Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Nýsköpun, ferðaþjónusta og viðhalds- framkvæmdir eru áhersluatriði sem allir framboðslistar í Reykjavíkurborg eiga sameiginleg þegar kemur að at- vinnumálum. Um 10,2% atvinnuleysi er nú í Reykjavíkurborg og sjaldan eða aldrei fleiri verið án atvinnu, eða samtals 6.801 Reykvíkingur. Atvinnumálin eru því tvímælalaust eitt af aðalviðfangs- efnum komandi kjörtímabils. D með áherslu á markaðinn „Við höfum á þessu kjörtímabili staðið mjög vel að atvinnumálum, staðið fyrir átaksverkefnum og stutt við bakið á frumkvöðlum. Reykjavík- urborg og fyrirtæki hennar leggja á árinu 2010 fram 26,4 milljarða til ný- framkvæmda, sem veitir mörgum at- vinnu og er umtalsvert meira en ríkið gerir þrátt fyrir að vera mun stærri aðili,“ segir Hanna Birna Kristjáns- dóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks. Sam- kvæmt þriggja ára rekstraráætlun borgarinnar sem samþykkt var í mars mun þó draga úr framkvæmdum á hennar vegum um 70% til loka ársins 2013. „Það er auðvitað þannig að Reykja- víkurborg getur ekki tekið mikið af háum lánum á hverju ári í mörg ár án þess að íbúar þurfi á endanum að borga fyrir.“ Á næsta kjörtímabili verði lögð áhersla á að skapa atvinnu á frjálsum markaði frekar en með því að fjölga störfum á vegum borgarinnar en áfram lögð áhersla á að halda fast- ráðnu starfsfólki. „Við viljum fyrst og fremst skapa góð skilyrði fyrir fyrir- tækin í borginni, fyrir frumkvöðla og fyrir fólk sem sér tækifærin í borginni sjálft og ýta þannig undir það að hjól atvinnulífsins fari í gang sjálf. Lykilat- riði í því er auðvitað að skattar séu ekki hækkaðir, þannig að rekstrarskil- yrði hér séu viðunandi fyrir fyrirtæki.“ V vill að borgin taki ábyrgð Allir flokkarnir stefna á að fjölga störfum, fyrst og fremst í áðurnefnd- um starfsgreinum, en segja má að Vinstri græn skeri sig nokkuð frá hin- um framboðunum að því leyti að þar á bæ er lögð lykiláhersla á að fjölga fyrst og fremst störfum á vegum borgarinn- ar sjálfrar. VG vilja fara í mörg og smá atvinnuskapandi verkefni fremur en leysa vandann með fáum stórfram- kvæmdum. „Við teljum Reykjavíkurborg þurfa að axla ábyrgð sem atvinnurekandi ekki síður en sem stjórnvald, við get- um ekki ætlast til þess að markaður- inn taki við sér þegar við, sem einn stærsti atvinnurekandi á landinu, stöndum ekki fyrir atvinnusköpun,“ segir Sóley Tómasdóttir, oddviti VG. B vill mannaflsfrek verkefni Framsóknarflokkurinn leggur líkt og önnur framboð áherslu á ferðamál, nýsköpun og viðhaldsmál en vill ólíkt VG ráðast í mannaflsfrekar fram- kvæmdir. „Framsókn er nú þekkt fyrir að vera óhrædd við að leita leiða til að auka atvinnu og ráðast í aðgerð- ir með það í huga að hámarka störf- in,“ segir Einar Skúlason, oddviti Framsóknar í borginni. Meðal þess sem flokkurinn stefnir að er að bjóða upp á sveigjanlegri orkusölusamninga, til fimm til sjö ára í stað 20-25 eins og hingað til og mark- aðssetja orkuna með fjölbreyttari nýtingu í huga en til álfyrirtækja. „Við viljum búa til fjölbreyttara at- vinnulíf og beina sjónum að fyrirtækj- um sem eru umhverfisvæn og skapa mörg störf á hverja kílóvattstund.