Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 ✝ Þorbjörg ElínFríðhólm Frið- riksdóttir fæddist 6. október 1951 í Kópavogi. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 15. desem- ber 2010. Foreldrar Þor- bjargar voru Frið- rik Björnsson, raf- virkjameistari í Sandgerði, f. 2. mars 1927, d. 17. janúar 2004 og Þórhildur Sig- urðardóttir hárgreiðslukona, f 10. júlí 1927. Þorbjörg ólst að mestu upp hjá systur Þórhildar, Erlu Fríðhólm Sigurðardóttur, f. 6. nóvember 1922, og eig- inmanni hennar Hallbirni Berg- mann Elímundarsyni, f. 21. október 1918, d. 21. mars 2009. Mjög kært var milli Þorbjargar og þeirra hjóna og leit hún á þau sem sína aðra foreldra. Hún var þó jafnframt alltaf í mjög nán- um tengslum við foreldra sína og systkini. Systkini Þorbjargar eru Steinunn Fríðhólm, f. 17. ágúst 1948, Sigurður Sævar Fríðhólm, f. 18. desember 1949, Jón Fríð- hólm, f. 10. nóvember 1954, ósi 1968. Hún hóf starfsferil sinn í Kron á Hlíðarvegi í Kópavogi fjórtán ára gömul. Hún vann síð- an mestan hluta ævi sinnar við verslunarstörf og var m.a. versl- unarstjóri hjá Kaupfélagi Suð- urnesja í Garðinum í sjö ár. Þor- björg endaði starfsferil sinn hjá Veitingaþjónustu IGS, Keflavík- urflugvelli, árið 2005, en þá varð hún að hætta störfum vegna veikinda sinna. Þorbjörg og Rúnar stofnuðu sitt fyrsta heimili í Reyni- hvammi 9 í Kópavogi á efri hæð- inni hjá Erlu og Hallbirni. Þau bjuggu á Reykjavíkursvæðinu til ársins 1981 en byggðu sér svo hús í Sandgerði og hafa búið þar síðan. Þorbjörg var ötul í fé- lagsstarfi og var m.a. í kven- félaginu Hvöt, Sandgerði til marga ára, vann nefndarstörf fyrir sveitarfélagið og var heiðruð á 1. maí fyrir störf sín í þágu verkalýðsins fyrir Versl- unarmannafélag Suðurnesja. Hún var mikil jafnaðar- og bar- áttukona með sterka réttlæt- iskennd. Þegar veikindi Þor- bjargar leiddu til þess að hún þurfti að styðjast við öndunarvél nánast daglega stóð hún fyrir söfnun til kaupa á nýrri önd- unarvél, því samviskan nagaði hana fyrir að einoka einu vélina sem fyrir var. Útför Þorbjargar fór fram í kyrrþey hinn 21. desember 2010 að ósk hinnar látnu. Friðrik Þór, f. 12. nóvember 1961, Fanney, f. 7. nóv- ember 1964 og Heiður Huld, f. 6. maí 1967. Þorbjörg giftist 18. desember 1971 eftirlifandi eig- inmanni sínum, Rúnari Þórarins- syni, starfsmanni IGS á Keflavík- urflugvelli, f. 27. maí 1950. Rún- ar er sonur hjónanna, Þórarins Árnasonar, f. 24. maí 1924, og Vagnbjargar Jóhannsdóttur, f. 1. september 1925, d. 3. maí 2005. Börn Þorbjargar og Rúnars eru: 1) Erla Björg, f. 14. nóv- ember 1970, kennari, búsett í Sandgerði, gift Egil Aagaard- Nilsen, f. 13. desember 1964, sölumanni í heildverslun. Börn þeirra eru Anja Rún, f. 23. nóv- ember 1991, Hélène Rún, f. 19. desember 1994 og Daníel, f. 7. febrúar 2002. 2) Hallbjörn Val- geir, f. 13. júní 1981. Þorbjörg ólst upp í Kópavogi. Hún lauk grunnskólaprófi frá Kópavogsskóla og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Blöndu- Elsku besta mamma mín. Í dag hefðirðu fagnað þínum sex- tugasta afmælisdegi. Ég hef ekki treyst mér til að setjast niður og skrifa þér þessa kveðju fyrr en nú. Þín er svo sárt saknað. Þú varst einstök manneskja og við vorum svo náin. Þegar þú fórst missti ég ekki aðeins móður heldur einnig mikinn trúnaðar- vin. Ég gat rætt um allt við þig og þú dæmdir aldrei. Það var líka sama hversu veik þú varst og ég reyndi að hlífa þér fyrir mínum