Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 ✝ ÞorvarðurMagnússon var fæddur við Jófríð- arstaðaveg í Hafn- arfirði 19. maí 1927. Hann lést á líknardeild Land- spítalans á Landa- koti 26. september 2011. Foreldrar hans voru Þóra Þorvarð- ardóttir, húsmóðir í Hafnarfirði og Krýsuvík, f. 4. september 1884, d. 7. júní 1957, og Magnús Ólafsson, bóndi í Krýsuvík, f. 9. september 1872, d. 10. október 1950. Systkini Þorvarðar eru Ólafur Markús Magnússon, f. 9. sept- ember 1917, d. 15. október 2004, Sigurður Kristinn Magnússon, f. 3. febrúar 1919, d. 2 apríl 1919, Guðmundur Miðdal Magnússon, f. 2. september 1921, d. 27. febr- úar 1975, og Guðbjörg Magn- úsdóttir Flygenring, f. 19. jan- úar1924. Hálfsystir samfeðra, Guðný Ólöf Magnúsdóttir, f. 26. nóvember 1908, d. 4. júní 1990. 21. desember 1981, og Helgu, f. 7. desember 1985. 5) Þorvarður Árni, f. 6. nóvember 1964, kvæntur Önnu Dagbjörtu Her- mannsdóttur, f. 6. apríl 1968, og eiga þau tvö börn, Magneu Krist- ínu, f. 26. mars 1996, og Ólaf Árna, f. 18. nóvember 1998, frá fyrra hjónabandi á Þorvarður Árni Björn Lyse, f. 17. júní 1991. Þorvarður ólst upp á Hamr- inum í Hafnarfirði hjá móður sinni í nágrenni við fjölskyldu hennar og vini. Sem ungur drengur fór hann í sveit að Höfða í Biskupstungum. Þor- varður og Áslaug ólust upp og bjuggu allan sinn búskap í Hafn- arfirði, lengst af á Álfaskeiði 71. Þorvarður nam húsasmíðar hjá Steingrími Bjarnasyni bygg- ingameistara og lauk iðnnámi 1947. Fyrstu árin starfaði hann hjá Steingrími og bygginga- félaginu Þór í Hafnarfirði en frá árinu 1954 starfaði hann á eigin vegum við húsasmíðar, fyrst í samstarfi við bróður sinn Ólaf. Áslaug og Þorvarður hófu störf í ullariðnaði og stofnuðu fyr- irtækið Icesheep árið 1976 og unnu við það þar til þau létu af störfum. Útför Þorvarðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 6. október 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Þorvarður kvæntist hinn 11. júní 1949 Áslaugu Einarsdóttur, f. 1. apríl 1926, frá Hafnarfirði. For- eldrar hennar voru Helga Þorkelsdóttir húsmóðir, f. 30. des. 1894, d. 25. okt. 1977, og Einar Ein- arsson klæðskeri í Hafnarfirði, f. 13. des. 1893, d. 16. des. 1976. Börn Þorvarðar og Áslaugar eru: 1) Sigurður, f. 14. desember 1950, kvæntur Vigdísi Victorsdóttur, f. 15. september 1950, og eiga þau tvö börn, Victor Þór, f. 20. mars 1969, og Áslaugu, f. 22. febrúar 1977. 2) Guðríður, f. 18. desember 1952. 3) Óskírður drengur, f. 3. mars 1955, d. 3. apríl 1955. 4) Þóra, f. 8. júní 1957, og á hún 3 börn, Ólaf Þór, f. 22. janúar 1976, hans kona er Kristbjörg Hólmfríður Sig- urgísladóttir, f. 21. febrúar 1975, dóttir þeirra er Sandra Dögg, f. 7. desember 2005, Árna Heimi, f. Elsku pabbi, nú þegar bar- áttunni er lokið við erfiðan sjúkdóm er komið að kveðju- stund. Við stöndum eftir með tómarúm í hjarta og skarð í fjölskyldunni. Minningarnar streyma fram í hugann. Þú varst okkur svo góður, hlýr og mikill félagi. Fyrstu minningar mínar tengjast því þegar þú og mamma unnuð hörðum höndum við að byggja okkur hús á Hval- eyrarbrautinni. Einhverra hluta vegna tengjast minningarnar húsbyggingum framar öðru, flestar frístundir tengdust vinnu við heimilið. Minningar tengjast líka heimsóknum til ættingja á Hamrinum og Aust- urgötunni. Ég minnist þess sem ungur drengur að fá að vera með þér á byggingastöðum eins og