“ S vill Reykjavík í forystuna Samfylkingin hefur sett atvinnu- mál sem algert forgangsverkefni á sinni stefnuskrá og unnið að yfir- gripsmikilli aðgerðaráætlun í samráði við fólk úr atvinnulífinu og verkalýðs- hreyfingunni. „Það ber mörgum saman um það að Reykjavíkurborg hefur verið algjör- lega ósýnileg alveg frá hruni þegar hún hefði þurft að taka forystu vegna þess að atvinnulífið í Reykjavík er leiðin út úr kreppunni,“ segir Dagur. Samfylkingin vill að borgin taki upp virkara samstarf við ferðaþjónustuna, upplýsingafyrirtækin og kvikmynda- geirann þar sem Dagur segir geysileg vaxtarfæri liggja. „Fyrst og fremst þarf þó að leggja miklu meiri áherslu á viðhaldsverk- efni og framkvæmdir sem núverandi meirihluti hefur skorið niður um 70% til næstu þriggja ára,“ segir Dagur. Samfylkingin vill tvöfalda viðhald á fasteignum borgarinnar. „Við teljum það rangt í kreppu að skera niður í viðhaldsverkefnum og teljum skyn- samlegt að taka þau verkefni sem hefðu verið á dagskrá árin 2013-2015 og vinna þau árin 2011-2012 vegna þess að þá þurfa flestir vinnu og þá er ódýrara að fara í verkefnin.“ E tekur fjármagn úr Vatnsmýri Reykjavíkurframboðið leggur líka áherslu á að fjölga iðnaðarstörfum og framkvæmdum. Baldvin Jónsson, oddviti listans, segir auk þess að Reykjavíkurframboðið sé það eina sem leggi til skýra leið um hvernig eigi að fjármagna hugmyndirnar. „Við viljum strax koma á nýju skipulagi fyrir Vatnsmýrina þar sem hún er skipulögð sem íbúðarbyggð. Um leið og nýtt skipulag liggur fyrir er verðmat landsins a.m.k. 70 millj- arðar.“ Landið verði veðsett hóflega, fyrir allt að 28 milljarða, og þeir fjár- munir notaðir til að standa undir markmiðum um framkvæmdir og að verja og bæta velferðarkerfið. H vill breytta forgangsröðun H-listi Ólafs F. Magnússonar stefn- ir á að breyta forgangsröðun í borg- inni þannig að fjármunum sé beint til mannauðs- og gjaldeyrisskapandi verkefna. „Það þarf engar töfralausn- ir, það þarf bara að hætta rányrkju á eigum almennings og forgangsraða til réttlátara og betra samfélags,“ segir Ólafur. F-listinn vill ráðast í viðhalds- verkefni en leggur umfram allt áherslu á að veita sprotafyrir- tækjum farveg. „Við þurfum að koma hlutunum af stað því hug- myndir fólks nú í kreppunni eru ótrúlega frjóar en vandinn er að hefja starfsemi,“ segir Haraldur Baldvins- son sem skipar 2. sætið. Ö vill frumleika og sköpun Besti flokkurinn vill gera Reykja- vík að meiri ferðamannaborg og gefa skapandi og frumlegri hugsun veg- legan sess. „Íslenskir listamenn hafa borið hróður þessarar þjóðar um all- an heim meðan aðrir hafa séð um að bera út óhróður. Það sem við viljum gera er að efla samvinnu og fjárstuðn- ing við Hitt húsið með áherslu á skap- andi störf og byggja á reynslu þeirra. Við eigum að hefja skapandi hugsun til vegs og virðingar og skapa verð- mæti úr hugmyndum,“ segir Jón Gnarr Hanna Birna Krist- jánsdóttir „Við viljum meina að við höfum verið í mjög öflugri at- vinnusókn og stefnum á að vera það áfram.“ Atvinna í fyrsta sætinu  Allir flokkar vilja skapa störf með áherslu á nýsköpun, ferðaþjónustu og viðhaldsframkvæmdir  Skiptar skoðanir um hvort áhersla eigi að vera á störf í opinbera geiranum eða á frjálsum markaði 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Sveitastjórnarkosningar 29. maí » Sjálfstæðisflokkurinn lítur áferðaþjónustuna sem stór- iðju Reykvíkinga og vill sam- þætta menningu og listalíf við ferðaþjónustuna. » Vinstri græn vilja koma álandvörslu í miðborginni og á útivistarsvæðum og lengja ferðamannatímabilið með því að fjölga viðburðum í borginni á jaðartímum. » Samfylkingin vill gera átak íað kynna ráðstefnuborgina Reykjavík