áhyggjum og erfiðleik- um, alltaf vissirðu þegar eitthvað amaði að. Það gekk ekkert að reyna að fela það fyrir þér. Elsku mamma, þú varst þekkt fyrir að vera dugnaðarforkur í vinnu. Ég man eftir því þegar ég vann með þér í Samkaupum, þá töluðu bæði viðskiptavinir og samstarfsfólk okkar um konuna sem var alltaf brosandi. Það varst þú. Ég sé þig fyrir mér koma askvaðandi út af lagernum með bros sem lýsti upp alla búð- ina. Jafnvel síðustu stundirnar sem við áttum saman á spítalan- um voru fylltar af gleði og hlátri. Við gátum alltaf hlegið þótt mér fyndist dónabrandararnir þínir stundum óviðeigandi. Þegar þú fórst leið mér eins og stór hluti af mér hefði horfið. Þú varst límið sem hélt þessari litlu fjölskyldu saman. Þú varst mjög réttsýn og með sterka rétt- lætiskennd. Ef þér fannst brotið á einhverjum varstu tilbúin að verja rétt hans fram í rauðan dauðann. Ég sé það í dag og finn hversu mikið af þér fylgir okkur systkinunum. Við höfum sama eldmóð og þú í starfi og ég er þér svo einstaklega þakklátur. Ég sé það nú að það er ekki hluti af mér sem er horfinn heldur er það hluti af þér sem lifir með mér. Þann hluta mun ég varð- veita og rækta enda eru það mínar bestu hliðar. Stuttu eftir að þú kvaddir okkur kom tímabil sem ég vissi ekki hvernig ég ætti að takast á við lífið án þín. Þú varst eins konar öryggisnet sem var svo gott að vita af. Það var sama hvað bjátaði á; ég vissi að ég gat alltaf leitað til þín og þú minntir mig á það daglega. Ef ég lendi á krossgötum eða finn þörfina til að leita til þín þá set ég mig í stellingar og hugsa til þín og hvað þú myndir ráðleggja mér eða segja. Ég veit að þú fylgist með mér og ég hugsa hvert skref sem ég tek með tilliti til þess hvað þér myndi finnast um það. Ég veit vissulega að þú ert ekki sammála öllu en við vor- um það heldur ekki alltaf. Kæra móðir mín, ég er enn að glíma við sorgina og söknuðinn en ég hef einsett mér að gera þig stolta og rækta í mér þau mann- gildi sem þú hafðir. Umhyggja þín til annarra var eftirtektar- verð. Það lýsir sér vel í þátttöku þinni í uppeldi lítils stráks á Ind- landi sem þú talaðir alltaf um sem bróður minn. Það var ein- stakt hvað þú varðst spennt þeg- ar þú fékkst bréf frá honum og rakst á eftir mér að koma í heim- sókn til að lesa bréfið fyrir þig. Svo þegar hann var kominn til manns tókstu við stelpu. Þá átti ég skyndilega aðra systur. Ég á þér svo margt að þakka og ég vildi að ég gæti talið það allt upp. Það fer um mig sérstök tilfinning að skrifa þessi orð til þín og mér líður eins og ég sé að tala við þig og ég tími varla að hætta þótt ég glími við að halda aftur af tárunum. Minning þín mun lifa áfram. Mér hefur tekist að sigrast á eigingirninni og sætt mig við að loks fékkstu friðinn og hvíldina sem þú þurftir. Ég mun ávallt sakna þín og halda í heiðri minningu þína og þau gildi sem þú kenndir mér. Hvíl í friði, elsku mamma. Hallbjörn Valgeir Rúnarsson. Elsku móðir mín. Nú eru liðn- ir níu mánuðir síðan þú fórst og það er núna fyrst sem ég treysti mér til að setjast niður og skrifa mína hinstu kveðju til þín. Sorg- in og söknuðurinn er svo mikill að flesta daga kenni ég til. Mér finnst það svo skrítið að geta ekki talað við þig, að fá ekki dag- lega símtalið: Hæ, hvað er að frétta? Þó svo að ég hafi vitað það í langan tíma að veru þinni hér væri senn að ljúka var það mér mikið áfall þegar það gerðist. Ég trúði því til hinstu stundar að þú myndir rífa þig upp úr þessu eins og svo oft áður. Í eigingirni minni hefði ég svo gjarnan viljað fá ein jól í viðbót. Þó svo að þú hafir verið rúm- liggjandi í eitt og hálft ár varstu samt sem áður miðja og stoð litlu fjölskyldunnar þinnar. Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvernig þú hélst okkur öllum saman fyrr en þú varst farin og ég tekin við hlutverki þínu. Ég held að það líði ekki sá dagur að mér verði ekki hugsað til þín, að ég sakni þín og finnist það svo ósanngjarnt að þú skulir vera farin. Ég hugsa um börnin mín sem fá ekki að njóta þín lengur. Daníel sem átti hug þinn og hjarta og saknar þín svo óendanlega mikið. Hann segir ekki margt en það koma tímar sem hann orðar söknuð sinn og hugsanir. Við vorum ekki alls fyrir löngu stödd við lítinn læk. Það var snjór úti og stráin stóðu upp úr snjónum við lækjarbakkann. Daníel sat við bakkann og bjó til snjóbolta, stakk stráum í gegn- um boltana og fleytti þeim á lækinn, hann sagði að þeir væru handa þér. Ég er viss um að þann dag sast þú á himnum og brostir í gegnum tárin. Í dag er merkilegur dagur sem við systkinin erum ákveðin í að halda hátíðlegan. Þú hefðir fyllt þinn sjötta tug á þessum merkisdegi. Af því tilefni höfum við efnt til tónleika í þínu nafni, þar sem ágóðinn rennur til söfn- unarinnar sem þú stóðst svo hetjulega fyrir. Elsku mamma mín til ham- ingju með daginn – ég vona að allt himnaríki haldi upp á daginn með þér. „I love you“. Þín dóttir, Erla Björg. Ég horfi í undrun á heiminn og þig á hönd þína og ljósa kinn. Þú komst til mín, barn mitt, á kyrrlátri stund. Og ég kyssti þig, ljúfur minn. Og andlit þitt var eins og viðkvæmt blóm sem vex upp í himininn. Það var eins og guð hefði vitjað mín, ég veit ekki hvað það er en ekkert í heiminum öllum er til sem ann ég heitar en þér. Þig aldrei ég undir brjóstum bar en ég ber þig í hjarta mér. (Gunnar Dal) Þín fóstra, Erla Sigurðardóttir. Amma mín, Þú barst mér í draumi um daginn Þú sagðir ekki neitt. Þú ert mér huggun í harmi, ó hve ég sakna þín heitt. Nú á ég þig í draumi og í minningum mínum ég geymi þig. Amma mín, ég veit að þú verður ei ein á himni, því Lúsý mín, hún gætir þín. Faðir þinn opnum faðmi bíður eftir dóttur sinni. Þú verður ávallt mín. Þín ömmustelpa, Hélène Rún. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku yndislega systir okkar. Í dag hefðir þú orðið 60 ára. Andlát þitt fyrir 10 mánuðum var engan veginn tímabært. Þú duglega kona, sem ekkert aumt máttir sjá og alltaf settir þú aðra en sjálfa þig í forgang. Stórt skarð var höggvið í systkinahóp- inn okkar þó svo að við værum ekkert alltaf að hittast þá var samband okkar alltaf innilegt og ástríkt. Í veikindum þínum síð- ustu árin sýndir þú svo sann- arlega hversu dugleg þú varst. Komst á fót söfnun til styrkt- ar Heilbrigðisstofnun Suður- nesja þar sem þú afrekaðir að safna fyrir ytri öndunarvél fyrir lungnasjúklinga, söfnunin gekk svo vel að fullt var í afgang sem nýttist til annarra góðra hluta. Prjónarnir voru hluti af þér og mikið af þér tekið þegar þú gast ekki prjónað sjölin þín og sjón- varpssokkana lengur vegna veik- indanna. Síðustu vikuna af ævi þinni hrakaði mömmu svo að hún ákvað að fylgja þér og ert þú í faðmi hennar og pabba núna. Þú safnaðir póstkortum í mörg ár og á hverju ári var tak- markið að slá út fyrra metið frá árinu áður. Það var skrítið að fara til útlanda eftir fráfall þitt og senda ekkert kort, best