Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 41
Dagbók 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Sudoku Frumstig 6 9 2 3 7 2 1 8 4 8 7 6 2 3 1 3 8 3 4 2 8 1 6 4 9 3 7 5 6 3 9 8 4 9 8 5 3 7 1 6 1 5 3 7 6 5 1 6 8 6 4 3 7 3 2 8 1 5 2 6 7 3 4 6 5 8 5 1 3 2 4 8 9 5 4 3 1 8 2 6 7 8 7 6 4 2 9 3 5 1 1 2 3 7 5 6 4 9 8 3 1 7 6 8 2 5 4 9 6 4 8 9 3 5 7 1 2 5 9 2 1 4 7 8 3 6 2 3 9 8 6 4 1 7 5 4 6 5 2 7 1 9 8 3 7 8 1 5 9 3 6 2 4 8 3 1 5 7 9 6 4 2 2 9 7 6 4 8 1 5 3 5 6 4 3 2 1 8 7 9 1 2 8 4 3 6 5 9 7 4 7 9 8 1 5 3 2 6 6 5 3 7 9 2 4 1 8 9 8 6 2 5 4 7 3 1 3 1 5 9 6 7 2 8 4 7 4 2 1 8 3 9 6 5 5 9 3 6 2 8 1 4 7 4 7 8 5 1 9 3 6 2 2 1 6 3 4 7 9 5 8 7 4 9 8 3 5 6 2 1 8 6 2 4 7 1 5 9 3 3 5 1 2 9 6 7 8 4 9 3 5 7 8 2 4 1 6 6 2 4 1 5 3 8 7 9 1 8 7 9 6 4 2 3 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 21. maí, 141. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð- ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Þórsarar byrjuðu illa í 1. deildkarla í fótbolta í fyrra, töpuðu sjö af fyrstu níu leikjunum en luku keppni um miðja deild. RÚV greindi frá því á dögunum að völlur Þórsara hafi verið ólöglegur allt sumarið 2009. Haft var eftir formanni og framkvæmdastjóra Þórs að vitað hafi verið að völlurinn var of lítill en ekki þótt ástæða til að upplýsa um það. ,,Já við fórum mjög leynt með þetta því mómentið var að þetta væri glæsilegt mannvirki og menn vildu komast á þennan glæsilega völl og því svindluðum við pínu um örfáa sentimetra,“ hafði RÚV eftir for- manninum. Á dögunum gagnrýndi þjálfari Þórs framkvæmdastjórn félagsins í viðtali við vefinn fótbolti.net og sagði meðal annars að stjórnin ynni gegn meistaraflokki karla. Stjórnin sendi frá sér yfirlýsingu vegna ummæla þjálfarans og sagði mörg ummæli hans ekki svaraverð. Víkverji botnar ekkert í þessum málum en vonar að Þórsarar mæli rétt og verði samstiga í framtíðinni. x x x KR-ingum var spáð Íslandsmeist-aratitlinum eins og svo oft áður fyrir mót. Þeir áttu fyrstu tvo leikina á heimavelli, á móti nýliðum Hauka og Selfoss. Almennt var talað um örugg sex stig og góða markatölu en annað kom á daginn. Afraksturinn eitt stig og markatalan 3:4. Ingveldur Geirsdóttir, blaðamað- ur á Morgunblaðinu, tók töpuð stig á móti Haukum að nokkru leyti á sig, eins og hún greindi frá í blaðinu sl. laugardag. Hún fór á völlinn í fyrsta sinn, sat með KR-ingum í fyrri hálf- leik og fagnaði 2:0 stöðu heima- manna í hálfleik. Í seinni hálfleik sat hún með Haukamönnum og fagnaði tveimur mörkum með þeim. x x x Víkverji er stuðningsmaður þessað góðar spár rætist og því leggur hann til að KR-ingar sjái til þess að Ingveldur verði heið- ursgestur á næsta heimaleik í Frostaskjólinu og haldi uppteknum hætti vinnist leikurinn. víkverji@m- bl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 möndull, 4 vafasöm, 7 bleyðu, 8 jöfn- um höndum, 9 megna, 11 naut, 13 hamslausi, 14 ærið, 15 raspur, 17 keyr- ir, 20 ofsareiða, 22 launa, 23 froða, 24 vondur, 25 upptök. Lóðrétt | 1 gjafmild, 2 kraftaverk, 3 skrökvaði, 4 öðlast, 5 kóngssonur, 6 notaði, 10 skynfærið,12 ófætt folald, 13 flana, 15 persónutöfrar, 16 dug- legur, 18 afl, 19 stjórnar, 20 mynni, 21 mjög. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fagurgali, 8 sætta, 9 öskur, 10 nóg, 11 móann, 13 glans, 15 flóns, 18 grjón, 21 Týr, 22 stífa, 23 eirir, 24 hugfangin. Lóðrétt: 2 aftra, 3 uxann, 4 glögg, 5 lykta, 6 ýsum, 7 gras, 12 nón, 14 lár, 15 fást, 16 Ólínu, 17 starf, 18 grein, 19 járni, 20 nýra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. Rf3 e6 5. Bc4 d6 6. d4 cxd4 7. cxd4 Rb6 8. Bd3 dxe5 9. dxe5 R8d7 10. 