Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 8

Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 Líkt og Morgunblaðið greindifrá í gær er sú staða nú uppi að búið er að verja tugum milljarða króna í að auka framboð á raf- magni í landinu til að unnt sé að auka framleiðslu og skapa störf. Þrátt fyrir þetta hafa engin störf orðið til.    Ástæðan fyrirþessu er að hér á landi er ríkisstjórn sem ítrekað og með ýmsum hætti bregð- ur fæti fyrir byggingu þeirra fram- leiðslufyrirtækja sem hafa áhuga á og getu til að nota orkuna til at- vinnu- og verðmætasköpunar.    Ríkisstjórnin er hins vegar afaráhugasöm um að gera eitt- hvað annað við orkuna og allra helst auðvitað að gera eitthvað ann- að en að nýta orkuna.    Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra er til að mynda búin að skapa tugi þúsunda starfa í nokkrum ræðum sem hún hefur flutt á liðnum misserum. Sætir furðu að nokkur skuli vera eftir á atvinnuleysisskrá og að einhver hafi fundist til að lokka til Noregs, burt frá öllum þessum aragrúa starfa.    En vandinn við þessi eitthvað-annað-störf sem fjallað er um í ræðum ráðamanna nú um stundir er að þau eru hvergi til nema þar.    Því miður er það svo að enginnlifir af því að vinna þessi eitt- hvað-annað-störf og enginn fæðir og klæðir fjölskylduna eða kemur sér upp þaki yfir höfuðið með eitt- hvað-annað-störfum.    Breytir þá engu hversu margirtugir þúsunda þau eru eða hversu oft þeim er lofað. Eitthvað-annað- störfin STAKSTEINAR Veður víða um heim 5.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Bolungarvík 4 slydda Akureyri 1 rigning Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Vestmannaeyjar 4 skýjað Nuuk 2 léttskýjað Þórshöfn 7 skúrir Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 16 skýjað Stokkhólmur 13 léttskýjað Helsinki 11 heiðskírt Lúxemborg 17 skýjað Brussel 17 skýjað Dublin 16 skúrir Glasgow 15 léttskýjað London 18 skýjað París 18 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 17 skúrir Berlín 16 skúrir Vín 20 skýjað Moskva 11 heiðskírt Algarve 25 heiðskírt Madríd 30 heiðskírt Barcelona 25 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 18 heiðskírt Montreal 12 léttskýjað New York 17 heiðskírt Chicago 18 heiðskírt Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:51 18:42 ÍSAFJÖRÐUR 7:59 18:43 SIGLUFJÖRÐUR 7:42 18:26 DJÚPIVOGUR 7:21 18:11 Nýlega fékk Fríkirkjan í Reykjavík að gjöf tvo hátíðarhökla ásamt sex- stólum fyrir presta til að skrýðast. Sigurborg Bragadóttir formaður Kvenfélags Fríkirkjunnar, sem er elsta kirkjukvenfélag landsins, færði söfnuðinum gjöfina og sr. Hjörtur Magni Jóhannsson tók við henni fyr- ir hönd kirkjunnar. Kvenfélagið hef- ur gefið Fríkirkjunni flestalla henn- ar fegurstu gripi í 112 ára sögu hennar. Það var listakonan Margrét Árnadóttir kvenfélagskona, sem saumaði höklana. Safnaðarfélögum Fríkirkjunnar við Tjörnina hefur fjölgað stöðugt mörg undanfarin ár síðastliðið ár bættust 621 nýskráðir félagar við, samkvæmt upplýsingum frá kirkj- unni. Heildarfjöldi safnaðarfélaga fer nú brátt að nálgast tíunda þús- undið. Afhending Margrét Árnadóttir listakona og félagi í Kvenfélagi Fríkirkj- unnar, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar, sr. Bryndís Valbjarnardóttir aðstoðarprestur og Sigurborg Bragadóttir, formaður Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík. Fríkirkjan fær tvo hátíðarhökla að gjöf Björgunarfélag Hornafjarðar leysti síðdegis á þriðjudag tvö hreindýr sem voru föst í girðingu rétt ofan við Flatey á Mýrum. Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu að verkið hafi gengið vel þótt fara hafi þurft með ýtrustu varúð því eins og kunnugt er séu hreindýr stórar og stæðilegar skepnur. Sveitin hafi einnig farið í svipað verkefni í síðustu viku en þá hafi eitt dýr verið losað en annað hafi drepist í girðingunni. Sem standi sé vitað um sex hrein- dýr á svæðinu sem séu föst saman, tvö og tvö, í víraflækjum en þau séu á ferðinni og geti nærst. Fylgst sé með þeim en lítið er hægt að gera ef styggð kemur að þeim. Hornfirðingar bjarga hreindýrum Sími 568 5170 Sérfræðingur frá Dior kynnir Diorskin Forever farðann, nýja haustliti og nýtt J´adore edt. Falleg gjöf fylgir þegar keyptir eru 2 hlutir í Dior.* Verið velkomin. *Á meðan birgðir endast. Dior kynning í Glæsibæ 6.-8. október Rio Tinto Alcan í Straumsvík skrif- aði í gær undir kjarasamning við Verkamannafélagið Hlíf, VR, Raf- iðnaðarsambandið, VM og Fit. Samkomulagið við stéttarfélögin var undirritað hjá ríkissáttasemjara og hefst kynning meðal rúmlega 400 starfsmanna í dag. Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðar- maður starfsmanna Alcan á Íslandi, vildi ekki tjá sig um einstök samn- ingsatriði, en sagðist nokkuð ánægður með útkomuna. „Þetta er einn mesti jafnlaunasamningur sem til er í landinu, “ segir Gylfi. Lögreglumenn óþreyjufullir Steinar Adolfsson framkvæmda- stjóri Landssambands lögreglu- manna, segir að ákveðið verði nú í morgunsárið hvort haldinn verði fundur um kjaramál lögreglumanna í dag. Annars verður næsti fundur á mánudaginn. „Þetta þokast áfram. En menn eru orðnir óþreyjufullir og vilja fara að sjá nýjan samning. Aðaláherslan hjá okkur núna er á launaþáttinn og út- færslu á honum,“ segir Steinar. Hann segir lögreglumenn hvergi hafa hvikað frá kröfum sínum. Mik- ill vilji sé meðal lögreglumanna um að fá verkfallsrétt á ný, en hann var afnuminn árið 1986. Samið fyrir 400 manns hjá Alcan Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.