Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 42
42 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ KEMUR Á ÓVART AÐ ÞÚ SKULIR EKKI HAFA SMITAST AF KVEFINU ERTU AÐ HLUSTA Á MIG? HVAÐ? ÉG ÆTLA AÐ LEGGJAST Í DVALA MATURINN KEMUR ÉG ÆTLA INN Í HÚSIÐ MITT OG ÉG KEM EKKI AFTUR ÚT FYRR EN... HRÓLFUR, HVAÐ ER AÐ NÚNA? ÉG ER EKKI ÁNÆGÐUR MEÐ EGGIN SEM ÞÚ SETTIR Í NESTIÐ MITT HVAÐ ER AÐ ÞEIM? ÉG VILDI HAFA ÞAU HARÐSOÐIN! HMM... ÉG HEF ENNÞÁ KORTER ÞANGAÐ TIL ÉG ÞARF AÐ HITTA RAJIV Í HÁDEGISMAT ÞESSI EINFALDA HÖNNUN... ÞESSIR BJÖRTU OG FALLEGU PLASTLITIR... EN FALLEGT! GET ÉG AÐSTOÐAÐ ÞIG? ÞESSI ANTÍKBÚÐ ER MEÐ ÝMISLEGT SNIÐUGT... VÁ! ÞETTA ER ÆÐISLEGT LÍTIÐ ÚTVARP! ÉG VERÐ AÐ LOSNA VIÐ ÞESSI HANDJÁRN SEM BIG-TIME SETTI Á MIG ÞAU ERU ÚR OF STERKUM MÁLMI. ÉG GET EKKI BROTIÐ ÞAU ÞESSI LEST ER NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM ÉG ÞARF HVAÐ AF ÞESSU ER KOMIÐ Á SÍÐASTA SÖLUDAG? Silfurhringur tapaðist Silfurhringur (kven- manns) tapaðist sl. helgi í miðbæ Reykja- víkur, inni í honum stendur nafnið Ingi. Finnandi vinsam- legast hafi samband í síma 772-2499. Kæri Velvakandi. Eftir að hafa lesið viðtal í Morgun- blaðinu við Sigríði Heiðberg hjá Katta- vinafélagsinu um neyðarástand í fjár- hagsmálum Kattavinafélagsins og málefnum vegalausra dýra vil ég varpa fram spurningu til stjórn- málaflokkanna fyrir kosningar með von um að einhver svari. Spurningin er þessi: Hver er sam- félagsleg ábyrgð okkar gagnvart vegalausum dýrum? Með ósk um svar. Dýravinur. Leiðarljós Ég er eldri borgari sem hef eins og margir aðrir greitt háar upp- hæðir til Ríkissjón- varpsins. Ég veit um fullt af fólki á sjúkra- stofnunum, dvalar- heimilum og öryrkja sem fylgjast með Leiðarljósi. Þetta fólk hefur ekki margt til tilbreytingar. Páll Magnússon sjón- varpsstjóri tilkynnti 18. maí að Leiðarljós væri farið í sumarfrí. Sjónvarpsstjóri hefur dregið saman sýn- ingar á þessu þáttum, sem hafa verið sýndir fjórum sinnum í viku, endurtekningar eru föstudag og laugardag. Enginn mér vitandi horfir á þessar end- urtekningar. Okkur, sem erum vön að horfa á þessa þætti, er nóg boðið. Þessir þættir eru tilbreyting fyrir fólk sem ekkert kemst. Hér með skora ég á alla sem fylgst hafa með Leiðarljósi að láta í sér heyra. Eldri borgari. Ást er… … það sem gerir hvers- dagsleikann bærilegan. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út- skurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9, bingó ( 2. og 4. föstudag í mán.). Bólstaðarhlíð 43 | Sumargleði 27. maí kl. 17, matur, Tindatríó syngur, happ- drætti og ball, Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina. Uppl. í s.535-2760, skrán. og greiðsla f. 25. maí. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, botsía kl. 10.45. Félag eldri borgara, Reykjavík | Eigum laus sæti á Snæfellsnes 21.-23. júní - Slóðir Bárðar Snæfellsáss, Snorra goða og Guðrúnar Ósvífursdóttur, uppl. og skráning s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30 og kl. 13, jóga kl. 10.50 og fé- lagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Félagsvist FEBG kl. 13. Vorhátíð FEBG í Sjálandsskóla 28. maí, kl. 20, skráning í Jónshúsi. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Skráning stendur yfir í ferðina í Biskupstungur 21. maí. Þar verður sýn- ing m.a. á handverki og gömlum mun- um. Lagt af stað frá Eirhömrum kl. 13. Skráning í síma 5868014 og 6920814. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14.15 les Jón Júlíusson kafla úr Íslands- klukkunni. Hraunbær 105 | Bingó í dag kl. 13.30. Hraunsel | Morgunrabb kl.9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12.30, oddvitar flokk- anna kynna málefni sín fyrir kosning- arnar 29. maí nk. kl. 14-16, boðið upp á kaffi. www.febh.is. Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa kl. 9, postulínsmálning. Námskeið í myndlist kl. 13, bíó kl. 13.30, kaffisala í hléi. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Fulltrúar frá Reykjavík- urframboðinu koma kl.14.30. Uppl. í s. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka kl. 13. Uppl. í síma 554-2780, www.glod- .is. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, bingó kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30, hár- greiðslustofa s. 552-2488, fótaaðgerða- stofa s. 552-7522. Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður hefst kl. 9. Leikfimi hefst aftur í júní. Sími 411-2760. Vesturgata 7 | Skartgripagerð/ kortagerð, glerbræðsla kl. 9, enska kl. 11 30, tölvukennsla kl. 13.30. Sungið v/ flygil kl. 14.30, kaffiveitingar kl. 14.30, dansað í aðalsal. Farið verður í óvissu- ferð fim. 27. maí. Lagt af stað frá Vest- urgötu 7 kl 13 . Verð kr. 1800. Skráning og upplýsingar í síma 5352740. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir- mótun kl. 9, handavinnustofa kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30. Jón Kristjánsson sendir kveðju til Vísnahornsins: „Leiðaraskrif Moggans í vikunni vöktu upp þessa vísu, eins konar efnisleg samantekt. Sendi þetta til fróðleiks. Ríkisstjórnin móðgar mýs, málin virðast öll í rúst, þjóðin skemmtikrafta kýs, Kögunarhóll er orðinn þúst.“ Pétur Stefánsson las kveðskap um hundaskít, sem birtist í Vísna- horninu í gær, og varð að orði: Sannleikann ég segja hlýt, sumar haust og vetur, að upp til þeirra æ ég lít sem yrkja flestum betur, og hugðarefni um hundaskít hafa sett í letur. Guðmundur Ingi Jónatansson fagnaði tímamótum: Stöðugt á mig ístra vex. Illt er hana að bera. Þó árin tugi telji sex telst ég ungur vera. Friðrik Steingrímsson var ekki lengi að bæta við: Örvænta þú ekki skalt ört þó stækki maginn, þinni reisn og hugdirfð halt. Til hamingju með daginn. Þá Hólmfríður Bjartmarsdóttir: Aldurinn er afstætt mál og ekki mjög til baga, ef þú hefur unga sál átt þú góða daga. Davíð Hjálmar Haraldsson sendi líka kveðju: Áfram gakk í baki beinn, brostu, kerrtu hnakkann og föndraðu við 5 + 1 fram á grafarbakkann. Þá Jón Gissurarson: Óviðfeldin elli grá á þér lítt nær valdi. Þó að fjölgi árum á ævitímaspjaldi. Og Pétur Stefánsson klykkir út með vísu í léttum dúr: Þó ellin spinni vonda vefi, vertu ei á drykkju spar. Almáttugur Guð þér gefi góða reisn í kvennafar. Vísnahorn pebl@mbl.is Af ríkisstjórn og afmæli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.