0-0 Rc5 11. Be2 Dxd1 12. Hxd1 Bd7 13. Rc3 a6 14. Be3 Rba4 15. Rxa4 Rxa4 16. Hdc1 b6 17. b3 Rc5 18. Rd2 Bb5 19. Rc4 Bxc4 20. Hxc4 Be7 21. b4 Rd7 22. f4 b5 23. Hc7 Bd8 24. Hc6 g5 25. g3 gxf4 26. gxf4 Hg8+ 27. Kf1 Be7 28. Hd1 Rf8 Staðan kom upp á alþjóðlegu skák- móti sem lauk fyrir skömmu í Sarajevo í Bosníu. Ítalski stórmeistarinn Mic- hele Godena (2.554) hafði hvítt gegn íslenska alþjóðlega meistaranum Braga Þorfinnssyni (2.422). 29. Hxa6! og svartur gafst upp enda fokið í flest skjól í stöðu hans. Bragi fékk 14 stig á mótinu af 30 mögulegum og lenti í 82 sæti af 169 keppendum. Frammistaða hans samsvaraði stigaárangri upp á 2.363 stig. Hvítur á leik. Brids Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn@mbl.is Vafasamt redobl Norður ♠ÁG2 ♥ÁKD75 ♦K432 ♣Á Vestur Austur ♠D10843 ♠-- ♥104 ♥G963 ♦87 ♦10965 ♣KDG3 ♣97652 Suður ♠K9765 ♥82 ♦ÁDG ♣1084 Úrslitaleikur ólympíumótsins árið 1988 var um margt merkilegur. Þar áttust við tvö af sterkustu landsliðum heims á þessum tíma: margfaldir heimsmeistarar Bandaríkjamanna og þáverandi Evrópumeistarar Austur- ríkismanna. Úrslitaleikurinn var hins vegar afar illa spilaður og fyrsta lotan er að margra dómi sú versta sem nokkru sinni hefur sést á heimsmeist- aramóti. Stærsta sveiflan var í þessu spili. Við annað borðið enduðu Bandaríkja- menn í 6Gr í NS sem töpuðust vegna þess að legan var ekki sérlega góð. Við hitt borðið tók það Austurrík- ismennina í NS sjö sagnhringi að velja lokasögn: 7♠! Bobby Wolf, sem sat í vestur, taldi sig eiga slags von og do- blaði og Franz Terraneo í norður redo- blaði án hiks. Spilið fór síðan 3 niður, 1000 til Bandaríkjanna og 14 stig. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú lærir hugsanlega eitthvað nyt- samlegt af manneskju frá öðrum og fjar- lægum menningarheimi. Settu hug- myndir þínar þannig fram að enginn þurfi að efast um þig. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert númer eitt núna. Einhver verður að halda uppi röð og reglu, en nú ert þú besta manneskjan til þess. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú dáist að þeim sem tjá sig skil- merkilega og lætur þá sem gera það ekki, ekki tefja þig. Skoðaðu hlutina en farðu ákaflega varlega í að velja þér eitthvað eitt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hafðu augun hjá þér þegar nýir möguleikar opnast á starfssviði þínu. Láttu aðra vita hvað það er sem þú vilt. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er greinilega ómögulegt að ná í fólk í áhrifastöðum. Framlag þitt er mik- ilvægara og áhrifameira en þú gerir þér grein fyrir á þessu augnabliki lífs þíns. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú býrð yfir miklum sköp- unarkrafti. Ekki hafa áhyggjur, og ekki flýta þér um of. Eyddu tíma með þeim vinum sem kunna að meta uppátæki þín. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þegar allt kemur til alls er það vin- áttan sem skiptir mestu máli. Haltu frek- ar þínu striki því trúin flytur fjöll. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Líklega var það kona sem sagði: Súkkulaði, karlmenn, kaffi; Sumt er betra sterkt. Gefðu þér því góðan tíma svo þú komist hjá mistökum, sem kunna að verða þér alltof dýr. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert að velta fyrir þér hvort þú sért rétta manneskjan í tiltekið starf eða ekki. Farðu varlega, einkalíf þitt er áberandi um þessar mundir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Hlutverk þitt í lífinu er mik- ilvægt. Mundu að það eru til fleiri en ein leið að hverju marki og vandinn er að velja þar á milli. Leitaðu ráðgjafar varð- andi fjárfestingar og sparnað. