Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 30

Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 30
30 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 Sudoku Frumstig 3 1 6 2 4 6 2 7 5 5 4 3 6 1 2 7 1 2 6 2 9 5 4 5 9 3 6 1 6 5 4 2 1 7 3 9 4 2 9 2 4 5 6 7 2 4 4 9 6 7 5 1 3 2 6 5 7 2 3 1 5 9 2 8 3 5 7 1 8 9 4 5 6 1 8 8 1 5 9 6 7 3 4 2 6 9 2 3 8 4 1 7 5 4 3 7 5 1 2 8 9 6 7 2 6 8 4 1 5 3 9 3 4 1 2 5 9 6 8 7 9 5 8 7 3 6 2 1 4 2 6 4 1 9 3 7 5 8 5 7 3 4 2 8 9 6 1 1 8 9 6 7 5 4 2 3 6 1 4 2 7 9 8 5 3 5 2 7 3 8 6 1 4 9 9 3 8 5 1 4 6 7 2 1 5 9 8 4 3 7 2 6 8 6 2 7 9 5 3 1 4 4 7 3 1 6 2 5 9 8 3 8 5 4 2 7 9 6 1 7 4 6 9 3 1 2 8 5 2 9 1 6 5 8 4 3 7 5 6 8 4 9 1 7 2 3 2 7 9 3 8 5 1 4 6 3 1 4 7 6 2 9 8 5 9 2 6 8 7 4 3 5 1 8 3 1 6 5 9 2 7 4 4 5 7 1 2 3 6 9 8 6 9 3 2 4 8 5 1 7 7 4 2 5 1 6 8 3 9 1 8 5 9 3 7 4 6 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 6. október, 279. dagur ársins 2011 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Um helgina rigndi eggjum ogöðrum matvælum yfir þing- heim á rölti frá Dómkirkju til Al- þingis. Egg geta verið brothætt, en það þýðir ekki að þægilegt sé að fá þau í sig. Flesta hryllir við tilhugs- uninni um að mótmælendur fyrir utan Alþingi beiti skotvopnum. Þeir eru fleiri, sem eru tilbúnir að rétt- læta matvælakastið. Þeir gera það á forsendum þess að stjórnvöld hafi með óstjórn glatað umboði sínu og þeim verði að koma frá með öllum tiltækum ráðum og bæta við að slíkur skaði geti unnist sitji þau út kjörtímabilið að ekki sé hægt að bíða næstu kosninga. x x x Í frjálsu samfélagi er rétturinn tilað mótmæla skýlaus. Frelsið er hornsteinn lýðræðis, en það er ekki ótakmarkað. Frelsi eins sleppir þar sem hann er farinn að ganga inn á frelsi annars. Frelsið er ekki óút- fyllt ávísun á ofbeldi. Ég get hafið hnefann á loft, en um leið og ég læt höggið ríða er ég kominn út fyrir mörk frelsisins. Gegnir öðru máli um egg? Má láta egg dynja á þeim, sem maður er ekki sammála? Má gera það hvar sem er og hvenær sem er? Mega þeir svara fyrir sig með því að henda eggjum í mig? Réttlætir einn málstaður eggjakast frekar en annar? Er til dæmis í lagi að kasta eggjum ef maður er reiður út af dáðleysi stjórnvalda í kjölfar bankahruns, en ekki ef maður er reiður út af því hvað mörgum útlendingum er hleypt inn í landið? x x x Um leið og byrjað er að réttlætaofbeldi er farið inn á háska- lega braut. Ef ofbeldi er leyfilegt í einu tilviki, af hverju þá ekki í öðru? Ef leyfilegt er að kasta eggj- um, má þá ekki kasta hverju sem er? Ef menn eru ekki tilbúnir að hafna ofbeldi skilyrðislaust lenda þeir í vanda. Sá sem réttlætir of- beldi af einum toga hefur ekki miklar varnir gegn ofbeldi af öðr- um toga. Það er ekki hægt að vera pínulítið óléttur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 grátið, 4 bjór, 7 ís, 8 vindhana, 9 beiskja, 11 les- ið, 13 freta, 14 eyktamarkið, 15 pat, 17 fiskurinn, 20 krakki, 22 víður, 23 ham- ingjusömum, 24 ákveð, 25 mjög æstur. Lóðrétt | 1 fljót, 2 tímaritið, 3 grassvörður, 4 bakki, 5 flá- ráð, 6 rödd, 10 tuldraðir, 12 auð, 13 vendi, 15 koma und- an, 16 ber, 18 sjávardýrum, 19 auðlindir, 20 bylur, 21 sjávarrót. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 táldregur, 8 vetur, 9 bógur, 10 kol, 11 reima, 13 aumur, 15 stáls, 18 hlein, 21 tól, 22 kættu, 23 angar, 24 þrautseig. Lóðrétt 2 áætli, 3 dýrka, 4 Embla, 5 ungum, 6 svar, 7 þrár, 12 mál, 14 ull, 15 síkn, 16 ástar, 17 stunu, 18 hlass, 19 engli, 20 næri. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ítölsk innansveitarkróníka. Norður ♠7 ♥108543 ♦ÁK10843 ♣D Vestur Austur ♠10983 ♠G52 ♥G62 ♥KD97 ♦G65 ♦972 ♣984 ♣G76 Suður ♠ÁKD64 ♥Á ♦D ♣ÁK10532 Suður spilar 7♦. Stærstu bridsfélög Ítala keppa ár- lega um réttinn til að taka þátt í bik- arkeppni Evrópu (Champions Cup). Úrslitaleikurinn í ár var sýndur á Bridgebase fyrir skömmu, en þar átt- ust við Allegra-klúbburinn frá Tórínó og Angelini frá Róm. Í Allegra-liðinu spiluðu Lauria, Versace, Bocchi, Ma- dala, Duboin, Sementa, Giubilo og Za- leski – átta manna lið á móti fjórmenn- ingum Angelini, þeim Fantoni, Nunes, Cima og sjálfum Garozzo. Allegra-sveitin sigraði örugglega, en heppnin var óneitanlega með þeim í spilinu að ofan. Lauria og Guibilo slys- uðust upp í 7♦, sem vinnast út á hag- stæða legu í láglitunum. Hinum megin vakti Fantoni í suður á víðáttulaufi og Nunes sýndi skiptinguna í rauðu lit- unum með heljarstökki í 3♠. Og hvað gat suður gert við því nema segja 3G? 6. október 1659 Hollenskt kaupfar sökk við Flatey á Breiðafirði. Sumarið 1992 fundu kafarar ýmsa hluti sem talið var að væru úr skip- inu. 6. október 1957 Hafsteinn Sveinsson hljóp maraþonhlaup, 42,2 kíló- metra, fyrstur Íslendinga, á 3 klst. og 1 mín. Hlaupið var frá Kömbum til Reykjavíkur. 6. október 1961 Hátíðarsamkoma vegna hálfr- ar aldar afmælis Háskóla Ís- lands var haldin í Háskólabíói, stærsta samkomuhúsi lands- ins, sem var vígt við það tæki- færi. Davíð Stefánsson frum- flutti Háskólaljóð og flutt var tónverk eftir Pál Ísólfsson. „Höfum loks eignast fullkom- inn hljómleikasal,“ sagði Morgunblaðið daginn eftir. 6. október 1980 Jarðstöðin Skyggnir í Mos- fellsbæ var tekin í notkun. Þar með komst á fjarskipta- samband við önnur lönd um gervihnött og sjálfvirk síma- afgreiðsla til útlanda. 6. október 2008 Geir H. Haarde forsætisráð- herra flutti ávarp til þjóð- arinnar um stöðu fjár- málakerfisins og nauðsyn aðgerða. Um kvöldið sam- þykkti Alþingi ný lög um fjár- málamarkaði. Daginn eftir stóð á forsíðu Morgunblaðsins: „Neyðarlög á Íslandi. Skuldir bankanna eru þjóðinni of- viða.“ Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Við erum svo heppin að við eigum þrælmynd- arlegar dætur og tengdadóttur og þær hafa séð um allar veislur fyrir okkur,“ segir Guðrún Jóns- dóttir geðlæknir, sem er 85 ára í dag. „Við höldum upp á afmælið heima hjá okkur í Ásholtinu í Reykjavík. Við höfum verið afar hamingjusöm hjón og eigum miklu barnaláni að fagna. Þetta verður bara stórfjölskyldan núna, börnin, tengda- börnin og auðvitað barnabörn, svo bjóðum við náttúrlega bróður Páls.“ Eiginmaður hennar er Páll Sigurðsson sem gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum um ævina, var m.a. tryggingalæknir en loks ráðuneytisstjóri í aldarfjórðung. Þau Páll eignuðust eineggja tvíbura, systurnar Jónínu og Ingibjörg, einn- ig dótturina Dögg og loks bættust aðrir eineggja tvíburar í hópinn 1960, Jón Rúnar og Sigurður Páll, sem er geðlæknir eins og Guðrún. Hún minnist foreldra sinna, Jónínu Jónsdóttur og Jóns Júníussonar, með hlýju, einnig Jóns Þórðarsonar frá Borgarholti, kennara síns úr Austurbæjarskólanum. „En ég er fyrst og fremst þakklát forsjóninni, ég er ein af þeim sem kunna að meta bænina og vildi óska þess að það yrði mikil vakning hér á Íslandi, um allan heim.