Dröfn og Rafha. Ég var svo lánsamur að fá að starfa með þér þegar ég steig mín fyrstu spor í atvinnulífinu og naut þar leiðsagnar þinnar. Ég kynntist samstarfsmönnum þínum og vinum, þetta litla samfélag sem Hafnarfjörður var á þessum tíma var á svo persónulegum nótum, þínir vin- ir urðu mínir vinir, allir vildu þeir leggja mér til góð ráð. Mál- in þróuðust þannig að okkar blómaskeið í byggingariðnaðin- um var þegar Norðurbærinn byggðist. Frá þeim tíma eru minningar um kappsama og ánægða vinnufélaga sterkastar. Mikil var gleði þín þegar barnabörnin fæddust og nutu þau þess að eiga ykkur að. Þau eru ófá skiptin þegar þau fóru með ykkur mömmu í ferðalag um landið. Að ferðast um landið voru þínar ær og kýr. Við systkinin nutum þess sem börn að ferðast með ykkur mömmu, það erfiðasta var að vegna vinnu þinnar var fyrirvari á ferðalögum stuttur. Frægt var þegar þú komst heim á hádegi og kallaðir til mömmu: „Áslaug, ég get tekið mér vikufrí, eigum við ekki að fara norður?“ Minningin um 50 ára afmælið þitt sækir á, ég var á síðasta ári í námi í Horsens og Áslaug ný- fædd, þið komuð út til okkar og við héldum upp á afmælið og skírn Áslaugar í sömu veislunni. Það varð okkur öllum mikið áfall þegar veikindi þín komu í ljós, þú sem alltaf hafðir verið svo hraustur máttir nú takast á við parkinsonsjúkdóminn sem hefti þig þannig að þú varðst öðrum háður. Mamma reyndist þér sem áður stoð og stytta og með dyggri aðstoð hennar og heimahjúkrunarinnar í Hafnar- firði var þér gert kleift að vera heima á Álfaskeiðinu lengur en nokkurn mann gat grunað, vilj- um við þakka þá aðstoð sem þér var veitt. Síðasta mánuðinn þegar veik- indin ágerðust og stundin nálg- aðist, sýndir þú áhuga þinn á þínum nánustu. Þú spurðir frétta af barnabörnunum, hvort Viktor væri að vinna við húsið sitt eða hvort við hefðum farið eitthvað. Hugurinn hvarflaði oft til fyrri tíma, þegar þú sem ungur drengur fórst og vitjaðir föður þíns í Krísuvík, sögur af þér í mjólkurflutningum og hey- skap á Höfða eða þegar þú sem ungur maður vannst við vega- gerð við Keflavíkurveginn. Þú barst veikindi þín með mikilli hetjulund og vildir ekki íþyngja öðrum með byrðum þín- um. Elsku mamma, hugur okkar er hjá þér ekki síður en hjá pabba. Söknuðurinn er mikill eftir langt hjónaband en við er- um til staðar fyrir þig. Minning pabba lifir í hjörtum okkar allra. Hvíl í friði, elsku pabbi. Sigurður og Vigdís. Elsku pabbi – nú þegar við kveðjum þig birtast minningar um góða daga sem við höfum átt og sögurnar sem þú sagðir okkur frá æsku þinni í Hafn- arfirði og Krýsuvík rifjast upp. Hugur þinn leitaði oft til Krýsu- víkur og þú þreyttist aldrei á að fræða okkur um lífsbaráttuna þar, rifjaðir upp atburði úr dag- lega lífinu, ásamt menningu, náttúrufari og jarðskjálftum. Sögur kunnir þú af Tyrkjarán- inu og bentir á örnefni í Krýsu- vík sem þeim ósköpum tengd- ust. Mér er afar minnisstætt þeg- ar ég hafði lokið stúdentsprófi hve stolt þið mamma voruð og að sjálfsögðu hvöttuð þið mig til áframhaldandi náms. Ekki var minna stoltið, ánægjan og hvatningin þegar ég hugði á framhaldsnám í Kanada að loknu grunnnámi í landafræði við Háskóla Íslands. Þau tvö ár sem ég dvaldi þar við nám hlakkaði ég alltaf til að heyra fréttir að heiman og skiptu mig afar miklu máli reglubundnar símhringingar ykkar til mín. Elsku pabbi – þið mamma voruð mér alla tíð