Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 34
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar hafa verið veitt frá árinu 1994 í minningu Tóm- asar. Frá árinu 2004 hafa þau verið veitt árlega og einungis fyrir óprentað handrit að ljóða- bók. Verðlaunahafar 2010 Þórdís Gísladóttir Leyndarmál annarra 2009 Eyþór Árnason Hundgá úr annarri sveit 2008 Magnús Sigurðsson Fiðrildi, mynta og spör- fuglar Lesbíu 2007 Ari Jóhannesson Öskudagar 2006 Ingunn Snædal Guðlausir menn – hug- leiðingar um jökulvatn og ást 2004 Auður Ólafsdóttir Rigning í nóvember 2002 Sigurbjörg Þrastardóttir Sólar saga 2000 Hjörtur Marteinsson AM 00 1998 Bjarni Bjarnason Borgin bak við orðin 1997 Elín Ebba Gunnarsdóttir Sumar sögur 1994 Helgi Ingólfsson Letrað í vindinn – sam- særið Í minningu Tómasar VERÐLAUN FRÁ 1994 34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 Alþjóðleg ljóðahátíð verður sett í dag í Nor- ræna húsinu og stendur fram á laugardag. Á hátíðinni, sem er nú haldin í sjöunda sinn, verður boðið upp á ljóðaupplestur og pall- borðsumræður sem innlend og erlend skáld taka þátt í ásamt ýmsum fjöllistamönnum. Dagskráin fer fram í Norræna húsinu og á Nýlistasafninu og boðið er upp á ljóðlist, tón- list, myndlist, leiklist og sviðslist. Hátíðin er haldin af Nýhil í samstarfi við S.L.Á.T.U.R. (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverf- is Reykjavík) . Erlendir gestir á hátíðinni verða franska sjónlista- og sviðslistaskáldið Anne Kawala, kanadíska skáldið Gary Barwin, finnska skáldið Marko Niemi og sænska skáldkonan Monica Aasprong. Einnig koma fimmtán ís- lensk ljóðskáld fram á hátíðinni; Arngrímur Vídalín, Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Elías Knörr vs. Elías Por- tela, Guðbrandur Siglaugsson, Hekla Helga- dóttir, Ingólfur Gíslason, Jón Bjarki Magn- ússon, Jón Örn Loðmfjörð, Klara Arnalds, Kristín Svava Tómasdóttir, Páll Ivan, Ragn- hildur Jóhannsdóttir, Þórdís Björnsdóttir, og Þórdís Gísladóttir. S.L.Á.T.U.R. félagarnir Áki Ásgeirsson, Þorkell Atlason, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Davíð Brynjar Franzson og Hallvarður Ásgeirsson Herzog koma einn- ig fram. Eiríkur Örn Norðdahl, Marta Guð- rún Jóhannesdóttir, Bjarni Þórisson og Kári Páll Óskarsson þýddu ljóð erlendu skáld- anna. Kynnar á hátíðinni verða Björk Þor- grímsdóttir og Valur Brynjar Antonsson, en Angela Rawlings annast listræna stjórn há- tíðarinnar. Hún er kanadískt skáld og fjöl- listamaður sem kom fyrst til Íslands í boði ljóðahátíðarinnar árið 2007 og hefur síðan komið til landsins árlega og tekið þátt í ýms- um listviðburðum. Alþjóðleg ljóðahátíð í sjötta sinn Gary Barwin  Hátíð ljóðlistar, tónlistar, myndlistar, leiklistar og sviðslista sett í dag í Norræna húsinu  Fimmtán íslensk ljóðskáld koma fram auk skálda frá Frakklandi, Kanada, Finnlandi og Svíþjóð Angela Rawlings Marko Niemi Monica Aasprong Anne Kawala Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Sindri Freysson tók við Bókmennta- verðlaunum Tómasar Guðmunds- sonar í Höfða í gær fyrir ljóðabókina Í klóm dalalæðunnar. Fyrsta skáld- saga Sindra, Augun í bænum, hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax- ness árið 1998 og ljóðabók sem hann gaf út ári seinna fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sindri gaf út yfirgripsmiklar skáldsögur, Flóttinn og Dóttur mæðra minna