sjást hér á landi og marga flækinga. Hann lætur ekki þar við sitja og hefur útbúið fallega bók með eigin teikningum með myndum af ránfuglum. Helstu upplýsingar um hvern fugl fylgja sem og lat- neskt heiti hans. Sigvaldi er þessa dagana að teikna myndir í spörfuglabók og bækur um vað- fugla og mófugla eiga að koma í framhaldinu. Afi hins unga fuglaáhugamanns er Sigvaldi Hólm Pétursson. „Afi hefur sagt mér afskaplega margt um fugla sem varð til að kveikja þennan áhuga minn,“ segir Sigvaldi yngri og fylgist grannt með fuglalífinu við sjávarsíðuna í Vest- urbænum, þar sem meðal annars má sjá dugg- endur maka sig á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Þá hafa sést uglur við Búrfell í Grímsnesi þar sem fjölskyldan á sumarhús. Í sumar stendur til að fara á fálkaslóðir í Þingeyjarsýslum. Heldur upp á lundann „Örninn með sitt mikla vænghaf er tígulegur að sjá en ég held mest upp á lundann,“ segir Sig- valdi sem hefur auk þessa brennandi áhuga á leiklist og körfubolta. sbs@mbl.is Í fjórða bekk með fuglabók  Ungur Vesturbæingur þekkir alla fugla himinsins og teiknar af þeim myndir  Sá erni á Vestfjörðum, uglur í Grímsnesi og ætlar nú á fálkaslóðir fyrir norðan Morgunblaðið/Árni Sæberg Fuglar Sigvaldi Eggertsson með fuglabækurnar sínar tvær þar sem eru myndir af spör- og ránfuglum. Hjónar og hjónur eru tillaga Arnars Haukssonar læknis að heitum á hjúskap sam- kynhneigðra. Arnar skrifaði umsögn um frum- varp til hjúskap- arlaga og sagði að finna þyrfti heiti á öll sambúð- arform. Hann setti eftirfarandi sam- an til gamans: „Orðið hjón yrði bara notað um sambúðarsamband gagnkyn- hneigðra en hjónar um sambúð- arsamband tveggja karlmanna (beygist eins og þjónar) og hjónur um sambúðarsamband tveggja kvenna (beygist eins og hænur).“ Hjónar og hjónur Nýyrði Hjónar á hnallþóru. Tillaga um heiti á sambúðarformi Eyjamenn komu skemmtilega á óvart í gærkvöld þegar þeir sigruðu Íslandsmeistara FH, 3:2, í Kaplakrika, í þriðju umferð Pepsideildarinnar í knattspyrnu. Þetta er fyrsti sigur ÍBV á FH í 12 leikjum og Eyjamenn hafa greinilega haft gott af því að dvelja saman við æfingar á fastalandinu undanfarna daga. | Íþróttir Morgunblaðið/hag Eyjamenn skelltu meisturunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.