miklir vinir og nutum við samvista hér heima og erlendis. Við nutum þess að ferðast saman bæði inn- anlands og utan og nýttum vel þann tíma, þegar ég dvaldi í Skotlandi við vinnu hjá Scottish Natural Heritage, til að ferðast um Bretland. Þar kynntust þið einnig vinum mínum, góðu fólki sem hefur heimsótt okkur. Ég minnist margra ferða um land- ið. Í einni ferð um Norður- og Austurland hafðir þú mikinn áhuga á að fræða yngsta barna- barnið um mikilvægi síldveið- anna þegar við sóttum heim Síldarminjasafnið á Siglufirði. Einnig um stríðsárin hér á landi og í Evrópu þegar við skoð- uðum Stríðsminjasafnið á Reyð- arfirði. Ég hafði þá á orði við þig að Ólafur Árni væri nú helst til ungur fyrir þennan fróðleik en ekki varst þú sammála því, enda hlustaði hann af miklum áhuga á þig og spurði svo; en afi, af hverju voru mennirnir í stríði? Það var þér mikils virði að fjölskyldan væri samhent og settuð þið mamma okkur ætíð í forgang. Þú hafðir mikla ánægju af því að fá alla fjöl- skylduna heim og halda okkur veislu. Ég naut þeirra forrétt- inda að fá að vera með í und- irbúningi, m.a. í innkaupunum og var það ævintýri út af fyrir sig. Oft kom ég með vini heim til ykkar og alltaf var þeim vel tekið, enda voruð þið mamma höfðingjar heim að sækja. Elsku mamma, nú kveðjum við pabba eftir langvinn og erfið veikindi, en minning okkar um sterkan, traustan, hlýjan og ást- kæran föður lifir. Guðríður. Elsku afi, ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þær eru margar minningarn- ar sem rifjast upp við þessi tímamót. Skemmtilegar þóttu mér gönguferðirnar í nágrenni Hafnarfjarðar sem við barna- börnin fórum með ykkur ömmu. Þá var það ekki bara útivist heldur líka hafsjór af fróðleik sem við fengum frá þér um svæðið. Að fá að vera með á byggingasvæðum, naglhreinsa og stússast með þér og pabba þótti mér mjög skemmtilegt og ekki síður að vera með ykkur ömmu á saumastofunni. Sér- staklega þótti mér vænt um þegar þið amma komuð og heimsóttuð mig til Danmerkur ásamt mömmu og pabba. Ég mun ætíð geyma minn- inguna um góðan afa í hjarta mínu. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þitt barnabarn, Áslaug. Margs er að minnast við kveðjustund og margt kemur upp í huga manns. Ég naut þess að vera elsta barnabarn Þor- varðar og Áslaugar. Fyrstu minningar mínar af afa mínum eru frá Álfaskeiðinu, þar sem afi og amma hafa búið frá því ég man eftir mér. Álfa- skeiðið var fjórða húsið sem afi og amma reistu yfir fjölskyldu sína og jafnframt sá staður þar sem þau bjuggu lengst. Ég man eftir því þegar við fórum í sum- arbústaðinn í Höfnunum og hvað þér þótti alltaf vænt um Krýsuvík. Voru þeir margir bíl- túrarnir sem farnir voru til Krýsuvíkur. Þangað hafðir þú farið áður fyrr, gangandi, á hestbaki eða á hjóli. Þú hafðir sterkar taugar þangað og tal- aðir oft um hvernig lífið hefði verið þar áður fyrr. Það var alltaf gaman að fá ykkur ömmu í heimsókn til Danmerkur þegar ég bjó þar. Lengst af starfsferils síns vann afi minn sem bygginga- meistari. Ég man þegar afi og pabbi byggðu á Suðurvangi, Hjallabrautinni og á Breiðv- angi. Ég man hvað mér á barnsaldri, fannst þeir oft þreyttir þegar þeir komu heim eftir byggingavinnuna. Svo tók við rekstur á saumastofu í kjall- aranum á Álfaskeiðinu, þar sem afi og amma störfuðu saman í fjölmörg ár. Gott var að koma þar við og drekka te með þeim og