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hamingjan byggist mikið til á aðlögunarhæfni og að láta ekki alla skap- aða hluti fara í taugarnar á sér. Kannski þarftu að læra að vera ósammála án þess að reiðast. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt vinnan skipti miklu máli má hún ekki ganga svo nærri þér að þú getir ekki litið upp. Þú lætur blekkjast á ein- hvern hátt. Stjörnuspá 21. maí 1962 Tékkneskum manni var vísað úr landi fyrir að reyna „að múta íslenskum flugmanni til njósna á Keflavíkurvelli,“ að sögn Morgunblaðsins. 21. maí 1983 Ásmundarsafn, safn Ásmund- ar Sveinssonar myndhöggvara við Sigtún í Reykjavík var formlega opnað. Sex árum áð- ur gaf listamaðurinn Reykja- víkurborg safnið eftir sinn dag. Safn Ásmundar við Freyjugötu hafði verið opnað almenningi í maí 1934. 21. maí 1997 Þrír Íslendingar komust á tind Mount Everest, hæsta fjalls heims, sem er 8.848 metrar, kl. 7.15 að íslenskum tíma. Þetta voru Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hall- grímur Magnússon. Tilkynn- ing þeirra til félaganna sem biðu í grunnbúðunum var svo- hljóðandi: „Við komumst ekki hærra.“ Ferðin á tindinn tók þrettán klukkustundir og ferðin niður fimm klukku- stundir. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Þórarinn Ósk- arsson, hljómlist- armaður og fyrr- verandi deildarstjóri hjá Varnarliðinu er áttræður í dag, 21. maí. Hann mun leika með félögum sínum í Dixieland, hljómsveit Árna Ísleifs og Stórsveit Öðlingaklúbbs Félags íslenskra hljómlistarmanna í bóka- safni Seltjarnarness á Eiðistorgi milli kl. 16 og 18 á afmælisdaginn. 80 ára „Ætli maður fái ekki kvöldkaffi og tertur með fjöl- skyldunni,“ segir Helgi Magnús Bergs, kennari við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og fyrrver- andi bæjarstjóri þar í bæ. Hann er 65 ára í dag. Margir kannast við Helga frá bæjarstjóratíð hans á Akureyri en hann lét af því embætti árið 1986 eftir að hafa gegnt því í um tíu ár. Brátt komast stúdentar í sumarleyfi en Helgi segir að sumarleyfi háskólakennara sé þó ekki lengra en annarra launamanna. Þeir þurfi að sinna stjórnsýslu í skólanum, rannsóknum og ým- islegu öðru. Hann geti þó skipulagt vinnutíma sinn sjálfur og verið úti þegar sólin skín en inni þegar rignir. „En það rign- ir reyndar aldrei hér á Akureyri, eins og þú veist,“ er hann fljótur að bæta við. Hann verður ekki í vandræðum með að finna sér eitthvað til að gera í góða veðrinu fyrir norðan því áhugamál Helga eru fjölmörg. Eitt þeirra er stangveiði og í sumar verður líklega oft hægt að ganga að honum á bökkum Skjálfandafljóts með stöng í hönd. „Ég stunda bæði stang- og skotveiði, eftir því sem ég hef heilsu og aldur til. Ég fer á svigskíði og gönguskíði og ég reyni að mæta í heita pottinn á kvöldin til að rífast við strákana,“ segir hann. runarp@mbl.is Helgi Magnús Bergs er 65 ára Aldrei rignir á Akureyri Nýirborgarar Reykjavík Erlín Hrefna fæddist 13. mars kl. 23.01. Hún vó 4.065 g og var 52 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Áslaug Erlín Þor- steinsdóttir og Arnar Proppé. Akranes Ari Karl fædd- ist 4. mars. Hann vó 17 merkur og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru Rakel Runólfsdóttir og Jóhannes Kári Braga- son. Álftanes Jökull Örn fædd- ist 19. febrúar kl. 15.19. Hann vó 3.490 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Erla Rún Sigurjóns- dóttir og Þorvarður Kjer- úlf Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.