og kanna möguleika á eflingu alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í borginni. » Framsóknarflokkurinn villað borgin fái meiri beinar tekjur af ferðamönnum. M.a. með gjaldtöku inn á söfn yfir sumarið og hækka verð stakra miða í sund en leggja meiri áherslu á afsláttarkort fyrir íbúa. » Besti flokkurinn vill undir-strika sérkenni sundlaug- anna sem náttúrulauga og gera listir og menningu ríkari þætti í daglegu lífi svo borgin verði fýsi- legri kostur fyrir ferða- menn. Um ferða- þjónustuna FERÐAMANNABORG » Sjálfstæðisflokkurinn villýta undir nýjar atvinnu- greinar með því að styðja við sprotafyrirtæki líkt og í Topp- stöðinni og Hugmyndahúsinu og atvinnuátakssjóði fyrir ungt fólk með nýjar hugmyndir. » VG vilja nýta húsnæði borg-arinnar sem stendur tómt og taka þátt í samstarfi sí- menntunarmiðstöðva, atvinnu- lífs og rannsóknarstofnana. » Framsókn vill opna frum-kvöðlasetur unga fólksins með áherslu á ferðaþjónustu, innlendan iðnað og tækninýj- ungar. » Samfylkingin vill einfaldaumsóknarferli fyrir ný fyr- irtæki og nýta autt húsnæði. » Reykjavíkurframboðið villstyðja við nýsköpun með því að leggja til ódýrt húsnæði. » H-listinn er ekki með „tísku-verkefni“ á takteinum en vill forgangsraða upp á nýtt og stórefla nýsköpun. » F-listinn vill veita sprotafyr-irtækjum farveg með að- gangi að húsnæði og neti. » Besti flokkurinn villskapandi, frumlega hugsun og gera Reykjavík að leiðandi afli í rafbíla- væðingu. Nýsköpunin í Reykjavík SKAPANDI BORG » Sjálfstæðisflokkurinn villbæta nærumhverfi borgara með mannaflsfrekum verk- efnum og framkvæma eins og staða borgarsjóðs leyfir. » Vinstri græn vilja viðhaldumfram nýframkvæmdir með áherslu á aðgengismál fatl- aðra að opinberum byggingum. » Samfylkingin vill tvöfaldaviðhald á fasteignum borg- arinnar árin 2011-2012 með því að flýta brýnum verkefnum. » Framsókn vill stórauka við-hald bygginga í eigu borg- arinnar og skapa eins mörg störf og hægt er í umhverfis- vænum orkutengdum iðnaði. » Reykjavíkurframboðið legg-ur áherslu á að klára Sæ- mundarskóla og Norðlinga- skóla. » H-listi vill mannaflsfrek við-haldsverkefni fremur en ný- smíði og vill fjármagna þau með því að losa borgina undan skuldsetningu v/Hörpunnar. » Besti flokkurinn villnýta auðar byggingar í Arnar- holti á Kjalarnesi til að stofna nýtt fangelsi fyr- ir erlenda hvít- flibbakrimma. Um fram- kvæmdirnar VAXANDI BORG Jón Gnarr „Ég sé mig fyrir mér taka á móti erlendum þjóhöfð- ingjum sem vilja læra af okkur hvernig á að rafbílavæða borgir.“ Baldvin Jónsson „Bæði borg og ríki hafa hagað sér þvert á það sem eðlilegt er og sitja nú eftir með tóma sjóði og engar lausnir.“ Sóley Tómasdóttir „Meðal borgarstarfs- fólks eru örugglega 8.000 góðar hug- myndir um eflingu þjónustu borgarinnar.“ Dagur B. Eggertsson „Í 100 ár hefur Reykja- vík verið forystuafl í atvinnu. Atvinnulífið í Reykjavík er leiðin út úr kreppunni.“ Einar Skúlason „Þetta snýst um að við þurf- um að vera ófeimin við að hugsa upp nýjar leiðir til að gera borg- ina að áfangastað.“ Ólafur F. Magnússon „Það er verið að taka fjármuni úr atvinnu- skapandi verkefnum til að þjóna undir íslenska stóreignamenn.“ Atvinnulausir í Reykjavík í lok apríl 2010 Konur 2.679 Karlar 4.122 Alls: 6.801 Haraldur Baldvins- son „Við getum gjörsamlega snúið borginni við og gert hana að stóru framleiðslubatteríi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.