“ kjon@mbl.is Guðrún Jónsdóttir er 85 ára í dag „Bara stórfjölskyldan núna“ Flóðogfjara 6. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.50 2,9 8.09 1,5 14.39 3,2 21.07 1,3 7.51 18.42 Ísafjörður 4.16 1,5 10.27 0,8 16.49 1,8 23.20 0,7 7.59 18.43 Siglufjörður 6.28 1,1 12.20 0,7 18.34 1,2 7.42 18.26 Djúpivogur 4.46 0,8 11.28 1,7 18.01 0,9 7.21 18.11 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er kominn tími til að bregða á leik og þú ert til í slaginn. Aflaðu þér heimilda máli þínu til stuðnings. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það hefur ekkert upp á sig að eyða tíma í það að bjarga einhverjum sem enga björgun vill. Vertu þú sjálfur og settu per- sónulegt mark þitt á það sem þú gerir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að dusta rykið af gamalli áætlun. Nauðsynlegt er að hafa þolinmæði í samskiptum við fólk. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú sérð alltaf það fallega í öðrum og það smitar út frá sér. Allt sem tengist listum, afþreyingar- og skemmtanaiðnaðinum og at- vinnumennsku í íþróttum höfðar til þín núna. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Einhver kemur með góða hugmynd sem getur skilað þér árangri í starfi. Nýtt fólk hef- ur líka eitthvað fram að færa. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Náinn vinur reynist kaldrifjaðri en þú hefur nokkurn tímann getað gert þér í hug- arlund. Dagurinn í dag færir þér ábyggilega gæfu, nýttu tækifæri sem gefast. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur frábært kerfi til að fá reglu á daglegt líf. Hafðu í huga að uppeldi trompar menntunina seinna meir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þótt nokkuð gusti um þig núna skaltu ekki láta það slá þig út af laginu. Sam- ræður um viðkvæm málefni ganga vel í dag. Gakktu glaður að hverju verki. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Láttu það ekki draga þig niður þótt þér finnist aðrir ekki skilja þig. Dragðu djúpt andann og snúðu málunum þér í hag. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þín kann að bíða einstakt tækifæri í dag og ríður á miklu að þú þekkir þinn vitj- unartíma. Leystu eigin vandamál áður en þú fæst við vanda annarra. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Leyfðu fólki að lífga upp á lífið, án þess að þurfa að dæma neinn. Tileinkaðu þér aðferðir sem auðvelda þér að greiða hraðar upp skuldirnar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft að hafa stjórn á þínu liði, sér- staklega fá samstarfsmenn þína til að vinna að einu og sama markmiðinu. Vertu galopinn fyrir nýjum hugmyndum. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 dxc4 5. e3 a6 6. Bxc4 b5 7. Bb3 Bb7 8. O-O c5 9. De2 Rbd7 10. Hd1 Be7 11. e4 b4 12. e5 bxc3 13. exf6 Rxf6 14. Ba4+ Kf8 15. bxc3 Da5 16. Bb3 cxd4 17. Rxd4 Dh5 18. f3 e5 19. g4 Dh3 20. Dxe5 Bxf3 21. Rxf3 Dxf3 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Stórmeistarinn Tim- ur Gareev (2631) frá Úsbekistan hafði hvítt gegn hollenska kollega sínum Lo- ek Van Wely (2689). 22. Dxe7+! og svartur gafst upp enda taflið tapað eft- ir 22… Kxe7 23. Ba3+ Ke8 24. Ba4+ Rd7 25. Bxd7+ Kd8 26. Bc6+. Enski stórmeistarinn Michael Adams (2733) varð hlutskarpastur á mótinu með 7 ½ vinning af 9 mögulegum en sex skák- menn deildu öðru sætinu með 6 ½ vinn- ing, þar á meðal Loek Van Wely. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.