Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 6. O K T Ó B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  234. tölublað  99. árgangur  SKÁLMÖLD ÞEYSIST UM EVRÓPU ÚR LÍNU- DANSI Í MATSELD LEIÐ FÓLKS TIL AÐ BÆTA UPP FJARLÆGÐINA FINNUR.IS OG VIÐSKIPTI FACEBOOK 10FARANDHÁTÍÐIN HEIDENFEST 36 Morgunblaðið/RAX Ferjusiglingar Herjólfur er ekki heppilegt skip fyrir siglingar í Landeyjahöfn.  Hönnun á nýrri Vestmanna- eyjaferju sem hentar Landeyjahöfn tekur um þrjú ár og kostnaður er áætlaður 4-4,5 milljarðar króna, að sögn Hreins Haraldssonar vega- málastjóra. Eyjamenn hafa fengið nóg af samgöngutruflunum milli lands og Eyja og vilja sitja við sama borð og aðrir landsmenn. Ljóst sé að Herj- ólfur henti illa til siglinga í Land- eyjahöfn og í staðinn vilja þeir fá Breiðafjarðarferjuna Baldur eða sambærilegt skip þar til nýtt skip verður smíðað. „Við höfum engan tíma til að bíða,“ segir Elliði Vign- isson, bæjarstjóri í Eyjum » . 6 Ný Vestmanna- eyjaferja kostar um 4 milljarða króna Fagrir litir haustsins eru áberandi þessa dagana, en lægðirnar sem komið hafa upp að landinu hver á fæt- ur annarri feykja laufblöðunum fljótlega út í busk- ann. Veturinn hefur reyndar aðeins minnt á sig síð- ustu daga og þegar hrammar hans verða sterkari er ekki annað en að búa sig vel og kveikja kertaljós. Lægðir og litbrigði haustsins Morgunblaðið/Ómar  Ekki hefur verið hægt að fá íslenskan geita- ost frá því osta- gerðarverkefni var hætt á síð- asta ári. Geita- bónda á Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði þyk- ir miður að ekki skuli vera hægt að bjóða upp á vöruna, enda sé mik- il eftirspurn eftir henni. Svo gott sem daglega hafi verið spurt eftir íslenskum geitaosti á sveitabænum í sumar. »14 Mikil eftirspurn en geitaostur fæst ei Mmm Girnilegir ostar úr geitamjólk. Félag áhugamanna um réttmætt skuldauppgjör undirbýr málsókn á hendur bönkunum fyrir endurútreikning á lán- um. Telur félagið að út- reikningarnir standist ekki lög og óréttmætt sé að endurreikna alla greidda gjalddaga á lánunum og setja á þá vexti. Um það sé ekkert getið í dómum Hæstaréttar, sem lög um endurútreikning lána byggðust fyrst og fremst á. „Þetta eru bæði einstaklingar og lög- aðilar sem hafa að fullu alltaf staðið í skilum við sína lánardrottna, jafnvel þegar geng- isfellingin var sem mest, og hafa aldrei farið á vanskilaskrá. Þetta er fólkið sem hefur verið að safnast saman núna á Austurvelli. Það er farið að sjóða á fólki,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður félagsins. bjb@mbl.is »4 Í mál við bankana  Gagnrýna endur- útreikning lána –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Útlit er fyrir að lausn á skuldastöðu Álftaness sé í sjónmáli. Sveitarfélag- ið hefur náð samningum við kröfu- hafa um niðurfellingu skulda og ríkið um greiðslur úr jöfnunarsjóði. Samn- ingarnir verða undirritaðir á næstu dögum og í kjölfarið getur Álftanes haldið áfram sameiningarviðræðum við Garðabæ sem hafa staðið síðasta árið. Hlé hefur verið á þeim undan- farna mánuði á meðan beðið var eftir svari frá ríkinu. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að ekki sé búið að tilkynna þeim opinberlega hvaða stuðning ríkið kemur með inn í sam- einingarviðræðurnar. „Við höfum verið að bíða eftir tölum sem eru greinilega á leiðinni. Ég á von á að það verði tilkynnt á næstu dögum. Þá munum við halda áfram viðræðum við Álftanes með þær tölur í fartesk- inu, máta þær inn í okkar áætlanir og taka ákvörðun í framhaldinu.“ Samkvæmt fréttum Ríkisútvarps- ins í gærkvöldi fær Álftanes milljarð úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga, með því skilyrði að það sameinist öðru sveitarfélagi, og skuldir verða færð- ar niður um tæpa fjóra milljarða króna. „Á þessum tímapunkti er ekki hægt að staðfesta nákvæmt innihald þessara samninga og ekki nákvæmar útlistanir á tölum en það verður skrifað undir á næstu dögum. Það er gríðarlegur léttir að það skuli vera að koma lausn í þessu máli,“ segir Pálmi Þór Másson, bæjarstjóri Álftaness. Stefnt var að því að ná skuldunum niður í 250% af árlegum tekjum sveitarfélagsins. „Það liggur ljóst fyrir að heildarskuldir sveitarfé- lagsins hafa verið settar fram sem 7,2 milljarðar. Við höfum unnið að því að komast undir þetta 250% mark og til að svo megi verða verðum við að koma skuldunum niður í um það bil 3,2 milljarða. Það er það sem við höfum unnið að og mér sýnist á öllu að það sé að ganga eftir hjá okkur,“ segir Pálmi. Afstaða til sameiningar fljótlega  Sveitarfélagið Álftanes hefur náð samningum um niðurfellingu skulda og greiðslur úr jöfnunarsjóði  Gríðarlegur léttir segir bæjarstjórinn á Álftanesi Morgunblaðið/Ómar Álftanes Skuldastaðan að skýrast. Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair skrifuðu undir kjarasamning á áttunda tímanum í gærkvöldi. Verkfalli, sem hefjast átti 10. október, hefur verið frestað til 24. október en samningurinn verður kynntur félagsmönnum eftir helgi. Talsmaður samninganefndar flugfreyja sagðist ekki tjá sig um samninginn fyrr en hann hefði komið fyrir sjónir félagsmanna. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir forráðamenn félagsins ánægða með lyktir mála. „Þetta er ánægju- leg niðurstaða, að tekist hafi að forðast þá truflun sem hefði orðið af verkfalli,“ segir Guðjón og segir að í samningnum felist ákveðinn stöðugleiki, því samið sé til þriggja ára í stað eins árs eins og áður. annalilja@mbl.is Flugfreyjur fljúga áfram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.