Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Frumvarp um lækkun bílalána í er- lendri mynt verður lagt fram á Al- þingi á næstu dögum, en það felur í sér að algeng lækkun höfuðstóls verður 20-35%. Hámarkslækkun höfuðstóls er 3 milljónir. Samkvæmt frumvarpinu verður ekki heimilt að innheimta eftirstöðvar bílaláns með því að ganga að húseignum lántak- ans. Meirihluti allra viðskipta með bíla á árunum fyrir hrun var fjármagn- aður með myntkörfulánum. Þessi lán voru óverðtryggð og með mun lægri vexti en almennt voru í boði hér á landi. Þegar gengi krónunnar hrundi hækkaði höfuðstóll lánanna upp úr öllu valdi. Fjölmörg dæmi eru um að höfuðstóll lánanna sé orð- inn miklu hærri en verðmæti bílsins. Lánstími vegna bílakaupa er mun styttri en til fasteignakaupa og því varð greiðslubyrði af bílalánum mjög þung þegar gengið féll. Að mati Ráðgjafastofu heimilanna eru bílalán mjög þungur baggi á mörg- um heimilum. Ekki samstaða um lækkun án lagasetningar Stjórnvöld kynntu fyrst áform um lækkun á bílalánum í september í fyrra, tæpu ári eftir hrun. Í fyrstu var rætt um að setja lög um málið, en eftir viðræður við fjármögnunar- fyrirtækin var ákveðið að freista þess að ná samkomulagi milli stjórn- valda og fjármögnunarfyrirtækj- anna um lækkun á höfuðstól lán- anna. Tvö fjármögnunarfyrirtæki SP-fjármögnun og Íslandsbanki lýstu sig tilbúin til að gera slíkt sam- komulag. Lýsing var hins vegar ekki tilbúin til þess og málefni Avant eru flókin vegna þess að Sjóvá, eigandi Avant, fór í reynd í þrot. Eftir að ljóst var að ekki næðist samkomulag við öll fjármögnunar- fyrirtækin ákvað félagsmálaráð- herra að kynna frumvarp til laga í ríkisstjórninni. Frumvarpið er nú til skoðunar hjá stjórnarflokkunum og er búist við að það verði lagt fram á þinginu strax eftir sveitarstjórnar- kosningar. Frumvarpið er efnislega eins og samkomulagið sem verið var að reyna að ná við fjármögnunarfyrir- tækin. Breytt í íslensk verðtryggð lán Frumvarpið kveður á um að eft- irstöðvar bílalána einstaklinga verði bakreiknaðar að lántökudegi með tilliti til gengisþróunar og síðan framreiknaðar með tilliti til verð- lagsþróunar að viðbættu 15% álagi. Þessum 15% er ætlað að endur- spegla þá auknu áhættu sem þessir einstaklingar tóku með því að taka gengisbundin lán og eins er þessu álagi ætlað að taka tillit til þess að lántakendur nutu hagstæðari vaxta framan af en þeir sem tóku verð- tryggð lán. Álaginu er einnig ætlað að dekka kostnað við endurreikning lánanna. Þessi breyting mun leiða til þess að algeng lækkun á bílaláni verður 20-35%. Lækkunin ræðst af lántöku- degi og myntsamsetningu lánanna. Mest misgengi er hjá þeim sem tóku lán um ár 2007 og þeir munu því hagnast mest á þessari breytingu. Ef lánafyrirtæki er búið að leysa bílinn til sín, en eftir stendur einhver ógreidd skuld þá getur fyrirtækið ekki fengið hana greidda með því að leita fullnustu í íbúðarhúsnæði lán- takandans. Viðkomandi lántaki mun hins vegar hagnast á höfuðstóls- lækkun eins og aðrir sem enn eru með bílalán. Ekki er í frumvarpinu gert ráð fyrir að lán sem hafa verið greidd upp verði endurreiknuð. Frumvarpið kveður á um að há- marksafskrift lána sé 3 milljónir. Það þýðir að maður sem tók hátt lán til að kaupa dýran bíl og hefði átt að fá 5 milljóna króna lækkun miðað við reiknireglu frumvarpsins fær höfuð- stól lækkaðan um 3 milljónir. Rætt í allan vetur Árni Páll Árnason félagsmálaráð- herra sagði í september í samtali við Morgunblaðið, að hann ætlaði að leggja