Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 Ástin innsigluð í París Undanfarið hefur verið afar vinsælt meðal elskenda í París að innsigla ást sína með því að festa hengilás með nöfnum parsins á handrið göngubrúa yfir Signu og fleygja lyklunum í ána. Helst verða fyrir valinu Passerelle Léopold-Sédar-Senghor, Pont de l’Archevêché og Pont des Arts þar sem þessi mynd er tekin. Ómar Ég hlusta ekki á eldhúsdags- umræðurnar á Alþingi en tók samt eftir orðum forsætisráð- herra, þegar hún sagði að „rík- isstjórnin telur að bankarnir þurfi að leggja meira af mörkum til samfélagsins og uppgjör þeirra sýna að þeir eru svo sann- arlega aflögufærir“. Það er full ástæða til þess að krefja bankana um skuldaskil en ég hef meiri áhyggjur af að í stað þess að bankarnir séu aflögu- færir, þá muni tjón skattborgara vaxa við ennþá meiri og handahófskennda skattlagn- ingu á fjármálastofnanir. Ríkið situr beggja vegna borðs við skatt- lagninguna, því ríkið er jafnframt lang- stærsti hluthafinn og hefur lagt um 190 millj- arða í formi hlutafjár og víkjandi lána til viðskiptabanka og sparisjóða. Ef stuðst er við svipuð markaðsverðgildi og hjá bönkum í Skandinavíu má áætla að ríkið fái 25 millj- örðum minna fyrir hlutinn nú og frekari skattlagning eykur síður en svo verðgildið. Það er rétt að bókfærður hagnaður bank- anna er mikill, en ennþá er gríðleg óvissa um innheimtur útlána og að stærstu leyti stafar hagnaðurinn af fortíðaruppgjöri og alltof háum vaxtamun. Hagnaðurinn byrgir þá sýn að kostnaðurinn er alltof mikill og það gildir bæði um bankakerfið sjálft og eftirlitsiðn- aðinn á bak við kerfið. Varðandi úrbætur virðist það alltaf gleym- ast að bankar hafa það mikilvæga hlutverk að miðla fjármagni frá innlánseigendum og til arðsamra verkefna. Fjármagn er hreyfiafl breytinga og verðmætasköpunar og bankar þurfa að verðmeta áhættuna rétt og veita lánsfé til arð- samra verkefna. Augljóst er að áhættumatið var rangt fyrir hrun þegar alltof ódýru lánsfé var dælt út með alltof veikum tryggingum, en núna vantar að starfandi fyrirtæki fái eðli- lega rekstrarfyrirgreiðslu og að fyrirtæki og einstaklingar með arðsöm og góð verkefni hafi aðgang að lánsfjármagni á viðunandi kjörum. Það er augljóst af fjölmörg- um dæmum sem ég hef skoðað að vinnu- brögð banka einkennast ennþá af ákvörð- unarfælni og alltof stífum tryggingarkröfum. Gangverk fjármálakerfisins vinnur af þeim sökum á takmörkuðum afköstum og fyrir vikið eru bankarnir, ef notuð eru orð banka- stjóra Landsbankans, „stútfullir af pen- ingum“. Þörf er á mikilli bót og bankarnir og stærsti eigandinn þurfa að gera betur. Eftir Karl Þorsteins »Það er rétt að bókfærður hagnaður bankanna er mikill, en ennþá er gríðarleg óvissa um innheimtur útlána og að stærstu leyti stafar hagn- aðurinn af fortíðaruppgjöri og alltof háum vaxtamun. Karl Þorsteins Höfundur hefur víðtæka reynslu á fjármála- markaði og er starfandi stjórnarformaður Quantum ehf. Bankarnir og stærsti eig- andinn þurfa að gera betur Ragnar Önund- arson hefur á síðustu fjórum vikum skrifað að minnsta kosti þrjár greinar í Morg- unblaðið um aðkomu okkar undirritaðra að Húsasmiðjunni fyrir tæpum 10 árum. Að auki ber hann þungar sakir á konu annars okkar, Þorbjörgu Helgu Vigfús- dóttur borgarfulltrúa. Skrif Ragnars byggjast á miklum misskilningi. Í þeim fullyrðir Ragnar að við, sem hluthafar í Húsasmiðjunni, höf- um tekið fé út úr fyrirtækinu með ólögmætum og refsiverð- um hætti. Samkvæmt frásögn Ragnars keyptum við Húsasmiðjuna með engu eiginfjárframlagi og seldum síðan út allar fasteignir félagsins á miklu yfirverði með fulltingi vitorðsmanna í bönk- um. Ragnar segir síðan „… andvirði eignanna notuðu þeir strax til að greiða sjálfum sér stórfelldan arð“. Þetta olli því að Húsasmiðjan sligaðist undan skuldum og „féll í faðm“ Landsbankans skv. kenningu Ragnars. Þetta er allt saman rangt. Fasteignir Húsasmiðjunnar voru seldar árið 2002 á mark- aðsverði að fengnum tilboðum frá stærstu fasteignafélögum landsins. Allt söluandvirðið var nýtt til að greiða niður skuldir Húsasmiðjunnar. Enginn arður var greiddur út til okkar eins og Ragnar lýsir enda var slíkt óleyfilegt samkvæmt lánasamn- ingum félagsins. Þetta má glöggt sjá í ársreikningi Húsa- smiðjunnar fyrir árið 2002. Ragnar furðar sig á því af hverju Landsbankinn hafi ekki kært okkur til lögreglu fyrir meðferð okkar á Húsasmiðj- unni. Á því er einföld skýring. Landsbankinn fjármagnaði ekki kaup okkar á Húsasmiðj- unni og var ekki einu sinni við- skiptabanki félagsins þann tíma sem við vorum hluthafar. Hart- nær fimm ár liðu frá því að okkar afskiptum af Húsasmiðjunni lauk að fullu þar til hún lenti „í faðmi“ bankans eins og Ragnar orðar það. Skuldir félagsins voru þá fjórfalt hærri en þegar við seldum það í ársbyrjun 2005. Í millitíðinni ráku aðrir félagið en við. Engir opinberir sjóðir, eða nokkrir aðr- ir, hafa tapað fé vegna viðskipta okkar. Dylgjur Ragn- ars um að Þorbjörg Helga sé ,,… ekki eini stjórnmálamað- urinn sem hafi efnast vegna at- hafnasemi maka, á kostnað op- inberra sjóða eru því ekki einungis ósmekklegar heldur algjörlega tilhæfulausar. Ragn- ar gerir bæði stjórnmálastörf hennar og launalaust leyfi tengt fæðingarorlofi tortryggilegt og skorar á landsfund Sjálfstæð- isflokksins að taka hart á fólki af hennar sauðahúsi. Ragnar skuldar Þorbjörgu Helgu afsök- unarbeiðni. Ragnar Önundarson er ann- ars helst þekktur fyrir að hafa endað tölvupósta sína til keppi- nauta með orðunum „delete samdægurs“ þegar hann var forstjóri Kreditkorta hf. Við hvetjum lesendur Morg- unblaðsins til að fylgja þessum leiðbeiningum Ragnars þegar kemur að skrifum hans sjálfs. Eftir Hallbjörn Karlsson og Árna Hauksson »Engir opinberir sjóðir, eða nokkrir aðrir, hafa tapað fé vegna við- skipta okkar. Hallbjörn Karlsson Höfundar eru fjárfestar. Árni Hauksson „Delete samdægurs“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.