árin 2004 og 2009, en hann hefur þó aldrei hætt alveg að yrkja ljóð og ljóðabók hans Ljóð- veldið Ísland vakti þónokkra athygli árið 2009. Aðspurður hvað verðlaun- in þýði fyrir hann, svarar Sindri að þetta þýðir „bönns af monní,“ og hlær. „Þannig orðaði Megas þetta þegar hann var spurður sömu spurn- ingar við afhendingu verðlauna Jón- asar Hallgrímssonar á Degi íslenskr- ar tungu. Í því hressilega svari býr sannleikskorn. Verðlaunaféð skiptir óneitanlega máli því að ljóðabækur seljast yfirleitt í hógværum upp- lögum og eru ekki skrifaðar eða gefnar út af gróðavon, um það eru rithöfundar og útgefendur yfirleitt sammála. Það er því fagnaðarefni fyrir höfund að fá lítilsháttar verald- lega umbun fyrir ljóðagerð. Um leið eru verðlaun og sambærilegar við- urkenningar ævinlega listamönnum hvatning til að vanda áfram til verka og viðhalda metnaði við sköpunina. Það er öllum manneskjum nauðsyn- legt að fá pepp og búst fyrir störf sín annað slagið. Verðlaun af þessu tagi minna fólk líka á að ljóðið er virkur þátttakandi í bókmenntunum og að allar bölspár um krankleika þess og feigð eru tóm þvæla.“ Aðspurður hvað Í klóm dalalæð- unnar fjalli um segir hann hana vera málverk í orðum af jörð sem sé að finna norður í Aðaldal. „Þetta er nokkurskonar lofgjörð til þessa rúm- lega lófastóra bletts af landinu,“ seg- ir Sindri. „Hún hefst á ferðalagi norður og síðan þegar komið er á áfangastað vefjast saman myndir og hugmyndir, minningar og náttúra. Fyrri ljóðabækur mínar hafa hringsnúist um Reykjavík og útlönd, næturkalsa og vafasama staði, en núna leyfði ég náttúrunni að klófesta mig, þvert á það sem ég ætlaði mér. Tónninn er gjörólíkur fyrri verkum. Ef seinasta ljóðabók, Ljóðveldið Ís- land, var ákæruskjal á hendur þeim sem sökktu okkur og sundruðu, þá er Í klóm dalalæðunnar blíðlegt faðm- lag handa sokkinni og sundraðri þjóð. Ef Ljóðveldið var reiðiöskur þá er Dalalæðan ástarjátning. Bók til að minna á mörg fínlegustu og falleg- ustu verðmæti tilverunnar. Bók til að láta lesandanum líða vel. Sáluhjálp- arbók, ekki sjálfshjálparbók. Bók sem bætir sálarástandið og líðanina – ég held fjandakornið að hún geti líka bætt kynlíf þjóðarinnar …“ Ástæða þess að Sindri valdi þessa jörð sem yrkisefni er sú að hún er í eigu fjölskyldu hans og nefnist Hagi í Aðaldal. „Þangað fer ég til að skrifa og veiða,“ segir Sindri. „Ég reyni að dvelja þarna samtals í kringum tvo mánuði á hverju ári, vinnufriðurinn er góður og umhverfið brilljant. Ég fylgi ákveðinni rútínu við skrifin, hluti af ferlinu er góður göngutúr um landið og hver gönguferð er upp- götvun. Ég held að umskiptin sem felast í að fara úr borg í sveit hristi upp í kimum hugans og geri mann talsvert næmari fyrir sérkennum náttúru og landslags en sá sem hefur þar fast aðsetur. Smám saman hafa sankast að mér ljóð sem tengjast svæðinu og því má alveg eins segja að efnið hafi valið mig. Þetta er heillandi svæði, nokk- urs konar míkrókosmos, smá- veröld sem skírskotar langt út fyrir sjálfa sig.“ Sáluhjálparbók, ekki sjálfshjálparbók Morgunblaðið/Sigurgeir S. Verðlaun Sindri Freysson tekur við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar í Höfða.  Sindri Freysson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar  „Bók til að minna á mörg fínlegustu og fallegustu verðmæti tilverunnar“ Tómas Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.