fram frumvarp við upphaf þings um lækkun höfuðstóls bíla- lána. Stefnt væri að því að það tæki gildi 1. nóvember. Um miðjan mars sagði hann í samtali við Morgunblað- ið að hann stefndi að því að leggja fram frumvarp í næstu viku. Eftir bankahrun tók nánast alger- lega fyrir sölu á nýjum bílum, en sala á notuðum bílum jókst hins vegar mikið. Velta í notuðum bílum dróst saman í nóvember og var mun minni á fyrstu mánuðum þessa árs en hún var á síðasta ári. Líklegt má telja að þetta megi að einhverju leyti skýra með þeirri óvissu sem skapaðist um lögmæti erlendra bílalána eftir dóm héraðsdóms og vegna áforma stjórn- valda um að lækka lánin. Keyra niður bílalán um 20-35%  Samkvæmt frumvarpi um lækkun höfuðstóls bílalána getur lækkun bílaláns mest orðið 3 milljónir  Ekki var samstaða meðal fjármögnunarfyrirtækjanna um að ganga til samninga um lækkun lánanna Óseldir Fyrir hrun keyptu landsmenn mikið af bílum og flestir þeirra voru fjármagnaðir með erlendum lánum. Morgunblaðið/Ómar 1 Bíll er keyptur á erlenduláni fyrir hrun. Lán CHF JPY 2 Eftir hrun hækkarlánið til muna, vegna gengishruns krónunnar. Lán 3 Verði frumvarpið samþykktlækkar höfuðstóll erlendra bílalána eftir flóknum reglum. Höfuðstóllinn er lækkaður til samræmis við gengi jens og franka á lántökudegi. A B C D Höfuðstóllinn er svo fram- reiknaður með tilliti til verðlagsþróunar. 15% álag bætist við. A B C D Lokaniðurstaða er 20-35% lækkun höfuðstóls, þó að hámarki lækkun um 3milljónir. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Langerma bolur á 2.900 kr. • Margir litir Kvartbuxur á 5.900 kr. 3 litir - stretch afnýjumv örum Mjódd, sími 557 5900 Vordagar í Fröken Júlíu Kjólar, skokkar og bolir Frá Jensen 15% afsláttur á vordögum Verið velkom narStaða fjármögnunarfyrirtækjanna er nokkuð misjöfn. SP-fjár- mögnun, sem er stærst á þessum markaði, er t.d. búin að endur- fjármagna sig. Lýsing fjármagnar nær öll lán sem fyrirtækið hefur tekið með erlendum lánum, en lán- in eru hjá Deutsche Bank. Með því að færa lán viðskiptavina sinna yf- ir í íslenskar krónur kemur upp sú staða að fyrirtækið er fjármagnað í erlendum lánum en viðskiptavin- irnir eru með lán í krónum. Lýsing sneri sér til Fjármálaeftirlitsins og spurði hvort fyrirtækinu væri heimilt að gera þetta og auka þannig gengisáhættu þess. Já- kvætt svar kom frá FME. Í viðræðum stjórnvalda við Lýs- ingu kom fram að fyrirtækið úti- lokaði ekki að fara í skaðabótamál vegna lagasetningarinnar á þeim grunni að lögin fælu í sér ólög- mæta eignaupptöku. Hugsanleg málsókn Lýsingar er ein ástæða þess að dregist hefur að leggja frumvarpið fram. Annar þáttur í þessu máli er sú lagalega óvissa sem er um lög- mæti erlendra lána. Tveir héraðs- dómar hafa fallið um lögmæti þessara lána. Annar sagði að lánin væru lögleg, en hinn að þau væru ólögleg. Málunum hefur verið vís- að til Hæstaréttar. Málið gegn SP- fjármögnun verður flutt 2. júní og því má búast við dómi um mán- aðamótin júní/júlí. Ef Hæstiréttur dæmir að erlend lán hafi verið ólögmæt falla lögin um sjálft sig. Ef dómurinn fellur á hinn veginn eða ef hann er á einhvern hátt óskýr þá gilda þau lög sem stefnt er að því að lögfesta í sumar. Í apríl á síðasta ári voru fjár- mögnunarfyrirtækin með um 36 þúsund erlend bílalán. Heildar- upphæð lánanna var 110 milljarðar króna. Von er á dómi í lok júní ÓVISSA UM LÖGMÆTI ERLENDU BÍLALÁNANNA Bílar Um 36 þúsund Íslendingar eru með erlent bílalán.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.