spjalla um allt milli himins og jarðar. Eitt fyrsta starf mitt var byggingavinna hjá þér í Bæj- arhrauninu. Þar var alltaf allt í föstum skorðum. Aldrei klikkaði það, þegar við Árni vorum bún- ir með eitthvert verkefni, varst þú tilbúinn með næsta verkefni handa okkur. Það var ómetan- legur skóli fyrir mig, að fá að kynnast þeim aðferðum, sem þú hafðir tileinkað þér við bygg- ingu húsa. Þegar ég sló upp mínu eigin húsi notaði ég að sjálfsögðu sömu aðferðir og þú hafðir notað í áratugi og ég hafði lært hjá þér og pabba. Kveð þig með söknuði, kæri afi. Þinn, Viktor Þór. Þorvarður Magnússon ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR BLÖNDAL frá Siglufirði, andaðist á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi að morgni miðvikudagsins 28. september. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. Ólöf Birna Blöndal, Sveinn Þórarinsson, Jósep Ó. Blöndal, Erla Harðardóttir, Ásbjörn Ó. Blöndal, Jóhanna Guðmundsdóttir, Sigurður Ó. Blöndal, Linda Björk Guðmundsdóttir, Guðrún Ó. Blöndal, Friðrik Jón Arngrímsson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, BJÖRGVIN SIGURÐSSON, Miðbraut 21, Vopnafirði, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 29. september, verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 8. október kl. 14.00. Kári Sigurðsson, Brynja M. Pálmadóttir, Lilja Sigurðardóttir, Ásgeir Ingvason, Þorsteinn S. Sigurðsson, Unnur M. Sigurbjörnsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og sambýliskona, THEÓDÓRA G. GUNNARSDÓTTIR, Vesturbergi 140, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni þriðjudagsins 4. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gunnar Georg Smith, Ingibjörg Jensdóttir, Ásbjörn Ketill Ólafsson, Guðný Ósk Ólafsdóttir, Kristinn Kristinsson, Kjartan Þór Ólafsson, Sigrún Sif Kristjánsdóttir,Helgi Alexander Sigurðsson, Gunnar Loftsson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, HAUKUR ÞORSTEINSSON, Bláskógum, Sólheimum, Grímsnesi, áður til heimilis á Faxabraut 33b, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 3. október. Útför fer fram í kyrrþey að ósk aðstandenda. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Sólheima. Svanhvít Þorsteinsdóttir, Karl Einarsson, Elínborg Þorsteinsdóttir, Sigurjón Skúlason, Valgerður Þorsteinsdóttir, Sæmundur Pétursson, Bára Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Lúðvík Finnsson, Jónína Þorsteinsdóttir, Peter W. Giedras, Erla Þorsteinsdóttir, Þorgeir Óskarsson, Jónas Þorsteinsson, Ásdís Júlíusdóttir. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR SIGURÐSSON SVAVARSSON, Suðurgötu 18b, Sauðárkróki, lést á heimili sínu þriðjudaginn 27. septem- ber. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 8. október kl. 11.00. Sigrún G. Halldórsdóttir, Magnús Sverrisson, Ásta P. Ragnarsdóttir, Jóhann M. Sverrisson, Leidy Karen Steinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri JÓNATAN SIGURÐSSON frá Hólmavík, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstu- daginn 30. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 10. október kl. 13.00. Vilborg Birgisdóttir, Unnsteinn Marvinsson, Eygló Birgisdóttir, Auðunn Leifsson, Sigurbjörg Birgisdóttir, Arnar Tryggvason, Steinlaug Birgisdóttir, Gunnar Kristjánsson, Guðrún Birgisdóttir, Eyjólfur Ólafsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.