Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 44
44 MenningFÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010  Hljómsveitin The Authorities frá Kaliforníu er á tónleika- ferðalagi um Evrópu þessa dagana og mun halda tónleika á staðnum Sódómu Reykjavik í kvöld kl.22 ásamt íslensku hljómsveitunum The Way Down og Bacon Live Support Unit. Sveitin komst nýlega aftur í sviðsljósið þegar íslandsvin- urinn Stephen Malkmus forsprakki hljómsveitarinnar Pavement fékk þá til að koma og spila á All Tomor- rows Parties hátíðinni. The Authorities milli- lenda hér á landi Fólk Um helgina fer fram djasshátíðin Dagar Lita og Tóna í Vestmannaeyjum. Hátíðin hefur verið haldin árlega í bænum um hvítasunnu- helgina frá árinu 1991 og verður afmælisdag- skráin með glæsilegra móti. Ingi T. Björns- son, einn af aðstandendum hátíðarinnar, segir að skipulag hennar hafi gengið vel og allt sé á áætlun þrátt fyrir öskufall í bænum að undan- förnu. Upphaflega var hátíðin sett á laggirnar til að heiðra minningu Guðna Hermansen, mál- ara og djassáhugamanns, og á fyrstu hátíð- inni voru það gamlir spilafélagar hans sem sáu um að skemmta gestum. Segir Ingi ávallt vel mætt og að djasshátíðin sé orðin fastur lið- ur í bæjarlífinu í Vestmanneyjum. Gestgjafi hátíðarinnar í ár er stórsveitin Samúel Jón Samúelsson Big Band og mun fjöldi annarra hljómsveita sem tengjast stórsveitinni spila á hátíðinni. Dagskráin hefst á morgun en þá stíga á svið Jagúar, ADHD, Samúel Jón Samúelsson Big Band og Pönkrokklúðrasveit íslenska lýðveldisins. Sunnudagurinn er ekki síðri. Hefst hann á hópspili tónlistarmanna á hátíðinni og í kjölfarið fylgja svo Samúel Jón Samúelsson Big Band, Latin-sveit Tómasar R. Einarssonar og Frelsissveit Hauks Gröndal. Samhliða djasshátíðinni verður haldin ljós- myndasýning með myndum eftir Inga, en hann hefur myndað hátíðina síðastliðin 15 ár og mun sýna brot af því besta frá liðnum árum. matthiasarni@mbl.is Öskufall stoppar ekki djasshátíð Vestmannaeyja Ljósmynd/MÁI Sammi Mætir með stóran hóp til Eyja um helgina.  Hitt Húsið hefur ráðist í útgáfu á nýju blaði fyrir ungt fólk og verður því dreift til 3.500 ungmenna á höf- uðborgarsvæðinu á næstunni. Í blaðinu, sem hefur fengið heitið Jafningjafræðslan, verða meðal annars viðtöl við handboltakapp- ann Björgvin Pál Gústavsson og söngkonuna Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur. Þá verður líka fjallað um málefni eins og lögleiðingu kannabisefna, lækkun áfengisald- urs, vímuefnanotkun, kynlíf og sjálfsmynd en Jafningjafræðslan leitast við að leiðrétta rang- hugmyndir um þessi málefni með starfi sínu. Blaðið er ætlað stórum hópi fólks, en þessi málefni eiga er- indi við fólk á öllum aldri þótt blað- ið sé fyrst og fremst hugsað fyrir ungt fólk. Hægt er að nálgast blað- ið á rafrænu formi á heimasíðunni www.jafningjafraedslan.is. Jafningjafræðslan með blað fyrir ungt fólk  Boðið verður upp á taktfasta tónlist á sextándu Grapevine Grassroots-tónleikunum hjá Hemma og Valda við Laugarveginn í kvöld. Munu hljómsveitinar For- gotten Lores og Thugs On Parole troða upp ásamt eins manns sveit- unum Bófa Tófunni og Epic Rain og verða taktar einmenninganna í höndum taktmeistarans Intro Beats úr Forgotten Lores. Að vanda er ókeypis inn á tón- leikana sem hefjast kl. 21 og standa til miðnættis. Grapevine-grasrótin heldur sínu striki Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bergur Ebbi Benediktsson tónlist- armaður getur nú bætt starfstitl- unum ljóðskáld og leikritaskáld á ferilskrána. Í byrjun vikunnar fagn- aði hann útgáfu fyrstu ljóðabókar sinnar, Tími hnyttninnar er liðinn, og þann 30. maí verður frumsýnt leikrit eftir hann, Klæði, í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Bergur Ebbi sendi tölvupóst í fyrra- dag til vina og vandamanna og færði rök fyrir því af hverju menn ættu að kaupa ljóðabókina hans. Ein rökin voru þau að hann hefði aldrei æft íþróttir (fyrir utan hálfan vetur í fót- bolta innanhúss) og hefði því aldrei þurft að trufla vini og vandamenn með sölu á klósettpappír eða rækjum. Auk þess væri bókin til- valin gjöf, góð fjárfesting, færi vel á sófaborði og henni fylgdi tónlist (Bergur Ebbi lét hljóðrita upplestur á öllum ljóðum bókarinnar og hljóð- skreytti svo með mági sínum Brynj- ari Birni Ingvarssyni). Alinn upp við kaldhæðni En hér skal ekki fjallað um rökin fyrir því að