hefði nú samt verið að hafa bara bréfalúgu við leiðið þitt og getað sent þér þau áfram, þér hefði ekki þótt það leiðinlegt. Elsku stóra systir, við segjum að lokum „love you“ eins og þú sagðir svo oft þegar þú kvaddir að loknu símtali. Minning þín er ljós í lífi okkar. Þínar „litlu“ systur, Fanney og Heiður Huld. Þorbjörg Elín Fríð- hólm Friðriksdóttir HINSTA KVEÐJA Amma mín, ég elska þig svo mikið og ég vildi alls ekki að þú myndir deyja. Þú varst alltaf svo góð við mig. Afi saknar þín mikið. Þinn Daníel. Hafsteinn tengdafaðir minn lést eftir stutta en stranga bana- legu mánudagskvöldið 26. sept. sl. Hann átti rúmlega 3 vikur í að verða 79 ára gamall. Hann hafði greinst með krabbamein fyrir hálfu ári og síðustu vikurnar reyndust honum erfiðar en eng- inn átti þó von á að endalokin yrðu svo snögg. Hafsteinn var heldur ekki maður sem gafst upp, hann var harður af sér og dugleg- ur og ákaflega hraustur. Varð varla misdægurt. En enginn sigr- ar örlögin eins og við erum reglu- lega minnt á. Ég kynntist Hafsteini fyrst heima í Hraunbæ, þar sem fjöl- skyldan átti fallegt heimili. Hann kom mér fyrir sjónir sem ábyrg- ur og traustur heimilisfaðir og ég minnist þess að hann vildi vita hvaðan ég væri og hverra manna, því Hafsteinn hafði mikinn áhuga á fólki og sögu. Hann tók mér af- skaplega vel frá fyrstu tíð og hef- ur alltaf reynst okkur Knúti Sölva og fjölskyldunni vel. Það var gott að leita til hans ef eitt- hvað bjátaði á, því hann var bón- góður. Minningarnar safnast upp og af mörgu að taka. Flestar tengj- ast þær góðum stundum þar sem fjölskyldan er saman, börn Haf- steins og Kollu og barnabörn, á ferðalögum, í bústað, í afmælum og á hátíðum. Alltaf voru þau stólparnir sem stóðu upp úr og yngri kynslóðin í kringum þau. Hafsteinn var því gæfumaður í sínu einkalífi, kynntist Kolbrúnu sinni ungur, innan við tvítugt, og saman hafa þau fetað lífsveginn í yfir hálfa öld. Missir Kollu er því mikill og söknuður fjölskyldunn- ar einnig. Hafsteinn var gestris- inn og vildi hafa börnin sín og barnabörn í kringum sig. Hafsteinn var mikill verkmað- ur og allt lék í höndunum á hon- um. Meðan þau bjuggu í Grund- arási átti Hafsteinn stóran bílskúr sem var nánast eins og verkstæði. Þar urðu ófáir bílarnir að glæsivögnum. Einna minnis- stæðust er vínrauða Volkswagen- bjallan sem ætluð var heimasæt- unni á bænum. Hún var nánast eins og Barbiebíll þegar Haf- steinn var búinn að föndra við hana. Þarna var Hafsteinn öllum stundum eftir vinnu, alltaf með einhver verkefni. Síðar fluttu þau hjónin alla leið suður í Garðabæ, en höfðu alltaf búið innan marka Reykjavíkur. Þá missti Hafsteinn skúrinn svo nú varð að finna eitthvað sem hann gæti haft sér til starfa, fyrir utan vinnuna við tryggingarnar. Þá kom fjölskyldan sér upp sum- arbústað austur við Heklurætur, í Landsveitinni. Segja má að það hafi verið mikið gæfuspor því þar undu þau sér vel tengdaforeldrar mínir. Þar var Hafsteinn í essinu sínu, sístarfandi, eftir að upp- byggingu lauk tók við eðlilegt viðhald og svo varð að græða upp hraunlandslagið í kringum bú- staðinn. Þarna eru ófá handtök Hafsteins en þau voru unnin af gleði og áhuga. Enda ber bústað- urinn og hans umhverfi vott um þá eljusemi sem þar hefur verið viðhöfð. Minnismerkin um lífsstarf tengdaföður míns eru því víða og segja má að hann geti því sofnað Hafsteinn Sölvason ✝ HafsteinnSölvason fædd- ist í Reykjavík 17. október 1932. Hann