Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 16

Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011    Akureyringar og íbúar næstu sveita eiga von á góðu í kvöld og annað kvöld. Sá snjalli Elías Örn Guðmundsson, Mugison, kemur þá fram á Græna hattinum. Einir tón- leikar eru á dagskrá í kvöld og tvennir annað kvöld, vegna mikillar spurnar eftir miðum.    Mugison leikur gamalt og nýtt efni. Hann hefur jafnan slegið í gegn hér fyrir norðan, eins og annars staðar. Nýr diskur meistarans hefur fengið afar góða dóma og Mugison þótti frábær á tónleikum í Fríkirkj- unni á dögunum.    Á laugardagskvöld koma fram þrjár hljómsveitir á Græna hatt- inum, Spaceships are Cool og Yu- nioshi frá Bretlandi, og hin íslenska Bloodgroup sem ætlar að sýna á sér nýja hlið og spila órafmagnað, eða allt að því, eins segir í tilynningu.    Ýmsir gestir leika með Blood- group á þessum rafmagnslausu tón- leikum; Halldór Warén píanóleikari, fiðluleikararnir Roland Hartwell og Lin Wei, Helen Maddison víólueik- ari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari.    Bloodgroup kemur til Akureyr- ar frá Kína þar sem sveitin var á tónleikaferðalagi en hún hefur kom- ið fram á 70 tónleikum í 20 löndum á árinu.    Menningin er í hávegum höfð í höfuðstað Norðurlands um þessar mundir og verður eflaust í allan vet- ur. Margt var í boði um síðustu helgi og talið er að samtals um 5.000 manns hafi notið þess sem var í boði!    Einn af föstu punktunum að vetr- inum eru Föstudagsfreistingar í Ketilhúsinu. Boðið er upp á fyrstu freistingar haustsins á morgun kl. 12.00 þegar Einar Clausen tenór og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja sönglög eftir Sigfús Hall- dórsson í bland við ítalskar perlur. Tónlistarfélag Akureyrar heldur samkomurnar í samstarfi við menn- ingarmiðstöðina í Listagili og Goya Tapas bar. Auðvelt að velja lið ársins Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Liður ársins Jóhann Helgi Hannesson fagnar marki í sumar ásamt Páli Gíslasyni þjálfara Þórs og Baldvin Ólafssyni. Öxlin í góðu lagi þarna. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Á þessum árstíma er í tísku að velja lið ársins. Eins og gömlum íþróttafréttamanni sæmir ákvað ég að standa fyrir mínu eigi vali – og það verður að segjast eins og er að valið var býsna auðvelt.    Margir voru vissulega kallaðir en aðeins einn útvalinn að vanda, og að sjálfsögðu héðan að norðan; vinstri axlarliður Jóhanns Helga Hann- essonar, framherjans unga og harð- skeytta fótboltamanns í Þór, er liður ársins í Pepsi-deildinni.    Jóhann Helgi er þekktur fyrir allt annað en að kveinka sér og gef- ast upp en jafnvel mestu harðjaxlar dáðust að honum á laugardaginn þegar sýnt var frá leik Keflavíkur og Þórs á Stöð 2. Hann fór úr axlarlið, í annað skipti á stuttum tíma reyndar, en hafði ekki tíma til að bíða eftir að fagmenn í þessum fræðum hlypu inn á völlinn heldur lagðist í grasið og smellti öxlinni í lið með aðstoð eins Keflvíkingsins.    Dömulegir dekurdagar eru haldnir á Akureyri um helgina. Þetta er orðinn árviss viðburður og ótrúlega margt í boði hér og þar um bæinn fyrir dömur á öllum aldri. Of langt mál yrði að telja það upp, en upplýsingar má finna á vefsíðunni www.visitakureyri.is.    Akureyrsk börn á öllum aldri glöddust í gærmorgun þegar búið var að nudda stírurnar úr augunum. Jörð var alvhít, eins og nánar er greint frá hér ofar á síðunni. Glað- asta barnið sem ég heyrði af er fjög- urra ára stúlka. Bros færðist yfir andlitið og hún kallaði: „Mamma, mamma, það eru komin jól!“ Fyrsti snjór haustsins féll á Akur- eyri og víðar á norðanverðu landinu í fyrrinótt og bæjarbúar vöknuðu við hvíta jörð í gærmorgun. Áður hafði gránað ofan í miðjar hlíðar Vaðlaheiðar og Hlíðarfjalls. Lítils háttar snjókoma var fram eftir degi á Akureyri í gær. Börnin notfærðu sér það út í ystu æsar og bjuggu til snjókarla og snjókerl- ingar víða um bæinn. Færðin var þó sæmileg og akveg- ir auðir að mestu. Viðbúið er að snjórinn hafi stutta viðkomu í bæn- um því hlýna fór í veðri síðdegis í gær og við tók slydda og rigning. Veðurfræðingur á Veðurstofu Ís- lands sagði aðspurður að fyrsti snjórinn kæmi ekki óvenju snemma nyrðra í ár. Hann sagði að útlit væri fyrir minnkandi úrkomu í dag og ró- legaheitaveður á morgun, föstudag. Spáð er norðvestanátt á morgun með lítilsháttar éljum við norð- austurströndina, en hægri breyti- legri átt og skúrum vestanlands. Hitinn verður 1-6 stig á sunnan- verðu landinu en víða vægt frost norðan- og austanlands. Veðurstofan spáir rigningu og 13- 20 m/s sunnan- og vestanlands um morguninn á laugardag en síðan suðvestan 8-13 m/s og skúrum. Útlit er fyrir að það hláni fyrir norðan á laugardag og hitinn á landinu verði þá 6-12 stig síðdegis. Þótt snjór ætti ekki að verða til vandræða í byggð á næstu dögum þurfa ökumenn að vera viðbúnir hálku og snjó á fjallvegum. Á norð- austanverðu og austanverðu landinu og á Vestfjörðum er snjóþekja og hálkublettir nokkuð víða, að sögn Vegagerðarinnar. Þæfingur er á Hólssandi og ófært á Hellisheiði eystri. Syðra og á Suðausturlandi eru vegir greiðfærir. Börnin vöknuðu glöð við hvíta jörð Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kærkominn Börnin notfærðu sér snjókomuna til að búa til snjókarla á skólalóðinni við Oddeyrarskóla. Á myndinni eru, frá vinstri, félagarnir Ólafur Helgi, Ellert Goði, Sæmundur og Henrik. Vaskur Þessi piltur lét snjókomuna á Akureyri ekki á sig fá og hjólaði gal- vaskur í skólann í gærmorgun. Færðin á götum bæjarins var sæmileg. Ungviðið á Akureyri skemmti sér í fyrsta snjó haustsins en það var skammgóð skemmtun Taktu þátt í málefnastarfinu Velkomin á vinnudag í Valhöll á laugardaginn. www.xd.is Fjallað verður um atvinnumál, efnahags- og skattamál og velferðarmál á opnum vinnufundi í Valhöll nk. laugardag, 8. október. » Dagskráin hefst kl. 09:30 með hressandi morgunkaffi » Nefndir starfa frá kl. 10.00 og lýkur dagskránni kl. rúmlega 13.15 » Samantekt formanna málefnanefndanna verður send beint út á xd.is kl. 12.45 Vinnum saman og höfum áhrif á stefnu og framtíðarsýn Sjálfstæðisflokksins. Skráning er óþörf en senda má fyrirspurnir á neðangreind netföng. efnahagsogskattanefnd@xd.is atvinnumalanefnd@xd.is velferdarnefnd@xd.is Sjálfstæðisflokkurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.