kaupa ljóðabók Bergs Ebba heldur bókina sjálfa. Og Berg- ur Ebbi hefur margt um hana að segja, enda er þetta fyrsta ljóðabók- in hans. – Þú segir að tími hnyttninnar sé liðinn. Á það við um bókina eða bara samfélagið almennt? „Það á náttúrlega við almennt, bókin á að vera eitthvað stærra held- ur en hún sjálf. Þetta er ákveðinn tónn sem ég vil slá, ég er líklega af þessari kynslóð sem er alin upp við rosalega mikla kaldhæðni, þar sem allt þarf að vera ótrúlega sniðugt og gæði hluta mæld eftir því hversu lít- ið einlæg þau eru,“ segir Bergur Ebbi. Ekki þýði þó að leggja sjálfan sig 100% að veði með þessari yfirlýs- ingu, að tími hnyttninnar sé liðinn, því hægt sé að segja á móti að slík fullyrðing sé í raun tilraun til þess að vera hnyttinn, að eiga síðasta orðið. „Þetta getur ekki orðið einhver alls- herjaryfirlýsing,“ segir Bergur Ebbi og undirstrikar að hnyttnin beri vissulega vitni um skapandi hugar- far. Engu að síður sé hnyttnin allt í kringum mann og kaldhæðnin einn- ig, ekki síst í skrifum fólks á netinu, og þeir sem hafi alist upp við að horfa á The Simpsons þekki vel til þessa fyrirbæris. „Það er auðvelt að tapa sér og mjög margir sem eru mjög klárir og með frjóan og virkan huga, þeir virkilega missa mögu- leikann á því að tengjast öðrum með því að vera einlægir. Þetta er ákveð- inn tónn sem ég vildi slá þarna og al- mennt viðhalda í framtíðinni,“ segir Bergur Ebbi. Við nánari skoðun á ljóðabókinni hafi honum orðið ljóst að hann hafi ekki náð þessum tóni fullkomlega en það sé engu að síður framtíðarmarkmið. „Ég vil síður taka mig of alvarlega,“ bætir hann við, hann hafi ekki viljað setja sig í ljóðskáldsstellingar. „Ég er til- tölulega léttur náungi, með húmor og svona, ég þurfti að taka aðra rispu á þetta og reyna að bæta því svolítið við.“ Í Che Guevera-bol Bergur Ebbi segist ekki reyna að gera neitt nýtt eða ferskt varðandi ljóðaformið. En um hvað er ort? „Þetta er svolítið um það hvernig við erum pínulítið stöðnuð í frum- legri hugsun okkar, það er svolítið erfitt að útskýra það. Þess vegna er þetta til í ljóðum,“ svarar Bergur Ebbi. Hann yrki um það hvernig við nútímamennirnir séum að endurlifa löngu liðnar byltingar, fastir í göml- um hugmyndum og hugmyndafræði. Hann nefnir sem dæmi hina klisju- kenndu ímynd af ungum bylting- arsinnuðum manni í stuttermabol með mynd af Che Guevara, ungum manni sem fylgi úr sér gengnum hugmyndum um byltingu og hug- arfarsbreytingu sem séu orðnar nær hálfrar aldar gamlar. Fólk fari í ákveðin hlutverk en raunveruleg, frumleg hugsun verði ekki sett í hólf staðlaðra ímynda. „Og líka hvernig það að vera alltaf hnyttinn og snið- ugur er orðið afar fyrirsjáanlegt.“ Morgunblaðið/Eggert Bergur Ebbi „Þetta getur ekki orðið einhver allsherjaryfirlýsing,“ segir Bergur Ebbi um titil ljóðabókarinnar Tími hnyttninnar er liðinn. Tiltölulega léttur náungi  Bergur Ebbi Benediktsson sendir frá sér ljóðabókina Tími hnyttninnar er lið- inn og semur leikritið Klæði  Hnyttnin er á undanhaldi, einlægni markmiðið Bergur Ebbi er höf- undur leikritsins Klæði sem verður frumflutt í Norðurpólnum 30. maí. Flestir leikaranna í verkinu eru leiklistar- nemar við Listaháskóla Íslands en leikstjóri er Dóri DNA, eða Halldór Halldórsson, sem nem- ur fræði og framkvæmd í leiklistardeild. „Hvern- ig verður maður ást- fanginn? Eru það tilviljanir sem ráða því með hverjum við eyðum ævinni eða er það háð örlögum? Skiptir það kannski engu máli?“ er spurt í lýs- ingu á verkinu á vefnum Miði.is. Í verkinu er leitað svara við drama- tískum spurningum á hversdagslegan hátt. Í því segir af tveimur mönn- um, Ólafi Antoni og Pétri, sem eru báðir hrifnir af sömu stúlkunni, Söru, en hvor á sinn hátt. Þau hafa öll þrjú ólíkar hugmyndir um ástina en kannski skiptir engu máli hvað þau halda því þegar upp er staðið ræðst atburðarrásin e.t.v. af einhverju allt öðru. En af hverju Klæði? „Stundum er okkur kalt og við finnum okkur hlý föt, þannig högum við lífi okkar. En stundum finnum við hlý föt sem okkur finnst flott, för- um í þau og leitum uppi kuldann, pöntum okkur ferð til Ísafjarðar eða eitthvað,“ svarar Bergur Ebbi. Fólk fóðri líf sitt með ýmsum hætti. Kuldinn leitaður uppi þegar hlýju fötin eru flott LEIKRITIÐ KLÆÐI Klæði Dóri DNA og leikaranemarnir Snorri Engilberts- son og Sara Margrét Nordahl á æfingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.