andaðist á Land- spítalanum við Hringbraut 26. september 2011. Hafsteinn var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 4. október 2011. svefninum langa „sæll af sínum verk- um“. En fjölskyldan mun halda því verki áfram og við erum sæl að geta látið all- ar góðu minning- arnar um “afa Haffa“ verma okkur um ókomna tíð. Blessuð sé minning Hafsteins Sölvason- ar. Eygló Eiðsdóttir. Ég hefði ekki trúað því að það ætti eftir að verða í síðasta skipt- ið sem ég sæi afa minn þegar við kvöddumst einn eftirmiðdag í ágúst á Garðatorginu. En mikið er ég feginn að hafa framlengt veru mína á Íslandi um nokkra daga og átt þessa stund með afa mínum og ömmu. Afi lá í sófanum og hvíldi sig en var í góðu skapi. Við borðuðum ís, uppáhaldið okk- ar beggja, og hann reytti af sér sögur eins og honum einum var lagið. Æskuminningarnar um afa í Grundarási eru svo skýrar. Barnshugurinn var fullur eftir- væntingar þegar heimsækja átti afa og ömmu. Það var sérstak- lega bílskúrinn hans afa sem heillaði; þar var Willys-jeppinn, sem afi dekraði við, kassabíllinn, sem vakti aðdáun flestra barna og reiðhjól af öllum stærðum og gerðum. Afi lá vanalega undir bíl og dyttaði að þegar við komum í heimsókn. Hann tók alltaf hlý- lega á móti manni og opnaði lítinn ísskáp þar sem hann geymdi súkkulaði í dós, og stundum átti hann jafnvel kók í gleri. Hann spurði síðan oftast hvernig okkur Þrótturum gengi. Sjálfur hélt hann með Ármanni. Það þótti mér óskiljanlegt, þeir voru varla með fótboltalið. En þetta var sjálfsagt málamiðlun því ekki mátti gera upp á milli barna- barnanna. Afi var einstaklega barngóður og kunni að skemmta barnabörn- um sínum. Hann stóð fyrir ein- hverjum stærstu upplifunum barnæsku minnar. Ég gæti nefnt vélsleðaferðirnar við Rauðavatn og á Hellisheiði, rakettukaupin fyrir gamlárskvöld og klesstu bíl- ana í Skipholti sem vöktu jafnt gleði og spennu. Ég minnist líka með hlýju þegar við tveir fórum í veiðiferð í Þjórsá og komum heim til ömmu færandi hendi. Hann náði líka að töfra fram undrun mína og hrifningu á tán- ingsaldrinum. Ég gleymi t.a.m. aldrei þegar hann rétti mér lykla að Subaru í einni heimsókninni í Grundarás og spurði: „Langar þig ekki í bíl?“ Hann hafði að sjálfsögðu haldið þessu leyndu fyrir mér þær vikur sem bíllinn var inni í bílskúr og gerður öku- fær. Spurningin kom því flatt upp á mig en ég var ekki lengi að svara. Kassabíllinn sem ég var öf- undsverður af var nú orðinn al- vörubíll. Það voru fáir mennt- skælingar sem gátu státað af að eiga einn fjórhjóladrifinn á þess- um aldri. Ævintýraheimurinn varð seinna meir sumarbústaðurinn Látalæti í Landsveitinni við ræt- ur Heklu. Þar lék afi við hvern sinn fingur og þar þótti honum best að vera. Þau voru alltaf góð heim að sækja, amma og afi í Látalæti, og heimsóknirnar reyndust gulls ígildi fyrir mig, langþreyttan námsmanninn frá Danmörku. Heimþrá og þreyta hurfu í samvistum við þau, nátt- úruna og ilminn af nýbökuðu brauði og vöfflum. Ég kveð afa minn með söknuði en mun alltaf minnast hans og hversu góður, hjálpsamur, trygg- ur og trúr hann var. Kári. ✝ Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar- heimilisins Ljósheima fyrir frábæra umönnun og vináttu í garð Guðrúnar. Jóna S. Sigurðardóttir, Guðmundur V. Þorkelsson, Ragnheiður B. Sigurðardóttir, Theodór Vilmundarson, Sigurður Júníus Sigurðsson, Hjördís Gunnlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.